Tíminn - 27.05.1956, Side 7

Tíminn - 27.05.1956, Side 7
T f MIN N, sunmudaginn 27. maí 1956. — SKRIFAÐ OG SKRAFAÐ HræSslan við vaxandi fylgi bandalags nmbótaflokkanna. - Eina leiðin til að sigrast á glundroð- annm. - ASeins bandalag bænda og launafólks getur leyst efnahagsmálin á réttlátan hátt. - I utanrí kismálum er valið milli íslenzks málstaðar annars vegar og amerískrar eða rússneskrar leppsteínu hins vegar. - 24. juní verður þjóðin að kveða niður ghmdroðann og leppsteínurnar með glæsilegum sigri bandalags Álbýðufiokksins og Framsóknarflokksins. Ef menn lesa stjórnmála- greinarnar í Morgunblaðinu, Vísi, Þjóðviljanum, Útsýn og Frjáísri þjóð, munu þeir fljótt komast að þeirri niðurstöðu, að árásum og áróðri þess- ara blaða er fyrst og fremst beint gegn bandalagi Alþýðu- flokksins og Framsóknar- flokksins. Morgunblaðið og Vísir minnast nú tæpast á kommúnista eða þjóðvarnar- menn, og í málgögnum komm úista og þjóðvarnarmanna er ekki minnst á íhaldið, nema til málamynda. Öll skamma þessi blöð hinsvegar banda- lag umbótaflokkanna, eins og þau frekast geta. Ástæðan fyrir því, að Sjálf stæðismenn, kommúnistar og þjóðvarnarmenn eru þannig orðnir einskonar bandamenn í kosningunum, er næsta augljós. Hún staf- ar af óttanum við sívaxandi fylgi bandaíags umbótaflokk anna. Þær vonir liafa bnigð- þeim algerlega, að banda- laginu yrði misjafnlcga tek- ið af íylgismönnum flokka þess. Inert á móti er því hvarvetna fagnað af þeim, enda alltaf vitanlegt, að samstarfið myndi ekki stranda á liðsmönnunum, ef fovingjarnir bæru gæfu til koma sér saman. Til viðbót- ar koina svo nýir menn, sem áður hafa fylgt öðrum flokk um, og lýsa fylgi sínu við bandalagið. Þessar staðreynd ir valda hinum sameiginlega ótta, er nú einkennir æsi- skrifin í málgögnum íhalds- ins, kommúnista og þjóð- varnarmanna. En æsingaskrifin munu reynast tilgangslaus. Fólkið mun ekki láta hræðsluskrif .í Mbl., Þjóðviljanum eða Frjálsri þjóð ráða gerðum sín- um. Það' ætlar ekki að láta þessi blöð meta stjórnmála- ástandið fyrir sig, eins og í- haldsmenn vilja láta erlenda hershöfðingja meta nauðsyn hersetunnar. Fólkið ætlar að leggja sitt eigið mat á málin. Þessvegna verður málstaður bandalags umbótaflokkanna sigurvænlegri með hverjum degi. ÞjótSin vill losna vi(S glundro^ann Hvað veldur hinu vaxandi fylgi bandalags umbótaflokk- anna, sem hræðsluskrifin í Mbl., Þjóðviljanum og Frjálsri þjóð vitna svo glöggt um? Framar öðru er orsökin sú, að þjóðin vill losna við þann glundroða, sem hefir einkennt íslenzkt stjórnmála- líf seinustu áratugina. Mönn- um er lj óst, að þessi glundroði stafar af því, að hér hefir ekki verið hægt að mynda neina samhenta ríkisstjórn, því að samstæðan meirihluta hefir vantað, og hinar ýmsu stjórn- ir því orðiö að styðjast við sundurleita flokka. Þessvegna hefir aldrei veriá fylgt neinni markvissri stjórnarstefnu. Af- leiðingarnar hafa orðið þær, að upplausn og ringulreið hafa mótað efnahagslífið, unz svo er nú komið, að alger stöðvun framleiðslu og fram- kvæmda bíður framundan. Þetta ástand vill þjóðin lækna. Það verður hinsveg- ar ekki læknað, nema henni takist að skapa samhentan þingmeirihluta, sem nú er búið að vanta hér um tutt- ugu ára skeið með þeim af- leiðingum, sem að framan er lýst. Slíkan meirihluta getur þjóðin skapaö nú með því að efla bandalag umbótaflokk- anna, en ekki á neinn annan veg. Slíkur meiríhluti verður ekki skapaður meö því að efla Þjóðvarnarflokkinn eða kommúnista, því að hvorug7 ur þessara flokka getur feng ið nema örfáa þingmenn. Sjálfstæðisflokkinn vantar líka svo mikið til að fá meirihluta, að fyrir því eru engar líkur, enda allt annað æskilegra. Bandalag umbóta flokkanna hefir hinsvegar fyllstu líkur til að fá hrein- an þingmeirihluta, þar sem Framsóknarflokkurinn hefir möguleika til aff vinna 6 ný þingsæti (Barðastrandar- sýslu, Skagaf jarðarsýslu, Eyjafjarðarsýslu, Seyðis- fjörð, V.