Tíminn - 20.10.1950, Blaðsíða 2
2.
TÍMINN, föstudaginn 20. október 1950.
233. blað.
til heiía
^VAVAVA^V.VAV.VW.'A'A'AV.VV.V.V.V.V.WA'.
Guðrún Á. Símonar:
Jtvarpib
Útvarpið í kvöld:
Fastir liðir eins og venjulega.
Kl. 20,30 Útvarpssagan: „Heið-
inn forsöngvari“ -eftir Guðmund
Ha'galín; II. (höfundur les).
21,00 Tónleikar: „Lævirkinn lyft
ir sér til flugs“, fiðluverk eftir
Vaughan Williams (plötur): a)
Lög úr kvikmyndinni „Síðasti
bærinn í dalnum“. b) „Eldur“,
danssýningarlög. 22,00 Fréttir
og veðurfregnir. 22,10 Vinsæl
lög (plötur). 22,30 Dagskrárlok.
Hvar eru skipin?
Sambandsskip:
M.s. Arnarfell er á leið til
Skagastrandar frá Keflavík.
Ms. Hvassafell er í Genúa.
Bíkisskip:
Hekla var á Seyðisfirði í gær
Kveldi á norðurleið. Esja var á
Seyðisfirði í gærkveldi á suður-
ieið. erðubreið er í Reykjavík.
Skjaldbreið var í Flatey á Breiða
firði síðdegis í gær á vesturleið.
Þyrill er á leið frá Norðurland-
inu til Reykjavíkur. Mb. Þor-
steinn fer frá Reykjavík á laug
ardaginn til Vestmannaeyja.
Eimskip:
Brúarfoss fór frá Þórshöfn í
Færeyjum 7. 10., væntanlegur
til Grikklands 19.—20. 10. Detti
foss kom til Hull, 18. 10.,' fer
þaðan 20. 10. til Leith og Reykja
víkur. Fjallfoss fór frá Gauta-
borg 18. 10. til Reykjavíkur. Goða
foss kom til Gautaborgar 16. 10.
frá Kefiavik. Gullfoss er í ICaup
mannahöfn. Lagarfoss kom til
Kauptnannahafnar 18. 10. frá
Gdynia. Selfoss er í Stokkhólmi.
Tröllafoss fór frá Reykjavík 18.
10. til New Foundland og New
York.
Árnað heilla
Hjónaband.
18. október voru gefin saman
í hjónaband af séra Bjarna Jóns
syni ungfrú Erla Blandon og
Einar Hallmundsson húsasmiða
meistari. Heimili ungu hjónanna
verður á Langholtsvegi 172.
Sextugur
varð í gær Guðmundur Alberts
son skólastjóri og oddviti Búða
hrepps í Fáskrúðsfirði.
Messur á morgun
Messur i Elliheimilinu.
Misseraskiptaguðsþjónustur kl
7 í kvöld og annað kvöld. Heim-
ilispresturinn. Messa kl. 10 árd.
á sunnudaginn. Séra Sigurður
M. Pétursson frá Breiðabólstað.
Úr ýmsum áttum
Á bæjarstjórnarfundi
i gær var sú samþykkt gerð,
að skora á fjárhagsráð að veita
þegar nauðsynleg leyfi til inn-
flutnings sements og annarra
efnivara, svo að pípugerð bæj-
arins og gatna- og holræsagerð
geti haldið áfram störfum á
eðlilegar. hátt.
Vörujöfnun KRON.
í dag hefst vörujöfnun hjá
Kron á vefnaðarvöru og gúmmí
skófatnaði. Byrjað verður að af
greiða nr. 3861 og verða afgreidd
30 númer á klukkustund. Þeir
félagsmenn, sem hafa félags-
númerin 3021—3860 og fengu
ekki afgreiðslu í síðustu vöru-
jöfnun eiga þess nú kost í dag
og á morgun.
Fræðslu og skemmtikvöld
Kron er í kvöld í Þórskaffi
uppi og hefst kl. 8,30. Skemmti
Grænil eða brúnn „veiðihatt-
ur“ úr filti fer aldrei út tízku
‘ og fer ætíð vel við klæðskera-
saumaða dragt. Fjöðrin þarf
| ekki endilega að vera fasan-
fjöður, og það er hægt að
festa hana með nælu á bak
við slaufuna, svo að auðvelt
sé að taka hana af, ef bregð-
ur til rigningar.
i
' atriði eru kvikmyndasýning
I (Sjómannalíf Ásgeirs Long),
! fræðsluerindi er Isleifur Högna-
son, framkvæmdastjóri flytur
| og að lokum dans. Aðgöngumið
ar fást í búðum félagsins.
