Tíminn - 24.05.1956, Side 1
Skrifstofa iFramsóknarflokksins er
í Edduhúsinu, Lindargötu 9A,
in. hseð, sími £066.
íbúð í nýju húsi fyrir 10 kr., ef
heppnin er með. Nú líður að því
að dregið verði í hinu glæsilega
happdrætti Framsóknarmanna.
40. árg.
Reykjavík, fimmtudaginn 24. maí 1956.
I blaðinu í dag:
Þingkosningar í Austurríki á bls 6.
Kröfupólitík, ábyrgðarleysi, of-
stæki og kreddufesta réðu því að
Sósíalistafl. sagði sig úr lögum við
aðra íslendinga, eftir Áka Jako’os-
son á bls 7.
114. blað.
Framboðsfresturinn útrunninn - val þjóðarinnar eftir:
Eina tækifæri þjóðarinnar m áratugi til
þess að mynda samhenta vinstristjórn
Umbótamenn eru i mikfum meirihluta með
þjóðinni. - VIII sá meirihluti efla völd íhalds
!ins eða víkja því frá og mynda umbóta-
stjórn, sem vinnur að hag almennings?
Slíkt tækifæri býSur samstaða Alþýíuflokksins
og Framsókmarflokksins, en enginn veit, hvenær
þaí kemur næst, ef þa<5 er ekki notat$ nú
Framboðsfrestur var útrunninn í gærkveldi, og nú sjá
kjósendur til fulls um hvaða flokka og menn er að velja í
kosningunum 24. júní. Framsóknarflokkurinn og Alþýðu-
flokkurinn hafa nú birt öll framboð sín, en kosningasam-
starf þeirra er eins og kunnugt er í því fólgið, að þeir
bjóða hvergi fram hvor gegn öðrum í neinu kjördæmi, held-
ur styðja hvor annan.
Bragi Sigurjónsson
í kjöri í A-Hún.
Flokkarnir hafa boðið fram í
öllum kjördæmum landsins, 22 ein
menningskjördæmum, ö ivimenn-
ingskjördæmum og Reykjavík, þar
sem .átta kjördæmakosnir þing-
menn eru.
Frambjóðendur Framsóknar-
flokksins í þessum kosningum eru
sem fyrr af ölíum stéttum, bænd-
ur, verkamenn og embættismenn.
Þeir eru á öllum aldri, en það mur,
vekja athygli, að flokkurinn velur
nú til framboðs allmarga unga
menn, og aðra, sem ekki hafa verið
í kjöri áður. Eru miklar líkur íil
þess, að nokkrir þessara ungu
manna muni ná kosningu.
Tímamótakosningar.
Margt bendir til þess, að kosn-
ingar þær, sem fram fara 24. júní,
muni vaida tímamótum í íslenzk-
um stjórnmálum. í nær tvo ára-
tugi hefir sérhagsmunaflokkurinn,
sem kaliar sig Sjálfstæðisflokk,
ihaft óhugnanlegai mikil áhrif á
stjórn landsins og mótað stefnuna
einkum í efnahags- og fjárhags-
málum á þessum tíma. Þessi völd
Sjálfstæðisflokksins hafa þó ekki
byggzt á því, að hann hefði mikið
kjósendafylgi á bak við sig, held-
ur hefir svo borið við, að það
hefir farið minnkandi með hverj-
um kosningum, sem næst í öfugu
hlutfalli við vaxandi völd hans.
Vöid Sjálfstæðisflokksins á
þessu tímabili byggjast eingöngu
á því, að vinstrisinnaðir umbóta-
nienn hafa verið sundurþykkir í
mörgum flokkum og ekki borið
gæfu til þess að sameina kraft-
ana til átaka. Við þessar kosn-
ingar hefir í fyrsta sinn verið
gerð alvarleg tilraun til þessa.
Með bandalagi Framsóknarflokks
ins og Alþýðuflokksins, sem
hafa við tvennar síðustu kosn-
ingar haft atkvæðafylgi á bak
við sig til þess að ná hreinum
meirihluta á alþingi, er þjóðinni
í fyrsta sinn gefið færi á að
skipa sér í fylkingu til þess að
mynda hreinan meirihluta og
ríkisstjórn vinstri sinnaðra um-
bótamanna en knésetja um leið
sérhagsmunamennina, sem ráðið
hafa efnahagsmálum þjóðarinnar
um langt skeið með þeim afleið
ingum, sem nú blasa við hvers
manns augum.
