Tíminn - 10.03.1959, Blaðsíða 1

Tíminn - 10.03.1959, Blaðsíða 1
Öflug uppreisn hafin gegn ríkisstjórn Kasseras í Irak Kynþáttadeíiijirnar í Nyasaiandi — bll'5. 4 43. árgangur. Hreinsun í París, bls. 3 Framfarir i sauðfiárraekt, bls. 5 Kjördæmamálið, bls. 5 Keykjavík, þriðjitdaginn 10 marz 1959. 56. blað. ■ Flokksþingið Tólfta flokksþing Framsóknar- manna hefst á ntorgun kl. 1.30 i Framsóknarhúsinu. Formaður flokksius, Ilernvinn Jónasson, flytur á þessum fundi yfirlits- ræffu uni stjórnmálin. Einnig verffur kosiff í fastanefndir þings- ins. Flokksþingsfulltrúar eru beffn- ir aff koma á flokksskrifstofuna í Edduliúsinu í dag og vitja affgöngumiffa sinna. Skrifstofan vcrffur opin kl. 9—12 og frá kl. 1—10 s.d. Sími skrifstofunnar er 16066 og 19613. fiins og s.agt var í blaffinu í gær munu væntanlega sækja þingiff rúmlega 400 kjiirnir fulltrúar. Fréttir eru mjög ósamhljóÖa, en svo virÖist sem uppreisnin sé víÖtæk Bagdad—NTB, 9.3. — Þrátt fyrir endurteknar fullyrð- ingar Bagdad-útvarpsins á þá leið, að uppreisnin er hófst í gær í olíuhéruðunum í N-írak gegn ríkisstjórn Kassems, hefði í dag verið brotin á bak aftur, virtist svo í kvöld, sem hernaðarátökin hefðu breiðzt út og hér væri um hreina byltingu að ræða. Eríendar fréttir í fáum orðum Lðfthræddir, e®a hva®. . ? Það er alls eklci á hvers manns færi að stunda starf glugga- hreinsunarmsnns og frá sjón- armiöi hinna lofthræddu þarf til þess bæði dirfsku og ör- yggi. Ekki þykir öllum fýsilegt ag hanga utan á húsi svona á •fjórðu eða fimmtu hæð og halda sér í gluggakarm með annarrj hendi meðan hin er upptekin við að hreins rúö- urnar. En hvað mega þeir þá segja, sem hreinsa rúður skýja kljúfanna utanlands, hugsaði Ijósmyndarinn um leið og hann smellti af þessari mynd niður hjá Hótel Borg, og við sjálft lá að hann fengi í mag- ann bara af því að sjá menn- ina prilandi upp eftir hús- veggnum (Ljósm.: TÍMINN, J.H.M.) ♦ ♦ * ♦ ♦ $ ♦ * ♦ $ ♦ ♦ ♦ * ❖ ♦ * ♦ Stakk af frá árekstri í gær varð árekstur tveggja iólksbiíreiða á gatnamótum Grclt- isgötu og Klapparstígs. Þegar eft- ir áreksturinn sló ökumaður ann- arrar bifreiðarinnar hælum í rass og hvarf sjónum. Lögreglan hafði þó hendur í hári spretthlauparans síðar um daginn, og mun þá hafa komið í ljós að hann var undir áhrifum áfengis. — Um 10 leytið i gærkvöldi höfðu 5 árekstrar verið færðir i bækur götulogregl- unnar í Reykjavík. ENN kom til átaka í Nyasalandi í gær. Svertingjar báru eld í hús, en Bretar héldu áfram.fjöldahand- tiikum sínum. MACMILLAN og Debré, forsætisráð- herra Frakka, hóJf.u í dag viðræður í París, er standa eiga í tvo daga. Rætt var um Beriinar- og Þýzka- landsmálið. Svo virðist sem hin fjölmennu setulið í Erbil og Kirkur hafi geng- ið í lið með uppreisnarherjum Shawvvafs ofursta, en það voru menn hans, er hófu upreisnina í olíuhéruðunum í gær. Stjórnarher- inn er sendur var að bænum Mosul, en þar eru aðalbækistöðvar upp- reisnarmanna, mætti þar mjög harðri mótspyrnu og studdu ýmsir ættflokkar uppreisnarmenn. Út- varpsstöð uppreisnarmanna í Mos- ul sagði í kvöld, að herir þeirra stefndu nú til höfuðborgarinnar Bagdad. RingulreiS í Bagdad Fréttaritarar í Bagdad síma hins vegar, að ekki só vitað annað þar í borg en að upprcisnin hafi verið brotin á bak aftur og reyni upp- reisnarleiðtoginn Shawwaf að flýja úr landi. Engin útvarpsstöð sé einu sinni í Mosul, heldur komi útvarps- sendingar uppreisnarmanna frá Sýrlandi. Mikil ringulreið var í Bagdad í dag. Öll járnbrautarumferð í land- Kosningarnar í Frakklandi Gaullistar töpuðu nokkru, en kommúnistar unnu á inu var lömuð og símaþjónusta mjög takmörkuð. Landamævum hefur verið lokað, svo aff mjög erf- i-tt er að fá upplýsingar um hiff raunverulega ástand í landinu. Nánari fregnir herma þó, að til átaka hafi komiff viða í írak í dag — ýmist