-Skaft. og Árnes- sýslu) og Alþýðuflokkurinn hefir einnig mikla mögu- leika til að bæta við sig bæði kjördæmasætum og uppbót- arsætum. Með eðlilegri fylg- isaukningu eiga þessir flokk ar að geta örugglega fengið traustan þingmeirihluta. Þetta gerir þjóðin sér orðið ljóst. í fyrsta sinn um tuttugu ára skeið, býðst henni hér tækifæri til að binda endir á glundroðann og skapa traust- an þingmeirihluta. Þessvegna boðar bandalag umbótaflokk- anna ný og merkileg tímamót í íslenzkum stjórnmálum. — Þessvegna fjölgar þeim kjós- endum stöðpgt, er skipa sér j undir merki þess, en lætur hræðsluskrifin í Mbl. og Þjóð- viljanum ekkert á sig fá. Hvað bíííur framundan, ef meiribluti næst ekki? Enn kunna að vera til ein- hverjir þeir menn, er varpa fram spurningunni um það, hvað taki hér við, ef svo fer einu sinni erín, að ekki verður til neinn samstæður meiri- hluti eftir kosningarnar. Þess um mönnum fer þó áreiðan- lega fækkandi, bví að svo aug- ljóst er, hvað þá muni í vændum. Það, sem þá tekur við, er ekkert annað en áframhald sama glundroðans og ríkj; lvefir seinusto tvo áratugina, en hann verður þá enn hættulegri en hann hefir verið hingað til vegna þess, Búnaðarbanki íslands er eitt glæsilegasta tákn þeirrar umbótastefnu, er hófst til valda í landinu með fyrsta samstarfi Framsóknarflokksins og Alþýðuflokksins á árunum 1927—31. Fram að þeim tíma hafði landbún- aðurinn búið við algeran lánsfjárskort og Sjálfstæðisflokkurinn hafði barist með hnúum og hnefum gegn því að landbúnaðurinn fengi sér- staka lánsstofnun. Forkólfar hans sögðu m. a., að það myndi gera bænd- ur að ölmusulýð! Með stofnun Búnaðarbankans og lánadeilda hans, voru mörkuð tímamót í sögu íslenzks landbúnaðar. Næst afurðasölu- lögunum, er voru sett af samstjórn Framsóknarflokksins og Alþýðu- flokksins 1934—37, hefir starfsemi Búnaðarbankans og deilda hans, átt meiri þátt í efiingu landbúnaðarins seinustu áratugina en nokkuð annað. að ástandið í efnahagsmál- um verður stöðugt geigvæn- j legra. Margföld reynsla er fyrir því, að vandi efnahags- j málanna verður ekki leystur með Sjálfstæðisflokknum og samstarf milli hans og bandalags umbótaflokkanna er því útilokað. Þessu hefir verið greinilega yfirlýst af forustumönnum beggja um- bótaflokkanna. Á samvinnu kommúnista er ekki að treysta hér fremur en ann- ars staðar, en þeir hafa ráð Alþýðubandalagsins í hendi sér, a. m. k. enn sem komið er. í Þjóðvarnarflokknum er ekkert liff, enda allar lík- ur til að hann velti út úr þinginu. Utanþingsstjórn gæti orðið bráðabirgðalau n á glundroðanum og sundur- lyndinu í þinginu, en hún yrði svo veik, að ekki mætti vænta neinnrar forustu af henni. Það er þetta geigvæniega viðhorf, sem blasir framund- an, ef þjóðin fylkir sér ekki nógu fast um bandalag um- bótaflokkanna og trýggir því öruggan þingmeirihluta. — Þetta er þjóðinni líka að verða ijósara og ljósara. Þessvegna eykst bandalagi umbótaflokk anna stöðugt fylgi, eins og hræðsluskrif andstæðinga blaðanna