Tíminn - 12.07.1956, Qupperneq 4
m
T í MIN N, fimmtndagiim IZ.Vj&tír X9g6.
Á
lí-
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn.
Ritstjórar: Haukur Snorrason
Þórarinn Þórarinsson (áb.).
«> Skrifstofur í Edduhúsi við Lindargötu.
Símar: 81300, 81301, 81302 (ritstj. og blaðamenn),
auglýsingar 82523, afgreiðsla 2323.
Prentsmiðjan Edda h.f.
Ötti íhaldsins við vinstri stjcrn
MAÐUR, sem hefir bersýni-
lega mikla skapsmuni, skrifar
forustugrein Mbl. í gær og
vandar Framsóknarflokkn-
um ekki kveðjurnar. Grein-
ina kallar hann „Ólánsferil
Framsóknar“ og er efni og
gpdi greinarinnar í samræmi
við þá fyrirsögn.
Það er að sjálfsögðu alveg
ástæðulaust að fara að svara
þeim áburði ítarlega, sem
kenmr fram í grein þessa
skapmikia rithöfundar. Rit-
smíðin öll byggist á skaps-
munum í stað raka. Uppi-
staða hennar er sú, að Fram-
sóknárflokkurinn hafi brugð-
ist öllum samstarfsflokkum
og ekki megi því treysta hon-
um í samstarfi. Ekki er
minnstur snefill af rökum
færður fyrir þessum áburði,
því að það er allt annað að
rjúfa samstarf með gildum
rökum og fullum fyrirvara
en að bregðast samningum.
Með því að rjúfa stjórnarsam
starf 1949 og 1956 rauf Fram
sóknarflokkurinn ekki neina
samninga, er hann hafði gert
við aðra flokka, heldur fór að
öllu bæði á drengilegan og
formlegan hátt. Ákæra hins
skapheita manns fellur þvi
'alvé'g''ii'm sjálft sig.
Ef hinn skapheiti maður
vill, er hins vegar hægt að
rifja það upp, hverjir hafi
svikið gefin drengskaparlof-
orð, unnin með uppréttum
fingrum, i sambandi við
stjórnarslit. Tíminn mun þó
ekki rifja það upp ótilneydd-
ur, því að bezt er fyrir við-
komandi aðila, að slíkir at-
burðir fyrnist. En svo lengi
getur verið hægt að halda
uppi órökstuddum svikabrigsl
um, að upprifjun slíkra at-
burða verði nauðsynleg.
ÞAÐ, sem einkennir annars
mest þessa grein Mbl., er
taumlaus reiði í garð Fram-
sóknarflokksins. Það leynir
sér ekki heldur, hvað veldur
þeirri reiði.
Forkólfar Sjálfstæðisflokks
ins telja Framsóknarflokk-
inn réttilega hættulegasta
andstæðing sinn. Það er
Framsóknarflokkurinn, sem
hefir staðið í vegi þess, að
Sjálfstæðisflokkurinn fengi
meirihlúta. Undir forustu
Framsóknarflokksins hefir
sókn Sjálfstæðisflokksins ver
ið hrundið í hinum dreifðu
héruðum landsins. Undir for-
ustu Framsóknarflokksins
hefir verið hafist handa um
að sameina hin sundruðu
vinstri öfl með þeim árangri
nú þegar, að íhaldið hefir
misst fimm kjördæmi, er það
vann 1953 vegna sundrungar
andstæðinga þess. Undir for-
ustu Framsóknarflokksins er
nú unnið að myndun stjórnar
vinstri manna. Foringjar
Sjálfstæðisflokksins sjá fram
á, að óeðlileg völd auðmanna
og milliliða verða brotin á
bak aftur, ef sú stjórnar-
myndun heppnast.
REIÐISKRIF Mbl. um Fram-
sóknarflokkinn eru vissulega
sönnun þess, að hann er enn
sem fyrr sá andstæðingur í-
haldsins, sem það óttast mest
og hatar mest. Þess vegna
skal nú ekkert látið ógert til
að rægja hann og ófrægja
sem mest.
Vegna stjórnarsamninga
þeirra, sem nú standa yfir,
grípur hinn skapheiti rithöf-
undur Mbl. helzt til þess
rógs, að Framsóknarflokkur-
inn sé svikull í samstarfi!
