Tíminn - 20.09.1950, Page 1

Tíminn - 20.09.1950, Page 1
Skrifstofur i Edduhúsinu Fréttasímar: 81302 og 81303 Afgreiðslusími 2323 Auglýsingasími 81300 Prentsmiðjan Edda S4. árg. Reykjavík, miðvikudaginn 20. september 1950. 206. blað. Áhöfnin á Geysi var enn á jöklinum í gærkvöidi Bandarísk flugvél á skíðum lentí hjá vélinni í gær, en hafði sig ekki til flugs á ný. — Leið- angur Akureyringa kominn langleiðina ogtreyst á hann til bjargar þeim, sem eru á jöklinum Áhöfninni á „Geysi“ varð ekki bjargað af jöklinum í gær, þrátt fyrir tilraun bandarískrar Dakota-flugvélar á skiðum, sem lenti hjá flakinu. Ætlaði hún að fljúga með áhöfnina til Keflavíkur, en tókst ekki að ná flugi af jöklinum aftur í gærkvöldi. Situr hún þar í nótt. Leiðangur Þorsteins Þor- steinssonar frá Akureyri var ekki kominn að „Geysi“ í gær- kvöldi, og óvíst um komutíma hans þangað. í gærkvöldi var honum sent skeyti um að halda um fram allt áfram að flak- inu, þar sem áhöfnin væri þar enn. Er nú treyst á það, að honum takist að bjarga áhöfninni til byggða, ef skíðaflug- vélin getur ekki hafið sig til flugs i dag., Var búist við komu þessara véla til Keflavíkur skömmu merkt svörtum krossi við hvorn enda. Sögðu þeir, að brautin væri 1500 metra löng og jafnfallinn snjór hvergi ' dýpri en hálfur þriðji þuml- ungur á henni. Skíðavélin leggur af stað. Skiðavélin hafði skamma viðdvöl á Keflavíkurvelli, tók aðeins benzín og bjóst síðan til ferðar á ný. Með henni fór eftir hádegið. Komu vélanna einn íslendingur, Sigurður I.eiðangur Akureyringa. - Eins og skýrt var frá í gær. lagði leiðangur á vegum Ferðafélags Akureyrar af stað austur í Mývatnssveit í fyrra- kvöld undir stjórn Þorsteins Þorsteinssonár. Var farið á einni sterkri flutningabifreið og fjórura jeppum. Leiðangur þessi lagði af stað frá Grænavatni klukk- an fjögur í fyrrinótt og ók fram milli Bláfells og Sel- landafjalls og suður sand- ana vestan Öskju. Gekk ferð in allvel og klukkan 13,30 flaug flugvél yfir leiðangurs menn og miðaði stöðuna, sem var þá 64,58 n.br. og 16, 37 v.l. eða á söndunum vest- an Vaðöldu rúma 20 km. frá jökulröndinni. Síðan fréttist ekki nákvæm lega af leiðangrinum, enda ! Safnþró í klaust- I urrústunum aÖ | Helgafelli | Helgi Hjörvar skýrði frá I því í útvarpserindi á sunnu | d.kvöld, að í sumar hefði \ safnþró verið steypt í hin- | um fornu klausturrústum I að Helgafelli í Helgafells- I sveit. Ekki var hirt um að I gera þjóðminjaverði við- I vart um þetta umrót, og | hafði hann engar fréttir \ af því fyrr en nú í haust. I Því miður er slík með- | ferð á fornum minjum hér I á landi ekki eins dæmi, i jafnvel ^ekki nú á hinum | síðustu árum, og ber hún | vott um megnt skeytingar | leysi manna um okkar fá- I tæklegu fornleifar. 