Tíminn - 09.04.1957, Blaðsíða 12
VeðriS í dag:
Suð-austan kaldi, skýjað.
Hitiun kl. 18:
Reykjavík 9 stig. Akureyri 12.
Londou 8, París 10. Khöfn 8.
Stokkhólmur 3. New York 7.
Rússar bjóða íerðamÖRmim
33%~15ö% gengislækkun á rúblu
Nú íá amerískir íertSameim 10 rúblur íyrir
doliar í stati 4
Um s.l. mánaðamót tilkynnti rússneska stjórnin, að frá
og með fyrsta mánudegi í april muni hún selja rúblur fyrir
útlendan gjaldeyri á alveg nýju gengi og nemur mismunur-
inn frá því, sem nú er 33—150%. Þetta gildir einungis um
ferðamannagjaldeyri.
Þetta jafngildir því, segir í New
York Times, að amerískir ferða-
menn geta selt dollarann fyrir 10
rúblur í stað 4 áður, ef þeir skipta
fejaldeyrinum í banka. Flestur út-
lendur gjaldeyrir er þannig stór-
lega hækkaður í verði.
Gengið var rangt
Með þessu hafa Rússar viður-
kennt, að gengi rúblunnar var
stórlega falskt skv. hinni opinberu
skráningu, allt l'rá því gengi henn-
ar var ákveðið 1950 í 4 rúblur
dollarinn. Með hinni nýju skrán-
ingu opnast alveg nýir möguleikar
til ferðalaga í Rússlandi, en fram
að þessu hefur að kalla verið óger-
legt að ferðast þar sökum dýrtíðar.
í New York Times er og bent
á, að þegar farið er að bera sam-
an kaupmátt rúblunnar og útlends
gjaldeyris, kemur í ljós, að gengi
rúblu er ekki eðlilegt heldur hald
ið uppi af ríkinu. Þetta er líka
viðurkennt af rússnesku stjórninni
í skiptum hennar við önnur lönd,
utan leppríkjakerfisins. Útokman
utan leppríkjakerfisins. Útkoman
ara að kaupa rússneskar vörur í
öðrum löndum en heima í Rúss-
landi.
í tilskipuninni um þessa gengis
lækkun var tekið fram, að hún
næði ekki til verzlunarskipta en
ekki var það skýrt nánar. Ætla I
má, að þeila merki að hægt sé!
að kaupa rú’olur á hinu nýja gengi
til per ónulegra nota, en ekki til
meiriháttar viðskipta.
Mismunandi skráning
Hér á eftir fer listi sá, er ríkis-
bankinn rússneski birti um hina
nýju uppbót á ymis konar gjald-
eyri: Sterlingspund, 11,20 rúblur
að viðbættum 16,40; argentískur
pesó (100) 10,38 rbl. plús 15,57;
belgiskur franki (100) 8 rbl., plús
12; gyllini (100) 105,26 rbl., plús
167,89; indversk rúpía (100) 84,30
plús 123,43; kanadiskur dollar 4,9
plús 6,28; bandarískur doilar 4
rbl., plús 6; svissneskur franki
(100) 93,36, plús 140,04.
Lægsta uppbót, sem er í boði er,
er íyrir tyrkneska líru, skráning
á henni var 142,86 og uppbótin
er 47,61 rbl.
Ungverska kommún-
istastjórnin kveður
enn upp dauðadóma
Búdapest, 8. apríl. — f Búda-
pest hafa nokkrir ungir Ungverj-
ar verið dæmdir til dauða. Eru
þeir sakaðir um að hafa myrt
Avóa. í hópi hinna dauðadæmdu
er 25 ára gömul stúlka. Kona kvað
upp dauðadóminn.
Þá hafa 3 Ungverjar verið dæmd
ir í langa fangelsisvist fyrir morð-
tilraun. í dag voru 6 menn hand-
teknir í Ungverjalandi, sakaðir um
samsæri gegn stjórninni.
GeysiauiJugar námur
London. — í fylkinu Queens-
Iand í Ástralíu hafa fundizt geysi-
miklar báxit-námur, sem eru auð-
ugri en allar slíkar námur saman-
lagt annars staðar í heiminum.
Málmur þessi er notaður til fram
leiðslu á alúmíni.
BráSskemmtilegt erinái Peter Freu-
ckcns í káskólanum á laugardag
Áheyrendur voru margir og tóku máli hans
] hið bezía
Á laugardaginn flutti Peter Freuchen fyrirlestur fyrir
stúdenta í hátíðasal háskólans. Nefndi hann fyrirlestur sinn
Grænland fyrr og nú. Salurinn var þéttsetinn áheyrendum
og var máli Freuchens hið bezta tekið.
Samkoman hófst á því, að
Sturla Friðriksson, formaður Stúd-
entafélagsins, mælti nokkur orð,
ávarpaði hann Freuchen og bauð
hann velkominn.
Þá tók Peter Freuchen til máls.
