Tíminn - 06.09.1950, Qupperneq 1
■ i
Ritstjóri:
Þórarinn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgefandi:
Framsóknarflokkurinn
Skrifstofur i Edduhúsinu
Fréttasímar:
81302 og 81303
Afgreiðslusími 2323
Auglýsingasimi 81300
Prentsmiðjan Edda
i ————
34. árg.
Reykjavík, miðvikudaginn 6. september 1950.
194. blað.
Dönsku flugvélarnar:
Menn af Skaga fundu þær
á Aravatni í gærmorgun
Flngvéiarnar rru í ««ðii vari, og er nú
beðið flu"veðiirs austnr til Akureyrar
Dönsku flugvélarnar frá Ellaey lentu á Aravatni á Skaga,
en ekki á Langavatni, eins og flugmennirnir hugðu sjálfir.
Fundu leitarmenn af Skaga þá á tíunda tímanum i gær-
morgun. Sex menn voru í flugvélunum, eins og Tíminn
skýrði frá í gær, og leið þeim öllum vel. Voru þeir enn á Ara-
vatni i gærkvöldi og biðu flugveðurs til Akureyrar eða á
Miklavatn í Fljótum.
Þótt vélaaflið sé nú víða um lönd mjög notxð við landbúnaðarstörf er hesturinn cnn al-
Lentu um níuleytið.
Tíðindamaður frá Tíman-
um átti í gær tal við Ólaf
Lárusson símstöðvarstjóra á
Höfðakaupstað og Ólaf Páls-
son, bónda í Króksseli, Skaga.
Ólafur Lárusson sagði svo
gengasta dráttaraflið í flestum Evrópulöndum. Danir kunna manna bezt að notfæra sér frá:
hestaflið til landbúnaðarstarfa og finnst það taka vélum fram um margt. Jafnvel þótt
notaðar séu vélsláttuvélar eru oftast hestar fyrir heyvögnunum við hirðinguna. —
Hólssandur ógnar
jöröum í Öxarfirði
Vlfllond s’róðurlönrl þogar koniín I anðn
og' vikuvoðnr oyðir oft stórum spildum
Sandfok og sandágangur hefir síðustu ár ógnað mörgum
jörðum í Öxarfirði. Hafa þegar farið í auðn mjög víðlend
beitilönd, og er nú svo komið, að byggðin er í yfirvofandi
hættu.
Eigendur bjóða fram
lönd sín.
Það er Hólssandur, sem
teygir hramma sína niður í
Öxarfjörðinn, og hefir ágang
ur sandsins sifellt færzt í
aukana síðasta áratug. Fyrir
4—5 árum var þegar sýnt að
hverju stefndi.
Eigendur þeirra jarða, sem
stendur voði af sandihum,
hafa boðið fram það af lönd
um sínum, sem nauðsynlegt
er að friða, ef hefta á sand-
fokið og forða mörgum bæj-
um frá auðn. Þarf um fimm-
tíu kílómetra langa girðingu,
en fé til slíkrar friðunar og
varnarráðstafana hefir ekki
fengizt enn.
Tjónið á Seyðis
firði 623 þús.
Skipuð matsnefnd hefir nú
metið tjónið af völdum
skriðufallanna á Seyðisfirði
um daginn. Er talið, að það
nemi alls um 623 þús. kr. og
eru þó ekki taldar þar með
skemmdir á saltfiski. Mestar
urðu skemmdirnar á eignum
bæjarins og síldarverksmiðj -
unnar auk þeirra einstakl-
inga, er urðu fyrir tjóni.
Margir kílómetrar sum árin.
Sandfokið er svo heiftar-
legt, að í sunnanveðrum er
oft mökkur yfir öllu byggð-
arlagihu, svo að ekki sést
bæja á milli. í slíkum veðr-
um veltur sandurinn svo
fram á einni viku, að stór
miklu munar, og sum ár
liefir sandurinn færzt fram
svo að kílómetrum skiptir.
Segir bændunum i sveit-
inni þungt hugur um sívax-
andi nálægð sandsins.
Kristinn á Núpi
Íátinn
Kristinn Guðlaugsson, fyrr
um bóndi á Núpi í Dýrafirði,
andaðist 4. september, tæpra
82 ára. Hann fæddist i Eyja-
firði, stundaði búfræðinám
á Hólum, en fluttist til Vest-
fjarða og hóf búskap að Núpi
1892. Hann var um langt
skeið formaður Búnaðarsam-
bands Vestfjarða og ötull for
göngumaður á sviði marg-
háttaðra félagsmála þar
vestra og hinn bezti drengur
i hvívetna.
Flugvélarnar munu hafa
lent á Aravatni um níuleytið
á mánudagskvöldið, og þá var
stormur á Skaga, tekið að
skyggja, en ekki mjög dimmt
yfir.
