Tíminn - 20.10.1950, Qupperneq 2

Tíminn - 20.10.1950, Qupperneq 2
2. TÍMINN, föstudaginn 20. október 1950. 233. blað. til heiía ^VAVAVA^V.VAV.VW.'A'A'AV.VV.V.V.V.V.WA'. Guðrún Á. Símonar: Jtvarpib Útvarpið í kvöld: Fastir liðir eins og venjulega. Kl. 20,30 Útvarpssagan: „Heið- inn forsöngvari“ -eftir Guðmund Ha'galín; II. (höfundur les). 21,00 Tónleikar: „Lævirkinn lyft ir sér til flugs“, fiðluverk eftir Vaughan Williams (plötur): a) Lög úr kvikmyndinni „Síðasti bærinn í dalnum“. b) „Eldur“, danssýningarlög. 22,00 Fréttir og veðurfregnir. 22,10 Vinsæl lög (plötur). 22,30 Dagskrárlok. Hvar eru skipin? Sambandsskip: M.s. Arnarfell er á leið til Skagastrandar frá Keflavík. Ms. Hvassafell er í Genúa. Bíkisskip: Hekla var á Seyðisfirði í gær Kveldi á norðurleið. Esja var á Seyðisfirði í gærkveldi á suður- ieið. erðubreið er í Reykjavík. Skjaldbreið var í Flatey á Breiða firði síðdegis í gær á vesturleið. Þyrill er á leið frá Norðurland- inu til Reykjavíkur. Mb. Þor- steinn fer frá Reykjavík á laug ardaginn til Vestmannaeyja. Eimskip: Brúarfoss fór frá Þórshöfn í Færeyjum 7. 10., væntanlegur til Grikklands 19.—20. 10. Detti foss kom til Hull, 18. 10.,' fer þaðan 20. 10. til Leith og Reykja víkur. Fjallfoss fór frá Gauta- borg 18. 10. til Reykjavíkur. Goða foss kom til Gautaborgar 16. 10. frá Kefiavik. Gullfoss er í ICaup mannahöfn. Lagarfoss kom til Kauptnannahafnar 18. 10. frá Gdynia. Selfoss er í Stokkhólmi. Tröllafoss fór frá Reykjavík 18. 10. til New Foundland og New York. Árnað heilla Hjónaband. 18. október voru gefin saman í hjónaband af séra Bjarna Jóns syni ungfrú Erla Blandon og Einar Hallmundsson húsasmiða meistari. Heimili ungu hjónanna verður á Langholtsvegi 172. Sextugur varð í gær Guðmundur Alberts son skólastjóri og oddviti Búða hrepps í Fáskrúðsfirði. Messur á morgun Messur i Elliheimilinu. Misseraskiptaguðsþjónustur kl 7 í kvöld og annað kvöld. Heim- ilispresturinn. Messa kl. 10 árd. á sunnudaginn. Séra Sigurður M. Pétursson frá Breiðabólstað. Úr ýmsum áttum Á bæjarstjórnarfundi i gær var sú samþykkt gerð, að skora á fjárhagsráð að veita þegar nauðsynleg leyfi til inn- flutnings sements og annarra efnivara, svo að pípugerð bæj- arins og gatna- og holræsagerð geti haldið áfram störfum á eðlilegar. hátt. Vörujöfnun KRON. í dag hefst vörujöfnun hjá Kron á vefnaðarvöru og gúmmí skófatnaði. Byrjað verður að af greiða nr. 3861 og verða afgreidd 30 númer á klukkustund. Þeir félagsmenn, sem hafa félags- númerin 3021—3860 og fengu ekki afgreiðslu í síðustu vöru- jöfnun eiga þess nú kost í dag og á morgun. Fræðslu og skemmtikvöld Kron er í kvöld í Þórskaffi uppi og hefst kl. 8,30. Skemmti Grænil eða brúnn „veiðihatt- ur“ úr filti fer aldrei út tízku ‘ og fer ætíð vel við klæðskera- saumaða dragt. Fjöðrin þarf | ekki endilega að vera fasan- fjöður, og það er hægt að festa hana með nælu á bak við slaufuna, svo að auðvelt sé að taka hana af, ef bregð- ur til rigningar. i ' atriði eru kvikmyndasýning I (Sjómannalíf Ásgeirs Long), ! fræðsluerindi er Isleifur Högna- son, framkvæmdastjóri flytur | og að