)Hann drap nokkuð á það hversu
ifurðulegt land Grænland væri,
) aðeins 12% af öllu flatarmáli þess
iværi ekki hulið jökli og þar af væri
I lítill hluti byggilegur. Síðan ræddi
hann landnám íslendinga á Græn-
landi til forna og hver örlög þeirra
hefðu sennilega orðið: harðara ár-
ferði og vaxandi kuldar hefðu yfir-
bugað þá. Svo míkið er víst, að
þegar Hans Egede kom til lands-
(Framhaid á 2. síðu).
Framsóknarvist á
fimmtiidaginn
Eins og áður hefir verið getið
í blaðinu, verður næsta vist hald-
in í Breiðfirðingabúð fimmtudag-
inn 11. apríl. Húsið verður opnað
kl. 8 en byrjað að spila kl: 8,30,
Aðgöngniniðar verða aíhentir á
skrifstofu Framsóknarfélaganna í
Peter Freuchen gengur í salinn. 1 dag og á morgun, sími 5564.
Bandaríkjamenn
þjálfi Dani í með-
ferð fjarstýrðra
flugskeyta
KAUPMANNAHÖFN—NTB, 8.
apríl. — Kaupmannahafnarblaðið
Information skýrir frá því í dag,
að danska landvarnaráðuneytið
sé nú að undirbúa það, að senda
fjölda danskra manna til Banda-
ríkjanna, þar sem þeir verði þ jálf
aðir í meðferð fjarstýrðra flug-
skeyta. Blaðið segir ennfremur,
að þess sé að vænta, að fleiri
lönd Atlantshafsbandalagsins
taki tilboði Bandaríkjanna um
þjálfuu manna í Bandaríkjunuin
í ineðferð slíkra vopna.
Krúsjeff sæmdnr
gullorðu fyrir
„frábær störf4
MOSKVA—NTB, 8. apríl. — Sam
kvæmt frásögn Moskva-útvarps-
ins hefir Nikita Krúsjeff verið
sæmdur æðstu Lenin-gullorðu
Rússlands fyrir „frábær störf“ í
sambandi við áætlftn stjórnarinn-
ar, flutnings vinnuafls og fram-
kvæmda til austurhluta Ráð-
stjórnarríkjanna. Ennfremur hef-
ir Krúsjeff verið þakkað fyrir ó-
sérplægna frábæra þjónustu við
kommúnistaflokk landsins. Ekki
hefir verið skýrt frá því hverjir
sæmdu Krúsjeff gull-medaliurmi.
Einn maður skemmir
fjórar bifreiðar
í gærmorgun varð harður bif-
reiðaárekstur á móts við Freyju-
götu 44. Þar hafði bifreið verið ek-
ið aftan á aðra, sem stóð kyrr. Við
áreksturinn þeyttist bifreiðin yfir
götuna og lenti á tveimur bifreið-
um, sem þar stóðu: samtals fjórir
bílar laskaðir. Bifreiðarstjórinn.
sem var valdur að öllum þessum
ósköpum, virtist hafa verið að
flýta sér, enda talið að heyrzt hefði
til ferða hans skömmu áður á
Skólavörðustíg. Þóttu sýnileg
merki þess, að hann hafi verið
drukkinn. Þegar að var komið, sat
bifreiðarstjórinn klemmdur í sæti
sínu. Var hann fluttur í slysavarð-
stofuna til athugunar, en hann
mun hafa mjaðmarbrotnað.
Framfarirnar á íslandi minna á fsrónn-
ina í Bandarikjumim og Israel
Rætt vi5 próf. Erik Warburg, rektor Kaup-
mannahafnarháskóla
Fréttamenn ræddu í gær við
Erik Warburg rektor Kaup-
mannahafnarháskóla, sem er
prófessor í hjartasjúkdómum,
sem kom hingað til lands í síð-
ustu viku í boði dansk-íslenzka
félagsins.
Próf. Warburg ræddi nokkuð
menningarsamskipti Dana og ís-
lendinga á sviði skólamála. Um
aldaraðir hefði Kaupmannahafn-
arháskóli einnig verið háskóli fs-
lands, en þangað hefði fjöldi ís-
lenzkra stúdenta leitað sér æðri
menntunar þar til íslendingar
sjálfir stofnuðu eigin háskóla árið
1911, en enn leituðu margir ís-
lendingar sér menntunar í Dan-
mörku, einkum verkfræðistúdent
ar.
OGLEYMANLEG GEST-
RISNI.
Prófessorinn kvaðst hafa haft
mikla ánægju af dvöl sinni hér
á landi, hann hafi notið ógleym-
anlegrar gestrisni og vináttu ís
lendinga. Hann heimsótti Reykja
lund og dáðist mjög að hinni
merkilegu starfsemi, sem þar
hefði verið rekin með góðum ár-
angri. Hann hefir farið upp að
Þingvöllum og notið fegurðar
þessa sögufræga staðar.
