Tíminn - 15.07.1954, Page 4
I
TÍMINN, fimmtudaginn 15, júlí 1954.
155. blað.
Löggjöfin veröur í hvívetna að stefna
að aukinni verndun jarövegs cg gróðurs
Frá aðalfundi Skógræktarfélags íslands að Hallormsstað
Aðalfundur Skógrsektar-
félags íslands árið 1954 var
naldinn í Húsmæðraskólan-
um á Hallormsstað 2. og 3.
Júií siöastiiöinn.
Fundinn satu 43 fulltrúar
frá 18 héraðsskógræktarfé-
lögum, stjórn Skógræktarfé-
lags íslands, skógræktarstj óri
og nítján gestir.
Fundinum stjórnaði for-
maður félagsins, Valtýr Stef
ánsson, en fundarritarar Há-
kon Guðmundsson, Baldur
Þorsteinsson og Björn Þórð-
arson.
Áður en gengið var til dag-
skrár minntist formaður Þor
steins Þorsteinssonar sjúkra-
samlagsgjaldkera á Akureyri,
en hann var alla ævi áhuga-
samur ræktunarmaður og
einn af ötulustu félögum
Skógræktarfélags Eyfirðingo.
Sat hann flesta aðalfundi
Skógræktarfél. íslands sem
fulltrúi þess. Fundarmenn
heiðruðu minningu hans með
því að rísa úr sætum sínum.
Skýrsla framkvæmdastjóra.
Framkvæmdastjóri félags-
ins. Hákon Bjarnason, skóg-
ræktarstjóri flutti ýtarlega
skýrslu um starfsemi félags-
ins á liðnu ári og um fram-
tíðarhorfur í skógræktarmál-
um. Tillögur aðalfundarins
1953 höfðu allar fengið af-
greiðslu og má þar meðal
annars geta þess að efnt var
til sérstaks fundar á síðast-
liðnum vetri með fulltrúum
frá 17 skógræktarfélögum. Á
þeim fundi var ákveðið um
h slztu framkvæmdir félag-
anna á þessu vori og starfs-
aðferðir samræmdar. Kvað
skógræktarstjóri fund þenn-
an hafa orðið til mikils
gagns og sjálfsagt að fram-
hald verði árlega á slíkum
fundum.
Þá benti skógræktarstjóri
á að ein tillaga aðalfundar-
ins 1953, þar sem héraðsskóg
ræktarfélögin voru hvött til
þess að útvega sér a. m. k.
30 ha land til þess að koma
sér upp samfelldum skógi.
hefði strax borið árangur,
þar sem væru kaup Skógrækt
arfélags Árnesinga á jörð-
inni Snæfoksstöðum í Gríms
nesi, en þar er kjarllendi
mikið.
Af öðrum störfum stjórn-
arinnar milli aðalfunda gat
skógræktarstjóri þess m. a.
að undirbúningi að skipti-
ferð milli Noregs og íslands
hefði. veríð að fullu lokið, er
Norðmenn urðu að hætta við
hana af óviðráðanlegum or-
sökum.
Þá vék skógræktarstjóri að
fjárþörf skógræktarinnar í
landinu og þá alveg sérstak-
lega að uppeldisstöðvunum.
Nú væri uppeldi trjáplantna
komið í eina milljón plantna
en markið væri tvær milljón-
ir árlega, en til þess skorti
tilfinnanlega aukið rekstrar-
fé til uppeldisstöðvanna. Hef
ir stjórn félagsins unnið öt-
ullega að því að fá úr þessu
bætt og orðið nokkuð ágengt,
en hvergi nærri svo nægi.
Starfsemi
skógræktarfélaganna.
Gjaldkeri félagsins, Einar
G. E. Sæmundsen. las upp
reikninga Skógræktarfélags
íslands og Landgræðslusjóðs
fyrir árið ‘1953, og voru þeir
síðan bornir undir atkvæði
og samþykktir.
Formaður lýsti þvínæst til
lögum, sem fram höíðu kom
ið og urðu nokkrar umræð-
ur um þær, en þeim síðan vís
að til allsherjarnefndar.