Þetta á að vera til aðvörunar
fyrir þá, sem Framsóknar-
flokkurinn er nú að semja
við. En tvennt geta menn
haft til samanburðar um það,
hvort Sjálfstæðismönnum
eða Framsóknarmönnum má
betur treysta í samstarfi. Ann
að er samningurinn frægi,
sem Ólafur Thors og
Bjarni Benediktsson gerðu
við Björn Ólafsson 1946 um
tryggt sæti á lista Sjálfstæð-
isflokksins í Reykjavík, en
létu svo fella hann með út-
strikunum. Hitt er hið trausta
fylgi Framsóknarmanna við
frambjóðendur Alþýðuflokks
ins í þeim kjördæmum, þar
sem samið var um að styðja
þá í nýloknum þingkosning-
um.
Ótrúlegt er því, að nokk-
ur íhaldsandstæðingur gangi
þeirra erinda íhaldsins að
láta umræddan róg Mbl.
blekkja sig og hindri þannig
það samstarf, er þj óðin þarfn
ast nú mest og þó alveg sér-
staklega hinar vinnandi stétt
ir landsins.
Otímabær deila
TALSVERÐ deila er nú um
þ)^ð"milli Alþýðublaðsins og
Þjbðviljans, hvort Alþýðu-
flokkurinn eða Alþýðubanda-
lagið sé ttleira fylgjandi því,
að mynduð verði vinstri
stjörn. ! Úm deilu þessa má
segja að hún sé til lítils gagns
á þessu stigi, og reynslan
skera bezt úr því á sínum
tíma, hvort blaðið hafi rétt-
ara fyrir sér. Hins vegar má
benda á það, að Alþýðubanda
lagið hefir enn ekki afneitað
samstarfi við Sjálfstæðis-
flokkinn eins og bæði
Framsóknarflokkurinn og A1
þýðuflokkurinn hafa gert,
hvað, sem því kann að valda.
Rétt er þó að geta þess, að
mjög margir fylgjendur Ai-
þýðubandalagsins eru slíkri
samvinnu algerlega andvígir
og myndu ekki styðja það
lengur, ef til hennár kæmi.
Þögn Alþýðubandalagsins
um þetta mál, þarf því ekki
að þýða það, að það geti
hugsað sér samstarf við Sjálf
stæðisflokkinn, þótt ýmsum
þyki hún tortryggileg.
Antony Head- nííverandi hermálaráðiierra
Breta var eitt sinn óbreyttur hermiaðiir
Ráðherrann er mikiíl yinnuþjarkur - Tóm-
stundaiðja: Hestamennska og nátt-
úrufræðirannsóknir
Á ÁRINU 1945, þegar Antony
Head gekk úr hernum til að verða
frambjóðandi íhaldsmanna í Car-
shalton í Surrey flutti hann allar
ræður blaðalaust og með öllu und-
irbúningslaust að því er virtist.
Hann kom aldrei með punkta með
sér — treysti aðeins á minnið.
Eitt sinn er hann var að halda
ræðu í miðri kosningabaráttunni
kom nokkuð skemmtilegt atvik
fyrir. I miðri ræðunni heyrði
hann í hesti, sem sýnilega hafði
fælzt og knapinn hafði dottið af
baki og lá á hlaupabrautinni. Þeg-
ar Antony sá þetta, hætti hann í
miðju kafi, hljóp að hestinum,
stöðvaði hann og stökk síðan á
bak og reið til baka þar sem
knapinn lá á brautinni.
Segja má með sanni, að atvik
þetta sé dæmigert fyrir stjórn-
málamanninn Antony Head — ró-
legur að eðlisfari, sem gefur sér
tíma til að hugsa hlutina og þó
að hann sé stundum dreyminn get
ur hann verið fljótur til, þegar
þess er þörf.
Tekur vandamálunum með
rósemi
í embætti hermálaráðherra,
þegar hann heyrði um brott-
rekstur Glubb pasha, var ekki
að sjá á honum merki geðshrær-
ingar — hann er þeirrar skoðun-
ar, að öllum vandamálum stjórn
málanna verði að taka með ró
og stillingu. Hermáiaráðuneytið
ber ekki aðeins ábyrgð á stjórn
alls hersins^ heldur liefir það
einnig með höndum áætlanir og
framkvæmd hernaðaraðgerða,
,þjálfun hersins, öflun allra
mögulegra upplýsinga um hern-
aðarmál og meðferð og notkun
margra miljóna punda af fé og
eignum almennings.
Mikill hestamaður
Antony Head er fæddur 1906
og er hann af ríku foreldri. Hann
las við Eton og fór síðan á hinn
konunglega herskóla að Sandhurst.
