Tíminn - 18.03.1953, Blaðsíða 2
2.
TÍMINN, miðvikudaginn 18. marz 1953.
64. blað.
Urval af því bezta, sem íslenzk skáld hafa ort til
mæöra sinna og um þær.
Sextíu íslenzk skáld eiga kvæöi í bókinni, þar af
öll höfuðskáld þjóðarinnar.
Kostar kr. 45,ÖO í alskinni,
Fallegasta íækifærisgjöfin til íslenzkra mæðra
Farúk kennir tengdamóður sinni
og Naguib um brottför Narrimans
í gær var búizt við, að
Narriman héldi til Kaíró í
fylgd móður sinnar, sem talið
er, að hafi verið send til Róm
ar að undirlagi Naguibs. í
yfirlýsingu, sem Farúk hefir
gefið út af brottför drottning
arinnar, segir m. a.: „Með
trausti á framtíðinni og al-
geru tilliti til Guðs réttlætis
hefir Farúk konungur allra
náðugast orðið við ósk hús-
freyju sinnar um að yfirgefa
Ítalíu, sem hefir sýnt stór-
kostlega gestrisni. Ef til vill
er Narriman þreytt á lífinu
sem landflóttamaður, þrátt
fyrir það, að helztu læknar,
ítalskir og svissneskir, hafa
alltaf verið reiðubúnir að
veita aðstoð sína“.
Stjórnmálalegs eðlis.
Ennfremur segir í yfirlýsing
unni: „Ákvörðun Narriman
um að fara er ákvörðun, sem
var tekin í skyndingu fyrir til
mæli móður hennar, sem
greinilega stendur í sambandi
við sterk stjórnmálaöfl í
Egyptalandi, sem vinna allt
til þess að koma á misklíð inn
an konungsfjölskyldunnar“.
Narriman mótmælir.
Akveðið var að Narriman
færi til Kaíró í gær og sagði
hún í blaðaviðtali, að skiln-
aðurinn hefði verið ákveðinn
fyrir löngu, en honum
valdi persónulegar ástæður,
án þess að móðir hennar eða
egypzk stjórnarvöld eigi þar
nokkurn hlut að máli. Narri-
man sagði ennfremur, að eft-
ir að hafa sýnt mikla þolin-
mæði, hafi henni orðið ljóst,
; Narriman drottning hefir nú yfirgefið Farúk konung, en
hún flaug nýlega frá Róm til Sviss, ásamt móður sinni, frú
, Sadek. Að undanförnu hafa þau hjónin dvalið í nánd við
Róm ásamt syni þeirra, sem nú er fjórtán mánaða gamall.
Son sinn skildi Narriman eftir, en mun þó hafa yfirráðarétt
varðandi drenginn, þar til hann verður sjö ára.
í/j/. .. . v.
Myndin er af þeim Narriman og Farúk, þegar samkomulagið
var upp á hið bezta. Nú hefir hins vegar dregið bliku á loft,
þar sem Narriman er komin til Kaíró og þar mun henni að
öllum líkindum verða dæmdur skilnaður, þótt það sé fátítt,
að konur eigi frumkvæðið að skilnaði við menn sína í
múhameðstrúarlöndum.
Úfraipið
Útvarpið í dag:
Kl. 8,00 Morgunútvarp. 9,10 Veður
fregnir. 12.10—13,15 Hádegisútvarp.
15.30 Miðdegisútvarp. 16,30 Veður-
fregnir. 17,30 íslenzkukennsla; II.
fl. 18.00 Þýzkukennsla; I. fl. 18,25
Veðurfregnir. 18,30 Barnatími. 19,15
Tónleikar (plötur). 19,30 Tónleikar:
Óperuiög (plötur). 19,45 Auglýsing-
ar. 20,00 Préttir. 20,30 Útvarps-
sagan: „Sturla í Vogum“ eftir Guð
rnund G. Hagalín; VIII. (Andrés
Björnsson). 21,00 Hver veit? (Sv.
Ásgeirsson hagfræðingur annast
þáttinn,). 22,00 Préttir og veður-
fregnir. 22,10 Passíusálmur (38.).