Þá fluttu fulltrúar héraðs-
skógræktarfélaganna skýrsl-
ur um starfsemi félaga sinna.
Kom ljóst fram, að öll hafa
ifélögin stóraukið framkvæmd
ir sínar á þessu ári og mörg
tvöfaldað tölu gróðursettra
trjáplantna eins og t. d. Skóg
ræktarfélag Suður-Þingey-
inga, sem á þessu vori gróð-
ursetti 67 þúsund trjáplönt-
ur, en girðingar þar í sýslu
munu vera um 100 bæjar-
jskóga. Fundurinn sendi stjórn
! Kaupfélags Borgfirðinga
jþakkir fyrir hið myndarlega
játak í þágu skógræktar, er
’ félagið samþykkti á sl. vori
' að minnast 50 ára afmælis
síns með því að láta gróður-
setja um 50 þúsund trjáplönt
ur árlega í Norðtunguskógi
næstu 10 ár undir umsjón
Skógræktarfélags Borgfirð-
inga.
Skógræktarfélag Eyfirðinga
gróðursetti á þessu vori 94
þúsund plöntur, en Skóg-
ræktarfélag Reykjavíkur um
125 þús þúsund. Þessi félög
starfrækja einnig uppeldis-
stöðvar sem kunnugt er. Skóg
ræktarfélag Borgfirðinga hef
ir líka farið inn á þá braut
og er nú að koma á fót upp-
eldisstöð í Norðtunguskógi.
Af skýrslum félaganna má
greinilega ráða að áhugi fyr-
ir skógrækt fer hvarvetna
vaxandi og sjálfboðaliðsstarf-
ið er orðið svo mikið á veg-
um þeirra að ekki mun óvar-
legt að meta það allt á 700
þúsund krónur sé miðað við
núverandi kaupgjald.
Að loknum skýrslum félag
anna síðari fundardaginn
skilaði allsherjarnefnd áliti
um framkomn&r tillögur.
Framsöguma'íi'ir var Ármann
Dalmannss^n.
Aðrar áiyktanir.
Samþykkt var svohljóðandi
tillaga um gróðurvernd:
Aðalfundur Skógræktarfé-
lags íslands. haldinn að Hall
ormsstað 2. og 3. júlí 1954
skorar á Alþingi að stefna í
hvívetna í löggjöf að aukinni
verndun jarðvegs og gróðurs
'og að taka stefnuskrárákvæði
þess efnis í stjórnskipunar-
lög lýðveldisins. Tillögunni
fylgdi svohljóðandi greinar-
gerð:
Jarðvegur og gróður lands-
ins eru verðmæti, sem vel-
ferð hverrar kynslóðar bygg-
ist á. Þessi verðmæti, sem í-
búum landsins eru fengin í
hendur frá náttúrunni, er
hverri kynslóð skylt að varð-
veita og skila þeim í hendur
niðja sinna. Veðráttu og jarð
vegi er þannig háttað hér á
landi, að sérstök ástæða er
til þess að staðið sé vel á
verði um verndun jarðar-
gróðurs. Af þessum sökum er
eðlilegt og æskilegt að sett
sé í stjórnarskrá íslenzka lýð
veldisins stefnuskrárákvæði
um eðlilega og skynsamlega
notkun gróðurs landsins.
Samþykkt var áskorun til
CROSLEY
kæliskápar
fræðslumálastjórnarinnar um
að aukin verði fræðsla um
skógrækt í skólum landsins
'og að varið verði tilteknum
thva á vcri hverju til gróð-
ursetningar.
| Þá voru samþykktar tillög-
ur um að Skógræktarfélag
iíslands vinni að því að ung-
lingar á aldrinum 13—15 ára
vevði ráðnir á vori hverju 4
—6 vikur til skóggræðslu og
ennfremur að fara þess á leit
við viðkomandi yfirvöld að
hluti af verkefni vinnuskol-
anna verði jafnan gróður-
setning trjáplantna.
I Þá voru samþykktar sér-
stakar tillögur um fjáröflun
fyrir skógræktina og stjcrn
félagsins falið að vinna að
þvi má’i.
i Fundurinn mælti með því
að uppeldisstöð í Vestfirðinga
fjórðungi verði veittur fjár-
hagslegur stuðningur, þegar
er aukin fjárveiting gerir það
mögulegt.
