Tíminn - 20.09.1950, Qupperneq 7

Tíminn - 20.09.1950, Qupperneq 7
206. blað. TÍiVIINN, miðvikudaginn 20. september 1950. 7. Lögþing Færeyja frá- baö sér heimavarnir Samþ.ykkti að athuga skyldi, hvað kostaði að koma upp lijálparsveitum Færeyska lögþingið hefir nú fjallað um uppástungur um heimavarnir og borgaralegar hjálparsveitir, ef ófrið ber að höndum. Færeyska landstjórnin hafði skrifað þinginu um tilboð, sem Danir höfðu gert, um að senda herfróða menn og hergögn til Færeyja, ef lögþingið féllist á það. Óskuðu ekki heimavarna. Lögþingið samþykkti með atkvæðum allra þingmanna, nema eins, að vísa þessu máli frá, þar sem „lögþingið óskT ar ekki, að ríkislög um heima varnir verði látin gilda i Fær eyjum,“ eins og sagt er í sam- þykkt logþingsins. Borgaraleg hjálparsveit. í öðru lagi var fjallað um borgaralegar hjálparsveitir án vopnabúnaðar, og heimild til þess að kveðja menn til starfa í sveitum, er starfi sem brunalið og hjúkrunarlið og vinni að því að koma skipu- lagi á það, sem dregið get- ur úr hættu og tjóni, ef ó- vinaárás ber að höndum. Þessi tillaga sætti einnig and róðri, og greiddu 9 þingmenn atkvæði með frávísunartil- lögu. Að lokum var samþykkt með 11 atkvæðum. að athuga, hvað stofnun slíkra hjálpar- sveita myndi kosta. „Óvænt heimsókn” frumsýnd á föstnd. Fyrsta frumsýningin í þjóð- ^ leikhúsinu á þessu hausti verð , ur á föstudagskvcldið. Þá verð • ur leikurinn „Óvænt heim-1 sókn‘“ eftir J. B. Priestley sýndur í fyrsta skipti. Styðja upptöku kín- verskrakommúnista Fulltrúi Indlands hefir bor ið fram þá tillögu á allsherj - | arþinginu, að stjórn komm- únista í Kína verði veittur fulltrúaréttur Kína í S.Þ. Bú- izt er við að tillaga þessi verði felld en umræður um hana verði hins vegar miklar og harðar. I Þríveldin leyfa Þýzkalandi stofnun vopnaðrar lögreglu Upphefja styrjaldarástand milli Þýzka- lands og þessara ríkja og mumi telja árás á Vestnr-Þýzkaland árás á sig Utanríkisráðherrar Breta, Bandaríkjanna og Frakklands gáfu út sameiginlega opinbera tilkynningu í gær varðandi Þýzkalandsmálin. Er þar lýst yfir, að þríveldin muni upp frá þessu telja styrjaldarástand það, sem ríkt hefir á milli þeirra og Vestur-Þýzkalands upphafið. Stofna her og lögreglu. Samkvæmt þessu verður vestur-þýzku stjórninni í Bonn leyft að stofna vopn- aða herlögreglu jafnfjöl- menna þeirri, sem er i Aust- ur-Þýzkalandi og einnig verði undirbúin stofnun vest- ur-þýzks hers. Þá lýsa þríveldin því yfir, að þau muni framvegis líta á árás á Berlín og Vestur- Þýzkaland sem árás á sig og snúast til varnar á sama hátt og svo væri. Vesturþýzka stjórnin fær nú enn víðtæk- ara sjálfræði yfir utanríkis- málum og tekur upp stjórn- málasamband við önnur ríki að vild. í lok tilkynningarinnar seg ir, að hervæðing Austur- Þýzkalands sé orsök þess, að þríveldin hafi stigið þetta spor. Köld horð ojí holt- *ir matur sendum öt um allan bæ SlLD & FISKUK 'Útbfeiiil Tíffitrnh Eignizt DVÖL