Tíminn - 24.12.1957, Page 21
★ Ll □ LAB LAÐ TÍMANS 19 57 ★
21
HEIÐUR BEKKJARINS
Þaö' var næstsíðasti dagurinn
fyrir jólaleyfið. Allir drengirnir í
heimavistarskólanum voru meira
eða minna utan við sig. Eitthvað
lá í loftinu og þeir vissu allir, hvað
það var. í hálfan mánuð höfðu þeir
ekki hugsað um annað en jóiin,
hina undursafnlegu hátíð, sem óð-
um nálgaðist. Brátt mundu þeir
losna úr prísundinni og óska hver
öðrum gleðilegra jóla, og síðan yfir-
gæfu þeir gamla heimavistarskól-
ann og færu heim, þar sem biði
þeirra jólatrén, jólagjafirnar og
allt, sem jólunum fylgdi.
Og í dag hafði svo líka byrjað að
snjóa og ekki varð það til að draga
úr jólaskapi drengjanna. Stærðar
snjóflyksur liðu hægt og þétt til
jarðar. Öðru hverju uröu þeir að
gægjast út um gluggana og fylgja
snjókornunum með augunum. jafn-
vel þótt væri saga núna, það er
að segja mannkynssögu hjá hr.
Borch.
Auðvitað höfðu þeir reynt að fá
jólasögu í þessum tíma. En hr.
Borch var augsýnilega ekki kominn
í neitt jólaskap enn. Hann sagði
ákveðið nei, og í rauninni höfðu
þeir búizt við þvi.
— Ég á nú að vera hjá ykkur á
morgun, hafði hann sagt. Þá getum
við séð tii, og ef ekkert annað verð-
ur, sem við þurfum að gera.
Já, hann ætlaði að sjá til, og auk
þess yrði kannske eitthvað annað
að gera! Ógnar vesen út af svo smá-
vægilegum hlut sem stuttri jóla-
sögu, sem yrði náttúrlega hund-
leiðinleg, ef hann léti tilleiðast. Hr.
Borch var svo skelfing þurr og leiöin
legur. Drengirnir höfðu fyrir löngu
sannfærzt um, að hann væri úr
steini.
Og svo var þulið um frönsku
byltinguna, þennan næstsiðasta
kennsludag fyrir jólaleyfið. Það var
blaðrað um allskyns þjóðfundi,
ógnardómstóla og guð veit hvað,
og þetta var afskaplega skemmti-
legt — fyrir hi'. Borch.
Gunnar hafði verið uppi og
fannst hann því mega leyfa sér
dálitla málhvíld. Hugur hans þaut
meö leifturhraða frá 18. öldinni til
þeirrar 20. Hann féll dýpra og dýpra
niður í hugsanir sínar. Og þar sem
drengurinn fyrir framan hann
skyggði á hann, gat hann ekki stillt
sig um að snúa sér við og gægjast
út um gluggann.
Og þar með var hann floginn!
Hann fylgdi snjókornunum með
augunum, hægt, hægt liðu þau nið-
ur. Hann gat ekki haft augun af
þeim. Hann heyrði ekki lengur það
sem fram fór í bekknum. Ártöl og
annað sögulegt góðgæti hurfu úr
vitund hans og hann starði og
starði.
Jólaleyfið - og afmælið hans, sem
var í dag, tóku allan hug hans.
Annars var hálfbjánalegt að eiga
afmæli 20. desember. Gunnar var
sannfærður um, að hann var gabb-
aður með þessu. Stundum hafði
hann fengið stóra afmælisgjöf og
svo bara smágjöf á jólunum „af
því að hann var nú nýbúinn að eiga
afmæli“. Og stundum fékk hann
næstum ekkert í afmælsgjöf af þvi
að „nú eru jólin alveg að koma“.
En við þessu var vist ekkert að gera.
Á föstudaginn! Það var yndisleg
tilhugsun! Þegar lestin kæmi
brunandi inn á stöðina heima.