GEYSILEGAR FRAMFARIR.
Prófessorinn kvaðst hafa hrif-
izt að hinni dæmalausu bjart-
sýni, sem sér virðist vera hér
livarvetna ríkjandi. Reykjavík
væri gott dæmi upp á það, hve
íslendingar væru langt komnir
á sviði framfara, lýðræðis og
menningar. Hér hefðu orðið geysi
legar framf irir, bæði á tæknileg
um sviðum sem öðrum, fram-
farir, sem helzt minnti á þróun-
Próf. Erik Warburg
ina í Bandaríkjunum 02 í ísraeL
GÓÐ SAMSKIPTI DANA
OG ÍSLENDINGA.
Prófessorinn kvaðst að lokum
vona, að hinn formlegi aðskiln-
aður, sem varð á milli Danmerk
ur og íslands, hann verði fyrst
og fremst til þess að tengja þess
ar tvær þjóðir á sviði menningar,
og að þa ubönd verði ætíð sterk-
ari hinum lagalegu tengslum.
Prófessor Warburg er mjög
gáfulegur og góðlegur maður, grá
hærður nokkuð, og býður af sér
hinn bezta þokka.
Hann er þjóðkunnur í landi
sínu og raunar vel þekktur í
fjölmörgum löndum sökum hæfi
leika sinna og mannkosta.
Kafarar hafa fjarlægt um 40 stak-
steinaúr Húsavíkurhöfn að undanf.
Skipum á nú engin hætta a'5 vera búin af
slíkum steinum í höfninni
Sækviku SkagfirSinga lank með
dansleik í Biíröst á snnnudagskvöldið
Sæluvikan var meÖ þeim fjölsóttari, enda
voru vegir góÖir og milt veÖur
Einhverri fjölsóttustu sæluviku í Skagafirði lauk síðast
liðið sunnudagskvöld með dansleik í félagsheimilinu Bifröst.
Áður en þessi lokadansleikur hófst, hélt verkamannafélagið
Fram á Sauðárkróki skemmtun í húsinu og hófst hún kl.
hálfníu um kvöldið.
Á skemmtuninni var sýndur
sjónleikur Agnars Þórðarsonar,
Förin til Brazilíu og skemmtu á-
horfendur sér hið bezta við að
horfa á þennan fyndna gamanleik.
Skemmtun verkamannafélagsins
lauk með gámanvísnasöng frú Guð-
rúnar Gísladóttur. Söng hún
smellnar vísur um sæluvikuna og
innanbæjarmál, sem eru á döfinni
að þessu sinni. Guðrún er með
beztu gamanvísnasöngkonum, en
mun lítið eða ekkert hafa látið £
sér heyra utan Skagafjarðar.
á Sauðár-
króki, að sæluvikan hafi að þessu
sinni verið mjög fjölsótt. Veður
(Framhald á 2. síðu).
Frá fréttaritara Tímans í Húsavík.
Undanfarna • daga hefir verið unnið að því að hreinsa
staksteina úr botni Húsavíkurhafnar. Hafa unnið að þessu
tveir kafarar, Aage Johansen á Siglufirði og Jóhann Gauti Fjölsótt sæluvika.
á Akurevri. Vélskipið Bergfoss frá Siglufirði var og fengið Það er mál manna
til þessara aðgerða.
' vera nein hætta búin af stakstein-
Alls voru fjarlægðir um 49 stak- um í höfninni. ÞF
steinar stærri og minni úr botni ----------------------------------
hafnarinnar, teknir víðsvegar 1
höfninni, en aðallega þó á nokkuð
breiðu svæði suðaustur af hafnar-
garðsendanum. Steinar þessir voru
flestir frá 100 kg til 2 smálestir
að þyngd, en einn þeirra var þó
um 8 lestir. Lá hann þvert inn af
hafnarbakkanum og ekki í alfara-
leið stærri skipa, sem í höfnina
koma.
Aðfaranótt 15. febrúar s. 1. þeg-
ar Goðafoss laskaðist hér 1 höfn-,
inni mun hann einmitt hafa farið
yfir það svæði, sem flestir stak-
steinarnir fundust á. Vona menn,
að verk þetta hafi tekizt vel, og að
sögn kafaranna á ekki lengur að
FjölmeimiS á fnnd Framsóknarfélags
Rvíknr í Tjarnarkaffi í kvöld
Umræthiefni gjaldeyris og fjárhagsmál —
Framsögum. Jón Arnason fyrrv. bankastjóri
Framsóknarfélag Reykjavíkur heldur fund í Tjarnar*
kaff? (niðri) kl. 8,30 í kvöld. Fundarefni hefir verið á*
kveðið gjaldeyris- og fjárhagsmál og mun Jón Árna*
son fyrrv. bankastjóri verða frummælandi á fundinum.
Framsóknarfólk fjölmennið á fundinn og mætið stund-
víslega.