Hjá forlagi DVALAR er nú til lítið eitt af eldri árgöng- um og einstökum heftum, en því miður er DVÖL ekki til samstæð. Það sem til er, er um 150 arkir eða 2400 síður lesmáls. Er hér um að ræða eitthvert stærsta og bezta safn erlendra smásagna, sem til er á íslenzku. Þetta býður DVÖL yður fyr ir kr. 50,00, auk burðargjalds, sent gegn póstkröfu hvert á land sem er. Sendið pantanir i pósthólf 561, Reykjavík. L Ö G U Ð flnpúsning send gegn póstkröfu um allt land. Fínpúsningsgerðin Reykjavík — Sími 6909 AughfAit í Tmaitum Áliöfn Goysis (Framhalcl af 1. slSu.) ekki stöðva hreyflana held- ur leggja þegar til flugs á ný. — Lendingin tekst ágætlega. Skíðavélin sveif stútta stund yfir Geysi en renndi sér síðan niður á hina merktu braut. Tókst lend- ingin vel og án allra skakka falla. Flugvélin lenti klukk- an 18,08. Skjótið ekki hundana. Nokkur stund leið án þess að vélin hæfi sig til flugs á ný en þó var búizt við að það mundi takast. Ætlaði hún að fljúga með áhöfnina til Keflavíkur en þangað átti Vestfirðingur, sem fann Geysi, að sækja hana. Áhöfninni var nú sent skeyti um að skjóta umfram allt ekki hundana, sem í vél- inni eru, þegar hún yfirgæfi hana, því að þeir væru mjög dýrmætir. Skyldu þeir skildir eftir inni í flakinu og settur hjá þeim matur og vatn. Síð- ar yrði gerður út leiðangur til að sækja þá. Skíðavélin situr föst í snjónum. Þegar farið var að reyna að koma skíðavélinni í flugtaks- stöðu á ný, þurfti að snúa henni og færa hana eitthvað til, og sukku skíðin þá svo í snjóinn, að hún sat föst. Var reynt að moka frá henni og þjappa snjónum nokkra metra framan við hana, en svo stuttur tími var 1^1 myrk- urs, að ekki tókst að ljúka því fyrir þann tíma. Flugvél þessi er búin þrýstiloftsrak- ettum auk venjulegra hreyfla, til þess að auka hraðann við flugtak, og var rakettunum eytt. Situr flugvélin því enn á jöklinum og verður áhöfn hennar að gista í henni í nótt. Er hún sögð vel búin til næt- urvistar þar. Snjókoma mesta hættan. í fyrramálið mun vélin reyna að hefja sig til flugs! og er búist við að það takist sæmilega, ef veður helzt ó- breytt. Mesta hættan er sú, i að snjói á jöklinum og hvessi. | Vonir standa þó til sæmilegs veðurs í dag. ' Akureyrarleiðangrinum ■ send talstöð | Búizt var við, að Akureyrar leiðangurinn gæti snúið við norður aftur, ef flugför skíða flugvélarinnar tækist, en þeg ar svo fór, að hún tepptist á jöklinum, var Akureyringum gert aðvart í útvarpi eins og fyrr segir, að halda urnfram allt áfram upp á jökulinn. Yrði síðan reynt að varpa nið ur til þeirra talstöð í dag. Ekki var vitað, hve langt leið angurinn var kominn i gær- kvöldi, og jafnvel búizt við að hann hefði ekki lagt á jök ulinn í gærkvöldi en biði birt unnar við jökulröndina. Á það er hins vegar treyst, að hann komist að Geysi og bjargi áhöfninni til byggða, ef svo illa skyldi takast, að skíðavélin gæti ekki hafið sig til flugs á morgun. Takist hins vegar að