Tíminn - 05.06.1957, Blaðsíða 8

Tíminn - 05.06.1957, Blaðsíða 8
VeSrHS: Norðvestan gola eða kaldi og létt skýjaff. Hiti kl. 18: Reykjavík 8 stig, Akurcyri 10, London 18, Kaupm.höfn 15 stig, Stokkhólmur 8, New York 22 st. Miðvikudagur 5. júní 1957. Gengu á Botnssúlur um síðustu helgi Ferðafélag íslands efndi til ferðar á Botnssúlur við Þingvöll síðastl. sunnu- dag. Veður var kalt, en sólskin og bjart í lofti. Farið var að Svartagili við Þingvöil og gengið þaðan á fjallið. Það voru 14 manns, sem gengu á Súlur, sem eru 1095 m. háar, hæsti tindurinn. Hægast er að ganga að aust- anverðu, en þó er allbratt efst en greiðfær leið. Snjór var efst uppi og mikið rok. Útsýni var nokkuð gott, en mistur í lofti. Það eru 5—6 ár síðan Ferðafélagið gekk á Súlur síðast. — Myndirnar eru úr ferðalaginu. Á efri myndinni sést ferðafólkið sækja sð tindinum og á þeirri neðri er mark- inu náð. Nokkur hluti ferðafólksins stendur við vörðuna á tindinum. (Ljósrr,.: Stefán Nikulásson). Islendingar ættu að nota gjall og vik- ur meira til bygginga en nú er, segir amerískur verkfræðingur, sem hér er stadd- ur. — Ný byggingaatiferð ur hleðslustemunr ó- dýrari en áíur hefir tííkazt, ryíur sér til rúms Hér á landi er nú staddur á vegum Jóns Loftssonar og Vikurféiagsins h.f amerískur verkfræðingur, mr. Park að nafni, og er hann forstjóri Besser Manufacturing Co í Banda- ríkjunum, en vélar frá því fyrirtæki eru notaðar í verk- smiðju Vikurfélagsins í Reykjavík. Jón Loftsson kynnti mr. Park fyrir blaðamönnum í gær, og við sama tækifæri var þeim boðið að skoða verksmiðju Vikurfélagsins við Hringbraut. Þar eru framleidd- ar byggingarvörur úr vikri, vikur- plötur og holsteinn, en til fram- leiðslunnar eru notaðar vélar af íullkominni gerð. Sjálfur vikurinn er unninn við Snæfellsjökul, þaðan er honum fleytt til birgðastöðvar, þar sem hann er malaður, og ekið á bílum til hafnar, þar sem skip taka við honum og flytja til Rvík- | ur. í verksmiðjunni í Reykjavík | er vikurinn steyptur í miklum hrististeypuvélum, en þær eru | sjálfvirkar og framleiðslugeta ' þeirra um 3400 holsteinar á dag. Steypuvörurnar eru síðan hertar yfir eina nótt í gufuklefum og síð- an þurrkaðar, og eru þá tilbúnar til notkunar. Blaðamönnum var síðan sýnd kvikmynd, sem The Portland Ce- Framh. á 2 síðu Athugasemd við félagsstofnun Viðvíkjandi stofnun Islands- deildar P.E.N.-samtakanna, sem fram fór 29. maí síðastliðinn und ir forsæti Gunnars Gunnarsson ar skálds, leyfum við okkur að taka þetta fram: Við nánari eftirgrennslan hef- ur komið í ljós, að til þessa stofn fundar var boðað á mjög vafa- saman hátt. Teljum við það ský- laust brot á stofnskrá P.E.N.- samtakanna, að rithöfundum og skáldum sé ekki gefinn kostur á þátttöku í félagsskapnum vegna stjórnmálaskoðana, sem þeim cm eignaðar með réttu eða röngu. Við teljum það ekki í verkahring P.E.N.-samtakanna að ætla skáld um og -'thöfundum 'kéðanir ut- an þær einar, sem koma fram í verkum þeirra sjálfra, enda leiðir stofnskrá P.E.N. hjá sér viðhorf macna til stjómmála svo fram- arlega sem þau brjóta ekki í bág við ákvæði skrárinnar. Þess vegna lýsum við því yfir, að enda þótt við höfum undir- ritað stofnskrána á fyrrgreindum stofnfundi P.E.N.