bera svo glöggt með sér. Lausn efnahagsmálanna Fleira kemur svo að sjálf- sögðu til greina, sem eykur og styrkir sigurhorfur banda- lags umbótaflokkanna. í fyrsta lagi ber þar að nefna stefnu þess í efnahagsmálun- um og utanrikismálunum. Þjóðinni er ljóst, að rót- tækri lausn í efnahagsmál- uiuum verður ekki frestað lengur. Hún hefir þar um það að velja, hvort helddr skuli láta flokk millilið- anna ráða þeirri lausn eða bandalag umbótaflokk- anna, er eiga megin fylgi sitt meðal bænda og launa- fólks. Engin vinnandi mað- ur þarf að efast um það hvorum þessara aðila megi betur treysta í þessum efn- um. Flokkur milliliðanna mun að sjálfsögðu miða úr- ræði sín við það, að hagur gróðamanna og milliliða verði sem bezt tryggður. Það íjónarmið mun hann setja ofar öílu öðru, sbr. ummæli Ólafs Thors, að einkahags- munir komi fyrst, flokkks- hagsmunir svo og þjóðar- hagsmunir síðast. Bandalag umbótaflokkanna mun hins vegar að sjálfsögðu miða úr- ræði sín við það, að tryggja sem bezt hagsmuni hins vinnandi fólks, launafólks og bænda. Það mun gera sitt ítrasta til að tryggja það, að þetta fólk verð'i ekki áfram hlunnfarið af milliliff unum og afætunum, eins og óhjákvæmilega hefir leitt af stjórnarþátttökum Sjálfstæff isflokksins seinustu 18 árin. Þær staöreyndir, sem hér hafa veriö raktar, gera, það tvimælalaust að verkum, að meðal launafólks og bænda fjölgar þeim nú stöðugt, er ætla að efla bandalag um- bótaflokkanna, svo að það fái nægilegt bolmagn til að' leysa þessi höfuðmál þjóðarinnar. Öðruvísi geta kjósendur ekki heldur stuð'lað að heilbrigðri lausn þeirra. Leppríkisstefnan Þá er það viðhorfið í utan- ríkis- og varnarmálunum, sem hefir mjög stutt að fylgis- aukningu bandalags umbóta- flokkanna að undanförnu. Þjóðin stendur nú frammi fyrir þeirri uggvænlegu staff reynd, aff stærsti flokkur hennar, er af undirferli og loddaramennsku kennir sig viff sjálfstæði landsins, hef- ir nú endanlega og augljós- lega gengið erlendu valdi á hönd. Hann hefir markaff sér þá stefnu, að erlendum hershöfðingjum skuli gefiff sjálfdæmi um þaff, hve lengi skuli Ieyfa hér hersetuna, en slíkt myndi þýffa þaff, að hún héldist hér um ófyrirsjáan- lega framtíff. Þessa stefnu hafa forkólfar flokksins markað lionum vegna þeirra f járöflunarmöguleika, er hersetan skapar ýmsum gróðamönnum og milliliðum. Til þess að gera þessa stefnu sem ísmeygilegasta, er nú rekinn sá áróður, að þjóðin megi ekki trúa á landið og hér muni skapast eymd og kreppa, ef herinn sé látin fara. Það á m. ö. o. aff hræffa þjóffina til að láta landsrétt- indi af hendi. Hverjum einuhi má vera ljóst, hverjar afleiðingaj'nar yrðu, ef á þessa stefnu væri fallist. Þjóðin yrði brátt svo háð hernaðarvinnunni, að hún yrði efnalega ósjálf- bjarga og þannig háð því, er Bandaríkin vildu fleygja í hana hverju sinni. Um Banda ríkin má vissulega margt gott segja, en eigi að siöur hefðu beztu menn íslendinga til lít- ils barist fyrir frelsi og sjálf- stæði þjóðarinnar, ef hún ætti að verða amerísk leppþjóð strax á öörum tug hins ný- stofnaða lýðveldis. Amerísk leppríkisstaöa er sannarlega allt annað en eftirsóknarverð. Það sannar reynslan frá Mið- og Suður-Ameríku. Að sönnu hefir auðstéttinni tekist að búa vel um sig í þessum lönd- um, en almenningi er þar hald ið ófrjálsum og kjör hans hin bágbornustu. Og álit þessara þjóða er á lægsta stigi. (Framhald a 8. siðu).

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.