Alþýðublaðið - 10.08.1927, Page 2
ALÞvÐuBLaÐIÐ
| ALÞÝÐDBLAÐIB
* kemur út á hveiium virkum degi.
V ■' ..-.— ========
1 Afgreiðsla í Alpýðuhúsinu við
« Hverösgötu 8 opin irá kl. 9 árd.
; til kl. 7 síðd.
* Skriístofa á sama stað opin kl.
5 9J/a—10Vs árd. og kl. 8-9 siðd. í
j" Simar: 988 (afgreiöslan) og 1294
Í (skriistofan).
« Verðlag: Askriftarverð kr. 1,50 á
! mánuði. Auglýsingaverð kr. 0,15
< hver mm. eindálka.
5 Prentsmiðja: Alpýðuprentsmiðjan
(i sama húsi, sömu simar).
}
Sacco og Vanzetti.
r«> —
' > ;
I.
Nýkomin skeyti herma, að
iandsstjórinn í Massachusetts í
Bandaríkjunum neiti að láta hina
dauðadæmdu verklýðssinna, Sac-
co og Vanzetti, fá nokkra leið-
rétting mála sinna, enda þótt all-
jr viti, bö þeir eru saklausir. Fylg-
ir það og sögunni, að þeir muni
verða liflótnir i þessari "viku.
Fá sakamál frá síðari árum hafa
vakið aðra eins heimsathygli eins
og mál þeirra Sacco og Vanzetti.
Þedr voru sakaðir um rán og
morð og dæmdir til iífláts eft-
ir líkum einum. Engar sannanir
um sekt þeirra hafa nokkurn
tima fengist, því siður að þeir
hafi játað á sig glæpinn. Nú hafa
þeir setið í fangelsi nærfelt 7
ár og biðdð dauða síns. Aftöku
þeirra hefir þó alt af verið frest-
að vegna ótta við almenningsá-
litið. Það hófst sem sé voldug
hreyfing svo að segja um heim
allan til að mótmæla þessu aug-
Ijósa rangiæti og hindra réttar-
morðin. Hafa verklýðsfélög allra
landa beitt sér fyrir hreyfingu
þessari og staðið þar fremst í
flokki. En ýmsir fleiri af merk-
ustu og ágætustu mönnum ailra
þjóða hafa og tekið í sama streng.
Þessi mótmælahreyfing hefir far-
jð sivaxandi og sú krafa orðið
háværari, að mál þetta yrði tek-
ið upp til nýrrar réttarrannsókn-
ar. Því héfir þó ekki fengist fram-
gengt enn og er auðsætt, að betur
má, ef duga skal. Og nú er af-
tökudagur þeirra félaga ákveðinn
enn einu sinni, ef treysta má
skeytunum.
Hér verður nokkuð sagt frá til-
drögum og gangi þessa máls, sem
mun vera alt að því einsdæmi í
réttarsögu siðaðra þjóða. Frum-
heimildin að því, sem hér verður
frá skýrt, er engin æsingaskrif
pólitiskra flokksblaða, heldur bók
ein eftir ameriskan prófessor í
íögum, að nafni Felix Frankfurter.
Hann hefir kynt sér málið ræki-
lega og öll frásögn hans ber það
með sér, að hann reynir að skýra
rétt og hlutdrægnislaust frá öll-
ttm atburðum.
! rikinu Massachusetts er dá-
litill bær, sem heitir Braintree. 1
bænum er meðal annars stór skó-
verksmiðja. Nú bar það til tið-
5nda 15. apríl 1920, að gjaldkeri
verksmiðju þessarar, ásamt öðr-
um manni, var á leið til verk-
smiðjunnar til að borga verka-
mönnunum vikuiaun þeirra. Þeir
báru sinn kassann hvor, og voru
í þeim báðum eitthvað 16 þús-
undir dollara. Þegar þeir eiga
skamt eftir ógengið, spretta upp
tveir menn og hefja skothríð á
þá. Mennirnir hmíga þegar dauðir
niður, en inorðingjamir þrila pen-
'ingakassana og stökkva upp i' bif-
Teið, sem ber þar að í sama bili.
Bifreiðin ekur síðan burt — eitt-
hvað út í buskann — með mikl-
um hraða og er horfin áður en
nokkurn varir.
Tveim dögum seinna finst bif-
reiðin mannlaus úti i skógi æði-
langt frá bænum. Frá þeim stað
sást slóð eftir aðra minni bifreið.