-félagsins, þá teljum við okkur ekki meðlimi félagsins nema horfið verði frá slíkri hlutdrægni og frjálslynd- ari stefna í anda skrárinnar tekinn upp. Reykjavík, 3. júní 1957 Agnar Þórðarson. Marshall-áætlunin lagði grundvöll að efnahagsiegri viðreisn V-Evrópu V,, Hátíðahöld sjómanna í Stykkishólmi ! STYKKISHÓLMI í gær. — Hátíða höldin á sjómannadaginn hófust hér kl. 10,30 árdegis með skrúð- i göngu sjómanna til kirkju, þar j sem sr. Sigurður Ó. Lárusson próf- ! astur messaði. Klukkan tvö lék j Lúðrasveit Stykkishólms og þá | fór fram ýmiskonar keppni, svo I sem í beitingu, þar sem Sigurður Guðnason sigraði; í stakkasundi, þar sem Rafn Jóhannsson. sigraði og kappróðri milli 4 skipshafna og sigraði skipshöfnin á Gissurri hvíta 11. Einnig kepptu sveitir frá frystihúsunum og sigraði sveit frystihúss Kaupfélags Stykkis- hólms og hafði beztan tíma í róðrinum. Um kvöldið var skemmt un. Þar flutti Ágúst Pálsson ávarp og Karl Jónsson ræðu, einnig var söngur og revíuþáttur. Verðlaun voru afhent og síðast dansað. KG Landsfundur barna- verndarfélaga Lándsfundur Landssambands ís- lenzkra barnaverndarfélaga, L.Í.B. verður haldinn á Akureyri dag anna 12. og 13. þ.m. Mæta þar fulltrúar frá öllum barnaverndar félögum landsins. Fundurinn verð ur settur miðvikudaginn þann 12. kl. 4.30 e.h. Honum lýkur að kvöldi fimmtudagsins. Þá flytur dr. Matthías Jónasson erindi fyrir almenning. Er öllum heimill að- gangur. í L.Í.B. eru nú 10 félög víða vegar um landið, aðallega í stærstu bæjunum. Hafa þau margs konar starfsemi í þágu barna með hönd um. Hlutverk landsfundarins er að ræða og samræma störf félaganna — kjósa stjórn fyrir sambandið og leggja grundvöll að nýjum verkefnum í þágu uppeldis- og barnaverndar. 5 Bretlandsferðir viku Hrímfaxi millilandaflugvél Flug félags íslands, flaug í gær beint til Lundúna frá Reykjavík og heim aftur í fyrsta skipti. Vélin var 3 tíma og 53 mín. á leið til Lund- úna en 4 tíma og 7 mín. á heim- leið. Veður var ekki sérlega hag- stætt. Hér eftir verða 5 ferðir til Bretlands vikulega.. Hin Viscount vél félagsins hefur reglulegt áætl- unarflug á morgun, en hún hefir undanfarið verið notuð til að þjálfa íslendinga í notkun hinna nýju véla. íslenzkar áhafnir munu senn taka að fullu við stjórn flug- vélanna. Hótelgestur særður á KEA Á sunnudagskvöldið var dans- leikur á Hótel KEA á Akureyri í tilefni Sjómannadagsins. Þar var fjölmenni og gleðskapur mikill. Þar það til tíðinda þá um kvöldið, að ölvaður maður réðist á einn hótelgestinn er var að rita nafn sitt í geslabók, barði hann í höfuð ið með vínflösku og veitti honum mikinn áverka. Mennirnir munu hafa verið hvor öðrum ókunnir með öllu. Árásarmaðurinn var þegar hand tekinn, og reyndist hann vera sjó maður á bát vestan af landi. r I dag eru 10 ár liðin frá því George C. Mars- hall setti fram hugmynd sína um áætíunina í ræðu, er hann hélt við Harvard-háskóla í dag, 5. júní 1957, eru 10 ár liðin síðan George C. Mar- shall þáverandi utánríkisráðherra Bandaríkjanna flutti. merki lega ræðu í Harvvard-háskóla, en þar bauð hanli Evrópuþjóð- um, er viidu gera sameiginlegt átak til viðreisnar efnahags- lífi sínu, aðstoð frá Bandaríkjunum. Þessi hugmynd komst síðan í framkvæmd