Tíminn - 30.09.1953, Blaðsíða 1
1-------------------------------■)
Skrifstofur I Edduhúsl |j
Fréttaslmar:
81302 og 81303 (1
, Aígreiðslusími 2323 Jj
Auglýsingasími 81300 j)
Prentsmiðjan Edda jj
37. árgangur.
Reykjavík, miðvikudaginn 30. september 1953.
220. blaíi,
Frá fréttaritara Tímans á ísafirði
Sex menn hafa undanfarna
daga dvalizt á mörkum hins
afmarkaða heræfingasvæðis á
Vestfjörðum til þess að gæta
þess, að fólk fari ekki inn á
svæðið. Tveir dvelja i Veiði-
leysu firði, tveir í Hesteyrar-
íirði og tveir á Atlastöðum í
Fljótavík. Enginn varðmaður
mun vera að austan enda tæp
ast þörf.
Stormur og haugasjór hefir
verið við Hornstrandir síðustu
daga og telja menn mjög ólík
legt, að unnt hafi verið að
setja lið á land þar í æfinga-
skyni, þótt það kunni að hafa
■verið á áætlun æfinganna.
Lokið stöplum að
Skjálfandafljóts-
brú í hausí
Frá fréttaritara Tímans
á Fosshóli.
Síðari hluta sumars hefir
veriö unnið að gerð nýrrar
brúar á Skjálfandafljót í
Bárðardal skammt sunnan
við Stóruvelli. Á þetta aö
vera hengibrú og mun verða
lokið við að steypa stöpla og
turna í haust, en brúargerð-
in sjálf bíður næsta sumars.
Burðarstrengirnir eru ekki
enn komnir norður. Jónas
Snæbjörnsson, hinn kunni
brúarsmiður á Norðurlandi,
er verkstjóri við brúargerð-
ina. Að brú þessari verður
hin mesta samgöngubót fyr-
ir Bárðdælinga, því að fljót-
ið skiptir sveitinni illa í
tvennt.
Já, þarna er hann. Bvezkir Kóreufangar kemu fyrir nokkru
bcim til Bretlancls með skipiiiu Asturias. Ættingjar og vinir
þeirra biðu með eítirvæntingú eins og gefur að skilja. Mynd-
in er táknræn um gleði endurfundanná. Gamia konan rýnir
upp á skipið og keinúr auga á son sinn.
Kartöfluuppskera lands-
manna 170-200 bús. tunnur
Blaðamenn voru í gær á fundi með Páli Zóphóníassyni bún
, aðarmálastjöra. Ræddi hann ráðstafanir, scm gerðar verða
ölíklegt, að Iið hafi
gengið á land á
Vestfjörðum
Búið að úthluta lOmillJ.
krónum í smáíbúðalán
tlnnið er að því aö ístvega þær sex iseíIIj.
seaxi :e vantar sainkvæmt Iseimild alþingi»;
Lokið er nú úthluíun þeirra tíu milljóna króna, sem rík
isstjórnin hcfir tekið að láni á þessu ári samkvæmt heimilc'
alþingis til smáíbúðabygginga á þessu ári. Ríkisstjórnir;.
mun nú vinna að því að útvega þær 6 mílljónir, sem vantai
til þess að það mark náist, sem heimild aíþingis náði til.
Alls hafa verið veitt 423 lán
á árinu, og eru nokkur þeirra
aðeins hluti þeirra 30 þús-
r.nda, sem er hámark smá-
ibúðalána. Hins vegar er gert
ráð fyrir að bæta við þau
ían, takist að útvega þær sex
r.iilljónir, sem verið er nú að
reyna að útvega, á þessu
hausti.
Lmsóknarfresti Iokið.
Umsóknarfrésti um smá-
íbúðalán á þessu ári var lok-
ið um síöustu mánaðamót, og
höfðu þá alls borizt nær 1100
umsöknir víðs vegar að af
landinu.
Þrír meiin verða í
Aðalvík í veínr
Frá fréttaritara Tiir.ans á Isafirði.
Héðan frá ísafir'ði vinna nú '
12—15 menn í Aðalvík að!
framkvæmdum við byggingu |
radarstöðvarinnar. Vinna
mun þó ljúka þar á þessu
hausti i lok þessarar viku.
Þrír menn héðan af ísafirði
hafa verið ráðnir til að dvelja
í Aðalvík í vetur við gæzlu
mannvirkja og véla og upp-
töku véla. Hafa valizt til bess
gamlir Aðalvíkingar.
Fá forystufé að
norðan með
síðustu bílum
Eins og áður hefir verið
frá skýrt, er fjárflutningun-
um svo að segja lokið að
norðan, og fjárkaupamenn
komnir suöur. Þó er ráðgert
að fé komi suður á einum eða
tveim bílum enn. Er þar að-
allega um að ræða forustu-
fé, sem menn hafa hug á að
ná í og nokkrar kindur aðr-
ar. Mun Sigurður L. Vigfús-
son á Fosshóli að líkindum
sjá um þá flutninga og kaupa
þessar kindur og koma með
þær suður um eða upp úr
næstu helgi.
