Tíminn - 24.12.1958, Side 16
16
★ JDLABLAÐ TIMANS 195B ★
og bjó í 26 ár á Ytri-Reistará og
eftir hann alllengi Jóhann Sig-
valdason. Nýlega tók við Gísli
Jónsson).
Baðstofa 8% alin á lengd, 5%
al. á breidd og 4y2 al. á hæð með
12 stoðum, lausholtum, 2 stafn-
bitum og einum sundurskornum, 6
sperrum og langrefti. Fjórir 6 rúðu
giuggar. Hui’ð á hjörum með klinku
fyrir baðstofunni. Baðstofan öll
þiljuð. Austurveggur og suðurstafn
hrjálegir. Þak gróið. (Ath.: Bað-
stofan var í tveimur hólfum, þ.e.
litið suðurhús og fram-bað'stofa.
Þessa baðstofu byggði Sigurður
Hallgrímsson árið 1884 og stóð hún
íram undir 1950).
Búr 7%x2% alin og 4 álna hátt.
12 stoðir undir einlægum lausholt-
um, 6 sperrur og 4 bitar. Reisifjöl
utan á sperrum og árepti þar yfir.
Þil er fyrir framstafni og hurö
á hjörum. Tveir gluggar, tveggja
og fjögurra rúða. Vestur hliðarvegg
ur giltur upp að noklcru og austur-
veggur i góðu lagi. Þak allt gott.
Eldhús 51/2x41/2 alin og 4 al. á
hæð. 6 stoðir undir lausholtum, öðru
brotnu og stoð þar sigin. 3 bit-
ar, 3 sperrur að árepti yfir, hurð
á hjörum. Veggir og þak lélegt. —
Kofi norður úr göngum 4x4i/2x5
alin. Þrennar sperrur voru á laus-
holtum, en nú einlægur mænisás
og repti á veggi og nokkuð árepti.
Fjögurra rúða gluggi var á húsinu,
en nú aöeins einnar rúðu. Hrjá-
legir veggir en þak gott.
Göng frá baðstofu til bæjardyra
llxli/2x3% al. Raftviðir og veggir
allgott. Einn tveggja rúða gluggi.
Þak gott. Bœjardyr 6x2x6y2 al. 4
stoðir 4 al., tvennar sperrur með
góðu langrepti yfir og einn fjög-
urra rúðu gluggi yfir útidyrum og
þar „fyllinga/ hurð á hjörum. Vegg
ir eru einfaldar þiljur beggja megin
dyra. Þak fremur lélegt.
Skemma suður á hlaði, 7!/3x
3y3x4 al. meö 8 stoðum og lausholt-
um á 6 al. með 4 sperrum, 4 bitum
og árepti úr spirum, enda rept af
innstu sperrum á vesturstafn og
þverrept yfir niður á hliðarveggi.
Þil á framstafni og hurð á hjörum.
Viðir eru grannir, veggir snaraðir,
þak lélegt.
Framhús norðan við bæjardyr
6x6x4 al. og í sperrukverk (mæni)
2 al. 20” 8 stoðir, 4 bitar, 4 sperrur.
Framhlið einföld úr klæðningar-
borðum með fjögurra rúðu glugga
1 al. 19”xl al. 6”, eina rúðu vantar
og önnur brotin. Langrepti á sperr-
um, gamall borðviður, 4 skástífur.
Norðurstafn hlaðinn úr torfi og
grjóti 2 al. Þar yfir klæðningarborð
og fjögm'ra rúðu gluggi. Torfgólf
og torfþak, 6 rimla stigi, sem fylgir
suðurenda, er í húsinu. Norðurvegg
ur hrörlegur, en að öðru leyti .virð-
ist húsið í góðu lagi. (Þetta voru
húsin sem fylgdu jörðinni. En auk
þessa átti leiguliði suðurenda fram
hússins og kjallara undir. Alls var
framhúsið 14 al. á lengd. í suður-
enda var stofa 6x6 al., alþiljuð og
geymsla á loftinu þar yfir. Pappi
var innaná þiljum, ljósrauð máln-
ing. Kjallari var undir stofu og
inngangi, hlaðinn úr höggnu
grjóti, sléttaö mfeð sementi, vel
manngengur 7x5 al., bezta hús til
geymslu, jafnt sumar sem vetur.
Stofuna og kjallarann byggði Davíð
Sigurðarson árið 1904.
