Tíminn - 20.10.1950, Blaðsíða 8
„ERLEiVI YFIRLIT« t DAG:
Austur-þfizku kosningarnar
34. árg.
Reykjavík
„4 FÖRAUm VEGI“ t DAG:
Himur á heljarþröm
20. október 1950.
233. blaff.
Gólfrenningar framleidtíir
úr notuðum fiskilínum
Til framleiðslunnar eieiu'öiig'u notaöar vél-
ar fundnar upii og smíðaðnr liér á lantli
í gömlum herskálum á horni Sltúlagötu og Barónsstígs
hefir gólfteppagerðin bækistöð sína. Þar eru gólfteppi bæj-
armanna hreinsuff og þar eru framleiádir fallegir og traust-
ir gólfrenningar úr notuffum fiskilínum. Eigandi Gólfteppa-
gerðarinnar, Hans Kristjánsson, bauð frétíamönnum að 3íta
á síarfsemina í gær. —
Gólfteppagerðin hóf .starf-
semi sína í október 1945, og
er því fimm ára. Starfsemin
hefir vaxið mjög og tekið
miklum breytingum síðustu
árin, og nýlega hefir hún haf-
íð framleiðslu, sem telja má
til nýjunga hér á landi og hin
mesta búbót er að. Er það
framleiðsla gólfrenninga úr
notuðum fiskilinum. Er hér
breytt í nytsama og nauðsyn-
lega vöru úrgangsefni, sem
áður var fleygt eða brennt.
Er starfsemin nú í þremur
aðalþáttum: Gólfteppagerð
úr dreglum, gólfteppahreins-
un og framleiðsla gólfrenn-
inga. —
Gólfteppahreinsunin.
Gólfteppahreinsunin var áð
ur tafsöm og erfið vegna
slæmra og óhentugra véla, en
nú hefir fyrirtækið fengið full
komnar vélar, sem hreinsa
teppin mjög vel á stuttum
tíma. Tekur hreinsunin nú að
eins 2—3 daga.
Dreglaframleiðslan.
Eigendum gólfteppagerðar-
innar var frá stofnun fyrir-
tækisins umhugað um að
reyna að beina framleiðsl-
unni inn á einhver þau svið,
þar sem hægt væri að nota
efnivörur, er til falli í land-
inu sjálfu. Eftir mikil heila-
brot og margskonar tilraunir
varð það úr, að hafin var fram
leiðsla á gólfdreglum. og efni
varan var fiskilína, sem sjó-
menn treystu sér ekki til að
nota lengur, en ýmist köst-
uðu í sjóinn eða brenndu.
Sökum styrkleika línunnar
reyndist hún mjög hentug til
gólfdreglaframleiðslu.
Erfitt að framkvæma
hugmyndina.
Það reyndist miklum erf-
(Framhald á 7. síðu.)
á-Kína ræít í
franska þinginu
Franska þingið ræddi í gær
hið alvarlega ástand í Indó-
Kína. Pleven forsætisráöherra
flutti ýtarlega skýrslu um
málið og kvað frönsku stjórn
ina staðráðna í því að berj-
ast 11 hins ýtrasta og þoka
ekki um set þótt illa horfði í
bili. Ilann sagði að fjölmenn-
ar hersveitir væru nú æfð-
ar innan kínversku landa-
mæranna og sendar uppreisn
armönnum til aðstoðar. Nytu
þeir bæði beinnar og óbeinn-
ar aðstoðar kínversku komm-
únistastjórnarinnar. Ýmsir
þingmenn gagnrýndu stefnu
stjórnarinnar í þessum mál-
um og kváðu hana skorta
festu og öryggi. —
Þær hertu upp
hugann
Sigríður Eiríksdóttir bar
fram á bæjarstjómarfundi í
gær þá tillögu, að hjúkrunar-
konu yrði bætt við í nefnd þá,
sem skipuð hefir verið til þess
að gera tillögur um ráðstafan
ir til loftvarna. En sú nefnd
er skipuð að frumkvæði Þórð-
ar Björnssona*, sem flutti til-
lögu um þetta á bæjarstjórn-
arfundi fyrir nokkru.
Sigríður benti á, að æski-
legt væri, að kona tæki sæti
í slíkri nefnd. þar sem senni-
lega yrði meðal annars fjallað
um brottflutning barna, ef til
ófriðarátaka kæmi, og væri
eðlilegt, að það væri hjúkrun-
arkona, meðal annars með til
liti til þess, að hjúkrunarfólk
myndi koma mjög við sögu og
eiga mikið á hættu, ef til ein
hvers kæmi.