5 UIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIimilllllllllll mun hafa verið þokuslæð- ingur við norðurrönd jökuls- ins. Var jafnvel búizt við, að hann mundi ekki leggja á jökulinn fyrr en í birtingu í morgun. AUtaf flogið yfir „Geysi“. Snemma i gærmorgun lögðu flugvélar af stað af Reykjavíkurflugvelli og flugu yfir „Geysi“. Voru síðan flug- vélar ein eða fleiri á sveimi yfir honum í allan gærdag. Heiðskirt veður var á há- jöklinum, en þoka i 1100 m. hæð norðan og vestan við hann. Lagði þennan þokslæð- ing af og til inn yfir hájök- ulinn en birti á milli. Nákvæmari staðarákvörðun. í gær var gerð nákvæmari staðarákvörðun á Geysi en hægt var í fyrrakvöld. Reynd ist hann vera á 64,36,5 n.br. og 17,27 v.l. eða lítið eitt sunn ar og vestar á jöklinum í 17 —1800 metra hæð suðaustur i Bárðarbungu. Vestfirðingur Loftleiða mun fyrstur hafa flogið yfir Geysi í gærmorgun og varpað niður ýmsu til á- hafnarinnar svo sem skíð- um og skíðaútbúnaöi. Björgunarleiðangur frá Grænlandi. Fyrir hádegi í gær frétt- ist, að leiðangur þriggja bandariskra flugvéla væri á leiðinni frá Blue Vvrest-flug- vellinum í Grænlandi og ættu þær að gera tilraun til að bjarga áhöfn Geysis af jöklinum. Flugvélar þess ar voru Dakota-vél búin skíðum til lendingar í snjó, skymasterflugvél með lækn um,' hjúkrunarliði og fall- hlífarmönnum og loks flutn ingaflugvél með helikopter- vél innan borðs, og yrði reynt að nota hana, ef skíðavélin gæti elcki lent. seinkaði þó nokkuð og lenti skíðavélin ekki á vellinum fyrr en klukkan 16,20. Samband við Geysi slitnar. Fyrir hádegi tókst að hafa talsamband við Geysi og var áhöfninni skýrt frá skíðavél- inni. Var áhöfnin beðin að reyna að finna lendingar- braut og jafna hana og merkja eftir mætti. Eftir há- degið dofnaði talsambandið við Geysi mjög, því að mót- tökutæki var bilað og raf- geymar á þrotum. Um klukk- an 16 var nýjum geymum og móttökutæki varpað niður og fékkst úr því talsamband við áhöfnina á ný. Merkt flugbraut. Flugvélar, er voru á sveimi þarna yfir, sáu nú, að Geys- is-menn voru búnir að merkja flugbraut á jöklinum. Var hún Jónsson, yfirmaður flug- vélaeftirlitsins. Bandaríska skymastervélin með fallhlífarmennina og hjúkrunarliðið fór einnig sam tímis skíðavélinni inn yfir jökulinn. Einnig lögðu nokkr ar vélar af stað frá Reykja- vík í sama mund og urðu sam ferða. Þegar inn yfir jökulinn kom voru sex vélar þar auk skíðavélarinnar, þar af tvær bandariskar. Kyndið eld — verið tilbúin. Þegar vélar þessar voru lagðar af stað, var komið skeyti til Geysismanna, þar sem þeir voru beðnir að kynda eld svo að reykur myndaðist og sjá mætti á þvi, hvert hann leggði, hver vindáttin væri. Einnig voru þeir beðnir að vera alveg tilbúnir, því að skíðavélin mundi enga viðdvöl hafa og (Framhald á 7. síðu.) Vantar hetming fóðurs á Héraöi og norðurfjörðum í gær var haldinn að Egilsstöðum á Völlum fundur allra oddvita á Fljótsdalshéraði og á Austfjörðum frá Borgarfirði suður til Fáskrúðsfjarðar. Sátu fund þennan einnig Páll Zóphóníasson búnaðarmálastjóri og Árni G. Eylands fulltrúi, sem nú eru á ferð um óþurrkasvæðin til þess að kynna sér, hvernig þar er ástatt um fóðurbirgðir. Fundir á suðurf jörðunum. í fyrradag og á sunnudag voru þeir Páll Zóphóníasson einnig á