Tíminn - 24.12.1957, Qupperneq 38
3B
★ JDLABLAÐ' TÍMANB 1957 ★
Maðurinn lifir ekki...
Dag eftir dag kom hann til mín,
og ég gaf honum mat, því að augu
hans voru full af hungri. Góð ráð
gaf ég honum einnig. Svipur hans
bar vott um úrræðaleysi. Og ég
benti honum á veginn, sem lá til
borgarinnar, því að í borginni var
sérstakt hæli fyrir betlara. En þeg-
ar hann virti ráð mín öll að vett-
kistu hans á áfangastað.
Hugur minn reikaði eins og
hungur, eins og þorsti um dagleið-
irnar fimm, sem ég hafði skilið
honum eftir við læstar dyr.
Og hjarta mitt var fullt af sorg,
því að ég, sem gaf honum brauð
mitt hafði svelt hann til bana.
Kári Sveinn
ugi og hélt uppteknum hætti, brast
mig þolinmæði, og ég vísaði hon-
um á bug. í hinzta sinni rétti ég
honum brauðhleif, sem nægja
skyldi í nesti, þær fimm dagleiðir,
sem voru frá hliði mlnu til borgar
innar.
Hann fór, og augu hans voru full
af þögn, svo djúpri, að ég heyrði
hafið í fjarska.
Hann fór, og vegurinn varð löng
stuna, sem brast, þegar fótatak
hans heyrðist ekki lengur.
Hann fór, og ég varð feginn. Það
eru takmörk fyrir því, sem maður
getur gert fyrir betlara.
Að morgni skaut ég loku frá
dyrum, glaður í bragði, og bjóst til
að ganga út í daginn, endurnærð-
ur eftir langan svefn. En fyrir
hurðinni lá eitthvað þungt. Að
stund liðinni tókst mér að smjúga
gegnum gættina.
Himinninn var skýjaður, hafið i
fjarska hrannað brimi. Fyrir dyrum
mínum lá hann, dáinn. Brauðhleif-
urinn var ósnertur.
Hinzta sinni horfði hungur hans
á mig, storknuðum augum,
drukknum þögn svo djúpri, að ég
greindi óm þeirra orða, sem ég
aldrei hafði sagt.
Eg hóf hann á arma mér og bar
inn í hús mitt. Og þar sem hann
hvíldi fyrsta sinni í herbergi því,
sem gestum var ætlað, sveipaður
hlýrri voð, varð mér Ijóst, að einnig
hann var maður.
Að þrem dögum liðnum var hann
grafinn. Hljóðum skrefum fylgdi
ég andvarpi vegarins, sem skilaði
IIJIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII!llllllllllllllllllllllll!llllllll!l!llllllllllllllll|llinilllllllll!lllllllllll!!l!'llllllli:!llllllllllillllllllllIlll!l!ll!lllll!l!IIIIIIIIIlÍIIIIII'lll!llini!llll!:illlltllllllllllllllllll1lllllllllll!!!
f
-=3=0
KAUPFÉLAG HAFNFIRÐINGA
óskar öllum
viðskiptavinum sínum
(jíe&ifecjrci jóla !
og cjœjhrílá nýárá
iiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiitiiiiiiiimiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiKimiimiiiiimiiiiiiimmiimiiiiiiiiiuimiiiummmiiimmiHiimiimimiiiiiiiiiiimmmiiiiiiiimiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
Rafmyndir h.f.
(myndamótagerð)
Lindargötu 9A
Edduhúsinu
Sími 10295
Mlyndamót fljótt og vel
af hendi leyst