Tíminn - 24.12.1957, Side 26
26
★ J □ LAS LAÐ TÍMANB 1957 ★
ekki væri um að villast, að stöðugt
blæddi inn í það. Þetta bar þess ör-
uggt vitni, að stöðugt blæddi frá
stungunni í hjartavöðvanum, og
af þessu leiddi það, að hjartslátt-
urinn varð stöðugt hraðari og
veikari, eins og venjan er, þegar
um innri blæðingar er að ræða,
sem ekki hefir tekist að stöðva.
Auk þess lá maðurinn í djúpu með-
vitundarleysi, og hafði aldrei eitt
augnablik rankað við sér né getað
tekið til sín næringu.
□
Við nákvæma rannsókn, sem Dr.
Rehn framkvæmdi strax og hann
kom heim, komst hann nákvæm-
lega að sömu niðurstöðu og aðstoð-
arlæknirinn: að hnífur tilræðis-
mannsins hefði gengið inn í hjarta
vöðvann, og þess vegna hefði blætt
inn í hjartapokann og þaðan inn
í brjóstholið, og vitanlega dauðinn
vís ef ekki væri að gert.
En myndi það breyta útkomu
þessa sorgarleiks, þótt hann færi
að framkvæma aðgerð, er enginn
hingað til hefði getað framkvæmt
með árangri og teldist máske til
hegningarverðrar aðgerðar ef illa
tiltækist? Dr. Rehn hafði lesið um
nokkrar skurðaðgerðir, er gerðar
höfðu verið á dýrum og mönnum á
þessu sviði og allar misheppnast.
Einni öld áður en þessi atburður
gerðist, hafði líflæknir Napoleons
keisara skorið inn að hjarta manns
nokkurs, er gert hafði tilraun til
sjálfsmorðs, með því að stinga hníf
inn í hjartað. Læknir Napoleons
skar inn að hjarta mannsins og
komst bæði in í gegnum brjósthol-
ið og í gegnum hjartapokann inn
að hjartanu og sá stunguna, sem
blæddi úr, en brast kjark til að
framkvæma frekari aðgerðir og
maðurinn lézt af blóðmissi. Þegar
hér var komið frásögn, þagnaði
frásögumaðurinn minn augnablik
og segir svo: „Það kom eins og leift
ur yfir Dr. Rehn að gera bæri
þessa aðgerð án tafar og án tillits
til þess hvernig fara myndi“. Hann
sagði löngu seinna, að það, sem
stutt hefði þessa ákvörðun, ef þá
eitthvað hefði stutt hana sérstak-
lega, væri það, að dýralæknir einn
í Rómaborg, sem hann þekkti,
hefði skorið upp kanínu, stöðvað
hjarta hennar augnablik og komið
því svo snarlega í gang aftur og því
skyldi ekki það sama ske með
mannshjartað? Skyndi bjartsýni,
sem í sögu skurðlækninga, mun
vart eiga sér dæmi, og hálftíma
síðar lá hinn ungi, særði maður
á skurðborðinu og Dr. Rehn og
læknar hans við hlið hans.
Skurðstofa sú, er Dr. Rehn not-
aði, var lítið herbergi og útbúnað-
ur allur fábrotinn og einfaldur,
miðað við skurðstofur nútímans.
Sáraumbúðir voru þó soðnar, það
hafði próf. Bergmann í Berlín
kennt læknum um heim allan. Eng
ir gúmmíhanzkar, sem læknar nú
nota við allar aðgerðir, þekktust
þá. Læknar notuðu sem sé berar
hendurnar, sem vitanlega ollu mik
illi áhættu hvað sárasýkingu
snerti. Svæft var með ether, eða
blöndu af ether og klóroformi, og
engir sérfræðingar á því sviði, eins
og nú eru notaðir við allar stærri
skurðaðgerðir. Tvo lækna hafði
doktorinn sér til aðstoðar, annar
svæfði en hinn aðstoðaði við sjálfa
skurðaðgerðina.
Um þetta, eða samanburð á að-
stöðu Dr. Rehns, og nútíma snilling
á þessu sviði, þarf ekki að rita
langt mál. Hitt er svo annað mál,
að svo virðist oft, sem að orsakir
mikilla viðburða í sögu mannkyns-
ins fyrr og síðar, byggist á skyndi-
hugsunum, sem koma eins og eld-
ing í huga manna og framkvæmast
venjulegast. Því aðrir fá ekki boð-
in. Svo dæmi séu tekin úr læknis-
fræðinni, var það þannig með Dr.
Rehn, eins og fyrr greinir, Dr. Fors-
mann, Sauerbruch og fleiri, svo
segir Grímur:
„Af því flýtur auðnu brestur,
öllum sem ei trúa vilja.