Fjós 9x6x4 al. undir einum mæni-
ás, 2 lausholtum, 8 stoðum undir
og 4 stoðum undir ás. Básar 5 með
milligeröum og jötum. Tvennir
dyraumbúnaðir með hurðum. Tveir
fjögurra rúöu gluggar. — Tvö fjár-
hús (um 9x5x3i/2 al. hvert) og hest
hús stóðu skammt suður frá bæn-
um. Hlaða við húsin. — Uppi á
Efstu-Brún í Reistarárskarði stóðu
beitarhús, en voru lögð niður á ár-
unum 1896—1897. Var fullur 40
minútna gangur á beitarhúsin. —
Beitarhúsahóllinn sézt af þjóðvegin
um. Spöl frá beitarhúsunum fannst
litil mannshönd, sem stóð út úr
gilbakka. E.t.v. hefur smalamaður
fyrrum börið þar beinin. En ekki
mun hafa verið athugað þarna
neitt frekara. Lærleggur úr manni
hefur til skamms tíma verið í búr-
þekjunni á Reistará. Var látin á
sama stað þegar búrið var endur-
byggt nokkrum árum eftir aida-
mótin.
Strompar voru víðir á eldhús-
inu, hlaðnir úr torfi — og inn um
þann stærri skreið „Ellindur gamli“
fullur eina vornótt. Sat karl á eld-
húsbitanum og jóðlaði hrátt hangi
kjöt, þegar að var komið um morg-
uninn!!-------Nú er nýlega búið
að byggja nýtt íbúðarhús á Ytri-
Reistará og rifa gamla bæinn. —
Þeir týna óðum tölunni gömlu bæ-
irnir og betri hús koma í staðinn.
Samt voru margir gömlu bæjanna
sæmilegar vistarverur og í þeim
hefur þjóðin lifaö og starfað i nær
11 aldir.
Siguröur Hallgrimsson frá Glerá
bjó á Ytri-Reistará á árunum 1874
—1898. „Greindarmaður, lítill rauð
hærður, fjörmaður og bráðskarpur
til allrar vinnu“, var um hann sagt.
Um Davíð, föður Steinunnar, konu
Sigurðar Hallgrímssonar á Glerá-
Efri var kveðið í bæjavísum:
„Davíð býr á Efri-Á,
efnarýr með börnin smá.
Mjög er skýr — hann meta má
málmatýr kann vefa og slá“
(Hallgrímur, faðir Sigurðar var
stór vexti, dökkur á hár og skegg,
og hinn vörpulegasti. „Enginn með
almaður”, sagði Laxdal gamli kaup
maður á Akureyri, um hann). —
Sigurður Hallgrímsson var léttur
á fæti og oft i sendiferðum. Nábúi
hans guðaði á glugga Sigurðar eina
nótt og var mikið niöri fyrir: „Urð-
ur heima, finna hann; sækja setur,
vera skjótur“. Brá Sigurður skjótt
við og sótti yfirsetukonuna. Grann-
inn var þakklátur, lofaði að láta
barnið heita í höfuðið á Sigurði —
og fórust svo orð um viðburöinn:
„Púhæ! Siggi fæddur, kom óttalegt
vatnsflóö — stöðvunarlaust vatns-
rennsli.“ — — —
Hallgrímur trúlofaðist á yngri ár-
um eins og lög gera ráð fyrir, en
réöst síðar í aðra sveit til vetrar-
vistar. Reyndi annar yngismaður
að góma konuefnið á meðan. Hall-
grímur fór heim fyrir jólin og mæt-
ir þá náunganum og unnustunni
þar sem þau leiddust milli bæja.
Tókust þeir orðalaust á keppinaut-
arnir. Rak Hallgrimur hann undir
sig, sleit af honum annan leðurskó-
inn, harðfrosinn, og hýddi hann
með honum. Haiði Hallgrímur unn-
ustu sína í friði eftir það! Enda
segja ættfróðir menn hann kominn
af „Kjarnaætt og Illugastaðakyni“.
Tveir synir Hallgríms, þeir Magn-
ús póstur og Sigurbjörn, fóru með
íjölskyldur sínar til Ameríku árið
1874. Gerðust báðir bændur og farn-
aðist vel. Þó leiddist Sigurbirni svo
vestra, fyrstu árin, að hann kvaðst
heldur vilja moka flór á íslandi
alla æfi!! Seinna fluttist Haligrím-
ur, ePti sonur Sigurðar á Reistará,
(faðir Hallgríms bókavarðar), einn-
ig vestur, og var lengstum umsjón-
armaður járnbrautar í grennd við
Winnipeg. Veitti hann fjölda ís-
lendinga atvinnu þar vestra (Grím
ur Eyford).
