Tíminn - 08.10.1953, Blaðsíða 5

Tíminn - 08.10.1953, Blaðsíða 5
227. blað. TÍMINN, fimmtudaginn 8. október 1953. 8 Fbnmtutl. 8. okt. Fall við fyrsta próf Þau tíðindi hafa gerst núí síðustu dagana, að hinn ný- j stofnaði Þjóðvarnarflokkur ís' lands hefir gengið undir próf og fallið. Má það verða þeim' til nokkurra vonbrigða, sem' töldu þennan ungling efnileg- j an. Nánari atvik eru á þessa leið. Þegar að því leið, að hið ný- 1 kjörna Alþingi skyldi kvatt saman, hugðist stjórn Þjóð- j varnarflokksins taka í sínar hendur forystu stjórnarand-, stöðunnar og gangast fyrir, því, að andstöðuflokkarnir þrír hefðu samtök um að koma einum manni í hverja þingnefnd í deildum Alþingis. j Átti þetta að gerast meö því að bera fram sameiginlegan' lista við hlutfallskosningu í nefndirnar. En enginn þessara; þriggja flokka hafði atkvæöa’ magn til að koma að manni með því að róa einn á bát, og því sízt sá, sem minnstur er. j Til skýringar skal þess get- j ið, að í neðri deild hefir Sjálf- j stæðisflokkurinn 14 þing-; menn, Framsóknarflokkurinn 10, Kommúnistar 5, Alþýðu-! flokkurinn 4 og Þjóðvarnar-j flokkurinn 2. En í efri deild hefir Sjálfstæðisflokkurinn 7,; Framsóknarflokkurinn 6, Al-j þýðuflokkurinn 2, Kommún- ístar 2í~og Þjóðvarnarflokkur- ‘ inn engan. Þegar svcr bárust frá Al- ( þýðuflokknum og kommúnist um, kom í ljós, að ekki var hægt að koma á samtökum um listabandalag á þann hátt, sem þjóðvarnarforystan hafði hugsað sér. Kommúnistar lýstu sig að vísu reiðubúna til þátttöku í bandalagi við Al- þýðuflokkinn og þjóðvarnar-j menn. — Alþýðuflokkurinn' kvaðst hins vegar vilja geraj kosningabandalag við Þjóð~; varnarmenn, en þverneitaði að hafa nokkuð saman við kommúnista að sælda í þess- j um efnum. Þar með var sá' draumurbúinn. Málin stóðu þá þannig rétt' áður en þing kom saman, að Þjóðvarnarflokkurinn gat fengið fulltrúa í nefndum í neðri deild, þar sem báðir þingmenn hans eiga sæti, með því að gera bandalag annað hvort við Alþýðuflokk- inn eða kommúnista. Um þetta tvennt gátu Þjóðvarnar menn valið. En nú sannaðist það sem oftar, að „sá á kvölina, sem á völina!" Hér voru góð ráð dýr. Hinir skeleggu vinir Fjallkonunnar lögðu höfuð sín í bleyti og eggjuðu hver annan lögeggj- an, því að svo prúð hjörtu skelfast ekki við fyrstu at- rennu. Svo er sagt, að allir meðlimir flokksstjórnar og fulltrúaráðs svo og ritnefndar Frjálsrar þjóðar, að ábyrgð- ar- og afgreiðslumönnum meðtöldum, hafi verið þar til ráða kvaddir. Því að hér var um það að ráða, að taka hina fyrstu ákvörðun flokksins á Alþingi. Það varð að velja milli kommúnista og Alþýðu- flokksins áður en kosningin færi fram. Fyrr eða síðar reynir á það hjá hverjum nýkjörnum þjóð- arfulltrúa, að hann^eti tekið ákvörðun í máli. Vandi ákvörð unarinnar fer að sjálfsögðu ERLENT YFIRLIT: 0 " ASÍUFÖR NIXONS Ilasm hefir unuið sér sxvaxandi sxlit síðan liarni varð varaforseti Um þeissar mundir er Nixon vara forseti Bandaríkjanna að hefja ferðalag •tii: 18 Asíulanda sem sér- stakur fulltrúi Eisenhowers