Antony hefir alla tíð haft mik-
inn áhuga á hvers kyns útilífi,
sérstaklega reiðmennsku og veið-
um. Honum þykir mjög vænt um
hesta, þó að hann hafi nú ekki
eins mörg tækifæri og áður að
fara í útreiðartúra og áður, þeg-
ar hann var hestasvéinn. Hann
varð hestasveinn um tvítugt að
eigin ósk, er honum var ráðlagt
að vera meira úti undir beru lofti
heilsu sinnar vegna, en þá réðst
hann til eins frægasta tamninga-
manns Breta, Atty Persse að
nafni. Persse hefir látið svo um
mælt um Antony, að hann sé
„stórkostlegur vinnuþjarkur, sam-
vizkusamur og sívinnandi.“
Sjálfboðaliði í lífvarða-
sveifum
Antony Head er ævintýraþráin
í blóð borin. Hann stundaði mikið
sjómennsku, sigldi meðal annars
til Ástralíu. Árið 1934 var hann
ANTONY HEAD
knapi á hinum miklu Grand Natio-
nal-kappreiðum í Englandi.
Skömmu síðar kom það ein-
kennilega fyrir, að verðandi her-
málaráðherra landsins lét skrá sig
í herinn sem óbreyttur hermað-
ur. Hann gérðist sjálfboðaliði í líf-
varðasveitunum frá 1934 til 1937.
Honum líkaði starfinn mjög vel
og hafði mjög gaman af að ríða
hinum svarta gæðing sínum í skín
andi herklæðum lífvarðanna. Ár-
ið 1940 var hann skipaður majór
í 20. Ijfvarðasveitinni.
Síðar var hann skipaður aðstoð
arfulltrúi í hermálaráðuneytinu.
Árið 1942 varð hann yfirmaður
í þeirri deild ráðuneytisins, sem
hafði umsjón með sameinuðum
hernaðaraðgerðum og frá 1942
fram til D-dags, ér innrásin var
gerð í Frakkland var hann hátt-
settur fulltrúi í hernum. Hann
ferðaðist mikið, aðallega um Mið-
Austurlönd, Norður-Afríku og
Frakkland. Það hefði verið eðli-
leg þróun, ef Antony Head hefði
verið skipaður hershöfðingi.
Hann var ivímælalaust gæddur
þeim gáfum og hæfileikum, sem
nauðsynlegir eru iil hershöfð-
ingjastarfans. En íhaldsmenn
sáu, að hann bjó yfir öðrum gáf
um og margir þeirra, eins og
Saíisbury Iáýarður og Beaver-
brook lávarður, sáu í honum
ungan og efnilegan forustu-
mann íhaldsnianna, sem nauð-
synlegt var að styðja og efla til
valda þegar tími væri til kom-
inn.
Kosirm á þing
árið 1945
í kosningunum 1945 var hann
kosinn á þing í Carshalton með
1000 atkvæða meirihluta. t næstu
kosningum árið 1950 jók hann
mismuninn upp í 8000 atkvæði og
árið eftir munaði nærri 10 þús-
und atkvæðum á honum og fram-
bjóðanda verkamgnnafíeðíksins.
Eftir kosningarnarí ‘ ífoi': Var
hann skipaður hermálaráðherra og
af skynsamlegum á.stæðum . afsal-
áði hann sér ölluih ' hérnaðártitl-
um og kallaði sig, einfalúlega mr.
Head. Aldrei síðan. 19Í6, þegar
Kitchener lávarður, var hermála-
ráðherra, hefir það komið fyrir,
að venjulegur hermaður hafi orð-
ið hermálaráðherra. Áð vísu var
Winston Churchill hermaður á
sinum tíma, en Áritony Head var
hermaður í hvorki meira né
minna en 20 ár. Ásfæðan til þess,
að ekki þykir heppilegt að fyrr-
verandi hermaður verði hermála
ráðherra er sú, að náin tengsli
hans við æðstu herforingja geri
það að verkum, að völd hans verði
ekki eins mikil og ætlazt sé til
í starfi hans sem hermálaráð-
herra.
Enginn, sem þekkir Antony
Head óttast nokkuð slíkt. Hers-
höfðingjarnir hafa : engin áhrif
á hann og ekki ér nokkur vafi
á því, að hann tekur ákvarðanir
sínar í samrænii við samvizku
sína og einlægá sköðuii.