Ósýnilegur oss að gestur,
innan vorra situr þilja..
Þyiur sá ei langan lestur,
en lætur sína meining skilja.
En ef ekkert á oss bítur,
engill fer og lánið þrýtur“.
Dr. Rehn hafði eins og svo marg-
ir miklir rnenn, fyrr og síðar, blust
að rétt. Um þessa skyndiákvörðun
sagði Dr. Rehn síðar á læknafundi:
„Mér fannst uppskurður fjarstæða,
en sarnt komst ekkert annað að í
huga mínum þá stundina“.
í þetta sinn var umhugsunar-
fresturinn ekki langur, því að segja
mátti, að þegar læknirinn hafði
tekið sína örlagaríku ákvörðun,
væri ungi maðurinn í andarslitrun-
um. Þegar allt var svo undirbúið,
sem kostur var á, var skorinn lang-
ur skurður á milli 4. og 5. rifs, og
4. rifið allt numið í burtu til þess
að gefa betra svigrúm og auðvelda
væntanlega hjartaaðgerð. Og þeg-
ar opnað var brjóstholið, rann
strax út mikið blóð, er þjappað
hafði vinstra lunganu saman. Var
það að vissu marki happ, því hefði
ekki svo verið, hefði sjúklingurinn
sennilega andast samstundis.
Nokkrum árum síðar sönnuðu til-
raunir hins heimskunna læknis
Sauerbruchs að opnun brjósthols
fylgir lost og dauði, sé lungað
eigi áður samanþjappað eða aðrar
ráðstafanir gerðar.
Dr. Rehn gat nú fljótlega áttað
sig á því hvað gerzt hafði. Sást
glögglega að hnífur morðingjans
hafði farið inn í gegnum hjarta-
pokann og sært hjartavöðvann all-
löngum skurði, er sauma þurfti
saman að minnsta kosti 3 sauma.
Og hófst nú sá þáttur aðgerðar-
innar, er Dr. Rehn hafði mest kvið-
ið fyrir. Hjarta sjúklingsins bærð-
ist bæði hratt og óreglulega og
virtist svo sem engu mætti muna
að það stöðvaðist fyrir fullt og allt.
En nú skeði það, sem læknirinn
hafði vart dirfzt að vona, að þeg-
ar blóðið, sem fyll't hafði bæði
brjósthol og hjartapokann var
hreinsað út, brá svo við, að sláttur
hjartans magnaðist og mátti heita
bærilegur að. aðgerðinni lokirini.
Barátta læknanna hafði í þetta
sinn staðið óslitin í 2—3 klukku-
tíma og auðvitað allan tímann milli
vonar og ótta. Má geta þess, að
þegar Dr. Rehn saumaöi sjálfa
hjartastunguna, stöðvaðist hjartað
aðeins andartak, eða máske frek-
ar eins og læknirinn sagði síðar
„fannst mér þetta“, af því ég var
alveg sannfærður um' að manns-
hjartað þyldi yfirleitt ekkert
hnjask“ og var það álit ríkjandi,
eins og fyrr er frá greint, hjá öll-
um læknum þeirra tíma. En allt
fór þetta að lokum ágætlega. Just-
usi heilsaðist sæmilega að hinni
miklu aögerð lokinni og útskrif-
aoist 4 vikum síðar, furðanlega
hress og gat mætt sem vitni í hin-
um miklu málaferlum er hófust út
af morðtilrauninni.
Að aðgerð þessari lokinni hafði
starfsfólk Dr. Rehns orð á því, að
skyndilega hefði læknirinn horfið
af sjúkrahúsinu án þess að kveðja
eða þakka starfsfólkinu ágæta
hjálp. En hann fór aðeins á afvik-
inn stað til þess að þakka góðum
vættum. Nýr boðskapur og mikil
hjálparvon, nýjar leiðir höfðu
skyndilega opnast, og það var ekki
einn hinna frægu, sem það höiðu
gert, heldur ókunnur læknir, sem
aldrei fyrr hafði á einn eða annan
hátt vakið athygli. En það var þetta
afrek, sem kom Dr. Sauerbruch á
flot, en sem kunnugt er gerðist
hann ruðningsmaður nýrrar tækni
á þessu sviði. En nafn Dr. Rehns
mun ekki gleymast, engu síður en
margra annarra brautryöjenda og
merkisbera nýrra hugsana og fram
kvæmda mannkyninu til blessunar.
Jónas Sveinsson.
REYKJAVIK
vottavé
ÞESSI ágæta húshjálp, sem er
innlend framleiðsla, smíðoð af
HÉÐNI og RÁFHA er oftast fá-
anleg með litlum fyrirvara
Mimið að MJÖLL er einföld,
sterk, ódýr og hentar íslenzkum
heimilum.