forseta. Hann njan flytja þjóðhöfðingjum þessara landa kveðju forsetans og ræða við. þá og aðra forustumenn þeirra um sambúð þessara landa og Bandaríkjanna og um alþjóð- leg málefni yfirleitt. Tilgangur far arinnar ef að vinna að bættri sam búð þessara landa og Bandarikj- anna og eyða ýmsri tortryggni í garð hinnar nýju stjórnar Banda- ríkjanná. ... Tveir kunnir Bandarikjamenn hafa nýlega farið svipuð ferðalög á undariTSTixon. Það eru þeir SteV- enson, föfsétaefni demokrata í sein ustu kosningum, og Knowland, hinn nýi foringi republik. í öldunga deildinni. Ferð beggja þeirra hefir vakið rrúkla athygli. Stevenson gætti þess vel í ferðalaginu að koma frám sem fulltrúi Banda- ríkjanná, en ekki neins ákveðins flokks eðá sérsjónarmiða, og hefir för .hans" áreiðanlega aflað honurn aukins álits bæði erlendis og heima fyrir. Knowland lét hins vegar ekk ert tækífæri ónotað til að túlka það sjónarmið þeirra flokksbræðra hans, seui vilja láta Asíumálin skipa öndvégiö í utanríkisstefnu Bandtirík'janna og sýna hörku og ósáttfýsf ðf skiptum við kommún- ista þary-.=Nixon mun m. a. ætlað að dragæ úr áhrifum af þessum opinskáuyfirlýsingum Knowlands og láta. það koma í ljós, að sjónar- mið Eiseþhowers er ekki ósvipað og Steveilsohs í þessum málum. Fylgjasrt vel með málum. í forsetakosningunum í Banda- ríkjunum á s. 1. hausti var tals- vert reyrit að ala á því af -andstæð- ingum Eisenhowers, að Nixon væri ungur og' óreyndur og hefði ekki sýnt neina. sérstaka ábyrgðartil- finningu .r' sem stjórnmálamaður. Prama sitin ætti hann því eingöngu að þakka, að hann væri slyngur áróðursmaður. Þetta bæri kjósend um að gera sér ljóst, því að eitt óvænt dáúðsfall gæti gert þennan óreynda hiann að forseta, ef Eisen hower næói kosningu. Á þeinv-átta mánuðum, sem liðn- ir eru síðan Nixon varð varaforseti, hefir álitið á honum stórlega breyzt. Hann þýkir hafa sannað það á þessum íima, að hann sé mikið mannsefní/ og hafi til að bera marga þárhæfileika, er nauðsynleg ir séu farsælum stjórnanda. Hann hefir sýnt’,; að hann á gott með að gera sérj-grein fyrir málum, og hefir lag á,því að koma sjónarmiö- um sínum fram. Eisenhower hefir líka í sívaxandi mæli falið hon- um ýms: vandasöm verkefni, er honum hefír tekizt að leysa á ákjós anlegan' hátt. Hingað'‘til hefir það verið venj- an, að varaforsetinn kæmi lítið ná lægt stjórnarstörfum, en léti það vera aðalyerkefni sitt að vera fund arstjóri öldungadeildarinnar. Þá hefir og varaforsetinn komið allmik ið fram opinberlega. Þessu hefir hins vegar verið hagað á annan veg nú. Nlxon hefir gert sér far um að láta ytið á sér bera opinber- lega og yfirleitt ekki komið neitt fram, nema Eisenhower hafi sér- staklega óskað þess. Hins vegar hef ir hann tékið þeim mun meira þátt í vinnunni að tjaldabaki. Hann hefir mætt á öllum ráðuneytisfund um hjá Eisenhower og hann á fast sæti í öryggisráði ríkisins, þar sem ' mörg vandasömustu málin eru oft | ráðin til lykta. Hann tekur þátt í (öllum ráðstefnum, sem fara fram milli Eisenhowers og