Tíminn - 17.09.1960, Blaðsíða 6
6
TÍMINN, laugardaginn 17. september 1960.
Sextugur 9. sept. 1960:
Ragnar Guðmundsson
bóndi og oddviti Hrafnabjörgum
Ég kom ekki til þess að hœla þér hót,
þvi hólið er fcestum til hóta.
Svo gengur það skoðunum mlnum i mót,
þó mœttirðu sannmœlis njóta.
Við landið og moldina tengdirðu trú,
þeir töfrar í huganum skína-
Hér festirðu rœtur og reistir þitt bú
og ræktaðir jörðina þína.
Og fangbrögð þú hefur við úthafið átt,
þó yrðu á leiðinni tafir.
Þig skorti ei kunnáttu manndáð og mátt
að meta hans torsóttu gjafir.
Sú gliman af kappi var þrásinnis þreytt,
en þörfin að velja og hafnau
í sjóœna hefirðu byrðingnum beitt,
þó boðarnir hryndu um stafna.
Hér býrðu nú, Ragnar, við blómstrandi hag
og búskapnum réttmœti tryggii.
Já, þú ert nú sextugur sagður i dag,
en samt á þig framtlðin byggir.
Þú leggur nú sjöunda ártuginn á
og aldrinum tœplega háður.
Það er varla uppgjöf i svipnum að sjá,
og söm er þin festa og áður.
Hér vinnurðu ennþá að vonunum þeim,
er viðganginn helga og sanna,
þó bílveginn skorti að húsunum heim
og hugrekki þröngsýnna manna.
Að þakka og muna oss beinlinis ber,
þeim boðskap má tœplega neita.
Ég sjálfur hef liðveizlu þegið af þér
og þekki hvar trausts er að leita.
Af manndómi sönnum h\er mynd okkur skín.
Já, margt hefur skaparinn léð þér.
Ég gekk ekki hingað með gjafír til þin,
en guð veri alla tíð með þér.
Já, þakklœti mitt er nú flutt þér og fœrt,
en forláts minn andi þig biður
og aftansól lífsins þér Ijómi nú skœrt,
unz hður í hafdjúpið niður.
Elías Þórarinsson, frá Hrauni.
Þingi Samb. norðlenzkra
barnakennara ný lokið
8. þing Sambands norðlenzkra
barnakennara var liaidið á Akur-
eyri í Barnr skóla Akureyrar dag-
ana 1.—4. sept.
Sambandið var stcfnað 8. okt.
J942 í sambmdi við námskeið, sem
haidið var á vegum Kennarafélags
Evjafjarðar og áttu þir.geyskir
kennarar írumkvæðið að stofnun
sambandsins. Stjórn sambandsins
fiyzt milli sýslna og er kjörtíma-
biiið 2 ár.
Fráfarandi stjórn skipa: Þórar-
inn Guðmundsson, form., Svava
Skaptad. ritari og Theódór Daní-
elsson féhirðir. Varasíjórn: Tryggvi
Þcrsteinsson varaform og Sigurð-
ur G. Jóhannesson og Indriði
Úflsson.
Milli 80 og 90 kennarar og gestir
sátu þingið, og þau námskeið, sem
haldin voru i sambancfi við það.
Þingforsetar voru kjörnir Hann-
es J. Magnússon, skólastjóri og
Jón Kristjánsson, ' Vívivöllum.
Fundarritarar voru: Páll Jónsson
og Sigurður Flosason. Gestir
mótsins voru: Dr. Broddi Jóhann-
esson, Þorsteinn Einarsson, íþrótta-
folltrúi, Stefán Kristjánsson,
íþróttakennari, Gestur Þorgríms-
son, kennari og starfsm. við
kennslukvikmyndasafn ríkisins,
Guðrún P. Helgadóttir skólastjóri,
Skúli Þorste;nsson form. S.Í.B. og
Snorri Sigfússon, fyrrv. námsstjóri,
sem er heiðursfélagi.