Búnaðarástand í Sigurðar tíð var
þannig á árunum 1881—1895:
Nautgripir 4, sauðfé flest 115, fæst
63, meðaltal 87. Hross oftast 4. Hey
fengur að meðaltali 322 hestar. —
Garðavextir um 10 tunnur (3—26).
Svörður er talinn fram tvö ár, 50
og 80hb. (Oftast hafði Sigurður
mann viö sjóróðra á Syðri — eða
Ytri-Bakka vor og haust).
Davíö Sigurðsson bjó eftir föður
sinn á Ytri-Reistará 1898—1909.
Búnaðarástand í hans tið var þann
ig: Nautgripir 4—5, sauðfé 107 að
meðaltali (flest 124, fæst 89). Hross
4—6. Heyfengur 389 hestar að með-
altali (320—480). Garðávextir 14y2
tunna (12—19). Svörður 100—150
hb. (Samkv. búnaðarskýrslum. —
Hannes Daviðsson á Hofi tók sam-
an).
(Árið 1916 var túnið talið 14 dag-
sláttur og töðufa.11 130—140 hestar.
Engjar fremur lélegar, leirkenndar
mýrar. Dánarbú Sigurðar Hall-
grimssonar var skrifað upp og virt
20. maí 1898. Var dánarbúið virt
á alls kr. 1729,35. Skuldir á búinu
um kr. 1700,00).
í minnisbók meö rithönd Einars
Ásmundssonar í Nesi — er landa-
merkjum Ytri-Reistarár lýst þann-
ig 31. marz 1884: „Að utan eru
merkin til móts við Baldursheim
neðst Dauðatjörn og svo frá henni
bein sjónhending upp í störan stein
sem kallaður er Dýjahraukur, og
síðan á fjall upp. Að neðan ræöur
til móts við Syðri-Bakka og Pálm-
holt kíll sá er rennur suður úr
Dauöatjörn. Að sunnan ræður
Reistaráin til móts við Syðri-Reist
ará“.
Örnefni á Ytri-Reistará.
(Samkvæmt frásögn Sveins Frið
rikssonar er bjó þar frá 191& og
fram um 1940). Á túni: Langhóll, út
og fram af bænum; Smiðjuhóll,
Hesthúshóll og Garðsmelur. í -út-
haga: Dauðatjörn (alldjúp), Dýja-
hraukur (stakur, stór steinn í
fjalli), Stórholt, kippkorn norður
frá túni; Háumelar eða Stórhólar
upp af Stórholti; Skolladalur á
Steinahjalla, suður og upp af
Dýjahrauk. Sézt ekkí fyrr en að er
komiö. Stekkjarlaut, Stekkjarhól-
ar suöur og upp við Reistarárgiliö,
Reistarárfossar (margir smáfoss-
ar), Reistará og Litla-Reistaráin
(smákvísl). Neðsta-, Mið- og Eísta-
Brún og Brúnarhausar suður við
árgil. Reistarárskarö og sitt hvoru
megin Syðri- og Ytri-Hnjúkur, en
Flárnar að baki. Neðan við skarðið,
Skarðshólar og efst í þeim Dýja-
blettur og upptök bæjarlækjarins
þar hjá. Stórihvammur er við ána
suður af Efstubrúnarhaus. Bælis-
melur rétt ofan við túnið utan við
læk, þar nokkuð ofar. Einbúi (stak-
ur hóll) og norður af honum Ein-
búalág.
Örnefni falla nú óðum í gleymsku
og munu mörg hafa týnst er hjá-
setur og smalamennska lagðist nið
ur. Ingólfur Daviðsson.
♦♦♦♦•♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦«♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦<<
•♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
Umboðsmenn
um land allt
ábyrg^artrygg'mgar Brunafryggingar
iújárfryggingar Dráttarvéiatryggingar
Feriatryggingar Heimiiistrygglngar
JarSskjáiftatryggingar
Bekstursstöivunartryggingar
Sjéfryggingar Slysatryggingar
Véiatryggingar Vatnstjónstryggingar
>•
Brunabótaféiag Islands
Laugavegi 105, símar: 14915, 16 og 17
s:
::
:: ^
::
::
::
♦♦
♦♦
♦♦
::
::
♦♦
::
1
H
♦ ♦
♦ ♦
♦♦
Í:
::
♦♦
♦♦
::
♦♦
::
♦♦
::
p
::
H
U
I
♦♦
♦♦
::
::
♦♦
♦♦
::
n
'{♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦{♦♦♦♦♦{{♦♦tlt ♦♦(♦♦{♦♦♦♦♦♦♦