Tíminn - 08.02.1952, Side 3

Tíminn - 08.02.1952, Side 3
3. í slendingaJpættLr Sjötíu og fimm ára: Guðrún Jónasson 1 dag er frú Guðrún Jónas- son 75 ára. Hún er fædd að Felli í Biskupstungum 8. febrú- ar 1877. Ekki kann ég að rekja ættir hennar, en það veit ég að for- eldrar hennar voru sæmdar og dugnaðarhjón. Barn að aldri fór G.J. með foreldrum sínum til Vesturheims. Ólst hún þar upp, fékk þar staðgóða mennt- un, giftist þar, kom heim til. íslands fulltíða kona, setti fljót lega upp verzlun í húsinu Að- alstræti 8, rak hana um nokkurt skeið. Síðar stofnuðuu þær verzlun saman frú Guðrún Jónasson og Gunnþórunn Halldórsdóttir og reka þær hana enn í samein- ingu undix nafninu Gunnþór- unn Halldórsdóttir og Co. Jörðina Nesja í Grafningi eiga þær vinkonurnar (G.H. og G.J.) og hafa þær rekið þar búskap' lengi og dvalið þar langdvölum I á sumrin með uppeldisbörn sín, sem nú eru fulltíöa fólk. j Af ofantöldu, þótt stiklað sé á stóru, sést að frú G.J. hefir ekki verið athafnalaus um æf- ina. Ótalin eru þó hin marg- þættu félagsstörf, er hún hefir, innt af hendi. í öllum félögum, sem hún hefir verið í, hefir hún. starfað með dugnaði, áhuga og ósérhlífni. í bæjarstjórn Reykja Víkur hefir G.J. setið í mörg ár. Hefir hún starfað þar í fjölda nefnda. Ekki er hægt í stuttri blaða- grein að rekja starfsferil frú G. J., enda verður það sjálfsagt gert betur og nánar af öðrumu en mér. Kunnust eru mér störf G.J. í Kvennadeild Slysavarna- félagsins í Reykjavík og fjáröfl- unarnefnd Hallveigarstaða. Þegar Kvennadeild S.V.F.Í. var stofnað 1930 var frú G.J. kjörin formaður hennar og hef- ír verið kosin formaður ár- lega æ síðan. ' í stjórn S.V.F.í. hefir hún verið síðan kvennadeildin var stofnuð. Óhætt er mér að fullyrða, að konurnar, sem starfa með frú G.J. í Slysavarnadeildinni elska hana, virða og meta að mak- legleikum, vegna mannkosta hennar og góðgirni. Kvenna- deildin hefir þróazt býsna vel undir stjórn frú G.J. Tala fé- lagskvenna mun nú vera um 1600. Mikil eru störfin, sem Kvenna deild S.V.F.í. í Reykjavík hefir unnið undir stjórn G.J., enda er hún lagin að velja sér konur til samstarfs, sem eru dugandi og áhugasamar. Fyrir fé, er Kvennadeildin hefir safnað, liafa verið byggð mörg skipbrotsmannaskýli á eyðisöndum og í óbyggðum, þar sem helzt er hætta á skips- ströndum. Auk þess hefir verið lagt mik ið fé í björgunarskipið „Sæ- björgu“ og radartæki í „Maríu Júliu“. Sést af þessu, þótt margt sé ekki nefnt, sem félagið hef- ir lagt fram til slysavarna, að ekki hefir það legið á liði sínu. Vissa mín er það, að fé, sem deildin hefir aflað, hefir bjarg að mörgum mannslífum. Eining og kærleikur ríkja á fundum Kvennadeildar S.V.F.x. Fundunum stjórnar frú G.J. vit urlega með mildi og mannúð og tekur hún fullt tillit til tillagna félagskvenna, jafnt úr hvaða flokki eða stétt þær eru. Frú G.J. er formaður í fjár- öflunarnefnd Hallveigarstaða. 