Tíminn - 10.05.1957, Blaðsíða 11
T f MI N N, föstudaginn 10. maí 1957,
11
------------------\
DENNI DÆMALAUSI
Föstudagur 10. maí
— í guSanna bænum — gefiS mér einhver róandi meSul handa
Denna!
Skipadeild S. I. S.:
Hvassafell er á Kópaskeri. Arnar-
fell er í Kotka. Jökulfell fór 7. þ. m.
frá Rostock áleiðis til Austfjarða-
hafna. Dísarfell er í' Kotka. Litlafeil
er í olíuflutningum í Faxaflóa. Helg-r
fell er í Keflavík. Hamrafell fór 6.
þ. m. frá Batum áleiðis til Rvíkur.
Sine Boye fór 3. þ. m. frá Riga áleið-
is til íslands.
H. f. Eimskipafélag íslands:
Brúarfoss fór frá Rostock í gær til
Kaupmannahafnar. Dettifoss er í
Gautaborg. Fjallfoss er í Reykjavík.
Goðafoss er í Reykjavík. Gullfoss fór
frá Rvík 8.5. til Thorshavn, Hamborg
ar og Kaupmannahafnar. Lagarfoss
fór frá Rvik 8.5. til ísafjarðar, Siglu-
fjarðar, Akureyrar og Húsavíkur.
Reykjafoss fer frá Akranesi í dag t.il
Rvíkur. Tröllafoss er væntanlegur
til Rvíkur síðdegis í dag frá N. Y.
Tungufoss fór frá Keflavík 8.5. til
Antwerpen, Hull og Reykjavíkur.
Flugféiag íslands h. f.:
Gullfaxi fer til Glasgow og Kaup-
mannahafnar kl. 8.00 í dag. Væntan-
iegur aftur til Rvíkur kl. 22.50 á
morgun. — Sólfaxi fer til Kaupm,-
hafnar og Hamborgar kl. 8,30 í fyrra
málið. •— Innanlandsflug: í dag er á-
ætlað að fljúga til Akureyrar, Egils-
staða, Fagurhólsmýrar, Flate.vrar,
Hólmavíkur, Hornafjarðar, ísafjarð-
ar, Kirkjubæjarklausturs, Vest
mannaeyja og Þingeyrar.
Loftleiðir h.f.:
Edda er væntanleg kl. 7.00—8.00
árdegis á morgun frá N. Y. Flugvél-
in heldur áfram kl. 10.00 áieiðis til
Gautaborgar, Kaupmannahafnar og
Hamborgar. — Saga er væntanleg
annað kvöld kl. 19.00 frá Stafangri
og Osló. Flugvélin heldur áfram kl.
20,30 áleiðis til N. Y.
Barómeterkeppni
Bridgesambands íslancrs hefst laug
ardaginn 11. þ. m. Þetta er árleg tví-
menningskeppni, sem er þannig
framkvæmd, að ailir spilararnir, sem
eru 52 pör, spila á sömu spil. Spilin
eru öll gefin fyrirfram og er staða
spilaranna gefin upp jafnóðum á
töflu. Þátttakendur í keppninni eru
frá öllum Reykjavikurfélögunum,
svo og Hafnarfirði, Selfossi, Akra-
nesi, Borgarnesi og Siglufirði.
Tvær umferðir verða spilaðar á
laugardag í Sjómannaskólanum, en
þriðja og síðasta umferðin verður
spiluð í Skátaheimilinu á sunnudag-
inn.
Krunk um heimsenda-happdrætti
okkar Sjáifstæðismanna.
Hérna er ég nú kominn aftur. Þið
hafið vafalaust tekið eftir því, að ég
hvarf úr pistlinum mínum hérna í
fyrradag og var aðeins eyða eftir.
Svo var mál með vexti, að ég las það
í Mogga mínum, að þrjár kríur
hefðu sést á flugi yfir höfninni.
Varð mér svo mikið um þær fréttir,
að erkióvinurinn væri kominn, að ég
flaug óvart út úr blaðinu.