á milli uppreisnarmanna og stjórnarhersins, svo og á milli ýmissa ættflokka, er löngum hafa eit grátt silfur saman og noti sér (Framhald af 2. siöu.) PAIÍIS—NTIi, 9. marz. — Uslit ba‘jar- og sveitarstjórnakosning- anna í Frakklandi í gær urffu þau, aff fylgisinenn de Gaulle töpuffu nokkuff, en kommúnistar unnu samsvarandi á. Fréttaritar ar eru samt flestir sammála uni þaff, aff kosningaúrslitin, affeins tveimur mánuðum eftir hinar ó- vinsælu sparnaffarráðstafanir ríkisstjórnarinnar, séu þrátt fyr- í dag eru liðin fimmtán éiagið Loftleiðir Ákvöríuu um flugvélakaup félagsins mun verÖ’a tekin innan tíÖar ár frá því var stofnað í dag eru liðin 15 ár frá- því er nokkrir menn komu l saman í Reykjavík íil þess i að stofna íormlega nýtt hlutafélág, sem hlaut nafniö Loftleiðir. Þetta félag, sem nú er svo þekkt, að óþarft er frá að segja, hefir á þess- um 15 árum vaxið og blómstrað, og á þessum degi er rétt aö rifja upp itokkur atriði úr sögu þess. Nokkrum mánuðum áður en á- ;veðið var að stofna félagið höfðu , irír ungir íslenzkir flugmenn horf 1 ið heim frá Kanada, þar sem þeir luku flugnámi á vegum kanadiska flughersins. Þeir höfðu keypt litla flugvél, sem átti að vera því lil tryggingar, aö þeir fengju aívinnu hér heima, en er augljóst varð, að af því gat ckki orðið, þá yirtist ekki ite.na unt tvennt að velja fyrir þá, að hætta við flugstörf eða ltverfa úr landi. Einhverjum kom þá til hugar, að kanna þriðja möguleikann. stofnun nýs flugféi- ags ,og upp úr þeim ráðagerðum óx svo framkvæmdin. stofnun Loftleiða 10. rnarz 1944. Að stofnun félagsins unnú, auk flugmannanna þriggja og vanda- (Framhald á 2, síffu). ir allt, nokkur sigur fyrir de Gaulle og fylgisinenn hans. Mikill meirihluti þjóðarinnar standi enn á bak við ríkisstjórn de Gaulle og hún hafi aðeins tap að litlu af því gífurlega fylgi er hún fékk í síðustu þingkosning- unt. Kommúnistar hefðu nú að- eins unnið upp lítinn hluta af því mikla fylgistapi er þeir urðu fyrir er 80% þjóðarinnar hefði fylkt sér u:n stefnu de Gaulle. Gaullist ar töpuðu mjög litlu miðað við kosningarnar i nóvenrber í fyrra og þeir eru mun sterkari en þeir voru við síðustu bæjar- og sveitar stjórnarkosningar 1953. j í kosningunum i gær fengu kommúnistar í París 326.960 atkv. miðað við 380 þús. er þeir fengu í þingkosningunum í jan. 1956. í kosningunum 1958 fengu þeir rúm 260 þús .atkv. í gær fengu Gáull- istar í París 251.153 atkv. miðað við aðeins 40.829 í kosningunum 1956 en rúm 300 þús. i nóv. 1958. i Tvær íkviknanir | Á laúgardágskvöldið kom upp eldur í Hafnarbíó'i. Eldurinn var í miðstöðvarklefa og lagði reýk inn í salinn. Slökkviliðið var kvatt á véttvang, óg tókst fljótlega að kæfa eldinn. Á sunnu'dag var slökkviUðið kvatt aö Miðstræti 7. Eldur hafði komið upp i risi og varð slökkvi- liðið að rjúfa þakiff til að kom- ast að honum. Tókst að slökkva eldinn, en talþverðar skemmdir . urðu á byggingunni. 1 KASSEM forsætisráðherra — ekkert að ótlast. SÍÐUSTU FRÉl’TIR Seint í kvöld var enn ekk- ert lát á hinum ósamhljóða fréttum útvarpsstöðvanna í Bagdad og Mosul. Bagdad- útvarpið sagði í kvöld, að Kawaf uppreisnarleiðtogi hefði verið tekinn höndum af borgarbúum í Mosul. Nærri því samtímis tilkynnti útvarpið í Mosul. að herir Kassems hefðu verið um- kringdir og Bagdad mvndi falia innan skamms i hend- ur uppreisnarmanna. Út- sendingum Bagdad-útvarps- ins lauk að venju kl. 10 1 kvöld með erlendum frétt- um. Var þá hvergi minnzt á uppreisnina. Forseti æðstaréttar íraks, Fadhel Mahdawi sagði í Bag- dad í kvöld, að Shawwaf, uppreisnarleiðtogi. hefði ver ið dreginn fram og aftur um göturnar i Mosul og siðan verið rifinn í tætlur af borg- arbúum. Örlög hans hefðu orðið þau s.ömu og Nuri Es Said, fyrrv. forsætisráð- herra.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.