og forðaði V-Evrópu frá yfirvofandi efnahagshruni, jafnframt því, sem efnahagsaðstoðin og sú samvinna V-Evrópuríkja, sem af henni leiddi, lagði grund- vöil að aihliða viðreisn þessara ríkja, svo að framleiðsla og fjárhagslíf þessara ríkja er nú með meiri blóma og í örari vexti en nokkru sinni fyrr í sögu V-Evrópu. Þetta afmæli er því merkilegt ekki aðeins fyrir V-Evrópu, held- ur markar það tímamót í heims- sögunni á ýmsan hátt. Astandið 1947. Um mitt árið 1947 var efnahags- George C. Marshall hershöfðingi og fyrrv. utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna. líf Evrópu á heljarþröm. Vetur- inn hafði verið harður og upp- skeruhorfur slæmar. Dollarainn- stæður Evrópuríkja í Bandaríkjun- um voru upp etnar, en margar þessara þjóða gátu engan veginn án innflutnings írá Bandaríkjun- um verið. í ágúst 1947 tilkynnti brezka og franska stjórnin, að stöðvaður yrði innflutningur á mörgum vörum. Brezka stjórnin afnam heimildina til að skipta á dollurum og sterlingspundum. ítalska stjórnin bannaði jafnvel innflutning á kolum og olíum að vestan. Hefðu Bandaríkin ekki veitt efnahagsaðstoð hefðu V-Ev- rópuríkin neyðzt til að minnka heildarinnflutning sinn um helm- ing og innflutning fyrir dollara um %. Framfarir í stað stöðnunar. 1947 fengu Evrópulöndin írá Bandaríkjunum um 50% af baðm- ull sinni, yfir 40% af kornvörum, alúmín og kopar og yfir 30% af olíum, blýi og sinki. Stöðvun þessa innflutnings hefði í mörgum lönd- um þýtt hungursneyð og örugglega rnikið atvinnuleysi. í dag er hins vegar mikil efna hagsleg velmcgun í V-Evrópu, at- vinna er víðast örugg, fram- leiðsla og neyzla vex hröðiun (Framhald á 2; siðu.) Harry S. Truman. Hann var forseti Bandaríkjanna all- an þann tíma, er Marshall-áætlunin gilti. Rebbi var að koma heim með f jóra unga og hluta af 2 lömbum, er hann fékk banaskot Bjó í tvíkvæni og þurfti því atJdrætti mikla Frá fréttaritara Tímans í Grímsnesi. •M.iög mikið hefir verið um tófur hér í vor og eitthvað borið á dýrbít. Hafa nú þegar fundizt fjögur greni, þrjú hér 1 Lyngdalsheiðinni og eitt í miðri sveit, í Seyðishólum. Jón Ögmundsson kom að greni fyrir nokkrum dögum í Skolla-1 brekku og eftir átta tíma umsát hafði hann skotið þrjú dýr, tvær, grenlægjur og einn ref. Virðist rebbi sá hafa lifað í tvíkvæni, og er það fremur sjaldgæft. Rebbi var að koma heim að gren.i sínu með^ hluta af tveim lömbum og fjóra unga í kjaftinum, er Jón skaut^ hann. Var auðséð, að hann vissi, að þeir þurfa að draga vel í bú, sem' stórt hafa heimili. í þessu greni vann Jón sex yrðlinga. Annað greni fannst í Hólshól- um, og vann Halldór Þórðarson þar grenlægju og náði 5 yrðling- um. Við hvort greni voru ræflar og bein af 2—4 lömbum. Fyrir helgina lá Jón á þriðja greninu. Á föstudaginn var Guðmundur Bene- diktsson á ferð í bíl við Seyðis- hóla. Kom þá refur hlaupandi yfir veginn. Guðmundur var með byssu komst í færi og skaut refinn. Eftir helgina fannst svo greni í Seyðis- hólum, og skaut Jón grenlægjuna, og mun það hafa verið heimilisfað- irinn í þessu greni, sem Guðmund- ur skaut. Ekki náðust yrðlingarnir þarna, því að þeir voru svo ungir, en eitrað ?>• fvr'1- þ • — ÁE.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.