lokum dans. Aðgöngumið ar fást í búðum félagsins. ! Framsóknarvistin i er í Listamannaskálanum í kvöld og hefst kl. 8.30. Komið tímanlega að spilaborðunum og tryggið ykkur miða í tíma. Guð- mundur Kr. Guðmundsson stjórnar vistinni. Sumarið kveður. í dag er síðasti sumardagur. Sumarið hefir verið misgjöfult á Islandi eins og oft áður og þó verður það líklega að teljast fremur naumgjöfult þegar á allt er litið. Á morgun er fyrsti vetr ardagur og gormánuður gengur í garð. Kveðjutónieikar með áðstoð Fritz Weisshappels, í Þjóðleikhúsinu, þriðju •* daginn 24. október 1950, klukkan 9 síðdegis. — «1 Aðgöngumiðar seldir í Bókaverzlun Sigfúsar Ey- mundssonar og Þjóðleikhúsinu. — ;• Kveðjutónleikarnir verða ekki endurteknir. *• .■.■.■.'.■.■.■.■.■.■.■.■.■.■.v.v.v.v.v.’.vvv.v/.v.v.v.v.v.v.vi 1 ■■I '.V.V Ljótur leikur. I gær um klukkan þrjú mátti sjá tvo drengi að ljótum leik í krikanum við tjörnina, þar sem K.R.-húsið var áður fyrr. Voru þeir með seglgarnsspotta og höfðu það sér til ánægju að snara lifandi dúfur, er þárna halda til og eru orðnar gæfar og vanar umgengni manna, enda munu fáir verða til þess að styggja þær. Drengjunum tókst að snara dúfur og handsama þær. Fóru þeir illa með fuglana með þess um Ijóta leik og svöruðu hvat- víslega er á þá var yrt, að þeir ætluðu með þessu „að ná sér í dúfur“ eins og þeir orðuðu það. „Strákar eru alltaf að húkka dúfur hérna“, bættu þeir við, eins og til að afsaka sjálfa sig fyrir þeim vegfarend um er stönzuðu til að athuga hvað þarna væri um að vera. Mörgum var við þetta tæki- færi spurn: Hvar er lögreglan. Skiptir hún sér ekki af velferð og friðhelgi fuglanna á tjörn- inni, þegar óvandir prakkarar sækja að þeim. Bréfaskóli S.I.S. NAMSGREINAR: íslenzk réttritun, enska, danska esperantó, skipulag og starfshættir samvinnufélaga, fundarstjórn og fund arreglur, siglingafræði, mótorfræði, búreikningar, bók- færsla í tveimur flokkum, reikningur, algebra. Bréfaskólinn gefur yður kost á námi jafnframt starfi yðar. Ungir sem gamlir, hvar sem þeir eru búsettir á landinu, geta með námi i bréfaskólanum notið tilsagna hinna færustu kennara. Brófaskóli S. f. S. £ Reykjavík •» V.V.V.V.VAV/AV.W.V.V.V.VAWWAVÓ iV.V.V.V. .v.v: ornum uegi Heimiir á heljarþröm Það er merkileg bók, sem á erindi til allra hugsandi manna, er Hákon Bjarnason skógrækt- arstjóri hefir þýtt samkvæmt til mæium stjórnar Landgræðslu- sjóðs. Heimur á heljarþröm heit ir hún. Nú er það ekki venja að ræða um bækur í þessum pistl- | um. En ég ætla aó bregða út af j þvi að þessu sinni og birta hér lítinn og lærdómsríkan kafla úr bókinni. Hann er um sam'oandið milli jarðvegiins og þrifa grip- anna: „Veðhlaupahestar frá einu etærsta kynbótabúi Bandarikj- anna höfðu um tugi ára oftast verið langfljótastir allra hesta á amerískum hlaupabrautum. ðfkvæmi hinna vel kynjuðu hesta höfðu um langan aldur verið óvenju þolin og spretthörð. j Þau voru flest alin upp á stóru búi á hinum ágætu gresjum Xentuccky. Árið 1933 fór að ! ilraga úr flýti hestanna. . . . Með hverju ári fjölgaði ósigrunum, j>rátt fyrir að um sextíu hestar voru