Tíminn - 08.04.1952, Blaðsíða 2
TÍMINN, þriðjudag-inn 8. apríl 1952.
82. blað.
Dagblaðið norska 1. apríl: Sex-
bu rar, stúlkur, fæddir í nótt
Dagblaðið í Osló birti 1. apríl
þá fregn, að sexburar hefðu
fæðzt í Osló, og fylgdi frásögn-
inni mynd af tveimur hjúkrun-
arkonum, er sátu undir þremur
kornbörnum hvor. Menn eru þó
beðnir að taka frásögnina ekki
of hátíðlega — hún birtist 1.
apríl —, en hún er á þessa leið:
Aðfaranótt 1. apríl fæddi frú
Marthe Fröberg sexbura í fæð-
ingardeildinni í Osló — og setti
þar með í skuggann hina frægu
fæðingu Dionne-fimmburanna
kanadisku, sem fæddust fyrir
stríðið. Fæðingin átti sér stað
milli 1,20—2,15 — og á þeim
tíma komu sex litlar stúlkur í
heiminn.
Faðirinn sá eini,
sem er vanheill.
Þessi frétt mun áreiðanlega
vekja gífurlega athygli, ekki
minnst fyrir það, að móður-
inni og dætrunum líður mjög
vel. Sá eini, sem ekki var vel
haustur, að fæðingunni afstað
inni, var faðirinn; Haftor Frö-
berg. Hann fékk snert af tauga
áfalli, er hann heyrði frétt-
ina, og þurfti að leggjast í
súkrahús í heimabyggð sinni,
Flatásbygda.
Sexburarnir voru milli 1500 og
2050 grömm að þygnd hver og
voru allir rétt skapaðir. Frö-
berg-hjónin eru bæði um þrí-
tugt, og búa í litlu húsi nálægt
tígulsteinaverksmiðju í Flatás-
en, þar sem faðrinn vinnur. Þau
höfðu eignazt eitt barn áður,
dreng, sem heitir Jóhannes og
er fjögura ára.
í*að koma fleiri, Iæknir.
Frú Fröberg var vel hress eft
ir fyrstu fæðinguna kl. 1,20. Tíu
mínútum síðar fæddi hún enn
tvær stúlkur, og læknirinn, dr.
Peder Svendshús, var öruggur
um, að það yrði ekki meiraf en
þríburar. — Hann og hjúkrunar
konurnar voru á leið úr herberg
inu með börnin nýfæddu, þeg-
ar frú Fröberg kallaði allt í
einu.
— Það koma fleiri, læknir.
Hálíum klukkutíma seinna
var frú Fröberg móðir sexbura
— sex fallegra lítilla stúlkna, er
allar voru með lítið dökkt hár.
Það segir sig sjálft, að í fæðing
ardeildinni varð hið mesta upp-
þot og læknar þyrptust að til
þess að sjá undrið. En dr.
Svendshus er strangur hús-
bóndi. Það fengu ekki aðrir að
vera við, er börnin voru böðuð,
en hann sjálfur, yfirlæknirinn,
hjúkrunarkonurnar Júdit og
Jenný. (Og svo væntanlega ljós-
myndari Dagblaðsins.)
Skeyti sent til Kanada.
I Það hefir verið ákveðið, að
Edit skuii annast börnin, og
það hefir verið sent skeyti til
læknis fimmburanna kanadísku
og spurzt fyrir um það, hvernig
I Dionne-telpumar voru fóstrað-
ar fyrstu mánuðina.
Heillaskeytin tóku að streyma
að með morgninum — frá út-
varpsstjóranum, Hallesby, ríkis-
skattstofunni, manntalsskrif-
stofunni, hagstofunni og fleiri.
Útvarpið
íjtvarpið í dag:
8.00—9.00 Morgunútvarp. —
10.10 Veðurfregnir. 12.10—13.15
útvarp. — 16.25 Veðurfregnir.
18.15 Framburðarkennsla í esp-
erantó. 18.30 Dönskukennsla; II.
fl. — 19.00 Enskukennsla; I. fl
19.25 Veðurfregnir. 19.30 Tónleik
ar: Þjóðlög frá ýmsum löndum
(plötur). 19.45 Auglýsingar. —
20.00 Fréttir. 20.30 Erindi: Vest •
ur íslenzk ljóðskáld; II. (Rich
ard Beck prófessor; — útvarpað
af segulbandi). 21.00 Undir ijúf
um lögum. 21.30 Frá útlöndum
21.45 Einsöngur: Pierre Bernac
syngur (plötur). 22.00 Fréttir og
veðurfregnir. — 22.10 Passiu-
sálmur (48). 22.20 Kammertón
ieikar (plötur). 23.10 Dagskrár
lok.
