Tíminn - 14.02.1960, Side 16

Tíminn - 14.02.1960, Side 16
Frakkland er nú komið í tölu kjarnorkustórvelda heimsins Einn drepinn NTB—Tel Aviv, 12. febr. Einn Israelsmaður var drepinn í dag og tveir særðir í nýjum átök- um á landamærum Sýrlands og ísraels. Skiptust landamæraverðir á skotum : tvær klukkustundir. Fyrr í vikunni höfðu bæði ísraels- menn og Arabiska sambandslýð- veldið fallizt á að eftirlitsmenn S.Þ. skyldu rannsaka árekstrana. Nú hafa ísraelsmenn kært á ný yfir tilefnislausri árás. Sprengdu tíu lesta plutoníum sprengju í Sahara í gærmorgun - hefja Rússar tilraunir sínar á ný? París og London, 13 febr. í dögun í morgun sprengdu franskir vísin^amenn hina marg- umtöluðu kjarnasprengju sína. Er Frakkland þar með — að nafninu til að minnsta kosti — komið í tölu kjarnorkuveldanna. Sprengingin virðist hafa heppnast eins og til var ætlast og opinberar tilkynningar segja veðurskilyrði hafa verið hagstæð. Sprengjan var sprengd langt inn á auðnum Saharaeyðimerk- ur, um 1200 km fyrir sunnan landamæri Alsírs. f rauninni mun hér um mjög litla og einfalda sprengju að ræða ef miffað er viff öflugustu sprengjur Bandaríkjamanna og Rússa eins og þær gerast nú. Segir í fregnum aff sprengjan hafi vegiff um 10 þúsund lestir og sprengimagn hennar jafn- gilt um 100 þús. lestum af TNT-sprengiefni. Hún er gerff úr plutoníum. Gerffur hafffi veriff 100 metra hár stálturn og sprengjan sprengd þar. Frakkland sterkara Ráðherra sá, sem fer með kjarnorkumál, sendi de Gaulle símskeyti í morgun um spreng- ; inguna. Forsetinn svaraði um | hæl og kvað Frakkland nú vold ugra ríki en áður. Stjórnmála- menn telja að nú hafi aðstaða Frakka batnað til að taka þátt í samkomulagi um bann við kjarnorkuvopnatilraunum. Nú eru fjórar vikur þar til Krust- joff kemur i heimsókn til París- ar. Þá þykir vafi leika á þvi, hver áhrif sprengjan hafi á kjarnorkutilraunir Rúússa. Fyr ir nokkru lýstu þeir yfir, að þeii myndu ekki gera kjarnatilraun- ir að sinni, nema vesturveldin gerðu það að fyrra bragði. Ekki hafa verið gerðar slíkar tilraun- ir síðan í nóv. 1958. Geislavirkt ryk Frakkar segia að veðurskil- yrði hafi verið hagstæð og litil hætta sé á að geislavirkt ryk falli á byggðum bólum kringum Sahara. Tilraunir þessar hafa sætt áköfum mótmælum Afriku ríkja og Nkruhma forsætisráð- herra Ghana lét þau boð út ganga í morgun, aö allar inni- eignir franskra manna 1 Ghana hefðu verið frystar, þar til séð væri hver áhrif sprengjan hefði á íbúa landsins. „Askan“ leir úr Skeiðará I BlaSið hafði spurnir af því i að skipverjar á skipi nokkru Istöddu undan Ingólfshöfða í j gærmorgun hefðu orðið varir ! v;ð öskufaíl á skipinu og séð j mikið mistur til lands Til þess | að fá nánari fréttir af þessu ] hringdi blaðið til fréttaritara; si'ns á Fagurhólsmýri og fékk eftirfarandi upplýsingar- manna á meðal, bjuggust ýmsir við því, að eldar væru uppi ein- hvers staðar þar'eystra og nú myndi draga til stórtíðinda. En um það er sem sagt ekki að ræða, „askan“ var ieir úr Skeiðaró. Þess kr&fizfc að Norðmenn taki Salvador Dali situr hér fyrir framan nýjasta málverk sitf: Kristófer Kóíumbus uppgötvar Am- eríku, sem nýlega var sýnt fámennum hóp í New York. Málverkið er málað á fagurbíáan grunn, með skóg krossa, og þungamiðju myndarinnar kallar Dali Hugsjónina. Ekki mun hafa verið um ösku að ræða þarna, heldur er senni-i legast, að framburður Skeiðarár,: sem mest er leirleðja, hafi þornað' upp og fokið. Þurrkar hafa gengið; eystra upp á síðkastið og leirinn' hefur þornað upp og breytzt í mjög fíngert ryk, sem síðan fýkur langar leiðir án þess að um mikið, hvassviðri sé að ræða. afsfcöðu Mest i gærmorgun I Öræfum bar á rykfoki þessu um leið og sjatna tók í Skeiðará, en mest bar á því í gærmorgun, enda var þá strekkingur af vestri. Er allt útlit fyrir að fokið muni lialda áfram er.n um sinn, þar j sem framburður Skeiðarár var geysimikill. Stöðugi fjarar í ánni og er nú mjög lítið í henni. Fyrst þegar fréttin um öskufall á skipið undan Ingólfshöfða barst' NTB — Álasundi, Noregi, 8. febr. Norska ríkisstjórnin verður þegar að láta fara fram rækilega athug- un á því hver verða skuli afstaða Noregs á hafréttarráðstefnunni í Genf, sem hefst í næsta mánuði Sú krafa er sett fram í blaði verzl unarmanna í Álasundi. Nú sé skammur timi til stefnu, og béri þegar að leggja málið fyrir utan ríkismálanefnd þingsins, ’ Aðalfundur - Blaðamanna Blaðamannafélag íslands heldur aðalfund sinn í Naust- inu uppi kl. 3 f dag. Laga- breytingar á dagskrá.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.