Tíminn - 12.04.1957, Side 1
Inni í blaðinu í dag:
Fylgist með tímanum og lesið
TÍjíATTN. Askriftarsímar: 2323
og 313T0. Tíminn flytur mest og
fjelbreyttast almennt lesefni.
41. árgangur.
Heimsókn í réttarsal Orators,
bls. 4.
Afstafa Svíþjóðar til hernaðar-
bandalaga, bls 6.
Rætt við bónda úr Köldukinn,
bls. 7.
85. blað.
Frá Félagi ungra
Samkomulag stjórnarflokkanna um húsnæðismálin, stóreignaskattinn
Framsóknarmanna
Stjórn F.U.F. í Reykjavík hef
ur ákvt'ðið að gangast fyrir
skemmtifundum á þessu vori í
formi tafl, bridge og málfunda,
fyrir félaga og gesti þeirra. Á
síðasta fundi félagsins Iýsti for-
maður þessum áformum stjórn-
arinnar, og bað þá félaga, sem
, áhuga hafa á þessum þætti fé-
lagsstarfseminnar, að láta skrá
sig á skrifstofu Framsókuarfé-
laganna.
Tíminn vill nú minna félags-
menn á að hafa samband við
* skrifstofuna í Edduhúsinu, og
láta skrá sig sem fyrst. —
Sími 5584.
Fréttir í fáum orðum:
ÞINGKOSNINGAR fara fram í Dan-
mörku 14. næsta mánaðar.
MAKARIOS erkibiskup er kominn
til Narobi. Hann hefir enn skor-
að á Harding landstjóra að gefa
pólitískum föngum á Kýpur upp
sakir.
DANSKA þingið hefir endanlega
samþykkt að veita 167 millj. kr.
til stækkunar Kastrup-flugvallar.
og fjáröfhm til veðdeildar Búnaðarhankans
Ánkið fjármagn til íbúðalána
og veðdeildar Búnaðarbankans
Sjúkrahósdvöl Sir Anthony kann að
kosta um 115 þósimdir ísl. króna
Frumvörp um þessi mál voru íögð fram
á Alþingi í gær
Vísiíalan 189 stig
Greiðir brezka ríkið reikninginn fyrir hann?
Kauplagsnefnd hefir reiknað út
vísitölu framfærslukostnaðar í
Reykjavík 1. apríl s. 1. og reyndist
hún vera 189 stig. —• (Frá við-
skiptamálaráðuneytinu).
r
Oskað eftir vitnum |
vegna húsbruna
í fyrrakvöld um ellefuleytið
varð elds vart í húsinu Bergstaða
stræti 2, en þar er bólsturverk-
stæði Ásgríms Lúðvikssonar. —
Þegar slökkv'liðið kom á vettvang
var allmikill eldur í kjaílara
hússins, en þar voru geymdir
pakkar með viðarull og ýmsu öðru
efni tilheyrandi verkslæðinu. —
Nokkrar skemmdir urðu af reyk
á hæðinni fyrir ofan. Fljótlega
tókst að slökkva eldinn eftir að
slökkviliðið kom á vettvang. Allt
útlit er fyrir, að kveikt hafi verið
í húsinu. Við rannsókn kom í
ljós, að gluggarúða liafði verið
brotin i kjallaranum, en fyrir ut-
an fannst eldspýta og stokkur
skammt frá. Rannsóknarlögreglan
óskar eftir vitnum að grunnsam-
óskar eftir vitnum að grunsam-
í fyrrakvöld.
Boston og London, 11. marz. — Innan fárra daga verður
tekin ákvörðun um það, hvort nauðsynlegt sé, að framkvæma
Skurðaögerð á sir Anthony Eden fyrrv. forsætisráðherra
Breta, en hann lagðist inn á sjúkrahús í Boston í byrjun þess-
arar viku. Þessar upplýsingar koma fram í tilkynningu, sem
gefin var út í kvöld af sjúkrahúsinu. Sir Anthony hefir verið
skorinn upp þrisvar sinnum síðan 1953 við sjúkdómi í gall-
blöðrunni.
Sjúkdómurinn tók sig upp að
nýju s. 1. haust, er forsætisráðherr-
ann lagði hart að sér meðan stóð
á Súez-stríðinu. Hann og kona
hans fóru síðan til Nýja Sjálands,
en heilsu Sir Anthony hnignaði
stöðugt, svo að hann varð að halda
til Boston eins og áður segir.
Dýr sjúkrahúsvist.
Tilkynningin um heilsu Sir An-
tony var gefin út af hinum fræga
skurðlækni Dr. Richard Cattell,
sem gerði uppskurðinn á Sir An-
tony árið 1953.
