Tíminn - 27.03.1955, Qupperneq 5
32. blað.
TÍMINN, sunnuðaginn 27, marz 1955.
aypgfti iwrmr Fm
Sunnud. 27. tnarz
Bankarnir og
skuldunautar þeirra
Morgunblaðið virðist hafa
misskilið herfilega þau um-
mæli Tímans, að ástæða
væri til að rannsaka skipti
bankanna við fleiri fyrir-
tæki en Ragnar Blöndal h. f.
A. m. k. læst Mbl. skilja þessi
ummæli á þann veg, að Tím-
inn sé eitthvað sár yfir rann
sókn Blöndalsmálsins.
Ummæli Tímans gáfu vissu
lega sízt af öllu tilefni til
slíks misskilnings. Tíminn
lét þvert á móti í ljós ánægju
yfir þessari rannsókn, enda
átti formaður Framsóknar-
flokksins mestan þátt í því,
að til hennar var stofnaö.
Ef Framsóknarflokkurinn
hefði verið eitthvað mótfall-
inn því, að mál þessa fyrir-
tækis yrði rannsakað, hefði
formaður flokksins ekki beð
ið um rannsókn á vissum at-
riðum þess, því að hún var
líkleg til þess að leiða af sér
rannsókn málsins alls, eins
og líka hefir orðið raunin.
Tíminn gerði líka meira en
aö fagna umræddri rann-
jsókn. Hann hélt því fram til
viðbótar, að ekki mætti láta
hér numið staðar, heldur
ætti að rannsaka viðskipti
bankanna við önnur fyrir-
tæki, er ekki myndu hlut-
fallslega betur stæð en Ragn
ar Blöndal h. f. Tvö dæmi
voru sérstaklega nefnd þessu
máli til stuðnings.
Það er þessi afstaða Tím-
■ans, sem virðist hafa valdið
því, að Mbl. tekur máli hans
illa og læzt misskilja það.
Mbl. tekur þó fram, að allt
sé í lagi með fjármál þeirra
fyrirtækja, sem Tíminn ger-
ir að umtalsefni, en Mbl. tel-
ur að annað þeirra sé tengt
Ólafi Thors forsætisráðherra,
en hitt Sigurði Ágústssyni
alþingismanni. Engum komi
annað til hugar, segir Mbl.,
en að Kveldúlfur eigi vel fyr
ir skuldum, og Sigurður sé
svo skuldlítill og vel stæður,
að hann sé einn hinna sárfáu
úitgerðarmanna, sem ekki
hafa beðið um skuldaskil!
Hér skal enginn dómur lagð
ur á þessa frásögn Mbl. Sé
hún liins vegar rétt, ætti
Mbl. ekki að taka því illa, a.
m. k. ekki vegna þessara fyr
irtækja, þótt gluggað væri í
viðskipti bankanna við
nokkra helztu skuldunauta
þeirra. Mbí. ætti þá þvert á
móti að stuðla að slíkri at-
hugun, svo aé það geti sann-
að svart á hvítu, að Tíminn
hafi farið með staðlausa
stafi, ef hann hefir átt við
umrædd fyrirtæki með áður
greindum ummælum.
Þegar svona er komið, ættu
Mbl. og Tíminn því að geta
orðið sammála um að stuöla
að slíkri athugun.
Dómsmálaráðherrann hef
ir nýlega á Alþingi talið það
hæpna stefnu hjá bönkun
um að reyna undir öllum
kringumstæðum að komast
hjá töpum. Ummæli þessi
verða helzt skilin á þann
veg, að bankarnir eigi ekki
að framlengja um of líf skuld
ugra fyrirtækja i von um, að
óvænt höpp reisi þau viö.