bjarga áhöfninni flugleiðina, hefir þess verið óskað að leiðang- ur Akureyringa vinni á björg ! un á hinum dýrmæta farmi vélarinnar. Síld við Eyjjar Framhald af 8. slöu. í Keflavík var Keflvíking ur hæstur með um 130 tunn- ur úr Grindavíkursjó, en þar lögðu Keflavíkurbátar í fyrra kvöld. Afli var annars mis- jafn og ekki nema þessi eini bátur, sem fékk yfir 100 tunn ur. Mest var saltað hjá sölt- unarstöð Margeirs Jónssonar og Björns Péturssonar, um 200 tunnur. Allur síldarafl- inn er saltaður í Keflavík. Akranes. Fjórir Akranesbátar létu reka i Jökuldjúpi í fyrrinótt, og fengu lítinn afla, eða mest um 40 tunnur. Afli var þar öllu betri nóttiná áður og kenndu sjómenn slæmu veðri um hversu aflinn var lítill hjá þeim þar í gær. Bátar hafa mælt síld víðs- vegar vestur um Faxaflóa. Ekki virðist þó um eins mikla síld vera að ræða innar i fló- anum, eins og við Reykjanes- ið utanvert. Á Akranesi var aflahæsti báturinn, sem kom heim í gær með 136 tunnur. Var það Ás- björn, og hafði sá afli veiðst í Grindavíkursjó. Alls komu sex bátar heim til Akraness í gær með samtals um 400 tunnur. Forðizt eldinn og eigoatjón Framleiðum og seljum flestar tegundir handslökkvl tækja. Önnumst endurhleðslu á slökkvitækj um. Leitið upp- lýsinga. Kolsýruhleðslan s.f. Síml 3381 Tryggvagötu 10 Reykjavík Islenzk frímerki Notuð íslenzk frímerkl kaupl ég ávalt hæzta verðl. JÖN AGNARS Frímerkjaverzlun P. O. Box 356 — Reykjavik Nýja fasteignasalan Hafnarstræti 19. Sími 1518. Annast sölu fasteigna, skipa, bifreiða og verðbréfa. Við- talstími kl. 11—12 og 2—5 virka daga nema laugardaga kl. 11—12. AUGLÝSING frá Kaupfélagi Hafnfirðinga um vöruúthlutun til félagsmanna. Vörujöfnun til félagsmanna hefst i dag. Úthlutað verður vefnaðarvöru, gúmmískófatnaði o. fl. Út á hverja einingu fást framangreindar vörur að verðmæti 30 krónur. Vörujöfnuninni lýkur miðvikudaginn 26. september. Afgreiðsla hefst kl. 9 f. h. alla dagana. Ekkert afgreitt frá klukkan 12 til kl. 2. Afgreiðslunúmer vörujöfnunarseðlanna ráða af- greiðsluröð. Byrjað verður á nr. 1 og afgreitt 20 númer á klukkustund, þ. e. 140 númer á dag nema á laugar- daginn, þá 60 númer. — Nánar auglýst í búðum fé- lagsins. — Kaupfélag Hufnfirifinga V<nimmiiBiimiii;umiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiaiimniiiiiiiiiiii:niiii»iiimim«m SÖNGKENNSLA Upplýsingar i síma 4097 kl. 10—12 f. h. næstu daga. Guðimuidur Jónsson Auglýsingasími Tímans cr 81 300 cr 81300. Sölukrakkar óskast til að selja merki Heilsuhælissjóðs og rit N.L.F.Í. í dag. — Góð sölulaun. Afgreiðsla í skrifstofu N.L.F.Í., Laugavegi 22, (gengið inn frá Klapparstíg), simi 6371. Stjórn Náttúrulækningafélags íslands. iattmmmtimmmmniiiimmmmmmmmimiiiiiiiiiiiiiiiiiuinmimji Sonur minn ÓLAFUR GUÐBJÖRN ÓLAFSSON bóndi, Lækjarkoti, Borgarhreppi andaðist á Landakotsspítala 18. þessa mánaðar. Guðbjörg Benjamínsdóttir og vandamenn.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.