Dr. Broddi flutti erindi og ræddi
um hlutverk kennarans og skólans,
mönnun og menntun kennarastétt-
arinnar og stöðu mannsins og þarf-
ir. Þorsteian Einarsson íþróttafull-
tiui talaði um leikni og leikja-
kennslu, og að því loknu sýndi
hann kvikmynd gerða af búnaðar-
samtökum Ncrðmanna um vinnu-
í stjórn S.N.B. næsta kjörtíma-
b;I eni þessir menn: Páll Jónsson,
skólastjóri Höfðakaupstað, Þor-
steinn Matthíasson, skólastj.,
Blönduósi cg Björn Bergmann,
kennari Blönduósi.
Varastjórn: Lára Inga Lárus-
dóttir, kennari, Ólafur Kristjáns-
son, skólastj , og Jóhann Björnsson
kennari.
Eftirfarandi ályktanir og tillög-
ur voru samþykktar á þinginu:
1. Þrátt fyrir lagabreytingu
S.Í.B., sem felur í sér að Norður-
land verði t\ö kjörsvæði með sam-
bandi á hvoro svæði fyrir sig, legg-
ur þingið til. að Samband norð-
lenzkra barnakennara starfi áfram
með sama hætti og verið hefur, en
kennarafélög hvors kjörsvæðis sjái
um kosningu fulltrúa á þing S.Í.B.
2. Aðalfundur S.N.B., haldinn á
Akureyri 1—4. sept. 1960, beinir
þeirri ósk til stjórnar S.Í.B., að
hún hlutist til um, að erindi um
sióla og uppeldismál verði flutt í
Ríkisútvarpið í byrjun þessa skóla-
árs.
3. Aðaifundur Sambands norð-
lenzkra barnakennara, haldinn á
Akureyri 3. sept. 1960, skorar ein-
dregið á hið háa Alþingi að hækka
storlega tjárveitingu til náms-
skeiða, sem haldin eru á vegum
féiagssamtaka kennara.
4. Aðalfundur S.N.B. haídinn á
Akureyri, 3 —4. sept. 1960, lýsir
m.egnustu óánægju á þeim launa-
kiörum, sem kennarar eiga við að
búa og skorar á stjórn S.Í.B. að
vmna ötuiiega að bættum kjörum
stéttarinnar á þeim grundvelli,
sem lagður var á fulltrúaþingi
S.Í.B., sem haldið var í Reykja-
vík á síðastliðnu vori.
Bifrei5asalan
Ingólfsstræti 9
Sala er örugg hjá okkur
Símar 19092 og 18966
— SkiDti og hagkvæmir
greiðsloskilmálar alltaf fyr-
ir hendL
10 bækur —tæpar 2000 bls.
á aðeins 137 krónur!
10 úrvals skemmtibækur, samtals tæpar 2000 blaðsíður
verða seldar meðan upplag endist á aðeins 137 krónur. Notið
þetta einstæða tækifæri til að gera góð bókakaup!
Bækurnar sendast gegn eftirkröfu hvert á land sem er.
tækni mannsiíkamans við hin dag-
legu störf. Gestur Þorgrímsson
flutti erindi um kennslukvikmynd-
:r, gildi þeirra og notkun í kennslu.
Hann var einnig til viðtals í skól
anum föstudag og iaugardag fyrir
þá, sem óskuðu eftir upplýsingum
um kvikmyndir og skuggamyndir.
Frú Guðrún P Helgadóttir skóla-
stjóri flutti erindi um móðurmáls-
kennslu í skólum. Ræddi hún eink-
um um ritgerðarkennslu og gildi
n.óðurmáisins fyrir þjóðina. Skúli
Þcrsteinsson, form. S.Í.B. flutti
fréttir frá fulltrúaþingi S.Í.B. og
ræddi auk þess við norðlenzka full-
trúa um laur.amál kennara. Snorri
Sigfússon ávarpaði þingið og
ræddi um framtíðarhorfur í skóla-
rcálum þjóðarinnar og sparifjár-
söfnun skólabarna. Þórarinn Guð-
mundsosn ræddi um byrjunar-
kennslu í reikningi og studdist þar
við ný útkomna bók: Leikið og
reiknað.