1 þessari nefnd eru konur frá flestum kvenfélögum Reykja- víkur, vil ég segja það, að ekki er á allra færi, að fá konur af öllum stjórnmálaflokkmn til þess að starfa að einu máli á- rekstralaust eins og frú G.J. hef ir tekizt og allar konurnar á- nægðar með stjórn hennar. Hefir og furðulegur árangur náðzt með störfum nefndar þessarar. Fyrir frumkvæði frú G.J. hef- ir bæjarstjórn Reykjavíkur sam þykkt að láta hið fyrirhugaða kvennaheimili, Hallveigarstaði, fá lóð við Tjörnina. Stjórn Slysavarnadeildar kvenna í Reykjavík gengst í kvöld fyrir samsæti til heiðurs frú G.J. Margir munu vilja taka þátt í’ því. Vér, sem höfum kynnzt henni, óskum henni allra heilla á afmælisdaginn. Þakkir fyrir störfin. Guði gefi henni líf, heilsu og þrek, til þess að starfa enn lengi að áhuga- málum sínum meðal vor. Þ. Þórðardóttir. UTAN ÚR HEIMI Kvikmyndaleikkonur, sem James Mason metur mest. Hinn fíægi enski kvikmynda leikari James Mason, er nú dvelur í Holliwood, hefir birt lista yfir þær leikkonur, sem honum líkar bezt við, Því skildi ég ekki birta slíkan lista, segir hann, eins og flestir aðr- ir í þessari borg. „Glamour"- stúlkurnar met ég ekki mikils, en listi minn er þannig: 1. Pamela Kellino (kona leik arans). 2. Ava Gardner. 3. Lauren Bacall. 4. Danielle Darrieux. 5. Joan Bennett. 6. Faith Domerque. 7. Lena Horne. 8. Peggy Lee. 9. Vivien Leigh. 10. Judy Garland. Tvíburar í fimmta skipti. Á sjúkrahúsi í Suður-Dakota eignaðist kona nokkur, Mar- cella Big Crowd, tvíbura í fimmta skipti. I þetta skipti voru það tvær stúlkur, en áð- ur hafði það verið sitt hvort kyniö. Karl Finnbogason skólastjóri Falla hin fornu tré, feigð kveður enn á glugg Gustur um gömul vé gnólegan boðar ugg. Ljósið, sem lífgrös ól ljómar um genginn stig, Vorið mun veita skjól vinum, sem harma þig. Enn loga um „Aldamót“ æskunnar glæstu heit. Djarfhuga disablót drýgði hin frækna sveit. Fráneygur fremstur stóð fuilhugi, arfi Njáls. Lýðfrelsi loftköst hlóð, Iisthagi stíls og máls. Björt var þín brúðarför, að baki var þjóðarhjarl. Þá ljómaði um lífs þíns knör, í lyftingu stóðstu, Karl. En lýðhyllin löngum brást, þú lékst aldrei skjöldum tveim. Sanngirni og sannleiks ást sigra ei þennan heim. I . Drenglyndi skar þér skrúð, skart það af glysi bar. Heilsteypt og hjartaprúð hyggja þín jafnan var. Aldrei var silfri seld sæmd þín á Iífsins ferð. Völsungur veður eld, vílmenni ei dugir sverð. Um látinn þig ljóma skal logi, sem frelsið ól. í vorbjörtum dýrðardal iDrottinn þér veiti skjól. Aldrei þar athvarf brást elskuhuga lífs á jörð. Sanngirni og sannleiks ást sagt er þar haldi vörð. Hjörtur Kristmundsson. i ■ Vatnið* bjart og furðufjöll, 'fagrir skógarhlynir, skreyttu þína haguarhöll, hollir æskuvinir. ! Hófst til liðs af hörkudög hver sem gerðist þörfin, lagðir ávallt allan hug í ólíklegustu störfin. I Heilsteypt sál og hugsun skýr, hjartahlýr og glaður, æ til reiðu eins og nýr íslands vökumaður. Áður saman áttum vist eygði sjónhring fríðan. Geislastarf og grænan kvist geymi frá þér síðan. Lífs þín hurð i fals er felld finn ég klökkvann undir. Við þinn bjarta erineld, urðu góðar stundir. Þá ég met og veg á vog vinarkynninguna, er sem norðurljósalog leiki um minninguna. Kristján Sigurðsson Brúsastöðum * Fæddur á Arnasta í Ljósa vatnsskarði. Grímur íjármaður Efftir Víking' Gnðmnndsson, Grundarlióli Gamansögur fyrir austan járntjakl. Kommúnistaflokkur Rúm- eníu hefir um langt