Útvarpið á morgun:
Fastir liðir eins og venjulega.
20.30 Útvarpssagan: „Morgunn
lífsins" eftir Kristmann Guð-
mundsson (höf. les). — XX. 21.
00 íslenzk tónlist. 21.25 Erindi;
Um norska málaralist (Hjör
leifur Sigurðsson listmálari)
21.50 Tónleikar: Lög leikin á gít
ar (plötur). 22.00 Fréttir og veð-
urfregnir. — 22.10 Passíusálm-
ur (49). 22.20 Tónleikar (plöt-
ur). 23.00 Dagskrárlok.
Árnað heilla
Hjónaband.
I fyrradag voru gefin saman í
hjónaband af séra Þórði Odd-
geirssyni, prófasti í Sauðanesi,
ungfrú Sigríður Sigurgísladót't-
ir frá Reykjavík og Iifgimar
Ingimarsson, stud. theol. á Þórs
höfn.
60 ára.
er í dag Jóhannes Sigurðsson,
prentari, Laugateig 48, er um
mörg ár var verkstjóri í Acta
og síðar í Prentsmiðjunni Eddu.
Hann starfar nú hjá Leiftri.
Enska bikarkeppnin
1 gær vann Arsenal Chelsea
í ensku bikarkeppninni með 3:0
og skoraði Lewis tvö af mörk-
unum. Á laugardag hafði orðið
jafntefli, 1:1, hjá þessum félög-
um.
Arsenal og Newcastle fara nú
í úrslit, og fer úrslitaleikurinn
fram á Wembley-ieikvellinum 5.
maí.
Maðurinn, sem
skar hann
Hinn finnski guðfræðiprófess
or, G. O. Rosenquist, gekk í
hjónaband á sunnudegi í maí
1918. Kvöldið áður fór hann í
rakarastofu, því að hann vildi
vera snyrtilegur á brúðkaups-
daginn. Ungur maður rakaði
hann, en svo illa tókst til, að
hann skar illa á hökunni, og
það gekk treglega að stöðva blóð
rásina. Prófessorinn sat lengi í
rakarastofunni, og seinast var
hann þar einn eftir viðskipta-
vina. Það varð að samkomulagi
milli hans og eiganda rakara-
stofunnar, að prófessorinn
mætti koma aftur daginn eftir,
skyldi þá reynt að smyrja og
hylja sárið.
Þrjátíu árum síðar var hann
orðinn rektor við Ábo-háskóla,
og þá var honum boðið, ásamt
konu sinni, til veizlu í Helsing-
fors. Þar varð kona þáverandi
forsætisráðherra Finna, Fager-
holms, sessunautar prófessors-
ins. í veizlunni spurði Fager-
holm prófessorinn, hvort hann
hefði ekki verið grannur og dökk
hærður á yngri árum. Rosen-
quist játti því. Þá sagði forsæt-
isráðherrann:
„Það var ég, sem skar yður á
hökunni kvöldið fyrir brúð-
kaupsdaginn."
i Forsætisráðherra hafði verið
rakari á unga aldri, og af því
j er hann hreykinn enn í dag.
Þótt mistök gætu átt sér stað
hjá honum, eins og sagan ber
með sér.
Jörð til sölu
Ágæt bújörð 50 km. frá Reykjavík er til sölu. Laus
til ábúðar nú í vor. Um 20 nautgripir fylgja með í söl-
unni og margs konar landbúnaðarvéiar. Þá tilheyrir
og jörðinni nokkur laxveiði. Sími er á bænum. Semja
ber við Eirík Pálsson, lögfræðing, Suðurgötu 51, Hafn-
arfirði. Símar 9036 og 80350, sem veitir allar frekari
upplýsingar.
Newcastle og Blackburn höfðu
áður keppt með sigri þess fyrr-
nefnda, 2:1, og var sigurmark-
ið skorað í vítaspyrnu.
Þarf útvarpið að vera
svona leiðinlegt?
Ríkisútvarpið íslenzka er ekki
flysjungslegt. I óskastundinni í
fyrrakvöld mátti ekki leika dans
lög af því, að það var pálma-
sunnudagur! Þetta er eins og
forsmekkur af því, hverju má
eiga von á um páskana, en það
er alkunna, að mörg undanfar-
in ár er varla hægt að hugsa
sér leiðinlegra útvarp en ís-
lenzka útvarpið um stórhátíðar.