!
Framsóknarvistin
i er í Listamannaskálanum í
kvöld og hefst kl. 8.30. Komið
tímanlega að spilaborðunum og
tryggið ykkur miða í tíma. Guð-
mundur Kr. Guðmundsson
stjórnar vistinni.
Sumarið kveður.
í dag er síðasti sumardagur.
Sumarið hefir verið misgjöfult
á Islandi eins og oft áður og þó
verður það líklega að teljast
fremur naumgjöfult þegar á allt
er litið. Á morgun er fyrsti vetr
ardagur og gormánuður gengur
í garð.
Kveðjutónieikar
með áðstoð Fritz Weisshappels, í Þjóðleikhúsinu, þriðju •*
daginn 24. október 1950, klukkan 9 síðdegis. — «1
Aðgöngumiðar seldir í Bókaverzlun Sigfúsar Ey-
mundssonar og Þjóðleikhúsinu. — ;•
Kveðjutónleikarnir verða ekki endurteknir. *•
.■.■.■.'.■.■.■.■.■.■.■.■.■.■.v.v.v.v.v.’.vvv.v/.v.v.v.v.v.v.vi
1 ■■I
'.V.V
Ljótur leikur.
I gær um klukkan þrjú mátti
sjá tvo drengi að ljótum leik í
krikanum við tjörnina, þar
sem K.R.-húsið var áður fyrr.
Voru þeir með seglgarnsspotta
og höfðu það sér til ánægju að
snara lifandi dúfur, er þárna
halda til og eru orðnar gæfar
og vanar umgengni manna,
enda munu fáir verða til þess
að styggja þær.
Drengjunum tókst að snara
dúfur og handsama þær. Fóru
þeir illa með fuglana með þess
um Ijóta leik og svöruðu hvat-
víslega er á þá var yrt, að þeir
ætluðu með þessu „að ná sér
í dúfur“ eins og þeir orðuðu
það. „Strákar eru alltaf að
húkka dúfur hérna“, bættu
þeir við, eins og til að afsaka
sjálfa sig fyrir þeim vegfarend
um er stönzuðu til að athuga
hvað þarna væri um að vera.
Mörgum var við þetta tæki-
færi spurn: Hvar er lögreglan.
Skiptir hún sér ekki af velferð
og friðhelgi fuglanna á tjörn-
inni, þegar óvandir prakkarar
sækja að þeim.
Bréfaskóli S.I.S.
NAMSGREINAR:
íslenzk réttritun, enska, danska esperantó, skipulag
og starfshættir samvinnufélaga, fundarstjórn og fund
arreglur, siglingafræði, mótorfræði, búreikningar, bók-
færsla í tveimur flokkum, reikningur, algebra.
Bréfaskólinn gefur yður kost á námi jafnframt starfi
yðar. Ungir sem gamlir, hvar sem þeir eru búsettir á
landinu, geta með námi i bréfaskólanum notið tilsagna
hinna færustu kennara.
Brófaskóli S. f. S. £
Reykjavík •»
V.V.V.V.VAV/AV.W.V.V.V.VAWWAVÓ
iV.V.V.V.
.v.v:
ornum uegi
Heimiir á heljarþröm
Það er merkileg bók, sem á
erindi til allra hugsandi manna,
er Hákon Bjarnason skógrækt-
arstjóri hefir þýtt samkvæmt til
mæium stjórnar Landgræðslu-
sjóðs. Heimur á heljarþröm heit
ir hún. Nú er það ekki venja að
ræða um bækur í þessum pistl-
| um. En ég ætla aó bregða út af
j þvi að þessu sinni og birta hér
lítinn og lærdómsríkan kafla úr
bókinni. Hann er um sam'oandið
milli jarðvegiins og þrifa grip-
anna:
„Veðhlaupahestar frá einu
etærsta kynbótabúi Bandarikj-
anna höfðu um tugi ára oftast
verið langfljótastir allra hesta
á amerískum hlaupabrautum.