í brezkum blöðum liefir koniið
fram krafa um að ríkið taki að
sér að greiða liinn gífurlega
kostnað, sem sjúkrahúsdvölin
mun hafa í för með sér fyrir Sir
Anthony. Blað íhaldsmanna, Dai-
ly Mail, kom fyrst fram með liug
myndina. Eden verður að greiða
um 460 kr. ísl. fyrir mjóg iburð-
arlaust herbergi á sjúkraluisinu,
en allur reikningurinn kann að
komast upp í uin 115 þús. ísl. kr.
Illa launuð löng þjónusta.
Sem fyrrv. forsætisráðherra hef
ir Sir Anthony laun frá brezka
ríkinu sem nema um 90 þús. ísl.
króna árlega í eftirlaun. News
Chronicle, sem fvlgir Frjálslynda
flokknum að málum, segir í dag,
að brezka þjóðin hafi illa launað
Sir Anthony langa og frábæra
þjónustu. Kvaðst blaðið segja þetta
af hálfu þeirra blaða, sem mest
hefðu gagnrýnt stefnu Edens í for-
sætisráðherratíð hans, einkum Sú-
ez-stríðið. í greininni segir, að
ekkert verði tekið aftur af þeirri
gagnrýni, en það sé ósanngjarnt,
að brezka ríkið láti Eden einan
um að grciða hinn gífurlega sjúkra
kostnað.
Stóreignaskattur á hreina eign,
sem er yfir eina milljón króna
Tekjnr af skattinum áætlaður um 80
millj. króna og verSur varið til íkíða-
bygginga í kaupstöðum og veðdeild-
ar BónaSarbankans, vegna bygginga
í sveitum
í gær var lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um skatt
á stóreignir. Er hér um að ræða stjórnarfrumvarp og verð-
ur tekjum af þessum skatti varið til þess að efla sjóði, sem
lána fé til íbúðarhúsabygginga í kaupstöðum og sveitum.
TVeir þriðju hlutar af þessum skatti fara til byggingarsjóðs
ríkisins, sem lýtur stjórn húsnæðismálastjórnar og lánað
verður úr fé til íbúðabygginga 1 kauptúnum og kaupstöð-
um, en þriðjungur þess sem inn kemur rennur til veðdeildar
Búnaðarbankans, sem auk þess er ætlað að fá hluta afl
skyldusparnaði, sem lagt er til að lögfestur verði með ann-
arri löggjöf. Ennfremur fær veðdeild Búnaðarbankans fimm
milljón króna lán á þessu ári til eflingar lánastarfseminni.
Skattur þessi reiknast þannig,
að af einnar milljón króna
hreinni eign hjá hverjum ein-
staklingi greiðist enginn skatt-
ur. Af 1—1,5 millj. kr. lireinni
eign greiðist 15% af því sem
umfram er eina milljón og 20%
af afgangi. Af 3 millj. kr. eign
og þar yfir greiðist 375 þús. kr.
af 3 millj. og 25% af afgangi.
Miðast viS eignir
um sílSustu áramót
Um skatt félaga gilda í þessu
n. ^ i frumvarpi svipuð ákvæði
og um skattlagningu þá er gerð
var í sambandi við eignakönn-
unina.
Skattaálagningin er miðuð við
eignir um síðustu áramót. Fast-
eignir skulu metnar með því verði
sem ákveðið verður af þeirri
landsnefnd, sem vinnur að sam-
ræmingu fasteignamatsins, en þó
skal endurskoða mat á einstök-
um lóðum í kaupstöðum og kaup
túnum og annars staðar, þar sem
nefndin telur ástæðu til.
Frá matsverði frystihúsa, slát-
urhúsa og annarra húseigna, sem
notaðar eru fyrir vinnslustöðvar
afurða, skal draga tuttugu af
hundraði.
Tekjur af skattinum
áætlaðar um 80 millj.
Við matsverð fasteigna skal
bæta 200% álagi. Þá gilda sér-
stök ákvæði um matsverð skipa
og flugvéla. Samkvæmt upplýs-
ingum, sem birtar eru í athuga
semduin við frumvarp ríkis-
(Framhald á 2. síðu).
★ Ný tekjuöflun og skyldusparnaður til þess að byggja
upp öfluaan Byggingarsjóð ríkisins, sem láni til ibúða
í kauptúnum og kaupstöðum og láni einnig Bygging*
arsjóði sveitanna.
★ Reglur verða settar, sem tryggja, að hagkvæmar og
hóflega stórar íbúðir sitji fyrir lánum, svo að sem
flestir geti fengið íbúðir fyrir það lánsfé, sem auðið
er að verja til íbúðabygginga.
★ Vísitölutryggður skyldusparnaður ungs fólks á aldrin*
um 16—25 ára, sem ekki gengur í skóla eða hefir
fyrir heimili að sjá.