En ég ætlaði nú ekki að ræða um
það í dag, enda er
ég nú farinn að
jafna mig. Ég ætl-
aði að vekja at-
hygli ykkar á
merkilegu máli;.
Eins og þið munið
flutti Moggi minn
þá merkilegu
heimsfrétt ekki
alls fyrir löngu,
að heimsendir
mundi verða tiltekinn dag. Varð
mönnum að vonum mikið um, og lá
við slysum, jafnvel að Helgi Sæm. i
Alþýðublaðinu kristnaðist. Sem bet-
ur fór varð ekki heimsendir og eng-
inslys. —
í Mogga í gær má gerla sjá, hve
. við Sjálfstæðismenn erum framsýnir
1 og kunnum vel að bjarga okkur í
hverjum vanda, jafnvel heimsendi.
Við stofnuðum til heimsenda-happ-
drættis og eru vinningar aðallega
farmiðar með skipum og flugvélum,
að sjálfsögðu geimförum. Um þetta
happdrætti er nánar rætt í stórfrétt
x .Mogga í gær. Þar segir, að nú sé
! „nauðsynlegt, að þeir, sem fengið
hafa heimsendahappdrættismiða geri
^ skil sem allra fyrst. Auðvitað á ég
■ einn miða. Nú á að draga og notá
vinninginn í næsta heimsendi Mogga
Ég skal aðeins geta þess, að svolítill
ágreiningur var mUli Ólafs og Bjarna
um það, hvert halda skyldi, þegar
heimsendir kæmi. Ólafur viidi fará
I til Marz, en Bjarni til tunglsins,
Taldi Bjarni sig meira í ætt við þjóð
þá, sem þar býr, og ekki allsendis ó-
líkan karlinum, sem þar hefir ráðið
ríkjum, og mundi hann því sjálfkjör
inn til ríkis eftir haxm.
Útvarpið í dag:
Útvarpið á morgun:
8.00 Morgunútvarp.
■10.10 Veðurfregnir.
12.00 Hádegisútvarp.
13.15 Lesin dagskrá næstu viku.
15.00 Miðdegisútvarp.
16.30 Veðurfregnir.
19.00 Þingfréttir.
• 19.25 Véðurfrégnir.
19.30 Létt lög.
19.40 Auglýsingar.
20.00 Fréttir.
.20.30 Erindi: Hjá Lappneskri völvu
(Guðmundur Einarsson frá
dal).
20.50 íslenzk tónlist: Lög eftir Sig-
valda Kaldalóns.
21.15 Dagskrá slysavarnadeildarinnar
„Ingólfs" í Reykjavík: a) séra
Óskar J. Þorláksson flytur á-
varpsorð. b) Gísli Sveinsson
fyrrum sendiherra flytur er-
indi: Um skipsströnd í Skafta-
fellssýslu. Ennfremur tónleikar
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Garðyrkjuþáttur (Frú Ólöf Ein
arsdóttir).
22.25 Létt lög: a) Frank Sinatra og
Jo Stafford syngja með Tommy
Dorsey og hljómsveit hans. b)
Sidney Torch og hljómsv. leika
23.00 Dagskrárlok.
Útvarplð á morgun:
8.00 Morgunútvarp.
10.10 Veðurfregnir.
12.00 Iládegisútvarp.
12.50 Óskalög sjúklinga.
15.00 Miðdegisútvarp.
16.30 Veðurfregnir.
19.00 Tómstundaþáttur.
19.25 Veðurfregnir.
19.30 Einsöngur: John McCormack
syngur.
‘ 19.40 Auglýsingar.
20.00 Fréttir.
20.30 Tónleikar: Walter Gieseking
leikur tvö píanóverk eftir Mo-
zart: a) Sónata í C-dúr (K545).
b) Tólf tilbrigði í Es-dúr (K354)
20.50 Leikrit: „Magister Gillie“ eftir
James Bridie, í þýð. Hjartar
Halldórssonar. — Leikstj.: Þor-
steinn Ö. Stephensen.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Danslög, þ. á. m. leikur hljómsv
Björns R. Einarssonar (endur-
tekið frá öðrum páskadegi).