fulltrúa þing j flokks republikana. Allt þetta veitir , honum aðstöðu til að hafa fullt yfil’ lit um stjórn ríkisins. Það er líka I talið, að enginn varaforseti áður ! hafi fengið aðstöðu til að fylgjast j ' eins vel með gangi málanna og ' I Nixon og enginn því verið jafn vel undir það búinn að taka við forsetastörfum, ef atvikin höguðu því á þá leið. T. d. skorti Truman þessa aðstöðu alveg, þegar hann tók við af Roosevelt. I Milligöngumaður milli þingsins og Eisenhowers. | Vaxandi kynni þeirra Eisenhow- ; ers og Nixons hafa leitt til þess, að Eisenhower hefir fengið aukið : álit á þessum varamanni sínum og i því fálið honum ýms yandasöm j störf í sívaxandi mæli. Einkum I hefir honum verið falið að annast j ýmsa samninga milli forsetans og i þingflokks republikana, þegar i árekstrar hafa orðið milli þessara j aðila. Nixon nýtur þess, að hann hefir átt sæti í báðum þingdeild- um og veit því betur, hvernig á að ræða við þingmenn en Eisenhower og stjórn hans. Yfirleitt hefir hon- um líka tekizt að fá þingflokkinn til að fallast á þær tillögur, sem hann hefir beitt sér fyrh’. Meðal slíkra verkefna, er Nixon hafa verið falin, er að reyna að stöðva McCarthy, þegar hann hefir þótt ganga of langt í yfirheyrslum sínum. Nixon hefir ráðið frá því, að Eisenhower tæki upp fulla and- stöðu við McCarthy, því að það j gæti valdið hættulegum klofningi j i flokknum, en reyna heldur að ] draga úr mestu öfgum hans. Pram til þessa hefir Nixon líka helzt reynzt sá maður, sem McCarthy hefir tekið eitthvert tillit til. Ástæð an er sú, að McCarthy veit, að Nix- on verður ekki ásakaður fyrir und- anlátssemi við kommúnista, því að það var Nixon, sem afhjúpaði þann eina starfsmann utanríkisráðuneyt isins, Alger Hiss, er hefir orðið uppvís að njósnum fyrir kommún- ísta. Sjálfur getur McCarthy ekki bent á neinn slíkan árangur. Pyrir McCarthy gæti því orðið enn verra að fá Nixon andstæðan sér en Eisen hower. Þess vegna hefir hann viss- an beyg af honum. Práfall Tafts mun að líkindum gera það að verkum, að Eisenhower mun í enn ríkara mæli en áður þurfa að treysta á milligöngu Nixons við þingflokk republikana. Ef Nixon tekst ekki að hafa taum- hald á hægra armi' flokksins, er ekki annar líklegur til að gera það. Skoðanir Nixons. Nixon hefir forðast að láta bera mikið á því, hver afstaða hans væri til ýmsra mála, heldur kappkostað að lýsa yfir fylgi sínu við Eisen- hower. Þeir, sem fylgjast með að tjaidabaki, telja hins vegar víst, að Nixon sé Eisenhower sammála um utanrikismálastefnuna í öll- um höfuðatriðum. Á því sviði stend ur hann með hinum frjálslyndari armi republikana. Þá telja Kunnug ir, að Nixon hafi beitt sér gegn ] því, að dregið væri úr framlögum ! til vígbúnaðar, því að Bandaríkin j megi ekki draga úr styrk sínum meðan ástandið i alþjóðamálum sé jafn óráðið. Að þessu leyti er Nixon sammála þeim Stevenson og Tru- man, er hafa gagnrýnt það, að stjórnin hefir lækkað framlögin til vígbúnaðar allverulega frá því, sem gert hafði verið ráð fyrir í fjárlagafrumvarpi