skeið safn að fötum fyrir Norður-Kóreu menn, en það hefir oft komið fyrir, að safnararnir hafa haldið eftir bezta klæðnaðin- um handa sér. í Búkarest er þessi saga sögð: Tíu ára drengur kemur heim til sín og kallar hátt í föður sinn: Pabbi, ég hef séð Kóreubúa! Kóreubúa, segir faðir hans undrandi. Hvar sástu hann? Jú, hann kom út úr vínsöl- unni hérna í götunni. En hvernig vissir þú, að hann var Kóreubúi? Var hann gulur í framan? Nei, það var hann ekki, en hann var í buxunum, sem þú gafst í Kóreusöfnunina. Snemma að hátta í Bandaríkjunum hefir það verið rannsakað hve lengi fólk þar í landi sefur. Við þessa rannsókn hefir komið í ljós, að# 96% af íbúunum fara í rúmið fyrir miðnætti og að 75% eru komnir á fætur og byrjaðir að vinna klukkan 7,30 á morgnana. í afskekktustu sauðfjárrækt- arhéruðum íslands finnast enn sannir fulltrúar hins gamla tíma; menn, sem helga starf- inu líf og sál, hamingjusamir og lítillátir menn, sem una glaðir við sitt. Sjóndeildarhringur þeirra er ef til vill ekki stór, en hann er glöggur. Hamingja þeirra er ekki sprottin af auði og allsnægtum, glysi eða gjá- lífi, heldur er hún sannur ávöxt ur vel unnina verka. Og því bet ur sem verkin eru unnin því meiri er hamingjan og gleðin við verkalok. Svo mikla aiúð leggja þessir menn við vinnu sína, að undirmeðvitund þeirra starfar einnig í þágu verk- anna. Af draumum sínum ráða þeir hvernig þau verða bezt íeyst, og af tilfinningu fram- kvæma þeir hvert smáatriði. Einn þessara manna er Hall- grímur Antonsson fjármaður á Grímsstöðum á Fjöllum. Grím- ur er hann jafnan kallaður og mun ég einnig gera það hér. Hann er fæddur á Grímsstöð- um 25. júní 1903, sonur hjón- anna Kristínar Hallgrímsdótt- ur og Antons Sigurðssonar. Grímur ólst upp hjá foreldrum sínum til sjö ára aldurs að Víði- hóli á Fjöllum, en þá missti hann föður sinn og heimilið leystist upp. Var hann þá tek- inn í fóstur af Kristjáni heitn um Sigurðssyni á Grímsstöð- um og ólst hann þar upp til full- orðinsára. Grímur hefir víða verið vinnumaður og alls staðar þótt hið trúasta og bezta hjú, en hvergi festi hann yndi ann- ars staðar en á Fjöllum. Lengst var hann vinnumaður, annars- staðar en á Grímsstöðum, á Núpi í Axarfirði, eða í sjö ár, og telur hann síðan, að það sé sér jafnan fyrir illu, ef hann dreymir sig þar, og verður þess nánar getið síðar. Siðastliðinn rúman áratug hefir Grímur ver ið vinnumaður á Grímsstöðum. Þar nýtur hann sín bezt og er ánægðastur með lífið, enda á hann góða húsbændur og er vel að honum búið á allan hátt. Friður og kyrrð Fjallanna leiða hann inn í lönd draumanna, þar sem hann nýtur þess í ríkum mæli, sem aðrir fá aðeins að smakka á í veruleikanum, en hann fer á mis við vegna þess, að hann er á margan hátt öðru vísi af guði gerður en aðrir menn. Draumar Gríms. Haustið 1948, snemma í sept- ember, kom Grhnur á fætur venju fremur úrillur. Hann var þögull framan af degi en vann þó verk sín með sömu ná- kvæmni og að vanda. Það hafði snjóað um nóttina og var al- hvít jörð. Hey voru alls staðar úti, meiri og minni. Þegar líða tók á daginn fór að brá af Grími. Það var verið að tala um tíðina, svo sem títt er. „Já, ekki lízt mér vel á hann“, seg- ir Grímur. „Ég var úti á Núpi í nótt að passa fé og það veit aldrei á gott. Mér þótti Guð- mundur á Núpi biðja mig að passa fyrir sig tvö hundruð og áttatíu kindur og voru þær flest ar hvítar. Þær voru svo óþægar, að ég réði ekkert við þær, og mér I þótti Guðmundur skamma mig I fyrir ræfildóminn." „Og fyrir hverju ræður þú nú þetta?