Tíminn - 10.07.1951, Blaðsíða 7
152. blað.
TÍMINN, þríðjudaginn 10. júlí 1951.
7,
„Fólkið í landinu” - myndir
ór lífsbaráttu fólksins
Fyrsta líák M.F.A. á þossu ári
Fyrsta íélagsbók Menningar- og fræðslusambands alþýðu
á þessu ári kemur út í dag. Er þetta sérstæð bók fyrir
margra hluta sakir. Heitir liún „Fólkið í Iandinu“„ og er
tilgangurinn með útgáfu hennar að gefa sem gleggsta mynd
af lífsbaráttu og lífsreynslu þess fólks, sem lagði grundvöll-
inn að þeirri þjóðfélagsbyggingu, sem við lifum í nú í dag,
fólksins, sem lagði upp í baráttuna fyrir lifinu fyrir og um
síðustu aldamót og lifað hefir þær gerbreytingar, sem geng-
ið hafa yfir þjóðina á síðustu hálfri öld.
Ennfremur lýsir bókin
nokkrum sérstæðum persónu
leikum, sem mörgum mun for
vitni á að kynnast. — Hér eru
birt viðtöl við 21 menn og
konur úr nær öllum stéttum
þjóðfélagsins. — í formála
fyrir bókinni segir ritstjór-
inn. Vllhj. S. Vilhjálmsson,
meðal annars: „Er þess vænzt,
að í frásögnum þessa fólks
geti lesandinn fundið lykil að
„Frá skútuöldinni". Krist-
inn Magnússon, skipstjóri
eftir Gils Guðmundsson.
„Blóðugir hnúar“. — Jón
Erlendsson, Keflavík eftir
Vilhj. S. Vilhjálmsson.
„í vinnumennsku hjá skáld
inu á Bessastöðum". — Krist
rún Ketilsdóttir eftir Ingólf
Kristjánsson.
„í Breiðafjarðareyjum“ —
» r
Björgvtn Filippusson
frá Bólstað, A.-Landeyjum
örlögum þess, hvers og eins,
enda hafa höfundarnir ekki
lagt þeim, sem segja frá, orð
í munn, heldur haldið tungu-
taki þtirra og látið fólkið
sjálft ráða frásagnarhættin-
um. — Hér birtast þvi í raun
og veru 21 ævisaga".
Efni bókarinnar:
,,Hún bíður þess, að skóg-
urinn laufgist". Guðrún Jóns-
dóttir, Húsafelli eftir Bjarn-
veigu Bjarnadóttur.
„Gallnarður við að biarga
mér“. — Vilhjálmur Gíslason,
Eyrarbakka eftir Sigurð Magn
ússon.
, Ég veit, að það ert þú, en
þó finnst mér, að það sé hún 1
mammr:“. — Guðný Sveins-
dóttir, ísáfirði eftir Hanni-
bal Valdimarsson.
„Lifum í friði, íslending-
ar“. — Gísli Gíslason, silfur-
smiður eítir Sigurð Benedikts
son.
„Jarðlægir stofnar". Krist-
ín Björnsdóttir, Elliheimil-
inu Grund eftir Einar M.
Jónsson.
„Elzti barnakennarinn“. —
Hallbjörn Oddsson, Akranesi
eftir Elías Mar.
„Setjið markið hátt“. Gísli
J. Johnsen, stórkaupmaður
eftir Sigurð Magnússon.
„Ég er morgunmaðurinn".
— Bjarni Eggertsson, Eyrar-
bakka eftir Guðmund Ðaní-
elsson.
„Frumbyggjarnir í Foss-
vogi“. — Þórður Þorsteinsson,
Fossvogi eftir Guðmund
Gíslason Hagalín.
„Teygður milli öfga“. —
Kristján frá Djúpalæk eftir
Kristmann Guðmundsson.
„Minnisstæð vetrarferð“. —
Árni Sigiírpálsson, Húsavík
eftir Karl Kristjánsson.
„Mitt líf er Jobsbók“. —
Pétur Hoffmann, fisksali eft-
ir Sigurð Magnússon.
Arni Sigurpálsson, Skóg-
um, Reykjahverfi, S.-Þing.
Sigurður Níelsson eftir Berg-
svein Skúlason.
„Guð blessi þig“. — Guð-
munda Bergmann, Reykjavík
eftir Sigurð Magnússon.
„Hvar eru blessuð lögin
mín?“ — Björgvin Filippus-
son eftir Sigurð Magnússon.
„Héraðslæknir í 37 ár“. —
Þorbjörn Þórðarson læknir
eftir Elias Mar.
„Sóknarprestur í hálfa öld“.