þvi, sem Tru- man lagði fram s. 1. vetur. Af framangreindum ástæðum hef ír Nixon verið andvígur verulegum skattalækkunum, eins og ástatt er. Að öðru leyti þykir hann heldur íhaldssinnaður í innanlandsmálum. Talið er, að hann hafi átt megin- þátt í því, að Eisenhower féllst ekki á breytingar þær á Taft- Hartley-lögunum, sem Durkin verkamálaráðherra gerði að skil- yrði sínu fyrir þátttöku í stjórn- inni. Álit Nixons var, að þingið fengist ekki til að samþykkja þær og þær ættu heldur ekki almennu fylgi að fagna, þótt þær kynnu að mælast vel fyrir hjá verkamönn- um, en fylgi þeirra hefðu republi- kanar hvort eð er ekki. Eisenhower er talinn fara eftir tillögum Nixons í vaxandi mæli, þar sem þær samrými yfirieitt ábyrgðartilfinningu og glöggt mat á því, sem er pólitískt hyggilegt. Nixon sé eins konar miðflokks- maður í hinum klofna flokki repu- blikana og njóti hæfilegs trausts beggja armanna. Ráð hans séu því oftast vel ráðin. Eftirmaður Eisenhowers? Ef Nixon tekst að halda þeirri aðstöðu, sem hann hefir nú, eru vaxandi líkur taldar fyrir því, að hann verði forsetaefni republikana, er Eisenhower lætur af störfum annað hvort 1956 eða 1960. Nixon væri ekki aldurinn að meini, þótt hann yrði að bíða til 1960, þar sem hann er nú ekki nema 39 ára. Um þetta er hins vegar erfitt að spá á þessu stigi. Vafalaust munu ýmsir verða til þess að keppa við hann, eins og t. d. Knowland, sem talinn er hafa mikinn hug á for- setaembættinu. Thomas Dewey get ur einnig komið vel til greina, eink um, ef hann vinnur ríkisstjórakjör í New York-fylki einu sinni enn á næsta ári. Hann mun hafa átt kost á því nú að verða forseti hæsta- réttar, en hafnað því. Gæti það bent til þess, að hann hefði hug á enn æðra embætti í framtíðinni. eftir því, hvort þar er um smá mál eÖETstórmál að ræða. Það sKal íátið ósagt að þessu sinni, Kve vandasöm sú á- kvörðun hafi verið, sem að þessu sþnni varð inntökupróf Þjóðvarnarflokksins á Al- þingi. En á þingfundum s.l. mánudag kom það í ljós, að honum hafði reynst um megn að taka ákvörðunina. Hann hafði ekki getað gert það upp við sig, hvort hann ætti held- ur að vinna með Alþýðuflokkn um eða kommúnistum við kosninguna í þingnefndir. — Þess vegna á hann engan full- trúa í neinni þingnefnd að þessu sinni. Hann féll á sínu fyrsta prófi. Vera má, að umhugsunar- fresturinn hafi verið of stutt- ur — eða málið of erfitt úr- lausnar. En svona ’ er lífið. Þingmenn og flokkar þurfa oft að taka ákvarðanir í stór- málurn, jafnvel stærri en margnefnt prófmál Þjóð- varnarflokksins var, þótt eng an veginn skuli lítið úr því gert. Og oft er fyrirvarinn ekki lengri en í þetta sinn. Sauðfé fjölgar á Fáskrúðsfirði Slátrun sauðfjár er hafin 1 Fáskrúðsfirði og verður slátrað þar um sex þúsund fjár, eða svipað og í fyrra. Sauðfjáreign er ekki mjög mikil í kaupstaðnum, en þó eru allmargir, sem eiga þar fáeinar kindur aðallega til að fullnægja heimilisþörfum sínum um kindakjöt. Aftur á móti er margt fé af bæjun- um í nágrenni kaupstaðarins, sem rekið