Tíminn - 08.04.1952, Síða 3

Tíminn - 08.04.1952, Síða 3
83. blaS. TÍMINN, -þriðjudaginn 8. apríl 1952.' AV.V.V.W.W.V.V.V.VAV.W.V.V.W/.V.V.V.V.V.VW.V.V.V.VAV.W.V.VVW.W Dánarminning: Friðrik í upphafi þessarar aldar og allt fram að hinni fyrri heims styrjöld uxu hér upp í landi furöumargir dugandismenn, heil kynslóð, efld af þrótti, ættjarðarást og þekkingar- þorsta 19. aldarinnar, en ekki lostin svartsýni hinnar 20. — Þeir unnu sögu, ljóðum og söng, öllu, sem íslenzkt var. — Veraldarefnin voru lítil á vorra tíma vísu, en þó höfðu þeir efni á því að eiga sér hugsjónir, sem þeir hlúðu að líkt og árgróða, en héldu ekki við barm sinn sem blóðsug-; um, er drykkju bjartsýni þeirra og góðviid. Ef til vill gættust þeir eigi ætíð um svo vel, sem skyldi, en trú þeirra' var hrein, og störf þeirra uröu til góðs. Friðrik Hansen var fæddur1 að Sauðá í Skagafirði 17. jan. 1891. Faðir hans, Christian Hansen, var danskur maður, beykir að iðn. Fluttist hann til Sauðárkróks árið 1878, í- lentist þar og kvæntist skag- 1 firzkri konu, Björgu Jóhann- esdóttur, bónda að Garði í Hegranesi. Bjuggu þau hjón allan sinn búskap að Sauðá og varð auðið margra mann- j vænlegra barna. Friðrik Han- { sen óx upp með foreldrum' sínum, og kom brátt í ljós, að hann hafði mikið þegið til líéama og sálar. Margt var þá gjörvilegra manna 'um Skagá fjörð á sama reki, ekki síður en annars -staðar, en ekki mun það leika á tveim tung- um, að Friðrik Hansen hafi verið einn hinna fremstu þeirra í meðal. Hann var gild- ur meðaimaður á hæð, þrek- inn um herðar, enda sterkur að afli og vel á sig kominn. Andlitið var frítt, hárið dökkt, heldur fölieitur, augun mó- leit og skutu glömpum, þegar áhugamál voru á baugi, svip- urinn góðmannlegur, nokkuð íhugandi. Snemma hneigðist hann til skáldskapar, enda var hann djúphygginn og fegurðarskyggn. Urðu ljóð hans brátt héraðsfleyg, og hugðu margir, að hann ætti fyrir sér mikinn frama á því sviði. En Friðrik Hansen drakk í sig hugsjónir samtíð- ar sinnar og áhugamál. Þeim vildi hann þoka fram. Fór þá svo, sem verða vill, að mikil störf hlóðust á hann og sett- ust í fyrirrúmið, en skáld- skapurinn varð að víkja um set. Hann lauk kennaraprófi í Reykjavík árið 1915, geröist síðan kennari við barnaskól- ann á Sauðárkróki og hélt þeim starfa til æviloka, 36 ár. Á þessum tíma lét hann til sín taka fiest félagsmál norð- ur þar, enda hlaut svo að fara, þó að hann hefði viljaö annað sjálfur. Hann var glæsilegur maður, gáfaður og fjölhæfur, en viðmótið allt svo aðalaðandi, að hyggjur manna hlutu að hníga til hans. Hann iaðaði menn ó- sjálfrátt til fylgis við málstað sinn, beitti aldrei harðræðl, skilningsgóður á kjör manna, einkum þeirra, er ekki máttu sín mikils. Vegna þessa var hann jafnan einn helzti for- ustumaður á Sauðárkróki. — Hann átti lengi sæti í hrepps- nefnd Sauðárkróks, var odd- viti hennar um 12 ára skeið og var nú síðast einn af bæj- arfulltrúum síns unga kaup- staðar. En auk starfanna heima fyrir vann hann á sumrum hjá Vegagerð ríkis- ins og hafði þar verkstjórn á hendi í 24 ár, tiðast í Vestur- Húnavatnssýslu. Þurfti hann þess með, enda þótt vera kunni, að hugurinn hafi stað- ið til annars fremur, því aö kennaralaunin vóru rýr, en börnin urðu mörg. Friðrik Hansen var tví- kvæntur. Fyrri konu sína, Jósefínu Erlendsdóttur frá Stóru-Giljá í Húnavatnssýslu, gekk hann að eiga árið 1919, og varð þeim 8 barna auðið. Hún andáðist árið 1937 fyrir aidur fram. Árið 1942 kvænt- ist Friðrik siðari konu sinni, Sigríði Eiríksdóttur frá Djúpadal í Blönduhlíð, og eignuðust þau 4 börn. Kunnugir þóttust finna nokkur þreytumerki í fari Friðriks hin síðari ár, og þarf það engan að undra, en bjart- sýni sinni, mannheill og góð- íýsi hélt hann til dauðadags. Á síðasta hausti kenndi hann þess meins, er dró hann til dauða. Hann andaðist á Landsspítalanum í Reykjavík fimmtudaginn 27. marz. En i dag verður hann til moldar borinn í kirkjugarðinum á Sauðárkróki. Þaðan getur hið næsta að líta það land, sem honum var hugstæðast, þar sem hann átti æsku sína og ævistarf. En til beggja handa breiðist Skagafjörður. Pálmi Hannesson. Elskulegi vinur minn! Á þyngstu raunastundum okkar beggja bundum við vin áttu okkar, sem aldrei síðan bar skugga á. — Ógleyman- legar og hugljúfar eru mér allar samverustu'ndir okkar og dýrmætar og bjartar eru þær minningar allar. — Nú ertu horfinn sjónum mínum, og eftir er miriningin og þökk in. — Já, kæra þökk. þökk fyrir að fá að blanda geði við þig — fyrir hlýja og trausta handtakið — fyrir sérkenni- lega brosið — fyrir trygga og einlæga vináttu. — Geymi þig nú vel hin mjúka og miída mold okkar kæra Skagafjarð- ar. Guð varðveiti þig. Friðrik frá Höfða. PASKA þúsundataii Fjöibreytt Skrautðeg Verð við allra htefi: 1,80, 2,60, 3,70, 5,40, 7,75, 9,00, 10,60, 12,00, 12,75, 13,60, 15,00, 16,20, 17.50, 18.60, 19,50, 20,20, 25,50, 27,00, 30,60, 40,50, 75,00, 90.00. Allskonar páskavarningur Bara hrmgja, svo knmir það! $uii fíynitii, w iWAWAV1VAWA%VAW1WJVJl,J'J|,A%WVWiVVW«,A\WiVWðV.WAW H ANS A-SÓLGLUGG AT JÖLD T ' I » IVI 'il N N «• Anglýsið fi Tímanom. • sssTa if r M ; -1N ' N : • Góða veðrið og sólskinið er komið og þess vegna er full ástæða til að vernda vör- ur og húsgögn gegn uppiitun. — Hansa giuggatjöldin sjá um það. I/ mhoðsmenn: VESTMANNAEYJUM: Heildverzlunin Óðinn. AKUREYRI: Þórður V. Sveinsson, Brekkugötu 9. AKRANESI: Axel Sveinbjörnsson. SELFOSSI: Kaupfélag Árnesinga. HANSA H.F. SÍMI 81 525 OG 5852.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.