I
Hallormsstaðarskógur.
| Úr stjórn félagsins áttu að
ganga Einar G. E. Sæmund-
sen og H. J. Hólmjárn, en
jvoru báðir endurkostnir. Aðr
ir í stjórn félagsins eru Val-
týr Stefánsson, Hermann
„ónasson og Haukur Jörunds:
son. í varastjórn var endur-1
kjörinn Ingvar Gunnarsson.
Endurskoðendur voru endur-
kjörnir þeir Halldór Sigfús
son og Kolbeinn Jóhannsson.
| Báða fundardagana var
farið um Hallormsstaðarskóg
ur.dir leiðsögn Guttorms Páls
sonar, skógarvarðar og Sig-
urðar Blöndal. skógfræðings.
Gaf þar að-líta ýmislegt af
^ því, sem merkilegast er í
' skógræktarmálum landsins.
Höfðu margir f ulltrúanna
' ekki komið þarna áður, og
'undruðust mjög hinn mikla
iþroska, sem erlendur barr-
'gróður ýmissa tegunda hefir
náð. En þeir fulltrúanna, er
'sátu aðalfund Skógræktarfé-
jlags íslands árið 1948 á Hall-
ormsstað, kom öllum saman
um að gróskan í síberíska
lerkinu í Guttormslundinum
hafði farið fram úr öllutn
vonum. Lerki þetta var gróð
ursett 1938 og er hæsta tréð
nú 7,70 m. en meðalhæð 4,51
m. Hið sama má reyndar segja
um aðra lundi erlendra trjá-
tegunda. Vöxtur þeirra er svo
öruggur og jafn að undrum
sætir, ekki sízt þegar haft er
í huga að sumurin 1948—
1953 hafa verið óvenjuköld
og hvert vorið öðru verra á
Austurlandi. Ferðir þessar um
Hallormsstaðarskóg voru því
fulltrúunum sannkölluð opin
berun og munu áreiðanlega
efla þá til enn meiri dáða í
skógrækt.
Ný gerð - Model LFT
IVýtí veriS kr. 6 100.
Frystihólf yfir skápin þveran
Tvær liillur í hurð.
Allar gerðir af CROSLEY kæliskápum eru til sýnis og
sölu í raftækjadeild firma okkar í Hafnarstræti 1 —
GjjörUS sví» vel n& líta inna,
O. Johnson & Kaaher h.f.
S5íííí{í5í5í5í5SSSa5J5í55SK5S5S5SS5íí5íí55ííí555í5í5S5!SS!5SS5ÍSÍJa
gSgSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSi^SSSaasssssssasssaasœyaMœraiMggT^TTrgy*
Skrifstofur okkar
verða lokalSar frá ©g’ mcð 1S. jjúlí íil
3. ágúst nsestkom., vegna snmarleyfa.
Heíldverzlun
Árna Jónssonar h.f.
Aðalstrœti 7
TRULOFUN-
ARHRINGAR
Steinhringar
Gullmen
og margt
fleira
Póstsendi
Lokað vegna sumarleyfa
frá ©j»* mcð 19. 1». m. til 6. ágúst.
Efnalaugin Glæsir
llafnarstrætf 5
Lanfásvegi 19
SSSÍBSSSSSSSSSSsaSSSSSÍÍSSSSSSSSSSSSÍSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSÍÍSSÍSSS
«SSS55SSSSSS5555^3S5S5S5SS55SSSS55SSSSS5SS55SSSS5SSSSSSS5SSS55SS$SC5SS3»
KJARTAN ÁSMUNDSSON
gulismiður
Aðaistræti 8. Sími 1290. Reykjavík.
Háskólastúdentar
sem hafa í hyggj u að sækja um garðvist næsta vetur
eru minntir á að umsóknir þeirra þurfa að vera komn-
ar í hendr.r garðstjórr.ar fyrir 15. ágúst.
Stjúmi stúdentagarðanna
Dragið ekki að greiða blaðgjaldið