Tíminn - 03.05.1956, Page 1
40. árg.
Reykjavík, fimmtudaginn 3. maí 1956
99. blaS.
Þýðiogarmikill fundur Aílaníshafsráðsins að kefjast
Áskriftarsími Tímans er 2323 og
81300. — Fylgist með tíman-
um og lesið Tímann.
f blaSinu f dag:
Um Hörpu Davíðs á 4. síðu. 1
Frá starfsemi S. þ. á 5. síðu.
Erlent yfirlit á 6. síðu.
Ræða Steingríms Steinþórssonar
1. maí á 7. síðu.
Líklegt, að mikilvægar ákvarðanir verði tekn-
ar m aukna samvinnu í efnahagsmálum
Fundiir í Dalasýslu
'fveir fundir verða lialdnir í Dalasýslu nú um helgina og
verSa frummælendur á þeim Eysteinn Jónsson, ráðherra, og
Ragnar Jóhannesson, skólastjóri. Fundirnir verða að Kirkjubóli
í Saurbæjarlireppi laugardaginn 5. maí kl. 3 e. h. og að Nesodda
í Miðdölum sunnud. 6. maí kl. 3 e. h.
Furtdir í Eyjaíirði
f Eyjafirði er boðað til þriggja funda upp ur næstu lielgi.
Meðal ræðumanna verða frambjóðendur £ sýsluniai, en aðrir |
frummælendur verða tilkynntir síðar. Fimdirnir verða að Sól-
garði í Saurbæjarhreppi sunnud. 6. maí kl. 2 e. h., á Dalvík
niánuilaginn 7. maí kl. 9 síðd. og í Ólafsfirði þriðjudaginn 8. maí
kl. 9 siðd.
Fundur í Keflavík
Þá er ákveðinn fundur í verkalýðshúsimu í Keflavík þriðju-
daginn 8. maí kl. 8,30 síðd. Frummælendur verða Eysteinu Jóns-
son, ráðherra, og Guðmundur f. Guðmundsson, bæjarfógeti.
Talið er að Dulles muni leggja fram
vfðtækar tillögur um þessi mál
NTB—París, 2. maí. — John Foster Dulles kom flugleiðis
til Parísar í dag til að sitja fund Atlantshaísráðsins, sem
hefst hér á föstudag, en þar mæta allir utanríkisráðherrar
aðildarríkja Norður Atlantshafsbandalagsins. Fór hann strax
á fund Pineau, utanríkisráðherra Frakka og var rætt um
alþjóðamál. Þessi NATO fundur er talinn verða hinn merk-
asti á marga lund, þar sem bandalagið standi nú á eins konar
tímamótum. Talið er víst, að aðalmál fundarins verði að
tryggja mun víðtækara samstarf í efnahagsmálum, stjórn-
rnálum, félagsmálum og menningarmálum um leið og tryggt.
sé, að varnir bandalagsins séu í lagi.
Ráðherrar aðildarríkjanna koma un, svo og Halvard Lange, utanrík-
nú óðum til Parísar. Selwyn Lloyd isráðherra Norðmanna, sem verið
er væntanlegur frá London á morg- hefir á ferðalagi í Júgóslavíu og
Framsóknarflokkurinn ogAI-
þýöufl. boða marga fundi
Framsóknarflokkurinn og Aiþýðuflokkurinn hafa að undan-
förnu haldið allmarga kjósendafundi víðs vegar um landið. Allir
eiga þessir fundir sammerkt í því, að þeir hafa verið ágætlega
sóttir, máli ræðumanna frábæriega tekið og ríkjandi á fundun-
um mikill áhugi og öflugur sóknarvilji til þess að gera sigur
þessara flokka sem mestan í kosningunum. Er kosningasamstarfi
flokkanna hvarvetna mjög fagnað.
Þessir samstarfsflokkar boða enn á næstunni til margra funda,
og skal hér getið þeirra, sem ákveðnir eru uú að öllu teyti.
Fundir á Vestfjörðum /
Næstu daga verða haldnir sjö fundir á Vestfjörðum, og verða
frummælendur á fundunum Hermann Jónasson, formaður Fram-
sóknarflokksins, og Gylfi Þ. Gíslason, ritari Alþýðuflokksins.
Sigurvtn Einarsson, frambjóðandi Framsóknarflokksins í Barða-
strandarsýslu, verður einnig frummælandi á fundunum á Pat-
reksfirffi og Bildudal. Fundirnir verða annars sem liér segir:
Á Bíldudal í dag kl. 8,30 síðd. Á Patreksfirði 4. maí kl. 8,30.
Á Þimgeyri 5. maí kl. 8,30. Á Suðureyri 6. maí kl. 2 e. h. Á Flat-
eyri 6. maí kl. 8,30 síðd. Á ísafirði 7. maí kl. 8,30 og í Boluugar-
vík 8. maí kl. 8,30 síðd.
Fundur á Blönduósi
Fundur er ákveðinn á Blönduósi fimmtudaginn 10. maí kl. 4
síðdegis. Frummælendur á honuin verða Þórarinn Þórarinsson,
ritstjóri, og Ilaraldur Guðmundsson, alþingismaður.