Auðvitað var pabbi þar og kannske
EFT!R
M. BUCHHAVE
höfðu Inger og Elsa nuddað svo
lengi um að fá að fara og taka á
móti stóra bróður, að þær höfðu
loks fengið leyfi til þess. Já, það
yrði ósköp indælt að sjá þau öll
þrjú aftur. Og síðan heim í hvín-
andi hvelli.
Klukkan tvö í dag kæmi póstur-
inn. Eitthvað hlyti nú að vera til
hans. — Ef til vill fengi hann bara
bréf. Jæja, þá gæti hann bara farið
að hlakka til að fá jólagjöfina, sem
yröi feiknastór og merkileg, i stað-
inn.
Gunnar var hrifinn upp úr hugs-
unum sínum við einhvern hávaða,
en hann áttaði sig ekki alveg strax,
hvaðan hann kom. Hann horfði enn
út um gluggann og var að velta fyrir
sér, hvaðan hljóðið kom. Að síðustu
áttaöi hann sig. Þetta var þrum-
andi og reiðileg rödd hr. Borchs.
Hann mzar ekki enn, nei, nei,
allt í lagi með það. Kennarinn
byrsti sig. — GUNNAR!
Gunnar áttaði sig nú til fulls og
rétti sig snöggt upp í sætinu.
Hann sá félaga sína horfa til sín
glottandi og tistandi. Svo leit
hann á hr. Borch.
— Um hvað var ég að tala?
Gunnar leit ráðleysislega í kring
um sig.
— Um hvað höfum við verið að
tala?
Ekkert svar.
— Þú hefur líklega ekki tekið
eftir, hver var uppi áður en ég
gerðist svo djarfur að vekja þig
af blundinum?
Af tilviljun leit Gunnar til
Kristjáns og sýndist hann kinka
kolli.
— Það var Kristján.
Drengirnir hlógu. Kristján hafði
alls ekki verið tekinn upp.
— Með öðrum orðum, ungi mað-
ur, þú situr og leikur þér í kennslu-
tímum, þegar þú átt að taka eftir.
En það er sannarlega ekki leyfilegt
í þessum skóla. Ég skal athuga,
hvort ég get ekki fundið smá auka-
vinnu handa þér í dag, drengur
litli. Komdu upp til mín klukkan
hálf þrjú. Mig langar til að spjalla
ofm-lítið við þig.
Gunnar gretti sig ósjálfrátt. Hr.
Borch langaði til að spalla við
hann. En að spalla við hr. Borch
var nokkuð, sem hann var ekki sér-
lega hrifinn af. Hr. Borch hafði
„spjallað" viö hann fyrr. Ekki
vegna þess að það væri neitt hættu-
legt. Hr. Borch sagði fáein áminn-
ingarorð og síðan mátti hann fara.
En það var bara svo óþægilegt.
Koma aleinn og banka hjá honum
og svo kæmi konan hans kannske
til dyra og spyrði, hvað hann vildi.
Jú, hann átti að koma og spjalla
við hi'. Borch. En ekki var hægt að
segja það við frúna. Stundum varð
hann að bíða þennan eilífðartíma
í „biðstofu“ kennrans. Það var
vinnustofa hr. Borchs og var oft
kallað ógnarklefinn, því að vegg-
irnir voru þaktir alls kyns vopnum.
Gunnar hafði oft virt fyrir sér alla
hnífana, sverðin og spjótin, sem
höfðu jafnvel verið í eigu Indíána
og ef til vill hottintotta.
Og loksins kom hr. Borch. Hann
var allt öðru visi heima hjá sér
heldur en í skólanum og talaði
miklu mildar og bliðlegar. Hann gat
jafnvel fengið Gunar til að skamm-
ast sín og einu sinni hafði minnstu
munað að hann færi að vatna mús-
um, eftir einhverja dæmisögn kenn
arans. Já, hann var á móti þessu
spjalli við hr. Borch.