Þessi kenning ráðherrans hef
ír vissulega við mikið að styðj
ast.
i Fátt varðar þjóðina meiru
Sir Anthony Eden — talinn sjáif-
sagður eftirmaður Churchills
Grein þessi fjallar, eins og nafn
ið bendir til, um Anthony Eden,
núverandi utanríkisráðherra
Breta, sem sjálfsagður þykir til að
verða cftirmaður Winstons Chur-
chills í forsætisráðhcrrastól. Grein
in er dregin saman úr stórblaðinu
LIFE og er eftir Emmet John
Hughes.
Einn hinna mörgu og merkilegu
hluta í lífi sir Anthonys Edens og
ef til vill hinn merkilegasti var faðir
hans. Sir William Eden. var gáfaður
maður með listrænar tilhneigingar,
en allt líf hans var skyggt sjálf-
skaparvítum. Hann skipti sér ekki
af börnum 'sínum, gestum sinum
eða yfirleitt því, sem gekk á í kring
um hann. Svör hans voru óp og
háreysti. Ókurteisi gagnvart gestum
var honum eðlileg. Óþolinmæði hans
gagnvart skoðunum annarra var
síður en svo byggð á fróðleiksfýsn,
heldur beinlínis á ruddaskap.
En af öllu þessu er þó eitt, sem
Anthony og systkini hans fjögur
hafa hlotiö í arf — hinar hörðu
lexíur, sem þeim lærðust án þess
að þeim væru þær nokkurn tíma
kenndar. Að þægilegt viðmót vinn
ur alltaf, hvað sem ruddaskapnum
líður, að þolinmæðin hefir yfirhönd
ina, þar sem sjálfselskan lætur í
minni pokann og að samningaleiðin
græðir þau sár, sem hrokinn veldtr.
Það var líka hinn dæmalausi virðu-
leiki, sem hélt föðrurnum uppi.
„Gangið", var hann vanur að segja
eins og þið eigiö alla iörðina". Og
til eins sonar síns skrifaði hann-
,Það er aðeins einn hlutur, sem er
þess virði að lifa fyrir, og það er
að koma hreint fram. í guðanna
bænum segið alltaf hug ykkar allan
og svíkið aldrei þá, sem treysta
ykkur“. Allt þetta átti sinn þátt
i að mynda þann unga mann, sem
sir William hefði verið óendanlega
hreykinn af, hefði hann lifað.
Anthony fæddist í júní 1897 i
Windlestone Hall í County Dur-
ham, þar sem Eden-ættin hefir búið
í hartnær 400 ár. Hið góða skap hans
var daglegt ásteytingarefni föður-
ins, þar til Anthony, þá níu ára gam
all, var sendur í Sandroyd-skólann
og siðan til Eton árið 1911. Vitnis-
burðir hans voru glæsilegir. Hann
sýndi sérstakan áhuga á stjórnmál-
um og fékk verðlaun fyrir kristin
fræöi. Og síðan — skotgrafirnar
Þeir voru 28 í fjórða bekknum í
Eton árið 1914, en áður en styrjöld-
inni, sem átti að binda endi á allar
styrjaldir, var lokið, voru níu þeirra
félaga farnir. Með þessum niu fór
elzti bróðir Anthonys, John, sem
týndist í Frakklandi, og yngsti bróð
irinn, Nicolas, sem týndist í Jót-
landi. í skotliðasveitum hans há-
tignar var Anthony, þá 19 ára, gerð
ur að yngsta yfirmanni í brezka
hernum og sæmdur heiðursmerki.
Við Somme dvaldist Anthony i
skotgröfum á næstu grösum við
þvzkan undirforingja, sem seinna
tók sér nainið Adolf Hitler Næstum
20 árum seinna, er þessir tveir meixn
hittust í fyrsta sinn í brezka sendi-
ráðinu í Berlín, háðu þeir barátt-
una á ný, en í þetta sinn að baki
matseölanna.
Vera Anthonys í Oxford, en þang-
að hélt hann í október 1919, ein-
kenndist af ásetningnum um að
vinna upp þann tíma, sem farinn
var forgörðum. Aðalfag hans var
lega umhverfi, sem aðeins var lýst
] upp af aðvörunum Winstons Chnr-
| chiils benti Churchill sválfur á
Eden sem „hinn eina sanna mann
er heyrði til þeirrar kynslóðár. er
alizt hefði upp í ógnum styrjaldar-
innar“.