“ var Grimur spurður. „Nú, tvö hundr j uð og áttatíu daga ótíð.“ Þá : hlógu allir hátt og lengi, en I Grímur brosti hálf vandræða- lega. Þetta Pótti nú aldeilis saga til næsta bæjar og barst hún fljótt út og menn hlógu mikið og almennt. Flestir í-upp sveitum Norðurlands og Norð- austurlands vita hvernig þetta haust var. Hey lágu undir snjó allt haustið og var seinast hrúg- að saman hálf rennandi og sett þannig inn svo að einhver not yrðu af því. Og ekki býst ég við, að margir, sem við búskap feng ust vorið 1949 gleymi því vori strax. En ekki er ég grunlaus um að brosið hafi verið farið að stirðna á þeim, sem hæst hlógu, þegar lömbin drápust sem ör- ast (vorið ’49), heyin voru á þrotum og stórhríðin geisaði útifyrir, þegar komið var fram í júní. Ég viðurkenni, að ég var þarna engin fyrirmynd, en þetta opnaði augu mín fyrir því, að sá hlær bezt sem síðast hlær, og Grímur mátti hlæja að okkur. Grímur er fjármaður, og hann er heilsteyptur í sinu starfi. Hug urinn er þar óskiptur og sálin fylgir með. Nú vilja ef til vill þeir vantrúuðu segja, að þetta hafi verið tilviljun ein; ætla ég því að segja frá öðrum draum, sem Grím dreymdi í fyrravetur, þ.e. 1951, í janúar, nánar til- tekið þann 10. Honum þótti hann vera staddur í Hólsseli á Fjöllum og vera að reka af stað fjárhóp ofan yfir Hólssand við annan mann. Kemur þá til hans Sigurður bóndi i Hólsseli og segir við hann: „Þið eigið hundrað kindur eftir hérna uppi á Bakkahorninu. Ætlið þið að láta þær vera?“ Grímur sagði frá þessum draum um morguninn og réð liann svo að hundrað daga ótíð væri eftir af vetrinum. Nú hló enginn, en menn settu á sig daginn. Vet- urinn varð eins og allir lands- menn vita einhver snjóamesti og harðasti vetur, sem yfir Norð austurland hefir komið, en 20. apríl skipti um tíð og eftir þann tíma var engri heilbrigðri kind á Hólsfjöllum gefið strá og get- ur nú hver sem vill reiknað. Grímur er ekki einn af þeim mönnum, sem ofmetnast við að það skuli vera tekið mark á hon um, og fer að vaða reyk og spá út í loftið. Hann segir bara: „Ég veit það ekki, mig hefir ekkert dreymt", ef hann er spurður hvernig tíðin verði í framtíð- inni. En ef hann dreymir eitt- hvað, sem h’onum þykir mark- vert, segir hann frá því í hjart- ans einlægni og verður stund- um að aðhlátri fyrir. En það gerir honum ekkert til. Hann er ánægður með\ sitt hlutskipti. Hann er fjármaður, einn af þeim, sem guð hefir velþóknun á, eða voru það ekki fjárhirð- arnir, sem fyrst var boðað fagn aðarerindið urn komu frelsar- ans. Gleymið þessu ekki ef þér þurfið að kaupa eða selja fasteignir, skip eða fyrir tæki þá talið við okkur sem allra fyrst. FASTEIGNIR S. F. Tjarnargötu 3 — Sími 6531 Gerist áskrifendur að ^Jímanum Áskrlttnrtimi 1311

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.