22.20 Upplestur: „Prelsishetjur".
smásaga eftir Ingólf Kristjánsson
(höf. les). 22,45 Dans- og dægur-
lög; Gene Krupa og hljómsveit
hans leika (plötur). 23,10 Dagskrár
lok.
Útvarpið á morgun:
Kl. 8,00 Morgunútvarp. 9,10 Veður
fregnir. 12,10—13,15 Hádegisútvarp.
15.30 Miðdegisútvarp. 16,30 Veður-
fregnir. 17,30 Enskukennsla; II. fl.
18,00 Dönskukennsla; I. fl. 18,25 Veð
urfregnir. 18,30 Þetta vil ég heyra!
Hlustandi velur sér hljómplötur.
19,15 Tónleikar: Danslög (plötur).
19,35 Lesin dagskrá rfæstu viku.
19.45 Auglýsingar. 20.00 Préttir. 20,20
íslenzkt mál (Halldór Halldórsson
uósent). 20,40 Tónieikar (plötur).
20,55 Erindi: Á víð og dreif (Filippía
ICristjánsdóttir rithöfundur). 21,15
Einsöngur: Elisatet Schumann og
Alexander Kipnis syngja (plötur).
21.45 Frá útlöndum (Jón Magnús-
son fréttastjóri). 22,00 Fréttir og
veðurfre;nir, 22.10 Passíusálmur
(39.). 22,20 Sinfóniskir tónleikar
(plötur). 23,iO Dagskrárlok.
Árnað hellla
Trúlofun.
Nýlega hafa opinberað trú’.ofun
sína ungfrú Elsa Níelsdóttir, Hof-
teig 12, og Hermann Ó. Guðnason,
Laugaveg 68.
vað hún yrði að yfirgefa mann
sinn. Er ég hafði tekið þá á-
kvörðun að hverfa til Egypta
lands, sendi ég móður minni
skeyti og bað hana að koma
og vera hjá mér á þessum
erfiðu tímum og að verða leið-
sögukona mín heim til míns
elskaða lands. i
Dralck sig ekki fullan.
Það vakti mikla athygli. að
stuttu eftir að Narriman fór,
birtist Farúk í klúbb sínum í
Róm og lét sem ekkert væri.
I Útlagakóngurinn sagði: „Þeg
i ar Narriman yfirgaf mig, gekk
| ég inn og leit á son minn, sem
j svaf værum svefni, en fóstr-
an sat yfir honum og vakti
eftir það fór ég í klúbbinn
minn í Róm. Undir sömu
kringumstæðum býst ég við,
að flestir hefðu drukkið sig
blindfulla, en vegna trúarskoð
ana minna neyti ég ekki víns“.
I
Áttu ekki skap saman.
Móðir drottningarinnar,
Assila Sadek, staðhæfir, að
Farúk megi sjálfum sér um
kenna, að svo er nú komið í
hjónabandi hans. Narriman
dóttir hennar hafi ákveðið að
skilja við hann, einfaldlega
af þeirri ástæðu, að hún gat
ómögulega búið með honum
lengur, þar sem þau áttu ekki
skap saman. í Kaíró er því
haldið fram, að Narriman
muni æskja skilnaðar frá
^Farúk á þeirri forsendu, að
| hann hafi sýnt sér grimmd,
en trúarréttur mun fjalla um
mál hennar.
Tuttugu bæir í Gaul
verjabæjarhreppi
fá rafmagn
Frá fréttaritara Tímans á Selfossi.
Síðastliðinn laugardag var
rafmagni hleypt á nýja raf-
veitu, sem tekur til tuttugu
bæja í Gaulverjabæjarhreppi
og eins bæjar i Hraungerðis-
hreppi, auk varnaskóla, sam-
komuhúss og kirkju í Gaul-
verjabæ.
Mikil ánægja ríkir meðal
fólks í Gaulverjabæ yfir því
að vera búið að fá rafmagnið.