★ Skyldusparnaður úr sveitum leggst í Veðdeild Bún*
aðarbankans og á að gefa rétt til hærri lána en al*
mennt gerist úr stofnlánadeildum bankans, þegar 25
þús. kr. hafa safnazt.
★ Skyldusparnaður úr kaupstöðum og kauptúnum leggsf
< Byggingarsjóð ríkisins og á að gefa rétt til hærrl
íbúðalána en almennt eru veitt þegar 25 þús. kr. hafa
safnazt.
★ Veðdeild Búnaðarbankans fær 5 millj. króna lán á
þessu ári og Vh hluta af stóreignaskattinum til eignar,
sem kemur inn á næstu 10 árum. Ennfremur eins og
áður segir allan skyldusparnað úr sveitum.
í gær voru lögð fram á Alþingi tvö stjórnarfrumvörp. Er
annað þeirra um húsnæðismálastofnun, byggingarsjóð ríkis-
ins, og sparnað til íbúðabygginga. Hitt frumvarpið er um
skatt á stórcignir. Þessi nýju stjórnarfrumvörp miða að
því að afla fjár með skyldusparnaði og nýjum tekjuöflun-
arleiðum t.il að byggja upp öfluga sjóði til íbúðarhúsabygg*
inga í kaupstöðum og framkvæmda í sveitunum með lán*
veitingum úr veðdeild Búnaðarbankans, sem stórlega er efl^
með hinni nýju löggjöf.
SkyldusparnatSur
unglinga
í frumvarpinu um byggingamál
in og skyldusparnað er gert ráð
fyrir að öllum einstaklingum á
aldrinum 16—25 ára sé gert skylt
að leggja til hliðar 6% af
laumun sínum, sem greidd eru
í peningum, eða sambærilegum
atvinnutekjum, í því skyni að
mynda sér sjóð til íbúðabygginga
eða til bústofnunar í sveit. Fé
það sem á þennan hátt safnast,
skal ávaxtað í innlánsdeild bygg-
ingasjóðs ríkisins fyrir alla þá,
sem búsettir eru í kauptúnum og
kaupstöðum, en í veðdeild Bún-
aðarbanka Islands fyrir þá, sem
búsettir eru í sveitum. Fé það
sem skylt er að spara á þennan
hátt er undanþegið tekjuskatti
og útsvari.
Þegar sá, sem safnað hefur fé
á þennan hátt nær 25 ára aldri,
eða gengur fyrr í hjónaband og
stofnar heimili, á liann þess kost
að fá sparifé sitt endurgreitt að
viðbættum vöxtum og uppbót
vegna vísitöluhækkunar og
skulu sömu aðilar ennfreimtr að
öilu jöfnu sitja fyrir um lán til
íbúðabygginga frá húsnæðis-
málastjórn og mega þau lán vera
allt að 25% bterri en almennt
gerist þá, þó eigi yfir % hluta
af matsverði viðkomandi íbúð-
ar. Þeir, sem lagt hafa fé í veð-
deild Búnaðarbankans, fá hlið-
stæða fyrirgreiðslu frá hendi
þeirrar stofnunar við bústofnujs
í sveit. Þá er Búnaðarbankanum
og húsnæðismálastjórninni heitn
ilt að semja um að réttindi þessi
verði gagnkvæm.
UndanþegiS skyldusparnaðin*
um er gift fólk, sem stofnað hefur
heimili, skólafólk, sem stundar
nám sex mánuði .eða lengur, á
ári, og iðnnemar, meðan þeir
stunda iðnnám og ennfremur
þeir sem hafa skylduómaga á
framfæri sínu og innan við 30
þús. kr. í skattskyldar tekjur.
Hinar auknu tekjur
by ggingars jóftanna
í lagafrumvarpinu er gert ráð
fyrir stórauknum tekjum til
handa byggingasjóðum sveita og
kaupstaða. Segir í athugasemd-
um, sem fylgja frumvarpinu, að
framlög til íbúðalána árið 1957
geti orðið að minnsta kosti um
33 milljónum króna hærri, en-
þau urðu á síðasta ári, og eru þá
ekki talin mótframlög bæjar- og
sveitarfélaga.
í frumvarpinu er gert ráð fyr-
ir stofnun byggingarsjóðs ríkis-
ins, er lúti stjórn húsnæðismála
stjórnar. Er hlutverk sjóðsins að
annast lánveitingar til íbúða-
bygginga og standa straum af
framkvæmdum húsnæðismála-
stjórnar, meðal annars við bygg-
ingu tilraunahúsa, ef í verður
ráðist. Stofnfé sjóðsins er ætlað
(Framhald á 2. síðu).