Sir Anthcmy Eden
austræn tungumál, og íauk hann
prófi í persnesku og arabisku íneð
hinum bezta vitnisburði. Skólaleyf-
um sínum eyddi hann hinum megin
Ermarsundsins í því skyni aö íu.H-
komna frönskukunnáttu sína. Hann
var hrifinn af nútíma málaralist,
og eitt sinn er liann reit um Cézamie
og list hans i blað nokkurt, mátti
þar finna eina þeirra setninga, er
svo mjög einkenna hann: „Að lifa
eingöngu fyrir list sína og sleppa
öllu öðru, það var fordæmið, sem
Cézanne gaf okkur“. Þrjátíu árum
siðar hefði hver sem þekkti hann,
fúslega gefið honum vitnisburðiun:
„Meira en níu tíundu hlutar xns
hans eru tileinkaðir því, sem hann
hefir tekizt á hendur — utanríkis-
málunum. Það er mjög fátt annað,
sem kemst að“.
Frá Oxford hélt hann beint Út í
stjdrnmálabaráttuna og fyrsta ósig-
urinn, sem hann bar af hólmi í ~ínu
eigin héraði, þegar Verkamann..
flokkurinn hafði algeran vinning.
Ári seinna, 1923, bauð hann sig
fram á ný í kjördæmunum Learn-
ington og Warwick og var kjörinn.
Kosningabaráttan stóð sem hæst, er
hann kvæntist Beatrice Beckstc,
hinni fögru dóttur eins eiganda
blaðsins Yorkshire Post
Það varo því ekki um langa brúö
kaupsferð að ræða — aðeim tvo
daga — og þá flýttu ungu hjónin
sér aftur til kosningabaráttunnar.
Eden var því ekki nema 26 ára
gamall, er hann var kjörinn á þnig
fyrir þessi kjördæmi, en þingniuður
þeirra hefir hann verið síðan. Fyrir
Lundúnabúa var hann í þá daga
.kapíeinn Eden“ glæsiiegur maður
og vel upp alinn og atkvæðamikill
í neðri deildinni án þess að vera
rifrildisseggur. Á næstu árum var
Eden sú stjarna á stjóvnmálahimr-
inum, sem í mestum uppgangi var.
Þingskipaður einkaritari Chamher-
lains, utanríkisráðherra áiið 1926
aðstoðarutanríkisráðhcrra árið 1931,
framkvæmdastjóri Þjóðabandalags-
ins 1935 og utanrikisráöherra i des-
ember sama ár, þá 38 ára gamall
og sá yngsti, sem hafði það embætti
á hendi í næstum heila öld.
Glæsibragur upphefðar hans varð
enn glæsilegri vegna hinna drunga-
legu atburða allt um kriijg- hinna
árangurslausu tilrauna til alheims
afvopnunar, meðan heimurinn hélt
stöðugt í áttina tii styrjaldar, sveitir
Hitlers sem þrcmmuðu óáreútar
inn í Rínarlönd og síðan Austurriki
svik Mússóhnis v'ð Þióðabandalagið,
er hann reðst á Abyssiníu, borgara
styrjöidin á Spáni. í hinu drunga-
en að bankarnir ávaxti vel
það fé, sem þeir hafa til
vörzlu. Gegn því ber að
sporna eins og auðið er, að
óreiðufyrirtæki bindi ofmik-
ið af fé bankanna. Það væri
bönkunum áreiðanlega hollt
aöhald, ef gluggað væri í þaö
öðru hvoru, hvernig sam-
skiptum þeirra og slíkra fyr-
irtækja er háttað. Væntan-
lega styöur Mbl. að slíku eft
ir að hafa upplýst, að allt sé
í lagi með þau fyrirtæki, sem
það virðist bera sérstaklega
fyrir brjósti.