Það var barið að dyrum. Dreng-
ur úr gagnfræðadeildinni bað hr.
Borch að koma snöggvast til
rektors.
Jafnskjótt og kennarinn var horf
inn út úr dyrunum byrjuðu dreng-
irnir hástöfum að ræða saman.
Fyrst skemmtu þeir sér konung-
lega yfir þvi, hvað Gunar hafði ver-
ið utan við sig. Því næst fóru þeir
að tala um hr. Borch og hvað hann
hefði virzt í innilega litlu jóla-
skapi. Hann hefði nú vel getað sagt
þeim sögu. Og hvað átti það nú
eiginlega að þýða, að geta talað um
„aukavinnu" næstsíðasta daginn
fyrir jólaleyfið.
Herbert ruddist upp að kennara-
borðinu. Hann hafði sýnilega eitt-
hvað til málanna að leggja.
— Mér hefur dottið eitt í hug.
Ættum við ekki að gefa hr. Boreh
jólagjöf?
—• Nei, nei, hrópuðu drengirnir
allir.
í fyrsta lagi var alls ekki siður
að gefa kennurum jólagjafir, og i
öðru lagi færu þeir sízt að eyöa
peningum í gjöf handa hr. Boreh.
— Nei, bíðið þið nú við. Hlustið
fyrst á það sem ég hef að segja. Ég
átti auðvitað ekki við að við gæfum
honum almennilega jólagjöf, held-
ur til að gera grín að honum. Ég
sting uppá að við gefum honum
sleikibrjóstsykur og pökkum honum
inn i mörg blöð ,svo það lítur út
sem stærðar böggull. Ég hlakka til
að sjá svipinn á honum, þegar hann
tekur síðasta blaðið utan af og sér
brjóstsykurinn, ha?
Hugmyndir Herberts voru ekki
alltaf sérlega ákjósanlegar. Og
oft höfðu félagarnir skeilt skolla-
eymm við hans fáránlegu uppá-
stungum. En nú urðu þeir stói'-
hrifnir. Þeir klöppuðu og hrópuðu,
skellihlægjandi.
— Tillagan er þá samþykkt.
— Já, já, já.
—Þá er næst peningaspursmál-
ið. Eru ekki einhverjir rikisbubb-
ar hér, sem vilja fórna fimm aui>-
um hver? Munið, að málefnið er
gott!
Eftir örfáar sekúndur voru peri-
ingarnir komnir.
— Já, og nú sting ég upp á, héífc
Herbert áfram. . .
— En ég sting uppá að þú hafir
þig niður af kennaraborðinu, hann
getur komið á hverju augnablíki,
skaut Kristján inn í.
Herbert samsinnti þvi og rölti
aftur til sætis sins.
Gunnar varð fyrir vonbrigðum,
þegar póstinum var útbýtt. Aðeíns
eitt einasta bréf.enginn böggúll.
Hann flýtti sér til herbergis síns til
að lesa bréíið.
Innilegustu heillaóskir með 13.
afmælisdaginn og loforð um sérlega
góða jólagjöf. Já, það var nú það.
Síðan heilmiklar nýjar fréttir að
heiman, um systur hans og pabba.
Mamma kunni sannarlega að skrlfa
bréf. Átta þéttskrifaðar arkir.
Gunnar var einmitt að lesa bréfið
í þriðja sinn, þegar barið var að
dyrum.
— Ert þú inni, Gunnar?
— Já.
Drengurinn, sem komið hafði með
póstinn, rak höfuðið inn um dyra-
gættina og kastaði böggli til Gunn-
ars. — Þessi gleymdist.
— Þakka þér fyrir.
Gunnar flýtti sér að taka utan
af bögglinum, sem var frá Georgi
frænda. Hvað skyldi það vera?
í ljós kom hnífur, mikill og fagur,