Fúndur á Hólmavík
Loks er ákveðinn fundur á Hólmavík sunnudaginn 13. maí.
Frummælendur á honum verða Haraldur Sigurðsson, sveitar-
stóri, og Emil Jónsson, alþingismaður.
i , . Liósm.: Sveinn Sæmundsson
1. mai natiðahold verkalýðsfelaganna í Reykjavík voru fjölmenn að þessu sinni, enda var veður mjög gott.
Við Iðnó var safnast saman til kröfugöngu og síðan gengið um Vonarstræti, Suðurgötu, Aðalstræti, Hafn-
arstræti, Hverfisgötu, upp Frakkastíg, niður Skólavörð.ustíg og Bankastræti og staðnæmst á Lækjartorgi.
Þar hófst svo útifundur. Ræðumenn voru Óskar Hallgrímsson og Eðvard Sigurðsson. Myndin er tekin í
þann mund er kröfugangan kemur Bankastræti, en eins og sjá má, hafði margt fólk safnast saman á torg-
inu. Lúðrasveitin Svanur og Lúðrasveit verkalýðsfélaganna léku fyrir göngunni. Myndir af ræðumönnun-
um eru í liornunumað ofau. Óskar Hallgrímsson til vinstri og Eðvard Sigurðsson til hægri.
1. maí liátíðahöldin í Reykjavík
Ítalíu. Talið er fullvíst, að utanrík-
isráðherrar Breta og Grikkja muni
ekki taka Kýpurdeiluna til meðferð
Dulles með víðtæka áætlun.
Jolin Foster Dulles hefir nýlega
lagt áherzlu á nauðsyn á víðtæk-
ara samstarfi og samvinnu NATO
þjóðanna á sem flestum sviðum.
ítrekaði hann þetta við brottför-
ina frá Washington eftir að hann
liafði rætt við Eisenho?;er forseta.
Talið er víst, að Duiles muni
leggja fram víðtæka áætlun um
stóraukið samstarf NATO-þjóð-
anna á öðrum sviðum en í varn-
armálum. Líklegt er, að Dulles
muni strax í byrjun fundarins
flytja ræðu um nýjnstu aðferðir
Rússa og ræða hver sé hin raun-
verulega stefna kommúnista í al-
þjóðamálum.
Rætt um heimsókn B og K
til Englands.
Á NATO-fundinum mun verða
rætt um afleiðingar af heimsókn
rússnesku kommúnistaleiðtog-
anna ti! Englands og hvaða álykt-
anir mcgi draga af viðræðum
(Framhald á 2. síðuj
Sinfóníuhijómsveitin
leikur norðanlands um
hvítasunnuna.
Ákveðið er, að Siníóníuhljóm-
sveit íslands fari í hljómleikaför
til Akureyrar um hvítasunnuna.
Mun hljómsveitin leika í Akureyr-
arkirkju á annan í hvítasunnu.
Ennfremur fer hún austur í Mý-
vatnssveit og leikur í hinu mynd-
arlega félagsheimili Mývetninga,
Sólgarði.
Ágúst Þorvaldsson
Framboðslisti Framsoknar-
flokksins í Árnessýslu
Framboðslisti Framsóknarflokksins í Árnessýslu hefir nú
verið ákveðinn. Var að fullu gengið frá honum á fulltrúa-
ráðsfundi félaganna á Selfossi s. 1. sunnudag. Á listanum
verða Ágúst Þorvaldsson, bóndi, Brúnastöðum, Vigfús Jóns-
son, oddviti, Eyrarbakka, Guðmundur Guðmundsson, bóndi
Efribrún, og Gunnar Halldórsson, bóndi á Skeggjastöðum.
Jörundur Brynjólfsson hefir sefh kunnugt er óskað að draga
sig í hlé fyrir aldurs sakir.
Ríkir um þennan lista fullkom-
in eining í héraðinu og mikill
sóknarhugur í stuðningsmönnum
Frámsóknarflokksins og Alþýðu-
flokksins um að gera sigur listans
sem mestan. Um efsta sætið fór
fram prófkjör í Framsóknarfélög-
unum i sýslunni, og hlaut Ágúst
Þorvaldsson yfirgnæfandi meiri-
hluta atkvæða.
Ágúst Þorvaldsson er fæddur á
Eyrarbakka, 48 ára að aldri, en
hefir alllengi búið að Brúnastöð-
um. Hann er oddviti sveitar sinnar
og hefir verið síðan 1946 og gegn-
ir fjölmörgum öðrum trúnaðar-
störfum fyrir svéit sína og hérað.
Hann nýtur óskoraðs trausts í hér-
aði og þykir að því mikill fengur,
'FYamhald á 2. sfðu.1
Búðum lokað kl. 12
á laugardögum
Næsta laugardag hreytist lokun-
artími sölubúða og verður tekinn
upp sá háttur, sem gilda mun alla
sumarmánuðina eða til 20. sept.
Búðum verður nú lokað kl. 12 á
hádegi á laugardögum en ekki kl.
1 eins og verið hefir síðustu ár.
Búðir verða síðan opnar til kl. 7
á föstudögum eins og verið hefir.