Sú slóð varð þó ekki rakin langt.
Nú hafði fyrir nokkrum mán-
uðum verið framinn sams konar
gLæpur i nógrannabanum Bridge-
water. Þar hafði nákvæmlega
sama aðferð verið notuð — morð-
ingjarnir komist undan í bifreið
og aldrei hafst upp á þeim. Mönn-
um, er séð höfðu þessa atburði,
bar saman um það, að morðingj-
arnir frá báðum stöðum hefðu
litið út fyrir að vera ítalir eða
af öðru suðrænu kyni. Allar lík-
ur bentu því til, að hér hefði
sami glæpamannaflokkur verið að
verki. Nú hafði slóð bifreiðar
þeirrar, er Bridgewater-morðingj-
arnir óku í, verið rakin til þorps
'eins, er Cochesett heitir. Lögregiu-
stjóranum í Bridgewater dettur
þvi það snjallræði i hug að graf-
ast fyrir um, hvort nokkur sá
Itali finnist í Cochesett, er séöku-
maður eða eigandi að bifreið. Ber-
ast þó böndin að manni einum
að nafni Boda; hann á bifreið.
Sú bifreið er þá eins og stendur
í viðgerð hjá Johnson nokkrum.
Sá Johnson fær nú skipun um
a'ð gera lögreglunni aðvart, þeg-
ar eigandinn komi að sækja bif-
reiðina.
Daginn eftir morÖið í Brain-
tree — 16. apríl — var lögreglu-
stjórinn í Bridgewater áð fremja
húsrannsókn hjó itala einum —
Coacci áð nafni —, sem bjó hjá
Boda, eiganda bifreiðarinnar. Hús-
rannsókn þessi stóð þó í engu
sambandi við morðið, en var gerð
eftir skipun dómsmálaráðherrans
vegna þess, að Coacci þessi var
talinn einn af þeim ,,rauðu“, en
yfirvöldin í Massachúsetts gengu
um þessar mundir hreinan ber-
serksgang gegn öllum þeim, er
grunur lék á að væru byltinga-
sinnaðir. Boda sjálfur var ekki
heima og Coacci var að taka sam-
an föggur sínar og búast til ferð-
ar heim til Italíu. Ekkert fanst þar
grunsamlegt. Þegar þessu fór
fram, virðist lögrcglunni enn ekki
hafa hugkvæmst aö bendla Boda
eð bifreið hans við morðið. Fyrst
nokkru seinna '— eftir að Coacci
var allur á burt — datt Iögreglu-
stjóra í hug, að Lrtla bifreiðin,
er notuð hafði verið eftir að
morðvagninn vaf yfirgefinn, gæti
vel hafa -verið bifreið Boda.
Myndu þá morðingjarnir að lík-
indum hafa sent herfangið með
Coacci til Italíu. Upp úr þessu
var svo sent skeyti til Italíu um
að rannsaka vendilega allan far-
angur Coacci, er þangað kæmi.
Þetta var gert, en ekkert fanst.
En grunurinn gegn Boda var vak-
inn og lögreglan hugðist nú vera
á réttri leið.
Nú líöur og bíður þar til um
kvöidið 5. maí. Þá kemur Boda
og þrír Italir aðrir til að sækja
bifreiðina. Johnson, sá er vdðgerð-
ina hafði haft með höndum, var
ekki heima, en þeir félagar hitta
konu hans. Hún lýgur að þeim
einhverju og vikur sér frá til þess
að hringja upp lögregluna. En
þegar lögreglan kemur, eru It-
alirnir famir — bifreiðarlausir.
Lögreglan eltir þá og nær í tvo:
Sacco og Vanzetti. Boda og fjórði
maðurinn — Orciani að nafni —
voru horfnir. Sá síðamefndi var
þó tekinn fastur daginn eftir, en
til Boda hefir ekkert spurst síð-
an.
Nú þóttist lögreglan hafa veitt
vel. Hér var heill flokkur Itala.