Við í Höfðakaupstað viss-
um ekki, að flugvélar hefðu
lent á Skaga, fyrr en laust
fyrir tvö á þriðjudagsnótt, að
hingað kom bifreið frá
Blönduósi. Var þá þegar sím
að út á Skaga og fólk vakið
upp á bæjum þar, og um þrjú
leytið lögðu af stað tveir leit-
arflokkar, annar frá bæjum á
Nesjum, og þar inn frá, en
hinn héðan úr Höfðakaup
stað.
Fyrst haldið að Langavatni.
f leitarflokknum héðan úr
Höfðakaupstað voru meðal
annarra Ernst Berndsen, Þor
björn Jónsson og Bogi Björns
son, en alls voru átta menn
í þessum flokki. Fóru þeir á
bifreiðum að Hofi á Skaga-
strönd, en þaðan á hestum
til Langavatns, því að þá var
ekki betur vitað, en flugvél-
arnar hefðu lent þar. Þangað
(Framhald á 7. síðu.)
Pálmi Hannesson
lætur vel yfir
dvölinni vestra
Pálmi Hannesson rektor
Menntaskólans í Reykjavík
sagði í blaðaviðtali i
Bandarikjunum, að sér fynd-
ist ameriskar kvikmynd-
ir ekki gefa rétta hugmynd
um Bandaríkjamenn. „Frá
evrópisku sjónarmiði“, bætti
hann við til skýringar, „finnst
mér fclk hér langt um eðli-
legra og mannlegra en kvik-
myndirnat gefa til kynna.
Sagði Pálmi, að fólkið væri
bæði glaðlegt og ijjálpsajnt.
(Framhald á 2. síðu.)
Slysavarnarfél. sýnir
kvikmynd í Austurb.bíó
Sýningin verflur kl. 7 n. k. fimmtmlag, «íí
kostar aðgangnr eina krónu
í Austurbæjarbíó n. k. fimmtudag sýnir Slysavarnafélag
íslands slysavarnamyndir. Sýningin tekur hálfa aðra klukku
stund og verða sýndar fimm myndir: Lífgun úr dauðadái,
umferðareglur, slysahætta í verksmiðjum o. fl. Bæjarbúar
eru hér með hvattir til að sjá þessar myndir og læra af þeim
hvernig beri að forðast slysahættu, í heimahúsum, vinnu-
stöðvum og á götum úti.
Jón Oddgeir Jónsson sýndi
blaðamönnum tvær þessara
mynda, sem Slysavarnafélag-
ið hefir nýlega fengið frá
Svíþjóð og Danmörku.
Sænska myndin sýnir afleið-
ingar og áhrif drykkju áfeng-
is við akstur, en danska mynd
in er af slysförum í verksmiðj
um. Verksmiðjufólk ætti að
sjá þessa mynd, þar sem sams
konar slys ber að varast í
verksmiðjum hér á landi. All
ir atburðir í myndinni eru
sannir og eru þeir teknir úr
skýrslum nokkurra verk-
smiðja.
Myndir þessar verða sýnd-
ar aðeins einu sinni fyrir al-
menning, en verða svo sýndar
í skólum og í verksmiöjum í
vetur.
Fræðslukvikmyndir.
Eins og undanfarna vetur
gengst Slysavarnafélagið fyr
ir námskeiðum í slysavörn-
um. Kvikmyndir verða þó
(Framhald á 7. síðu.)
Mjólkin hækk-
ar um 42 aura
Bændur fái 2,15 fyr-
ir lítrann
Verð á neyzlumjólk hækk-
ar nú um 42 aura hver lítri,
og verður verð á mjólk í lausu
máli 2,57, en flöskumjólk 2,70
lítrinn.
Við útreikning á verðlags-
grundvellinum kom í ljós, að
reksturskostnaður búa hefir
hækkað um 19,3%, en auk
þess hefir orðið hækkun á
rekstrarkostnaði mjólkursam
laga, flutningskostnaði og
dreifingarkostnaði. Nemur
verðhækkun mjólkurinnar 17,
14% miðað við óniðurgreitt
mjólkurverð.
Aðrar mjólkurafurðir
hækka um 17,14%.
Mjólkurverðið er miðað við
það, að bændur beri úr být-
um fyrir störf að búi sínu
samsvarandi kaup og greitt
er samkvæmt samningum
verkamannafélagsins Dags-
brúnar í Reykjavik. Er til
þess ætlast, að bændur fái
2,15 fyrir lítrann.
Þak fýkur af
húsi í Siglufirði
í fyrradag geisaði hvass-
viðri mikið á Siglufirði og í
nærsveitum. Veðrið stóð þó
aðeins nokkrar klukkustund-
ir. — Allmikið tjón varð af
völdum veðursins, þak fauk
af húsi og skemmdi önnur
hús.. Einnig fauk töluvert af
áhöldum við söltunarstöðvar
og tómar síldartunnur fuku.
Vélskipið Sjöfn var statt út
af Siglunesi og missti nót og
nótabát.