Alþýðublaðið - 08.04.1920, Page 1

Alþýðublaðið - 08.04.1920, Page 1
€refið út aí Alþýðuíiokknum 1920 Fimtudaginn 8. apríl Embætti Póstmeistarastaðan á Akureyri. Eina og gefur a5 skilja, er það mjög mikilsvert, þegar embætti eru veitt, að ekki sé gengið fram hjá hæfum, ungum mönnum, þeg- ar ekki stendur svo á, að flytja beri eldri mann, sem stabið hefir vel í stöðu sinni, í betra embætti. Um póstmeistaraembættið á Ak- ureyri sækja tveir menn, sem komið geta til greina við veitingu þessa embættis. Sá eldri er Guð- mundur Bergsson póatafgreiðslií- maður á ísafirði. Hann hefir gegnt jþví embætti alllengi og gert það vel. Er því dálífcið undarlegt, að hann skuli sæbja burtu frá ísa- fiiði nú, er hann eftir nýju launa- lögunum fær stórum bætt kjör, og enn þá einkennilegra, að hann skuli sækja um stöðu, sem er nákvæmlega eins launuð, en mikið erfiðari en sú, er hann nú hefir, og ioks er hann gerókunnugur í Akúreyrarumdæminu. En í nán-' ustu framtíð hijóta að liggja fyrir breytingar á póstgöngum, og því mjög nauðsynlegt að kunnugir inenn sóu í póstmeistaraembætt- unum. Hinn maðurinn er Finnur Jóns- son á Akureyri, sem verið hefir aðstoðarmaður þar á pósthúsinu í samfleytt níu ár, en varð að hætta því starfi fyrir tæpu ári, vegna þess hve launin voru frámunalega lítil. Enda var honum þá neitað um Seyðisfjarðar-póstafgreiðslu, og var hann þó eini póstþjónninn, er sótti, og mælti póstmeistari líka að sjálfsögðu með honum, en póli- tiskar ástæður réðu úrslitum. Það sem nú mælir með því, að Finni verði veitt póstmeistara- staðan á Akureyri, er fyrst og fremst það, að hann nú fái upp- r®isn á því ranglæti, er hann varð fyrir 1918, í öðru lagi er hann gagnkunnugur Akureyrarumdæm- inu, hefir í forföllum núverandi póstafgreiðslumanps gegnt embætti hans prýðilega og hefir unnið sér almenna hylli á Akureyri, sem áreiðanlegur og óhlutdrægur af- greiðslumaður. Loks mælir það óneitanlega mjög eindregið með Finni, að hann er ungur maður, sem mjög sennilega hverfur al- gerlega frá þvi að starfa við póst- afgreiðslu, fái hann ekki þetta starf; en landið má alls ekki sjá af þeim mönnum úr þjónustu sinni, sem ' fúsir eru til þess að helga því æfistarf sitt, ekki sízt þegar þeir eru viðurkendir hæfi- leikamenn og standa á engan hátt í vegi fyrir eldri og reyndari mönnum. Nógu margir ungir hæfi- leikamenn hafa samt horfið úr þjónustu þess. Að þessu athuguðu liggur það í augum uppi, að mjög óheppilegt væri ef Guðmundi væri veitt þetta starf, þó hann hafi embættisaldur- inn yfir Finn. Því það virðist al- gerlega ástæðulaust fyrir hann að sækja burt frá ísafirði, og er það líka, þegar ekki er um betra, heldur miklu fremur verra em- bætti að ræða. Þó embættisaldur gangi oftast nær fyrir, er engin ástæða til þess að hann geri það ætíð, og alls ekki, þegar það getur komið í bága við hag ríkisins. En í þessu falli verður ekki betur séð, en að svo sé. Þessar línur eru ritaðar til þess að sýna það, að fylgst er með í þessu máli, en ekki tíl þess að kasta skugga á nokkurn mann. Ekki vantreystum vér heldur póst- meistara í þessu efni. Því hann mun vafalaust ekki að óþörfu skifta um menn í embættum, ekki sízt þegar grunur leikur á því, að Guðmundur sæki aðeins burt frá ísafirði vegna þess, að hann hafi svo að segja selt fyrir- fram póstmeistaraembættið á ísa- firði, til þess að koma út, fyrir geypiverð, húseign sinni og bóka- verzlun þar á staðnum. 77. tölubl. Menn drukkna á Eyrarbakka. Tveir menn drukknuðu í lenö- ingu á Eyrarbakka í fyrra dag. Voru þeir að koma á smábáfc framan úr vólbát, er þeir höfðn róið á til fisbjar, en lagt á leg- unni. Fylti bátinn i lendingunni, og soguðust tveir menn út og drukknuðu, en einn bjargaði sér á sundi. Þeir, sem drukknuðu, hétu: Pétur Hannesson frá Blómstur- völlum og Oddur Snorrason frá Sölkutóft, mestu dugnaðarmenn. Samsöngur Jónasar Tómassonar frá ísafirði, er haldinn var á annan páskadag, var vel sóttur, húsið troðfult. Enda var bæjarmönnum orðið nýnæmi að heyra söng. Lögin voru öll eftir söngstjórann sjálfan, og meiri hlut- inn ortur við „Strengleika" Guðm. Guðmundssonar. Hin voru við „Hljóðfallið" eftir H. Hafstein, „Hreiðrið mitt" eftir Forst. Erl., „Hugsjónina" eftir Guðm. Guðm. og „íslands fána“ eftir sama. — Um þessi lög má segja það, að þau séu laglega úr garði gerð og bendi á að höfundurinn unni hljóm- list. Aftur á móti varð ekki af þessum samsöng dæmt, að hér hefði nýtt söngskáld „slegið í gegn“. Hafi skáldlegur frumleiki sveimað yfir vötnunum, þá laust honum þó ekki niður meðal á- heyrenda í þetta sinn. Listaráhrif samsöngsins urðu dauf, enda djarffe teílt, að krydda ekki söngskrána einnig með einhverju eftir aðra höfunda. Um söDginn sjálfan má ým-

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.