— Jónmundur Halldórsson,
prestur, eftir Hannibal Valdi-
marsson.
Næsta bók.
Næsta bók MFA verður
skáldsagan „Óveðursnóttin“
eftir franska skáldið Duha-
mel. Er þetta ein frægasta
saga þessa mikla skálds. Síð-
asta bókin hjá MFA á árinu
verður „Heimslist og heima-
list“, hin víðkunna og geysi-
vinsæla listasaga Broby Jo-
hansens, og birtast í þeirri
bók á annað hundrað myndir
af listaverkum.
Þá hefir MFA, stjórn þess
og útgáfuráð, samþykkt að
gefa út á næsta ári skáld-
sögu eftir íslenzkan höfund
ef einhver berst, sem stenzt
gagnrýni nefndar, sem MFA
hefir kosið til að lesa yfir
handrit. Er lögð áherzla á
það að höfundurinn sé ung-
ur og litt kunnur. og verður
lögð sérstök áherzla á stíl og
frumleik. Geta höfundarnir
sent handrit sín til MFA,
Garðastræti 17, Reykjavík. —
Þar geta og þeir, sem vilja
gerast félagar í MFA, látið
skrá sig. Tímarit MFA er
„Menn og menntir“, en rit-
stjóri þess er Tómas Guð-
mundsson skáld.
Félagsgjald Menningar- og
fræðslusambands alþýðu er
60 kr. á þessu ári, og fyrir
það fá menn þrjár góðar bæk
ur og tímaritið.
ðshlíðarsl.ysið
(Framhald af 1. síðu.)
staðnum, og var þegar hlaupið
af stað út eftir til þess að
sækja hjálp. Áður en til Bol-
ungarvikur kæmi, mættu
mennirnir bifreið, sem var á
leið inn eftir, og sneri hún
þegar við til Bolungarvíkur.
Var læknir, Hinrik Linnet,
sóttú.r í henn; til Bolungarvík
ur, og kom hann þegar á vett
vang. Nokkru síðar komu svo
læknir og skátar frá ísafirði.
Tvísýnt um líf Þorsteins
og Halhlórs.
Þeir Þorsteinn Svanlaugs-
son og Halllór Árnason voru
tafarlaust fluttir i sjúkrahús
í ísafirði, þar sem gert var
að sárum þeirra. Voru þeir
meðvitundarlausir báðir, en
eru nú komnir til sjálfs sín.
Báðir hafa hlotið mjög mikla
áverka. Þorsteinn er mikið
skorinn á annarri kinn og
kinnbeinið brotið, auk þess
sem hann hefir fengið heila-
hristing, og Halldór er einnig
mikið skorinn í andliti, en ó-
brotnn, að talið er. Læknar í
ísafirði eru fáorðir um líðan
þeirra, og munu þeir ekki úr
hættu.
Ægir flytur fólkið og
líkin til Akureyrar.
Varðskipið Ægir var í fyrri-
nótt sent til ísafjarðar til
þess að sækja lík þeirra, sem
fórust, og flytur það þau og
flest af ferðafólkinu til Akur-
eyrar í nótt. Mun skipið koma
þangað klukkan níu til tiu
árdegis í dag:
Tíðindamaður frá Tíman-
um átti í gærkvöldj tal við
Sigurð Bárðarson, formann
íþróttafélagsins Þórs á Akur-
eyri, en hann var þá staddur
á ísafirði. Ætlaði hann að
verða eftir á ísafirði, ásamt
Einari Gunnlaugssyni frá Ak
ureyri, unz séð yrði, hvernig
þeim Þorsteini og Halldóri
reiddi af.
Minningarathöfn
á ísafirði í gær.
Minningarathöfn um hina
látnu Akureyringa fór fram
í ísafjarðarkirkju síðdegis í
gær. Flutti séra Sigurður
Kristjánsson þar stutta minn
ingarræðu. Að henni lokinni
voru kisturnar bornar til
skips, og gengu íþróttamenn
og skátar á ísafiröi á undan
þeim. ísfirzkir íþróttamenn
báru kisturnar úr kirkju á
bíl, en félagar frá Akureyri
af bílnum á skipsfjöl.
Fánar voru hvarvetna í
hálfa stöng á ísafirði í gær og
sorgarsvipur yfir öllu. Þykir
ísfirðingum dapurlega hafa
að borið, er þeir buðu Akur-
eyringum í heimsókn til kapp-
leikja og skemmtanar.
Finnski |>jóðdansa>
flokknrinn
(Framhald af 6. síðu.)
vikivaka, en fábreytni hans
varð þessari viðleitni að ald-
urtila. Þessi síðasta viðleitni
Ifir við vaxandi gengi með
því að tilbreytnin er höfð
meiri, kenndur viikvaik, en
svo fjöldi erlendra þjóðdansa.