Þessi sjálfsagða tillaga Sig-
ríðar Eiriksdóttur var felld
með atkvæðum allra Sjálf-
stæðisfulltrúanna. Varð for-
seti þó að tvítaka atkvæða-
greiðsluna, áður en konurnar
í hópi Sjálfstæðisfulltrúanna
hertu upp hugann og réttu
upp hendurnar gegn þvi að
kona tæki sæti í þessari
nefnd.
Pyongyang á valdi hers
S.Þ. í gærkveldi
Skipulagslans flótli norðnrhersiiis suhur
vestur á liógiim eftir uiikið afhroð
í gærmorgun hófu hersveitir S.Þ. úr suffri og vestri aðal-
árás sína á Pyongyang. Voru allharðir bardagar fram eftir
degi, en í gærkvöldi mátti heita, að öll borgin væri á valdi
suðurhersins og vörn norðurhersins á flótta eða í molum.
54 nemendur í tón-
listarskólanum á
ísafirði
Á aðalfundi Tónlistarfé-
lags ísafjarðar var samþykkt
að reka tónlistarskólann sem
sjálfstæða stofnun á vegum
iélagsins frá og með nýbyrj-
uðu skólaári. Voru þrír menn
Kosnir í skólanefnd — séra
Óli Ketilsson, sem er formað-
ur hennar, Jón Jónsson frá
Hvanná og Jóhann G. Ólafs-
son. Skólastjóri tónlistarskól-
ans er nú sem áður, Ragnar
| H. Ragnar, en aðrir kennar-
ar Elisahet Kristjánsdóttir,
Jónas Tómasson og Harry
f Herlufsen. Nemendur skólans
eru 54 í vetur. Flest:r þeirra
eru frá ísafirði, en þó hafa j
einnig sótt hann nemendur
j úr Strandasýslu og hér og þar j
af Vestfjörðum. Er tónlistar-
skólinn myndarlegt átak til
eflingar tónmennt á Vest-
Sir Stafford Cripps
lætur af störfum
Það var tilkynnt í Bretlandi
í gær, að sir Stafford Cripps,
fjármálaráðherra Breta hefði
beðizt lausnar frá störfum
fjármálaráðherra og sagt af
sér þingmennsku. Ritaði hann
Attlee forsætisráðherra bréf
um þetta og kvaðst neyðast
til að stíga þetta spor að ein-
dreginni ráðleggingu lækna
sinna, sem segðu, að hann
væri heilsubilaður vegna
þreytu, áreynslu og mikilla
starfa. Mundi hann þurfa al-
gera hvíld í tvö ár, áður en
hann gæti gert sér vonir um
að takast á hendur opinber
störf á ný. Hann kvaðst vera
samþykkur brezku stjórninni
og verkamannaflokknum í
stjórnarstefnu hans og vona
að brezka þjóðin nyti slíkrar
stjórnar sem lengst. Kvaðst
hann veita verkamannastjórn
inni stuðning sinn af alhug.
Attlee forsætisráðherra
svaraði beiðninni og kvaðst
neyðast til að verða við beiðn
inni, þar sem orsökin væri
heilsubrestur, en hann sagði,
að þetta væri mesti hnekkir,
sem brezka stjórnin hefði beð
ið í sinni forsætisráðherra-
tíð. Sir Cripps hefði í raun-
inni borið hita og þunga dags
ins við hinar erfiðu fjárhags-
ráðstafanir, sem brezka stjórn
in hefði orðið að gera og hon
um væri það fyrst og fremst
að þakka, að þær hefðu náð
tilgangi sinum og Bretar væru
á öruggri leið í þessum efnum.
Búizt er við að Gateskill
efnahagsmálaráðherra taki
við embætti fjármálaráðherra
eftir Cripps.
Það voru bandarískar og
suðurkóreanskar hersveitir,
sem hófu árásina á úthverfi
borgarinnar sunnan Taedong
árinnar, sem fellur gegnum
borgina. Aðalborgin er þó
noröan árinnar.
Komust yfir ána.
Bardagar nrðu allharðir og
reyndi norðurherinn að tefja
framsóknina eftir mætti, en
auðséð var að hann var van-
búinn. Varð hann brátt að
hörfa norður yfir ána og voru
þó margir fangar teknir sunn
an hennar. Reyndi norðurher
inn að sprengja allar brýr
yfir ána að baki sér en varð
svo síðbúinn, að suðurherinn
kom allmiklu liði yfir ána áð-
ur. —
Skömmu eftir fyrstu árás-
ina komu hersveitir að borg-
inni úr suðvestri og komust
þar yfir ána og inn í aðal-
borgina. Stóðu götubardag-
ar fram eftir degi, en í gær-
kvöldi voru allar helztu stöðv
ar og byggingar í aðalborginni
á valdi suðurhersins.
Skipulagslaus flótti.
Suðurherinn tók í borginni
og nágrenni hennar um fimm
þúsund fanga í gær. Leifar
hersins héldu á skipulagslaus
um flótta vestur og norður úr
borginni, en flugvélar SÞ.
héldu uppi stöðugum árásum.