01.00 Dagskrárlok.
Gordianus. 130. dagur ársins.
Tung! í suSri kl. 21,50. Ár-
degisflæði kl. 2,13. SíSdegis-
flæSi kl. 14,41.
SLYSAVARÐSTOFA REYKJAVIKUR
i nýju HeilsuvemdarstöOinni, er
opin allan sólarhringinn. Nætur-
læknlr Læknafélags Reykjavíkur
er á sama stað klukkan 18—8. —
Síml Slysavarðstofunnar er 5030.
„DOCTOR KNOCK".
Knock: Lútið höfði. Dragið andann.
Ifóstið. Ðuttið þér aldrei úr stiga
þegar þér voruð lítil?
Konan: Ekki man ég til þess.
Knock: Hafið þér aldrei verk hérna
á kvöldin? Svona dálítinn þreytu
verk?
Konan: Jú, stundum.
Knock: Hugsið yður vel um. Það
hlýtur að hafa verið stór stigi
Úr hinum skemmtilega gamanleik
„Doktor Knock", sem sýndur er í
þjóðleikhúsinu í kvöld. Á sunnudag-
inn verður næst síðasta sýnixxg. (Dr.
Knock: Rúrik Haraldsson. Konau:
Anna Guðmundsdóttir).
Dagskrá Rfkisútvarpsins
fæst f Söluturninum vlð Amarhól.
Á leikvellinum
FerSafélag íslands
fer tvær skemmtiferðir á sunnu-
daginn. Suður með sjó og gönguferð
á Hengil. Lagt af stað í báðar ferð-
irnar á sunnudagsmorguninn kl. 9
frá Austurvelli. — Farmiðar seldir
við bílana. Upplýsingar í skrifstofu
félagsins, Túngötu 5, sími 82533.
Tvær helgarferSir.
Ferðaskrifstofa Páls Arasonar efn-
ir til tveggja helgarferða. Ki. 2 á
laugardag verður farið austur und-
ir Eyjafjöll og verður gengið á Eyja-
fjallajökul. Kl. 9,30 á sunnudagsmorg
uninn verður farið suður um Reykja
nesskaga og komið til baka um kvöld
ið. Farið verður frá Ferðaskrifstofu
Páls Arasonar, Hafnarstræti 8, smii
7641, á fyrrnefndum tímum.
Skaftfellingafélagið í Reykjavík
heldur síðasta skemmtifund sinn
á þessu vori í Skátaheimilinu annað
kvöld (laugard.) kl. 8,30. Fundurinn
verður með líku sniði og hinir fyrri
í vetur.
Leiftrétting
I grein um Vilborgu Jónsdóttur
frá Hlemmiskeiði hér í blaðinu í
gær misritaðist nafn eins barna
hennar, heitir Hörður en í greininni
stendur Hjörtui-.
16 ára þýzk stúlka
óskar eftir pennavini á fslandi
Skrifar þýzku, ensku og frönsku. -
Nafn og heimilisfang hennar er:
Rotrant Johanning,
Schiittorf 1 Hann
Salzberger Strasse 69,
Þýzkalandi.
ALÞINGI
Dagskrá
efri deildar Alþingis í dag kl. 1.30
miðdegis:
1. Innflutnings- og gjaldeyrismál,
fjárfesfingarmál o. fl.
2. Gjaid af innlendum tollvöruteg-
undum.
3. Söfnunarsjóður fslands.
4. Háskóli íslands.
5. Sandgræðsla og hefting sandfoks
Dagskrá
neðri deildar Alþingis f dag kl. 1,
30 miðdegis:
1. Fasteignaskattur.
2. Tollskrá o. fl.
3. Útflutningsgjald af sjávarafurð-
um.
4. Fiskveiðasjóður íslands.
5. Iðnfræðsla.
6. Ríkisreikningurinn 1954.
7. Sala Kópavogs og Digraness o.fl.
SKIPIN otFLUGVÉLARNAR