rtöðugt þrautæfðir og reyndir. Og nú fór að bera á öðru, sem verra var — ýmist j héldu hryssurnar ekki eða þær í köstuðu vansköpuðum og dauð j um folöldum. Árið 1941 var á- standið orðið þannig, að undan sextíu hryssum kom enginn hest ur, sem vann hlaup . . . Þeir, sem vit þóttust hafa á þessu, sögðu eigandanum, að hið „fína“ blóð í hestunum og hryssun- um væri farið að bynnast . . . Hann átti erfitt með að leggja trúnað á slíkt. Bústjóri hans hafði verið í búnaöarskóla og fengið nasasjón af jarðvegs- STÖLKA óskast á skrifstofu nú þegar þarf að kunna bókhald ;■ og vélritun, hraðritun æskileg. Tilboð sendist blaðinu .• með upplýsingum og meðmælum, ef fyrir hendi eru -• fræði. Dag nokkurn kom hann að máli við húsbónda sinn og sagði, að sér hefði komið í hug, að vandræði þeirra mætti ef til vill rekja til jarðvegsins. Hann hafði grun um, að hin mikla og langæja hrossabeit, ásamt hófatraðki, hefði spillt beiti- landinu. Þá voru til kvaddir menn, sem höfðu þekkingu á jarðvegi og efnafræði, og þeir komust að raun um, að jarð- vegurinn hafði smátt og smátt misst hin upphaflegu gæði sín. Efnagreiningar sýndu, að jarð- veginn skorti ýmislegt af stein- efnum þeim, sem annars ein- kenna þessa jarðvegstegund og taldar eru auka kosti hennar. Ennfremur virtust allir ána- maðkar horfnir af landareign- inni. Nú var ráðizt í meiri hátt- ar jarðvegsbætur. Borið var á landið, grængresi plægt niður og nautgripir látnir á það, á- samt hrossum. Og loks voru ána maðkar fluttir á landið. Innan tveggja ára komu afleiðingarn- ar í ljós á veðhlaupahestum, og samfara því gekk uppeldið bet- ur á ný . . . Brá svo við, að 1946 var búið orðið hið þriðja að vinn ingatölu á öllum hlaupabraut- um Bandaríkjanna, og uppeldið var þá komið í samt lag og áð ur.“ Svona er sagan. Skyldu hlið- stæðar sögur ekki hafa gerzt á íslenzkum beitilöndum? En þetta er aðeins lítill kafli úr þessari merkilegu bók, er varpar svo skýru ljósi yfir mikil vandamál, og er jafnframt sér- staklega skemmtileg aflestrar. J. H. É ____________j: fyrir 21. þ. m. merkt ,,Skrifstofustarf“. W.V.WAV.V.V.VAV.'.V.V.V.V.V.'.W.VAV.V.V.V.W Uppboð £ Opinbert uppboð verður haldið í portinu á milli Arn- £ arhólstúns og Sænsk-íslenzka frystihússins, laugardag- ^ inn 21. þ. m. kl. 2 e. h. og verða þar seldir eftirtaldir í; munir: Borð, bekkir, skúffur, skápar, (margt úr góð- £ í; viði), möstur, bómur, davíðar, olíugeymar, 18. ha. List- í \ er-ljósavél, mælaborð, áttavitar, blakkir, vírar o. m. fl., ennfremur rúm, dínur, þvottaborð, skrifborð, gluggar £ £ með rúðum o. m. fl. ;; Greiðsla fari fram við hamarshögg. J* BORGARFÓGETINN í REYKJAVÍK. «; ÍVAV.VAV.WW.W.'.V.V.V.VWAV.V.VV.WAWAAV '.■.WAV.V.V.V.V.V.«.V.V.V.V.V.".V.V.V.V.V.«.V.V.W.; Hugheilar þakkir til allra þeirra, sem heiðruðu okkur £ £ með símskeytum, blómum og gjöfum á nýafstöðnu af- í; £ mæli okkar. — Guð blessi ykkur öll. jjj :; Marja og Sveinn Björnsson. «: W.V.,.V.V.V.W.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.«.V.«.,.W//A,J Auglýsingasími Tímans 81300

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.