6röftin*iim í Horna-
ílrði langt komiim
Sansu á nú ekki eftir
nema um 25 metra út úr
rennunni, sem skipið er að
j graía. Siðustu daga hefir lít
ið miðað, því að botnlag er
harðara á þeim slóðum. Mun
verkinu ljúka eftir nokkra
daga. Einnig mun skipið
laga litils háttar innsigling-
una við Hornafjarðarós.
Skömmtunarseðlum
úthlutað
Úthlutun skömmtuhar-
seðla fyrir næstu þrjá mán-
uði, fer fram í Góðtemplara-
húsinu uppi í dag og fimmtu
dag og föstudag kl. 5—10 alla
dagana. Skömmtunarseðlarn
ir verða eins og áður afhent-
ir gegn núgildandi stofnum
skömmtunarseðlanna greini-
lega árituðum.
Kristín Sigfúsdóttir
skáldkona látin
Frú Kristín Sigfúsdóttir,
skáldkona, lézt að heimili sínu
á Akureyri í fyrradag 77 ára
að aldri. Kristín bjó lengi
ásamt manni sínum Pálma
Jóhannessyni 1 Kálfagerði í
Eyjafirði. Kristín er löngu
þjóðkuiin fyrir skáldsögur sin
ar.
til að auka kartöfiimeyzlu Iandsmanna, en uppskeran er nú
meiri en nokkru sinni, áætluð 170—200 þúsund tunnur.
í
Búnaðarmálastjóri sagði, að tekið höndum saman. Konurn
árleg néyzla landsmanna væri ar ætla að kynna aukna notk
; 100 til 120 þús. tunnur og er un kartaflná í fræðsluþáttum
það um það bil helmingi kvenna í útvarpinu og græn
minna en hjá hihum Norður- metisverz’unin að gera sitt til
landaþjóðunum miðað við að tryggja að einungis fyrsta
íbúatölu. ’Framhald á 7. s:Su.)
Landbúnaðarráðuneytið
stuðlar að aukinni
kartöfluneyzíu.
Landbúnaðarráðherra hefir
skrifað Búnaðaríélagi íslands
bréf og óskað eftir bví, að
gerðar yrðu ráðstafanir til að
auka kartöíluneyzlu lands-
manná og í annan stað að
stuðla að því að komið verði
upp nýjum kartöflúgeymsl-
um, svo að hin mikla upp-
skera geti geymzt. Er þá séð,
að uppskeran í haust nægi
jlandsmönnum íyllilega þáng
J að til nýjar kartöflur koma að
hausti.
Búnaðaríélagið sneri sér síð
an til Kvenfélagasambands ís
1 lands, Stéttarsambands
ibænda og Grænmetisverzlun
|ar ríkisins. Kafa þessir aðilar
i '
Isfirzkir íogarar
iíorna af saltfisk-
veiðuni
Frá fréttarítara Tímans á ísafir'ði.
Togarihn ísborg kom í
fyrradag hingað af Græn-
landsveiðum með 230 lestir
af saitfiski. Hér tekur hann
100 lestir af þurrkuðum salt-
fiski 03 selur ásamt aflanum
í Esbjerg. Togarinn Sólborg
er væntanlegur hingað á
morgun frá Grænlandi með
270 lestir af saltfiski og tek-
ur hann hér einnig 100 lestir
af fiski og íer með til Esbj erg.
Þrjár útigöngukindur
fundust í Þórsmörk
Kíbíííii í doSalandi finust ckki og úlitin
dauð. Fj'árflatniiignm í sýshuta að Ijúka
Frá fréttaritara Tímans á Hvolsvelli.
Fyrir nokkru síðan fóru Ieitarmenn inn í Þórsmörk til aff
l ganga úr skúgga um, hvort þar væri fé, en f járlaust átti aff
vera á þessu sváeffi s. 1. ár, en í haust er flutt þangaff nýtt fé.
I Mörkinni og nágrenni
hennar fundu leitarmenn
þrjár útigöngukindur. Voru
það þrjár ær, og átti eina
þeirra Einar Gddgeirsson í
Eyvindarholti og tvær Sigur-
jón Guðjónsson í Efri-Holt-
1 um. Voru kindurnar reknar
j til byggða og verður þeim
slátrað.
Var í svelti.
Ein þessara kinda, yetur-
gömul ær, fannst í svonefndu
Hvánnárgili, og var hún þar í
jSjálfheldu og sveltu.
Eins og áður hefir verið
frá skýrt, hafði sézt i vetur
og s. 1. haust hvít kind í Goða
landi austah Eyjafjallajökuls.
Var hennar nú leitað ræki-
lega, en hún fannst hvergi.
Er það hald manna, að hún
sé dauð, því að varla gæti
leitarmönnum nú sézt yfir
hana.
Fjárflutningunum í Rang-
árvallasýslu er nú að ljúka
og hafa þeir gengið allvel,
nema tafir þær sem urðu á
íerðum báta vegna veðurs.
Eftir mun að koma fé á tveim
bátum að vestan. Bílflutning
um vestan af Arngerðareyri
er einnig að ljúka, svo og þvi
litla sem keypt hefir verið í
Borgarfirði. Flugflutningar
úr Öræfum eru að hefjast.