Fyrir Eden og á vissan hátt fvnr
allt Bretland var bundinn endi á
þetta tímabil í þriðju viku íebrúar
1938. Þensla milli hins unga utan-
ríkisráðherra og ChamLerlains, íor-
sætisráðherra, hafði farið stóðugt
vaxandi síðan hinn síðarhefndi lýsti
yfir trausti á Mússólíni. sem rtýnd-
ist ekki á rökum reist. í þessari vú-m
að afstöðnum tveggja daga ráðu-
neytisfundum, sagði Eden af sér.
Svo undarlega vildi til, að þessi
afsögn hafði sáralitla þýðingu gagn
vart ítölum, en aftur á móti tals-
verða gagnvart Amerikumönnum
Nokkrum vikum áður hafði Cham-
berlain tekið á móti persónulegu
boði Roosevelts til stórveldafundar
í Washington. Án þess að láta svo
mikið að ræða málið við utanríkis-
ráöhena sinn, hafnaði ^hamberlain
tilboðinu. Slíkt háttalag fannst Ed-
en ekki ná nokkurri átt.
AVinston ChurchiII fékk fréttirnar
af afsögninni gegn um síma. Fáar
setningar í skrifum Churchills eru
eins áhrifaríkar og þær, er hann
reit um þetta kvöld: „Frá micnætti
til morgunsárs lá ég í rúminu yfir-
kominn af harmi og ótta. Áðar
hafði verið einn maður, cem stóð
fastur fvrir gegn sjávarföllum avinn
ings og undanhalds. í honum virtist
mér liggja eina von brezku þjóðar-
innar. En nú var hann farinn. Ég
horfði á dagsbirtuna brjóta sér .eið
inn um gluggann minn, og mér virt
ist ég sjá fyrir mér hina óhugnan-
legu ásjónu dauðans".
Á þeim 17 árum, sem síðan eru lið
in, hefir Eden oft mátt horfa aug-
liti til auglitis við dauðann í ýms-
um dulargervum Séx h >. rt siixn nef-
ir gefið til kynna enn einn nýjan
þátt í persónuleika hans.
Það var á sunnudegi í septemher
1939 í íbúð Edens í London. Margir
vina hans voru þar saman kommr.
í dauðaþögn hlustuðu þeir á
Chamberlain lýsa yfir styrjöld í
útvarpinu. Eden gekk að gluggan-
um og var þungbúinn á svip. „Skyldi
það hafa staðið i mínu valdi“ sagði
hann, „að gera nokkuö frekar til
að koma í veg fyrir þetta“?
Síðan var það hið hræðilega k'. öld
í maí 1940 Eden var þá hermála-
ráðherra. Franski herinr. var í mol-
um og brezki herinn á flótta til
Dunkirk. Aðeins umsátursherirsn i
Calais gat varið sjálfa Dunkirk frá
hinum voldugu höggum þýzka hpvs-
ins. Að kvöldi þess 26. komu Chur-
chill og Eden saman í ráðuneytinu
og tóku saman hina ægilegu ákvörð
un: „Herinn í Calais myndi ekki
hljóta neinn styrk.“ Meðal hinna
dæmdu hersveita var sveitin, sem
Eden hafði barizt með í fyrri styrj-
öldinni.
Og svo var það dagurinn árið 1945,
þegar stjórn flughersins færði hon
um þær fréttir, að sonur haus,
Simon, sem var x flugvél, er tvndist
yfir Burma, væri talinn af. Vegna
þess að hann átti þá í kosningabar-
áttu í Leamington, gaf hann þær
fyrirskipanir, að orðsending pessi
yrð- ekki gerð opinber að svo stöddu
til þess að hún breytti ekki at-cvæð-
um kjósenda vegna viðkvæmni.
Allir þessir atburðir hafa átt sinn
þátt í að gera Eden að þeim manni,
sem Churchill sagði við: „Ég ér
farinn að þreytast — þú verður að
vera tilbúinn innan skamms“.