Antony Head er kvæntur lafði
Dorotheu Ashley Cooper, sem er
afkomandi hins mikla velgjörðar-
manns, Shaftesbury lávarðar, sem
m. a. lét reisa Eros-styttuna á
Piccadilly Circus. Þau eigá 3 börn
og hafa til skamms tíma búið í
fallegu húsi í Windsor, en eru ný-
lega flutt inn í borgina.
Áhugamaður um náttúru-
fræði
Antony les bækur um alvarleg
efni í tómstundum sínum, hann
hefir sérstakan áhuga á bókum
um náttúrufræðileg efni. Hann á
mikið skordýrasafn, sem hann
lætur sér mjög annt um' og gríp-
ur hvert tækifæri sem gefst til
að auka það að gæðum og fjöl-
brevtni. .
Engin hætta er á því, að hann
skapi alvarlegt fordæmi, ef lion
um skyldi einhverju sinni verða
á skyssa, en segja má með sanni
um Antony Head, að hann er
sannkölluð Iífi gædd afsönnun
á athugasemd fransks stjórnmála
manns til Lloyd George: „STRÍÐ
ER ALLTOF ALVARLEGUR
HLUTUR, TIL AÐ IIERMENN
GETI SKIPT SÉR AF ÞVÍ.“
(Þýtt úr Everybody’s.)
Lögðu róðrabátunum
og fóru á síld til
Siglufjarðar
Frá fréttaritara Tímans
á Hofsós.
Algjört aflaleysi er nú hjá opn-
um bátum, sem róá til fiskjar frá
Hofsós. Búið er að leggja fjórum
fiskibátum á land og áhafnir þéirra
farnar norður til Siglufjarðar í
síld.
Margt fólk frá Hofsósi er farið
norður í síldina. Miklir flutningar
á bílum og önnur umferð er um
veginn til Siglufjarðar og er auð-
séð að þar er loksr,feomið líf í tusk-
urnar eftir langvarandi síldarleysi.
FYRIR SYNDAFLÓÐIÐ. Trípólíbíó
sýnir. — Hvað segir Truman: Hvað
líður heimsfriðnum: Hvernig hefir
Kóreustyrjöldin það? Þetta er
frönsk mynd, sem gerist að miklu
leyti meðal sveimhuga unglinga í
París, þegar pólitískir spekulantar
í austri og vestri, friðarsinnar og
andfriðarsinnar með friði, spurðu
um Truman og Kóreustyrjöld og
hvernig friðnum liði. Hvernig það
getur blandast afbrotum unglinga
og hvernig það verður skýrt hvort
með öðru er undirrituðum óskilj-
anlegt, nema þá ungiingaglöp verði
skýrð með þeirri lífsóværu, sem er
samfara friðarpólitík og andfriðar-
sinnapólitík með friði. Ekki er þó
hægt að segja það svo opinskátt
og tengslalítið og gert er í mynd-
inni. Eins og þarna er farið að ráði
sínu verkar bralliö eins og móður-
sýki en ékki sem tákn þeirra tíma,
sem spilla æsku tuttugustu aldar
og hlýtur að eiga vera grundvallar-
atriði, geðlægt sem utanáliggjandi.
---------------*
Þa'ð hefir hvarfla'ð meir og meir að
allmörgum undanf.-rið, að Frakk
ar séu móðursjúkari en almennt
gerist um þjóöir og kannske er
sköpuður myndarinnar að undir-
strika einmitt þetta. Yíirleitt verk-
ar myndin hlægilega á mann, eins
og aðrir misheppnaðir harmleikir.
Og þótt undirritaður sé ekki póli-
tískur og hvorki friðarsinni né and-
friðarsinni með friði, finnst hon-
um andstæðingar vámarliðsflokks-
ins á íslandi hefðu átt að fá þessa
mynd til sýningar fyrir< kosningar,
ef það hefði orðið til.þess að mesti
stríðshrollurinn hqfði farið úr Reyk
víiiingum og Suðúrnesjáuronnum.
~^----—---- ★
Áður en myndinni lýkur er Kóreu-
styrjöld lokið, stolið hefir verið frí-
merkjum, kona hefir misst elsk-
huga sinn fyrir aidur .fram að eigin
áliti, næturvörður hefir v.erið drep-
inn og dreng drekkt í baðkeri, en
þá hefst upp nýtt hróp um olíu-
stríð. Það er sern sagt ekki and-
skotalaust ef stríðsvonin váerí tek-
in frá fólki, eða hVað skyldi Tru-
man segja? — I. G. Þ.