Gjaíir til Hnífs-
dælinga
Hnífsdalsnefndin hefir þeg
ar telcið á móti talsverðu af,
gjöfum handa Hnífsdæling-J
GinnsÍGÍim allra íslcnzkra bóka
um. Aðalsteinn Pálsson skip-
stj óri hefir gefið 2000 krón- ;
ur, hlutafélagið Júpíter 50001
krónur og Tómas Helgason
búfræðingur 1000 krónur. |
Bækur hafa gefið Valdimar
B. Valdimarsson, Kristinn;
Halldórsson, Hverfisgötu 67,^
Sigurborg Kristjánsdóttir frá
Múla, Herdís Ásgeirsdóttir og
Stefán H. Stefánsson bóka-
útgefandi, sem hefir til-
kynnt, að hann gefi útgáfu-j
bækur sínar, um 1000 krónur
að verðmæti.
Finilcikamaóm*
(Framh. aí 1. síðu).
aðallega vegna áhaldaskorts.
Má geta þess, að Ármann er
um þessar mundir að festa
kaup á áhöldum frá Þýzka-
landi, en þau eru mjög dýr,'
og munu kosta um 12—14 þús.1
kr. Mun aðstaða til æfinga1
batna mjög, er áhöld þessi
koma til landsins. Úti umj
land hefir áhaldaleikfimi að-
eins verið stunduð á Siglu 1
firði og Seyðisfirði.
Fyrsta sýning á sunnudag.
Fyrsta sýning Arne Lind
verður í íþróttahúsi Háskól-
ans n. k. sunnudag og verður
hún aðallega fyrir skólafólk.
Reiknað er með að 2—3 sýn-
ingar verði í Reykjavík og
jafnframt nokkrar sýningar í
násrenni bæjarins.
I Mun hann sýna ásamt 8
fimleikamönnum úr KR, þeim
Jcni Júlíussyni, Jónasi Jóns-
syni, Veigari Guðmundssyni,
Ingólfi Halldórssyni, Helga Jó
hannssyni, Markúsi Þorvalds-
syni, Herði Albertssyni og
Árna Magnússyni. \
Þetta er í annað skipti, sem
erlendur fimleikamaður kem
ur hingað til lands, en Norð-
j maðurinn Odd Boye-Nielsen
'kom hingaö 1950. I
Borgfirðingafélagið
heldur útbreiðslufund föstudaginn 20. þ. m. kl. 20,00 í
Sjálfstæöishúsinu. — Sýnd verður kvikmynd úr Borg-
arfiröi.
Leikrit: Fjölskyldan fer út að skemmta sér.
Bjarni Bjarnason syngur einsöng.
Borgfirðingakórinn syngur.
Dans. — Hljómsveit Aage Lorange.
Aðgöngumiðar seldir í Skóbúð Reykjavíkur og hjá
Þórarni Magnússyni, Grettisgöt’i 28.
Sendum gegn péstkröfu
Hafið þér athugað, að þótt þér búið úti á landi, getið
þér fengið: Ljósakrónur, vegglampa, borðlampa, hrað-
suðupott, pönnur o. fl., o. fl. á verksmiðjuverði. Látið
því vini yðar í Reykjavík velja fyrir yður eða sendið
línu. Þá munum vér senda yður vöruna um hæl í pðst-
kröfu. — Málmiðjan h.L, Bankastræti 7. Sími 7777.
JÖRÐ TIL SÖLU
Ein af bezt setnu jörðum j Mýrdal fæst til kaups og
og ábúðar á næsta vori, ef viðunandi boð fæst.
Upplýsingar gefa:
Jón Pálsson, Hafnarstræti 14 Rvík. og
Guðlaugur Jónsson Vík í Mýrdal.
Jarðarför móður minnar
GRÓTJ ÞÓRÐARDÓTTUR
fer fram fimmtudaginn 19. marz og hefst með hús-
kveðju að heimili mínu Steinum, Bráðræðisholti.
Athöfnin í Bómkirkjunni hefst kl. 2 og vcrður út-
varpað
Fyrir hönd vandamanna
Einar Sigurðsson
*AW.-.V.‘.V.V.V.V.V.-.V.VW/.‘.VV.-.W.‘.V.VA'AWW
I; InniLega þakka ég sveitungu'm mjnum og öðr1-
I; um vinum er heiðruðu mig með heimsóknum, góðum
^ gjöfum og og heillaskeytum á sextugsafmæ.li mínu. Ég
;■ óska ykkur allrar blessunar.
£ Jón Eiríksson, Skeiðháholti.
W.V.V.'.V.W