★ I ÖRLAGAFJÖTRUM
kostaðl áður 30 kr.. nú 20 kr.
★ DENVER OG HELGA
kostaði áður 40 kr., nú 20 kr
★ DÆTUR FRUMSKÓGARINS
kostaði áður 30 kr., nú 20 kr.
★ RAUÐA AKURLILJAN
kostaði áður 36 kr„ nú 20 kr.
★ SVARTA LEÐURBLAKAN
kostaði áður 12 kr„ nú 7 kr
★ KLEFI 2455 1 DAUÐADEILD
kostaði áður 60 kr„ nú 30 kr
★ I tómstundum. 1.—4. hefti
Skemmtilegar og hörku-
spennandi úrvals smásögur
alls 256 bls„ á aðeins 5 fcr
hvert hefti, eða 20 kr öl)
heftin.
t Reykjavík fást bækurnar S Bókhlöðunni, Laugaveg 47.
Bóksalar og aðrir sem panta minnst 5 eintök af hverri bok
fá 20% afslátt frá þessu lága verði.
Spilakvöld
Spilað verður félagsvist í félagsheimilí Kópavogs
í kvöld kl. 9. Kópavogsbúar fjölmennið.
Nefndin.
V.V‘V»V*V.V.V.V»V.V.V*V*V*V*V*V.V*V*V*VtV*V*V*''
Faðir okkar
Ketill Jónsson,
fyrrum bóndi að Minni-Ólafsvöllum á SkeiSum,
andaSist i Landsspítalanum aðfaranótt 16. þ.m.
Jón Ketilsson,
Stefán Ketilsson,
Margrét Ketilsdóttir.
Stefán Jónsson námsstjóri, sem
tók virkan þátt í störfum og undir-
búningi þingsins, flutti erindi um
athygli og gleymsku, og áhrif
þeirra á skólastarf og menntun.
Iíannes J. Magnússon skólastjóri
flutti framsóguerindi um framtíð
sambandsins, vegna lagabreytinga,
sem gerðar voru á síðasta S.Í.B.
um skiptingu á kjörsvæðum.
Leikjanámskeið og námskeið í
teiknun og rcðeferð lita voru alla
mótdagana. Stefán Kristjánsson,
íþróttakennari leðibeindi á leikja-
námskeiðinu og Einar Helgason
íþrótta- og teiknikennari kenndi
teiknun og meðferð lita.
SkólavöruDúðin sýndi þann vel-
vilja að senda sýnishorn af bókum
og áhöldum. Var sýning þessi sölu-
sýning og var opin þinggestum alla
daga mótsins. Valgarður Haralds-
son kennari sá um sýninguna.
Þinggestú' sátu hádegisverðar-
boð bæjarsíjórnar Akureyrar á
laugardag og um kvöldið var kvöld
vaka og kafíiboð S.N.H. að Frey-
vangi.
SÖGUSAFNIÐ
Pósthólf 1221 — Reykjavík — Simi 10080
'V.V.V.V.V»V»V.V.V.V»V»V.V.V.V»V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 68., 71. og 72. tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1960 á húseigninni nr. 75 við Bústaðaveg,
hér í bænum, talin eign Henry Eylands o fl„ fer
fram eftir kröfu bæjargjaldkerans í Reykjavík á
eigninni sjálfri miðvikudaginn 21. september 1960,
kl. 3V2 síðdegis, og verður bé seld aðeins neðri
hæð húseignarinnar m.m.
Borgarfógetinn í Reykjavík.
^V»V»V»V*V»V»V»V»V«V*V»V»V»V»V«VtV»V»V*V»V»V»V*V»V»V»V*V»^