Og bæði morðin höfðu verið
framin af glæpamannaflokki —
ítölum, að þvi er næst varð kom-
ist. En þegar í byrjun hljóp sú
leiða snurða á þráðinn, að einn
þessara manna — Orciani —
hafði verið að vinnu sinni báða
morðdagana. Það gat hann sann-
að með vottorðum frá yfirmönn-
um sinum. Var hann því þegar
látinn laus. Sacco vann i skó-
verksmiðju (þó ekki í Braintree),
og sannaðist það, að einnig hann
hafði verið að vinnu þegar fyrra
morðið var framið. Seinni dag-
inn — 15. apríl — hafði hann aft-
ur á móti verið fri. Þá hafði
hann verið í Boston og meðal
annars komið inn í skrifstofu ít-
alska sendiherrans þar, i þeim er-
indum að útvega sér vegabréf til
ítalíu. Maður -frá þeirri skrifstofu
vitnaði í réttinum seinna, að Sac-
co hefði komið þangað þann dag.
Samt var ákærunni gegn honum
haldiö fram eftir sem áður.
Þá kemur röðin að Vanzetti.
Hann var fisksali fyrir eigin reikn-
ing og gat þvi ekki lagt fram vott-
orð frá yfirboðurum um það, hvar
hann hefði dvalið þessa daga. En
heill hópur kvenna bar það fyrir
rétlinum, að þær hefðu keypt fisk
af honum einmitt þessa daga. Þar
þótti að eins sá hængur á, að
allar þessar konur voru ítalskar.
Á þessum grundvelli var hann
ákærður fyrir að hafa átt þátt í
báðum morðunum.
Sumum kann nú að virðast
grundvöllurinn ótraustur og að
tekinn sé að þynnast glæpamanna-
flokkurinn, sem lögreglan þóttist
hafa nóð í. En ákæru- og dóms-
valdið í Massacbusetts Var á öðru
máli, eins og raun gaf vitni.
(Fih.)
Geir Sæmundsson
vigslubiskup.
Eins og símfrétt, er birt var
hér í blaðinu í gær, skýrði frá^
andaðist Geir Sæmundsson vigslu-
biskup í gærmorgun. Hann var
fæddur 1. sept. 1867, varð prestur
að Hjaltastað 1896, fékk Akureyr-
arprestakall um aldamótin, varð
prófastur 1906 og vígður vígslu-
biskup 10. júlí 1910.
Séra Geir Sæmundsson söng
mjög fagurlega, og alkunna er,
hve hrifinn hann var þegar með-
an hann var smábam af söng og
hljóðfæraslætti. Guðfræðináfcnið
ðtundaði hann í Kaupmannahafn-
arhóskóla og jafnframt lagði hann
Istund á söngnám hjá ágætum
söngkennara, Jemdorff prófessor.
Hefði séra Geir gert sönglistina
að æfsitarfi sjnu, þá hefði hann
áreiðanlega orðið mikill söngsnilb
ingur. Mjög dáðust menn að því,
hve vel hann tónaði, jafnvel efti/í
að hann var kominn nærri 60 ára
aldri.
Erlend simskeyti*
Khöfn, FB., 9. ágúst.
Mótmæli gegn dómsmorðunum
Frá París er símað: Sameign-
arsinnar hafa hafið tuttugu og
fjögurra stunda allsherjarverkfall
í mótmælaskyni út af líflátsdómi
Sacco og Vanzetti. Þátttakan í.
allsherjarverkfallinu er lítil.
Hæstiréttur neitar að endur-
skoða máiið-
Frá Boston er símað: Hæsti-
réttur i Massachusetts neitar að
endurskoða mál þeirra Saccö og
Vanzetti.
Meiri mótmæli.
Frá New-York-borg er símað:
Mótmælaverkföil gegn líflátsdómi
Sacco og Vanzetti hafa verið haf-
ín víða í Bandaríkjunum.
Járnbrautarslys i Hollandi.
Frá Amsterdam er símað: Tvær
járnbrautarlestir, fullar af ferða-
fólki, hafa rekist á síðast liðinn
sunnudag. Sex menn biðu bana.
Innlend tíðindi*.
Akureyri, FB., 8. ágúst
Enn um hjólreiðarnar norður.
Þrjár stúlkur úr Reykjavik, Sig-
ríður ólafsdóttir, Sigríður Elín
Þorkelsdóttir og Elín Guðnadótt-
ir komu hingað i gær og höfðu
þær riðið á hjólhestum úr Borg-
amesi. 1 för með þeim var Jón
Gíslason úx Gióðrarstöð Reykja-
víkur, en hann hafði Tarið á hjól-
hesti alla leið úr Reykjavík og
slegist i för með stúlkunum á
Blönduósi. Lagði hann af s'tað á
mánudag, en þær á þriðjudag.
Ferðin hafði gengið ágætlega. Yf«
ir ár, sem ekki voru brúaðar, var