Báðir flokkarnir hafa fórnað
nokkru af sérmálum sínum til þess
að ná þessari samstöðu og keppa
sameiginlega að þessu marki, og
gefa þjóðinni það tækifæri, sem
hún hefir spurt um og beðið eftir
í mörg ár.
Taekifæri þjóðarinnar.
í síðustu kosningum höfðu þess-
ir flokkar ekki samstöðu, og því
var engin von um, að þeir mundu
ná meirihluta á alþingi og geta
myndað stjórn saman. Samt sem
áður veitti þjóðin þeim sameig-
inlega kjörfylgi til slíks meiri-
hluta.
Hvaða ástæða er til þess að
ætla, að einmitt nú, er samstaða
þeirra skapar slíka; möguleika,
(Framhald á 2. síðu).
llllllllllllllllHlllllltllllliiiiiliiiiÉiiiiiiyiiiiiiiiiiiiiiiiiiiini
I Kosningaskrifstofa |
\ í dag opna Alþýðuflokkurinn i
i og Framsóknarflokkurinn kosn- i
| ingaskrifstofu í Turnerhverfi i
í við Keflavíkurflugvöil. Verður i
Í skrifstofan opin alla virka daga i
i frá kl. 10—10 og sunnudaga i
| frá kl. 2—6. Aiþýðuflokksmenn §
| og Framsóknarmenn á Keflavik* 1
| urflugveili og nágreimi hafið i
| samband við skrifstofuna og i
= veitið lienni alla þá aðstoð og \
\ upplýsingar sem þið getið. i
? r.
iiiiiiiiii n lllllllllllllllllllHl■ll■ll■lll|||||||||||l||||||| iuiiiir
Þing SÖF hefst í Bifröst
á föstudagskvöidið ke
i
Sambandsþing ungra Framsóknarmanna hefst að Bif-
röst í BorgarfirSi n. k, föstudagskvöld kl. 8,30. Stendur
þingið fram á helgi. Þess er vænzt að allir þingfulltrúar
mæti þegar við þingsetuna. Upplýsingar um þinghaldið
og ferðir að Bifröst frá Reykjavík vejtir skrifstofa flokks
ins í Edduhúsinu víð Lindargötu.
Siníóníuhljómleikarnir á Norðurlandi
merkilegur menningarvioburður
Hljómleikar Sinfóníuhljómsveitar íslands á Norðurlandi
um hvítasunnuna tókust með ágætum og eru hinn merkileg-
asti viðburður í menningarlífi þjóðarinnar. Þetta eru fyrstu
sinfóníuhljómleikar í sveit á íslandi, og er þess von að fleiri
fari á eftir.
í gær var sagt hér lítillega frá
hljómleikunum í Mývatnssveit.
Þeir voru vel sóttir og kom fólk
lar.gt að. Jón Gauti Pétursson, odd
viti, ávarpaði sveitina, þakkaði
komuna og Jón Þórarinsson, fram
kvæmdastjóri hljómsveitarinnar
svaraði. í kaffiboði sem kirkjukóra
samhand sýslunnar hélt hljómsveit
inni ávarpaði Páll H. Jónsson, for-
maður sambandsins, sveitina.
Hljómsveitin lagði af stað flug-
leiðis frá Reykjavík að morgni ann
ars hvítasunnudags. Illa leit þó
út með flugveðrið og var óttazt,
að förin yrði að farast fyrir. Úr
þessu rættist þó. Frá Akureyri var
haldið til Mývatnssveitar á bílum,
og síðan aftur til Akureyrar um
(Framhald á 2. síðu).
Boöað til almennra kjós-
endafunda á Snæfellsnesi
Bragi Sigurjónsson
Alþýðuflokkurinn hefir ákveðið,
að Bragi Sigurjónsson, ritstjóri á
Akureyri, verði í framboði fyrir
flokkinn í Austur-Húnavatnssýslu
við kosningarnar í sumar. Fram-
sóknai’flokkurinn býður ekki fram
í sýslunni heldur styður framboð
Alþýðuflokksins þar, og hefir
Framsóknarfélag A-Húnvetninga
samþykkt einróma stuðning við
framboð Braga.