U.M.F.Í. hefir tekið þennan
þátt félagsstarfsins, sem má
telja til íþrótta, á stefnuskrá
sína og umf Reykjavíkur geng
ið vel fram í að framkvæma
hann og til þess að sýna þjóð-
dansa eins og þeir gerast bezt
ir meðal þjóða, sem hafa iðk
að þá lengi, þá hefir félagið
ráðizt í að bljóða upp hingað
í samvinnu við stjórn U.M.F.Í.
finnska þjóðdansaflokknum,
sem hér dvelur. Ég er enginn
sérfræðingur í þjóðdönsum,
hefi séð þá nokkrum sinnum
og tekið þátt í námskeiði með
íþróttrJíennurum undir stjórn
Sigríðar Þ. Valgeirsdóttur.
Haft gleði og ánægju af þeim
og sannfærzt um gildi þeirra.
Vandlátur þjóðdansakenn-
ari legggur áherzlu á fas, ’nár
nákvæm spor, létt látbragð,
léttleika og útfærzlu hverr-
ar hreyfingar. Allt þetta kom
glöggt fram hjá hinum
finnska flokki. Það var unun
að sjá flokkinn hvort sem
hann var í hringdansi, rað-
dansi, keðjudansi eða para-
dansi, maður sannfærðist um
að þetta er það sem koma
skal ekki til sýninga, heldur
til þátttöku fyrir fjöldann.
Þeir, sem hafa staðið að
heimboðinu eiga þakkir skyld
ar og flokkurinn kærar þakk
ir fyrir komuna.
Þorsteinn Einarsson.
SKIPAUTGCKO
RIKISINS
„ESJA“
vestur um land til Akureyrar
hinn 16. þ. m. Tekið á móti
flutningi til áætlunarhafna í
dag og á morgun. Farseðlar
seldir á fimmtudag.
Ármann
Tekið á móti flutningi. til
Vestmannaeyja daglega.
22 manna
RÚTUBÍLL
1
'Öi
af stærstu gerð með bórrram
og spili. — Aftaníkerra 8
tonna getur fylgt.
■
Pakkliú.ssalan
Ingólfsstræti 11
Símj 4663
KRANABÍLL
til sölu
til sölu, Ford módel ’42, meö
gúmmí svefnsætum og i góöu
standi.
Bílaskipti með minni bíl
koma til greina.
l*tikkhiissalaii
Ingólfsstræti 11
Símj 4663
Skemmtiferðarskip
(Framhald af 1. síðu.)
aði hóp irinn síðan bæinn bet
ur siðdfgis.
Hinn hópurinn um 300
manns snæddi hádegisverð
að Hót«'l Borg og hélt síðan
til Þingvalla sömu leið og hinn
fyrri. Ferðamennirnir skoðuðu
' margar helztu byggingar í
( Reykjavík og safn Einars Jóns
sonar. Skýrði séra Jakob Jóns
son listaverkin.
'Ferðaskrifstofa rikisins ann
aðist móttökur hér, Því að
hún hefir umboð fyrir ferða-
skrifstofuna American Ex-
press, sem sér um þessi ferða
lög. Ferðafólkið var mestmegn
is Ameríkumenn.
Sildin
(Framhald af 8. siðu.)
uð af síld til söltunar hjá sölt
unarstöðinni Pólstjarnan.
Síldarleit.
Flugvélar fóru i síldarleit á
milli klukkan fimm og sex í
gær, og sáu þær átta litlar
torfur við Horn. Annars ber
nú lítið á síldinni og virðist
hún nú vera nokkuð djúpt.
Rafgeymar
Þýzkir, 6 volta.
Hlaðnir og óhlaðnir.
VÉLA OG RAFTÆKJA-
VERZLUNIN.
Straujarn
Nýkomin vönduð rafmagns-
straujárn með hitastillt.
H.F. RAFMAGN
Vesturgötu 10. - Sími 4005
Úr og klukkur
sendum gegn póstkröfu um
allt land
Tryggvagötu 23. — Sími 81279. mtaynúA €. Laugaveg 12 — Sími 7048 1,
Ctbreiðið Tímann.
1 Hestar í i óskilum
Tveir rauðir hestar eru ,í óskiium að Ásgarði í
jj Grhnsnesi. ♦♦ ♦♦ •;
Þökkum hjartanlega aila samúð og vinarhug við andlát og jarðarför móður okkar, Guðrúnar Gísla- dóttur frá Stafni í Svartárdal
Börn og tengdabörn.