Tíminn - 30.07.1959, Blaðsíða 3
T í 311N N, fimmtuflaginn 30. júlí 1959
3
Henry King, sem er einn bezti framleiðandi og leik-
stjóri kvikmynda sem Bandaríkjamenn eiga. Mynd
þessi er tekin í vínræktardölum Kaliforníu, og uppi-
staða hennar er sagan ,,The Cup And The Sword“
eftir Alice Tisdale Hobart.
„Jörðin mín“ er hundraðasta myndin, sem King
gerir, en áður hefur hann gert myndir svo sem Snjó-
ar Kilimanjaro, eftir samnefndri sögu Hemingways
og Davíð og Bathsheba. Mynd þessi var frumsýnd vest-
an hafs 25. júní s.l. og hefur hlotið mjög góða dóma.
Aðalhlutverkið leikur Claude Rains, en Henry King
gróf hann upp til þess að fara með þetta hlutverk.
Meðferð hans á Philippe Rambeau. sem hugsar ekkj
um annað en vínekrur sínar og gróðann af þeim, þykir
vera frábær. Þá eru í myndinni Rock Hudson, Jean
Simmons og Dorothy McGuire, svo einhverjir séu
nefndir. Hér á síðunni eru myndir úr nokkrum atrið-
um kvikmyndarinnar ásamt söguþræði hennar.
Spillingin og sorgin í kjöl
far hennar, hófst í hinum
heita Napa-dal, þegar John
sonarsonur Rambeaus,
(Rock Hudson) ákveður að
láta staðar numið ein-
verunni, giftast Elísabetu
og fá með henni hluta af
vínekruauði dalsins.
Vinekrurnar í dalnum
eru eign Rambeaus gamla,
sem hefur ræktað þser upp
með stakri kostgæfni á
sinni lóngu æfi. Hann hef-
ur reynt að koma málum
svo fyrir að fjölskylda hans
sé einráð í dalnum og miðl
að samkvæmt því í hjú-
skaparmálum. Elísabet er
af Rambeau-ættinni. Hún
kom til Ameríku, vonsvik-
in eftir misheppnað ástar-
ævintýri. John veit hvað
það hefur að segja að vita
ýmislegt sem aðrir vita
ekki. Hann veit til dæmis,
John, leikinn af Rock Hudson, berst fyrir víni, landi og ást.
í reiði og þrjóiku kasta'ði John logandi sígarettu í þurran lauf-
bing. Hin heilaga jörð Rambeaus gamla brennur, barnabarn hans,
Elísabet og þjónn bjarga honum úr logunum.
ÓSur af afbrýðissemi skýtur ítalinn á John og hann Vfeltir vagni
sínum og slasast hættulega. Slysið verður til þess að augu Eiíabetar
opnast.
að sá maður, sem hann
kallar dags daglega Francis
Fairon frænda, er faöir
hans, en ekrum hans hefur
verið slengt saman viö vín
ekrur Rambeaus þegar
hann var þvingaður til þess
að ganga að eiga Mörtu
Rambeau, ein af ráðstöf-
unum Philippe gamla Ram
beau. Nú hyggst gamli mað
urinn láta Elísabetu giftast
André nokkrum Swann,
vegna þess að það hjóna-
band mundi færa Rambeau
ættinni enn fleiri vínekrur
og þar með meiri völd í
dalnum. En John lætur
ekki að sér hæða.
í 12 ár hafa safnazt
fyrir milljónir lítra af vini
í kjöllurum Rambeau fjöl-
skyldunnar. Það var áfeng
isbann í Bandaríkjunum.
Rambeau gamli myndi held
ur hella niður þessu víni en
brjóta lögin — og John
finnst alveg ótækt að láta
sér slíkt tækifæri úr greip
um ganga. Hann gerir
bandalag við nokkra vin-
framleiðendur í dalnum og
þeir hefja að selja smygl-
urum og glæpamönnum
vín.
Marta hatar stjúpson
sinn, fyrst og fremst vegna
þess að hann er einmitt
eins og sá sonur sem hún
hefði hugsað sér að eiga.
En hún getur þó ekki ann
að en dáðst að verzlunar-
hæfileikum hans. Þegar
hann stingur af til Chicago
— eftir að hafa talið Elísa
betu á að biða sin — bjarg
ar Marta honum meira að'
segja úr slæmri klípu. Ung
stúlka i dalnum, Buz að
nafni, eignast barn, og
John er um kennt.
í hlíðum dalsins, meðal
vínberjarunnanna, hittir
John síðan Elísabetu og afa
hennar. Þetta er fyrsti
fundur þeirra siðan hann
fór burt, og reikningarnir
eru geröir upp. Jcfhn fok-
reiðist, vegna þess að Elísa
bet trúir sögunni um barn
ið og stúlkuna, kastar John
frá sér sígarettunni i þurr-
an laufbing. Á þessum sama
degi, er helgidómur Ram-
beau gamla brennur til
kaldra kola, lendir John
í slysi. Maður Buz, sem er
ítalskur, tryllist af bræði
og skýtur hann í fótinn og
John veltir vagni sínum.
Mörgum mánuðum síðar
kemur hann aftur til sjálfs
sin, og þá er Rambeau
gamli látinn. Hann byrjar
síðan að rækta sviöinn dal
inn — á sama hátt og Ram
beau gamli byrjaði, og meö
Elísabetu sér við hlið.
Henry King gerir mynd nr. 100 - Stór-
kostleg kvikmynd um vín, ástir, hatur
og græðgi, eftir sögu Alice T. Hobart
- Claude Rains á sjónarsviðið að nýju
Eftir að hafa legiö rúmfastur í marga mánuSi, sættiat John viS
föður sinn, sem hann til þessa hefur kallað frænda — þrátt fyrir að
hann þekkti til leyndarmálsins.
Elíáabet — þú átt þín leyndarmál og ég mín. Við eigum saman
líkt og góð vín fara vel saman, þegar þeim er blandað. (Rock Hudson
og Jean Simmons í hlutverkum sínum.)