Þetta kemur sér þó þeim mun
verr sem slíkar hátíðir
eru einmitt þeir frídagar
ársins, þegar fólk í kaupstöðum
veit sízt, hvað það á af sér að
gera, þar sem þá er ekki kom-
inn sá tími, að það geti almennt
leitað út úr bæjunum.
Af hverju er sveitafólk
hætt að hlusta?
Þessi varfærni ríkisútvarps-
ins á pálmasunnudag og grun-
urinn um það, sem í vændum
er um bænadagana og páskana
gefur tilefni til þess að rifja
upp, að fyrir nokkru skýrði fólk
úr myndarlegri sveit suðvestan
lands blaðinu frá því, að þar
væri alls ekki einsdæmi, að ekki
væri hlustað á íslenzka rikisút-
varpið heil kvöld. Beztu erindin,
sem á boðstólum eru, koma eft-
ir hádegið á sunnudögum, og
vinsælasta útvarpsefnið, þátt-
ur Péturs Péturssonar, hefir ver
ið felldur niður. Svo er óska-
stund Gröndals settar þær skorð
j ur, er fram komu í fyrrakv-öid.
Ábyrgðarhluti að vera
leiðinlegur.
í Því er haldið fram, að ríkis-
útvarpið hafi ekki efni á
' skemmtilegri dagskrá. Það er
i þó vafasamt, að ódýrara sé að
vera leiðinlegur en skemmtileg
ur. En auk þess er það ábyrgð-
‘ arhluti fyrir ríkisútvarpið, ef
heú heimili í einni af myndar-
legustu sveitum landsins geta
ekki fengið af sér að opna kvöld
1 eftir kvöld, og þeir, sem þess
eíga kost, kjósa jafnvel heldur
að reyna að ná til útlendra
stöðva. Það er sannarlega að-
vörun rétt fyrir slys. m
ÞRUMA ÚR HEIÐ-
SKÍRU LOFTI.
Nú var hún orðin ekkja eft-
ir langt hjónaband, og hún
grét dag og nótt yfir raunum
sínum og var algerlega óhugg
andi, og henni fannst sem hún
gæti varla haldið áfram að
lifa, en- þrátt fyrir allt var þó
einn kostur við það mikla á-
fall, sem hún hafði orðið fyrir.
Nú vissi hún, hvar maður-
inn hennar var á nóttunni.
Rjómabússmjör
Bögglasmjör
Smjörlíki
Kokossmjör
Kökufeiti
40% ostur
30% ostur
Rjómaostur
Mysuostur
Fæst í heildsölu hjá
HERÐUBREIÐ
Sími 2678.
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦■
Ódýrir karlmanna-
og kvenskór
Verð frá kr. 40,00.
KVENSTRIGASKÓR, margar gerðir.
BARNASTRIGASKÓR.
KARLMANNASTRIGASKÓR.
KVENBOMSUR.
KARLMANNABOMSUR.
BARNABOMSUR.
Líti'ð inn til okkar þegar þér eigið leið í bæinn. — Skrif-
íð eða símið. — Sendum gegn póstkröfu.
Skóvcrzluiiiii Franmesvegi 2,
Sími 3962.
t
Djúpivogur:
'.*.%V.V.,.V.,.V.V.,.V.V.W.V.V.V.,.V.V.V.,,V.V.V.V.V.V
l
Þökkum þorpsbúum innilega auðsýnda vináttu í veik-
Ij indum okkar í vetur.
Ij Þorbjörg Ákadóttir, !|
Finnur Kristjánsson,, «;
Fögruhlíð, Djúpavogi. «J
ðV.VV.V.V.V.V.V.V.V.V.V.VV.V.V.V.V.V.VVV.V.V.W
Maðurinn minn og faðir okkar
SIGURÐUR JÓHANNESSON,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudæginn
9. apríl kl. 1,30 e. h. — Athöfninni verður útvarpað.
Jóhanna Waage og börn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug,
við fráfall og jarðarför,
JASONAR STEINÞÓRSSONAR, frá Vorsabæ.
Sérstaklega þökkum við kirkjukór Selfosskirkju, fyrir
einlægan vinar- og virðingarvott til heiðurs hinum
látna.
Kristín Helgadóttir og börn.