Tíminn - 24.12.1957, Qupperneq 8
★ JÓLABLAÐ TÍMANS 1957 *
B
en því miður hefur ekki enn veriö
bolmagn til að gera hann sýningar
hæfan, þótt vonandi verði þess
ekki langt aö bíða úr þessu.
Loks er að nefna enn eina bygg-
ingu í Skagafirði, sem er í opin-
berri eigu og varðveitt sem forn-
gripur. Það er nokkur hluti af bæ
Skúla fógeta, sem hann reisti á
Stóru-Ökrum í Blönduhlíð. Skúli
Magnússon var sem kunnugt er
sýslumaður Skagfirðinga um hríð
og bjó á Ökrum frá 1741. Svo segir
Espólín, að hollenzka duggu ræki
á Borgarsandi og gerði Skúli sýslu-
maður skip og góss upptækt, að því
er skilja má með nokkrum rang-
indum, og lét hann síðan byggja
bæinn á Ökrum mjög af þeim viði,
er hann fékk af skipinu. Um þessa
bæjarbyggingu hafa gengið fleiri
munnmæli. Til dæmis átti Skúli að
hafa látið byggja alla veggi að
húsunum samhliöa, eitt lag á dag,
og troða hvert lag svo þétt, að
hann gæti ekki sporað það, er
hann skoðaði það að kveldi. Til
mai’ks um stærð viðanna var sagt,
að ásum tveimur í þak hefði Skúli
ekiö fram vötnin og á bakkann
niður undan Ökrum. Um vorið lét
hann svo setja þessi tré upp á
gráa, 19 vetra hryssu, annálaðan
stólpagrip. Dróst sú gráa með trén
upp undir túnið og hné þar dauö
niður.
Hvað sem líður öllum munnmæl-
um er það vist, að Skúli sýslumað-
ur Iét reisa bæ á Ökrum, þann er
vandaðri var og sterkari að við-
um en almennt gerðist, enda stóð
bærinn lengi og eru til af honum
lýsingar þeirra manna, er mundu
hann allan. Með fullri vissu stend-
ur eitt húsanna enn, og eru það
bæjardymar. Þær eru mjög ramm-
lega byggðar og viðaðar vel, port-
byggðar, og voru áður rúmstæði á
lofti. Mörg fomleg byggingarat-
riði eru í húsinu, en á engan hátt
getur kallazt stórkostlegt. Hins
vegar er það þess virði að gera sér
það ómak að skoða það. Það er
með elztu húsum í Iandinu og kem-
ur við sögu eins hins svipmesta
manns síðari tíma. Það er gam-
an að hugleiða, hvernig stórhugur
Skúla lýsti sér þegar í þessari torf-
bæjarbyggingu, sá sami fram-
kvæmdahugur, sem síðar leiddi til
stofnunar innréttinganna og bygg-
ingar stórhýsa úr steini í Viðey.
Áfast bæjardyrunum er gamalt
þinghús, gert upp úr stofu á bæ
Sfcúla, svo að bæjarþilin á Ökmm
eru tvö, hlið við hlið. Þau siást af
vegi, en annars geri ég ráð fyrir,
að fáir ferðamenn viti um þessi
gömlu hús á Ökrum.
Við höfum nú farið í huganum
einskonar hringferð um meginhér-
að Skagafjarðar og haft viðkomu
á fimm stöðum, þar sem varðveitt-
ar eru gamlar menningarsöguleg-
ar byggingar. Fleiri gömul hús eru
vitanlega til í þessu landi, varð-
veitt sem þjóðminjar, en ég hef
valið þessi að umtalsefni af því að
þau eru öll í sama héraðinu og það
er hægöarleikur fyrir hvern þann,
sem sjálfur ræður ferð sinni ,að
taka sér einn langan sumardag til
að kynna sér þau öll. Þau standa
öllum opin, og til þess er þeim
haldið til haga fyrir opinbert fé,
að sem flestir geti notið þeirra, þau
eru hvert um sig sérstakur drátt-
ur í svipmóti landsins, minningar
um daglegt líf forfeðra vorra, sem
byggðu þetta sama land og vér, en
við gjörólík skilyrði í menningar-
og atvinnuháttum.
(Grein þessi er útvarpserindi, sem
dr. Kristján Eldjárn flutti á sl.
h&'usti og leyfði blaðinu góðfúslega
að prenta hér).
s
45% ostur
40% ostur
30% ostur
Gráðaostur
Smurostur
Góðostur
Rjómaostur
Mysuostur
Mysingur
Látið ostinn
aldrei vanta
á snatborðið
Afnrðasalan
Símar 17080 & 12678
/