Suður-Kóreumenn
sækja að úr austri.
Hersveitir Suður-Kóreu-
manna, sem sótt hafa að borg
inni frá austurströndinni
voru komnar til járnbrautar-
bæjarins Hwadongni um 15
km. austur af borginni í gær-
kvöldi og mætti þar lítilli mót
spyrnu. Töfðust þær mjög
vegna þess, að þær mættu þar
flóttaher úr borginni í dag og
reyndu að loka leiðum hans.
,Týrólska dýriðf
handsamað
„Tyrólska dýrið., eða ..Hvíti
górillann", eins og ítölsk og
austurrisk blöð hafa kallað
Guido Zingerle morðingjann
og kynferðisglæpamanninn,
hefir nú náðst. ítalska lögregl
an hefir leitað hans lengi, og
fyrir nokkru síðari tókst fjór-
um lögreglumönnum, sem
leitað höfðu hans lengi í fjöll
unum klæddir sem veiðimenn,
að hafa hendur í hári hans.
Zingerle hefir nú játað að
hafa myrt brezku kennslu-
konuna Helen Munro, sem var
á ferðalagi í fjöllunum í sum
ar og fannst þar myrt. Hann
sagðist hafa hitt hana og boð
ið henni til hellis nokkurs,
sem hann gisti stundum í, en
þegar hún vildi ekki þekkj-
ast boðið fór hann að skatt-
yrðast við hana um stjórn-
mál, því að hann var nazisti.
Tók hann hana síðan
(Framhald á 7. síðu.)
iVSerkjasala Barnaverndarfél.
Reykjavíkur fyrsta vetrardag
fjörðum.
Á aðalfundinum var einn-
ig samþykkt að stofna sjóð til;
minningar um Halldór Hall- j
dórsson, fyrrverandi formann J
félagsins, er lézt snemrrra á
(Framhald á 7. sið'iJ
Barnaverndarfélag Reykja-
víkur efnir til merkjasölu á
morgun, laugardaginn fyrsta
vetrardag, til ágóða fyrir
starfsemi sína.
Barnaverndarfélag Reykja-
víkur er ungt, aðeins ársgam
alt. — Höfuðmarkmið þess er
auk almennrar barnaverndar
cr eins og kunnugt er að
vinna að verndun og uppeidi
vangæfra barna og hjálpa
börnum og unglingum, sem
framið hafa lögbrot eða eru
á annan hátt á glapstigum.
Er þar mikið verk að vinna
og harla aðkallandi.
Auk merkjasölunnar gefa
öll bíóin i bænum ágóðann af
barnasýningum sínum kl. 3
fyrsta vetrardag félaginu til
styrktar. Á laugardagskvöld-
ið verður skemmtun i Lista-
mannaskálanum á vegum fé-
lagsins.
Merkjasalan hefst þegar á
laugardagsmorguninn og
verða merkin afgreidd til
sölubarna í Listamannaskál-
anum allan daginn frá kl. 9
um morguninn. Félagið vænt
ir þess, aö foreldrar leyfi og
hvetji börn sín til að' taka
merki félagsins til sölu og
greiði á þann veg götu fé-
lagsins.
Uppskipun stöðvuð
í Gautaborg vegna
Kóloradó-bjöllunnar
Kólóradó-bjallan hefir
valdið miklu uppþoti í Gauta-
borg. Bjöllunnar hefir ekki
orðið vart í Svíþjóð síðan
1876 fyrr en nú, að hún fannst
í vörufarmi í skipi, sem kom
til Gautaborgar frá Antwerp-
en. —
Uppskipunin var stöðvuð,
er bjöllunnar varð vart, og
bannað að taka nokkurn
snefil úr beim pakkhúsum,
sem vörur úr skipinu höfðu
verið látnar í. Sérfræðingar
| voru kvaddir á vettvang til
j þess að rannsaka bjöllurnar,
i sem fundust, og mjög yfir-
! gripsmiklar ráðstafanir gerð-
| ar til þess að tortíma þeim
j bjöllum, er kynnu að leynast
í vörunum.
; Kóióradó-bjallan eyöilegg-
ur gersamlega kartöfiulönd,
sem hún kemst í, og viðkom-
an er gífurleg. Þótt loftslag
sé heldur kalt handa henni
j í Svíþjóð, þykir veruleg hætta
j á, aö hún geti samlagazt veðr
áttunni, ef kynslóð nær að
j fæðast upp í landinu.
! Það voru verkamenn við
I höfn'na. sem fundu bjöllurn-
ar í vörunum, enda hafa
spjöld með viðvörunum og
myndum af bjöllunni verið
sett upp í lestum skipa og
vörugeymslum í hafnarbæj-
um í Sviþjóð.