Eden hefir verið nefndur „sei-
fræðingur, þegar staða málanna
er vonlaus" Fall varnarbandaiags
(Framhald á 6. síöu).
Þáttur kirkjunnar
jiiiauuminMiHiiiiiiiiiiiiiiiitrmiiiiiiiiiiiuin
F j ö 1 d i n n
Jesús gerði einstaklinginn
að æðsta takmarki í sjálfu
sér. Mannssálin, hver ein-
stök mannssál, persóna,
hafði í vitund hans æðra
gildi en allt hið skapaða, sem
oft er nefnt hið líflausa í til-
verunni.
En samt er oft talað um
mannfjöldann í sambandi
við Krist. Mannfjölda, sem
hlýddi á hann, undraðist
hann, dáðist að honum og síð
ast hrópaði ráðvilltur kross-
festingaróp yfir honum.
Og séu guðspjöllin lesin
vandlega kemur skýrt í Ijós,
að þrátt fyrir trú Jesú á ein-
staklinginn, þá er bjartsýni
hans og starfsgleði allháð
því, hvort fjöldinn aðhyllizt
hann eða fjarlægist. „Þetta
eru móðir mín og bræður
mínir,“ segir hann og bendir
með stolti á fólkið, sem tók
kenningu hans fram yfir allt
annað. Og hins vegar, þegar
fjöldinn fjarlægðist hann, þá
segir hann við postula sína
með djúpum sársauka „Hvers
vegna farið þið ekki líka?“
Það er því ekki furða þótt
margir séu háðir áliti fjöld-
ans. Og nú er svo komið í
heimi hér, a.ð fjöldinn er
sterkasta aflið til góðs eða
ills. Án fylgis fjöldans verð-
ur enginn voldugur né mik-
ill. Án fylgis fjöldans verða
háleitar og göfugar hugsjón-
ir aldrei framkvæmdar, og án
fjöldans verða naumast hin
mestu hervirki og hermdar-
verk unnin.
Það er því ákaflega mikils
virði, að kristnir einstakl-
ingar geri sér grein fyrir,
hvernig þeir rækja hlutverk
sitt sem þáttur í heild, sem
dropar í hafinu, sem persón-
ur í fjöldanum. Sérstaklega
ber að gæta þessa í sam-
bandi við þær framkvæmdir,
sem stefna til uppbyggingar
eöa niðurrifs. Samtakamátt-
ur fjöldans er líkt og fall foss
ins eða straumþungi fljóts-
jns. Sé þessu afli beitt til að
lýsa, ylja og starfa, græða,
rækta og gefa verða hin
beztu og happasælustu fyr-
irtæki stofnuð og starfrækt,
en fari hins vegar þessi reg-
inorka lausbeizluð utan allra
takmarka og skipulags, verð-
ur að hin versta eyðilegging
á verðmætum, sem skapar
auðn og böl og dauða.
Nú er miklu auðveldara en
áður var fyrir einstaklinga,
sem eru sterkir að beina aug
um og hugum fjöldans að
einu marki í sömu átt, og
aldrei hefir því heimurinn
átt yfir meiri krafti að ráða.
Þess vegna er nauðsyn ein-
staklingsins að gæta sín
miklu meiri og ábyrgð hans
gagnvart sjálfum sér og öðr-
um þúsundfalt vandasamari
en áður var.
Gætið ykkar kristnu ein-
staklingar, látið ekki fallast
i íarvegi böls og haturs, held
ur látið uppbyggjast sem lif-
andi steinar í hina miklu
höll mannástar og bræðra-
lags, friðar cg réttlætis. Tak
ið saman útréttum bróður-
höndum og munið að litið
átak frá hverjum, getur í
samtaki við alla hina skap-
að sterkasta framkvæmda-
mátt heims. Samtaka fjöldi
á guðsríkisbraut réttlætis er
helgasta þörf og heitasta von
hverrar þjóðar.
Árelíus Níelsson,