Ólafur Þ. Kristjáns-
son t kjöri í Vest-
mannaeyjum
■Hliiiiiiiliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiin I
(Fundur i Félagi Fram-Í
jsóknarkvenna
1 Framsóknarkonur í Reykja-1
§ víb. Munið fundinn í kvöld, =
1 sem hefst á venjulegum stað |
1 kl. 8,30. Rætt verður um kosn f
f ingaundirbúninginn. Skorað f
i er á félagskonur að fjöl- f
I menna. i
,|llll■lllll■■lllll■l■lllllll■IIMIIIIIIIIIIIIIIIIItllllllllllllllllll•i
„Ekki vanzalaust að
leggja nafn Heim-
dallar við slíka sam-
komu“
Heimdallur fór í sögufræga sjó-
ferð til Vestmannaeyja um Hvíta
sunnuhelgina og var þingmaður-
inn Jóhann Þ. Jósefsson eins kon
ar yfirfararstjóri leiðangursins,
en honum var stefnt til Eyja til
að taka þátt í Hvítasunnufagnaði
ungra Sjálfstæðisinanna í Eyjum.
Á Hvítasunnudag komu Ileim-
dellingar og nokkrir heimamenn
úr Eyjum saman til samkomu-
halds í samkomuhúsinu og hafði
Ingólfur ráðherra flogið tii Eyja
(Framhald á 2. slðuj
Pétur
I Alþýðuflokkurinn og Framsóknar-
---- flokkurinn halda
á morgun al-
menna kjósenda-
fundi á Snæfells-
nesi á þessum
stöðum:
Ilellissandi í
dag og Ólafsvík
25. maí. Fundirn-
ir hef jast kl. 8,30
síðd. Frummæl-
endur á þessum
fundum verða Pét
ur Pétursson,
skrifstofustjóri,
frambjóðandi Al-
þýðuflokksins í
sýslunni, dr.Krist
inn Guðmundsson
utanríkisráðhr. og
Emil Jónsson al-
þingismaður.
Næstu fundir
verða að Breiða-
bliki 26. maí kl. 2
síðd. og í Grafár-
nesi 26. maí kl.
8,30 síðd., og að
síðustu í Stykkis-
hólmi 27. maí kl.
8,30 síðd.
Frummælendur
á þessum þrem
seinni fundum
Emil verða Pétur Pét-
ursson, frambjóð-
| andi í sýslunni, séra Sveinbjörn
I Högnason, prófastur, og Benedikt
Gröndal, ritstjóri.
Dr. Kristinn
Alþýðuflokkurinn hefir ákveðið,
að Ólafur Þ. Kristjánsson, kennari
í Hafnarfirði, verði í framboði fyr-
ir flokkinn í Vestmannaeyjum við
kosningarnar í sumar. Framsókn-
armenn bjóða ekki fram í kjör-
dæminu heldur styðja framboð
Alþýðuflokksins.
24 myndir seldar á
sýningu Austmanns
Aðsókn á sýningu Hafsteins Aust
manns, sem haldin er í Listamanna
skálanum um þessar muadir, hefir
verið ágæt.
Valur og Akranes leika í
kvöld á íþróttavellinum
Meí5 Val leika þrír af þekktustu knattspyrnu-
Hiönnum félagsins, þeir Albert GuÖmundsson,
Ellert Sölvason og SigurÖur Olafsson.
í kvöld kl. 8,30 fer fram á íþróttavellinum afmælisleikur
Vals í meistaraflokki og leika Valsmenn þar við Akurnes-
inga. Mikla athygli mun það vekja, að í liði Vals leika þrír
af þekktustu knattspyrnumönnum Vals, þeir Albert Guð-
mundsson, Ellert (Lolli) Sölvason og Sigurður Ólafsson, og
þótt þeir hafi lagt knattspyrnuskóna að mestu á hilluna, er
áreiðaniegt að marga fýsir að sjá þessa ,,gömlu“ kappa á
vellinum aftur.
Ein breyting verður á liði Akur-
nesinga frá því er það lék við
Reykjavíkurliðið á dögunum. Guð-
mundur Sigurðsson leikur vinstri
bakvörð í stað Benedikts Vest-
mann, en aðrar stöður verða eins
sbipaðar. ’ Lið Váls er hins végar
þántíig ákiþað talið frá' mafk-
manni að vinstra útherja. Björg-
vin Hermannsson, Magnús Snæ-
björnsson, Sigurður Ólafsson, Sig-
urhans Hjartarson, Einar Halldórs
son, Árni Njálsson, Ægir Ferdin-
andssoh, Hilmar Magnússon, Gunn-
ar'Gunharsson, Albert og EÚert.