ðfkvæmi hinna vel kynjuðu
hesta höfðu um langan aldur
verið óvenju þolin og spretthörð.
j Þau voru flest alin upp á stóru
búi á hinum ágætu gresjum
Xentuccky. Árið 1933 fór að
! ilraga úr flýti hestanna. . . . Með
hverju ári fjölgaði ósigrunum,
j>rátt fyrir að um sextíu hestar
voru rtöðugt þrautæfðir og
reyndir. Og nú fór að bera á
öðru, sem verra var — ýmist
j héldu hryssurnar ekki eða þær
í köstuðu vansköpuðum og dauð
j um folöldum. Árið 1941 var á-
standið orðið þannig, að undan
sextíu hryssum kom enginn hest
ur, sem vann hlaup . . . Þeir,
sem vit þóttust hafa á þessu,
sögðu eigandanum, að hið „fína“
blóð í hestunum og hryssun-
um væri farið að bynnast . . .
Hann átti erfitt með að leggja
trúnað á slíkt. Bústjóri hans
hafði verið í búnaöarskóla og
fengið nasasjón af jarðvegs-
STÖLKA
óskast á skrifstofu nú þegar þarf að kunna bókhald ;■
og vélritun, hraðritun æskileg. Tilboð sendist blaðinu .•
með upplýsingum og meðmælum, ef fyrir hendi eru -•
fræði. Dag nokkurn kom hann
að máli við húsbónda sinn og
sagði, að sér hefði komið í hug,
að vandræði þeirra mætti ef til
vill rekja til jarðvegsins. Hann
hafði grun um, að hin mikla
og langæja hrossabeit, ásamt
hófatraðki, hefði spillt beiti-
landinu. Þá voru til kvaddir
menn, sem höfðu þekkingu á
jarðvegi og efnafræði, og þeir
komust að raun um, að jarð-
vegurinn hafði smátt og smátt
misst hin upphaflegu gæði sín.
Efnagreiningar sýndu, að jarð-
veginn skorti ýmislegt af stein-
efnum þeim, sem annars ein-
kenna þessa jarðvegstegund og
taldar eru auka kosti hennar.
Ennfremur virtust allir ána-
maðkar horfnir af landareign-
inni. Nú var ráðizt í meiri hátt-
ar jarðvegsbætur. Borið var á
landið, grængresi plægt niður
og nautgripir látnir á það, á-
samt hrossum. Og loks voru ána
maðkar fluttir á landið. Innan
tveggja ára komu afleiðingarn-
ar í ljós á veðhlaupahestum, og
samfara því gekk uppeldið bet-
ur á ný . . . Brá svo við, að 1946
var búið orðið hið þriðja að vinn
ingatölu á öllum hlaupabraut-
um Bandaríkjanna, og uppeldið
var þá komið í samt lag og áð
ur.“
Svona er sagan. Skyldu hlið-
stæðar sögur ekki hafa gerzt
á íslenzkum beitilöndum?
En þetta er aðeins lítill kafli
úr þessari merkilegu bók, er
varpar svo skýru ljósi yfir mikil
vandamál, og er jafnframt sér-
staklega skemmtileg aflestrar.
J. H.
É ____________j:
fyrir 21. þ. m. merkt ,,Skrifstofustarf“.
W.V.WAV.V.V.VAV.'.V.V.V.V.V.'.W.VAV.V.V.V.W
Uppboð
£ Opinbert uppboð verður haldið í portinu á milli Arn- £
arhólstúns og Sænsk-íslenzka frystihússins, laugardag- ^
inn 21. þ. m. kl. 2 e. h. og verða þar seldir eftirtaldir í;
munir: Borð, bekkir, skúffur, skápar, (margt úr góð- £
í; viði), möstur, bómur, davíðar, olíugeymar, 18. ha. List- í
\ er-ljósavél, mælaborð, áttavitar, blakkir, vírar o. m. fl.,
ennfremur rúm, dínur, þvottaborð, skrifborð, gluggar £
£ með rúðum o. m. fl.
;; Greiðsla fari fram við hamarshögg.
J* BORGARFÓGETINN í REYKJAVÍK. «;
ÍVAV.VAV.WW.W.'.V.V.V.VWAV.V.VV.WAWAAV
'.■.WAV.V.V.V.V.V.«.V.V.V.V.V.".V.V.V.V.V.«.V.V.W.;
Hugheilar þakkir til allra þeirra, sem heiðruðu okkur £
£ með símskeytum, blómum og gjöfum á nýafstöðnu af- í;
£ mæli okkar. — Guð blessi ykkur öll. jjj
:; Marja og Sveinn Björnsson. «:
W.V.,.V.V.V.W.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.«.V.«.,.W//A,J
Auglýsingasími Tímans 81300