er til slátrunar. Heyskapur er í mesta lagi eftir sumarið og því líklegt að margir fjölgi fé og setji á vetur fleira en í fyrra. Faxaverksmiðjan og Landsbankiim Ef atvinnufyrirtæki, t. d. frystihús í einhverju af- skekktu sjávarþorpi, hefir ekki getað staðið í skilum eða ekki átt nógu öfluga bakhjalla fyrir „sunnan", hefir yfirleitt ekki staðið á bönkunum að ganga hart eftir greiðslu. All- mörg slík fyrirtæki hafa verið gerð gjaldþrota á undanförn um árum og eignir þeirra aug lýstar til uppboðs. Af hálfu bankanna gat þetta vitan- lega verið vel réttlætanlegt ef sama reglan var látin gilda fyrir alla. En því miður er það nú komið í ljós, að Landsbankinn og Útvegsbankinn gera sér nokkuð mikinn mannamun í þessum efnum. Á sama tíma og Landsbank inn lætur auglýsa lítil frysti- hús úti á landi til sölu vegna minniháttar vanskila, lætur hann ekki aðeins ógert að inn heimta vexti og afborganir af lánum til Faxaverksmiðjunn- ar, heldur mun láta sér nægja að liækka lánin til verksmiðj unnar í sama hlutfalli og van skilunum nemur. Orðrómur gengur um það, að hann hafi veitt verksmiðjunni stöðugrt ný og ný rekstrarlán, þótt hún hafi aldrei getað staðið nein skil á þeim. Maugt bendir til þess, að skuld verksmiðjunnar við bankann sé nú farin að nálg- ast tvo milljónatugi. Alls munu skuldir verksmiðjunn- ar komnai' yfir 30 millj. kr. Meðan hvarvetna skortir láns fé til nauðsynlegra fram- kvæmda, hefir um 35 millj. kr. verið varið í þetta fyrirtæki vegna gróðavonar nokkurra spekulanta. Landsbankinn virðist samt hinn rólegasti vegna Faxa- verksmiðjunnar. Það virðist ekki hvarfla neitt að honum, að heimta nú gjaldþrot og uppboð eins og gert væri, ef umkomulítið utanbæjarfyrir- tæki ætti hlut að máli. Faxaverksmiðjan á líka vclduga skjólstæðinga. Ann- ars vegar er bæjarstjórnar- meirihlutinn í Reykjavík.- Hins vegar Kveldúlfur. Sjálf- stæðisflokkurinn á ekki til feinskis jafn mikil ítök í bank anum og raun ber vitni um. | Ef bæjarstjórnarmeirihlut- . inn, sem var í Vestmannaeyj um, hefði haft jafn greiða aðgöngu að lánsfé bankanna. og Reykjavíkurbær, hefði hann ekki lent í eins miklum rekstrarfjárskorti með togara útgerðina og raun ber vitni um. Það sýnir reynslan varð- , andi Faxaverksmiðjuna. Hefði líka einhver þingmað ur Sjálfstæðisflokksins, eins og Sigurður Ágústsson, haft með togaraútgerðina í Vest- mannaeyjum að gera, er næsta líklegt, að Útvegsbank inn hefði staðið öðruvísi að því máli. Þá hefði sú stað- reynd komið í ljós, að Sjálf- stæðisflokkurinn getur haft tögl og halgdir í Útvegsbank- anum, ef honum sýnist svo. Það er staðreynd, sem vert ! er að gera sér ljósa, að Sjálf- I stæðisflokkurinn hefir náð ; yfirráðum yfir tveimur stærstu bönkunum og notar ( það vald í vaxandi mæli fyrir ! gæðinga sína. Ein orsök láns- ; f járskortsins er því sú, að f jár | magnið er bundið meira og I meira í þjónustu hinna j „stóru“ gæðinga flokksins, í Faxaverksmiðjunni og öðrum I (Framhald á 7. síðu.)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.