sams konar fundum á suðurfjörðunum — í fyrra- dag að Eydölum í Breiðdal 1 og á sunnudaginn í Álftafirði. Munu þeir Pál) og Árni hafa lagt að'mönnum, að reyna að halda við bústofni sínum eft- i ir því sem föng væru á, en að i öðru leyti rætt um, hvað gera má til fóðuröflunar. Egilsstaðafundurinn. EgUsstaðafundinum var ekki lokið í gærlcvöldi um það bil,- er simanum austur var lokaö. Á þessum fundi voru ailir oddvitar af umræddu svæði, nema tveir. Af gögnum þeim, sem safn að hafði verið, þykir sýnt, að á þessu svæði muni í haust vanta um helming fóðurs til þess að framfleyta sama bú- stofni og þar var settur á í fyrrahaust. Einna skárst er ástandið í Fljótsdal, en lak- ast á Jökuldal, yzt á Héraði og á nyrztu fjörðunum. Fóðurbætir eina voirin. Svo langt var þó komið um ræðum, er tíðindamaður Tím ans átti símtal austur, að sýnt var, að menn töldu mikla fóðurbætisöílun einu vonina til þess að koma í veg fyrir stórkostlega bústofnsfækkun, og yrðu þá að gefa bændun- um kost á honum með niður- greiddu verði. Orösending Hér með bið ég Tímann fyrir orðsendingu til gamals vinar og velunnara. Jónas- ar Jónssonar frá Hriflu, um það, að ég sé fyrir löngu hættur að kippa mér upp við venjulegar blaðasvívirð- ingar, hvort sem þær koma frá honum eða öðrum. Hins vegar vil ég ráðleggja honum að vera ekki að taka upp á því á gamals aldri, að ljúga svo glannalega, að það sé leikur að hnekkja því fyr ir dómstólum landsins, ef menn nenntu að fást við það. • En það hefir honum orð- ið á i söguburði sínum um mig í dreifiblaðinu Ófeigi, sem kvað hafa komið út ein hverntima í sumar, og sem sannorðir menn hafa sagt mér frá. 18. septembcr 1950, Bjarni Ásgeirsson, alþingismaður. Ekkert aðkomufé í Dala- og Hrútafjarð- arhólfiiiu Eins og Tíminn skýrði frá fyrir nokkrum vikum komst i sumar lamb af mæðiveiki- svæði inn á fjárskiptasvæðið milli girðinganna úr Hvamms firði í Hrútafirði og úr Gils- firði í Bitrufjörð. Nú hefir verið smalað til fyrstu réttar á þessu svæði, og samkvæmt fregnum, bæði úr Hrútafirði og Dölum, hef- ir ekki orðið vart við fleira fé, er komið hafi inn í girð- inguna. Lamb það, sem komst í girðinguna í sumar, var með sterkum rökum talið ekki hafa verið i henni nema eina nótt, og öllu fé, sem rekið var að með því, var fargað. Engin veikindamerki sáust heldur á lambinu né komu fram við rannsókn, svo að vonandi hef ir ekki verið um neina sýk- ingu að ræða. Húsmæðrakennara- skóli íslands settur Húsmæðrakennaraskóli ís- lands var settur s. 1. föstu- dag í húsakynnum skólans í Háskólanum. Er þetta í 5. sinn, sem skólinn er settur, en skólatíminn er þrjú miss- iri eins og kunnugt er. Ung- frú Helga Sigurðardóttir, j skólastjóri setti skólann. Að j þessu sinni settust 16 stúlkur í skólann og er það fleira en , áður hefir verið. Kennaralið , skóians er óbreytt að öðru 1 leyti en því, að ungírú Stef- 1 anía Árnadóttir, húsmæðra- | kennari frá Hj alteyri tekur I þar við kennslustörfum.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.