Tíminn - 17.09.1960, Síða 7
TÍHtlNN, Iangardagmn 17. september 1960.
7
5. bindi af „Kulturhistorisk
Leksikon“ komið út
Kulturhístorisk Leksikon
for nordisk middelalder, V.
bindi kom út á þessu sumri.
Nær það frá orðunum Frálse-
brev til Gástgiveri. Verk þetta
ætti samkvæmt upphaflegri
áætlun að vera hálfnað nú, en
auðséð er, að eigi hefur tekizt
að Ijúka nema einum þriðja.
Fyrsta bindið kom út 1956
og var undirbúningi þá ekki
loki'ð, enda ber fyrsta bindið
merki þess. Síðan hafa gæði
verksins farið vaxandi, eins
og að vonum lætur. Þrátt
fyrir mikla örðugleika hefur
tekizt að koma út einu bindi
á ári, þótt áætlun geri ráð
fyrir einu bindi á 9 mánuð-
um. Ef til vill tekst að koma
næsta bindi, hinu sjötta, út
innan þess tímatakmarks.
Verk þetta hefur reynzt mjög
gagnlegt á margan hátt. Hver
grein, sem skrifuð er, er fjöl-
rituð og send sérfræðingum
í öllum Norðurlöndunum
fimm til athugunar. Við það
vinnst öryggi mikið gagnvart
áreiðanleik niðurstöðu grein
arinnar og innihaldi, því sár-
fræðingarnir gera sínar at-
hugasemdir og aðfinnslur,
sem svo eru sendar höfund-
inum til athugunar. Honum
stendur hins vegar frjálst að
taka aðfinnslur til greina,
en verður þó að rökstyðja
sína afstöðu. Verk þetta hef-
ur leitt í ljós á áþreifanleg-
an hátt, hversu lítið í raun
og veru er vitað um liðna
sögu. Bætir þá verk þetta
mjög mikið um, því er götin
Tilraunastööin aö Keldum
styrkt til visnurannsokna
Við bjóðum yður trábært kostaboð.
Hjá okkur er verSið óbreytt
Pér fáiS tvo árg — 640 bls. - fyrir aðeins 65 kr.,
er þér gerizt áskrifandi að
heimilisblaðinu SAS¥ITIÐÍN
sem flytur ástasögur kyniasögur skopsögur drauma
raðnmgar afmælisspádóma viðtöi kvennaþætti Freviu
með Butterick tízkusniðum prjóna- og útsaumsmvnztr
um. mataruDPskriftum og hvers fennar hollráðum — 1
hveriu blaði er skákbáttur eftir Gi'ðmund Axnlaugsson
bridgebáttur eftir \rn;- M lónssor þátturmn- Or ríki
náttúrunnar eftir ingóh Davíðsson eetraunir krossgáta.
vinsælustu danslapateirtarnir o m fl
10 blöð á ári fyrir aðeins 65 ‘<r.
og nýir áskrifendur fa einn áraans i feaupbæti ef ár
gjaJdið 1960 fvlgir pöntun Póstsendið i dag eftirfarard'
pöntunarseðil-
Ég undirrit óska sð gerast ást-rifandi að SAMTTD
ENNJ og sendi hér me? srpiiddi* r-<60 65 fer ''Vinsam
legast sendið bað i áhv'gðarnréfi *a póstávisun)
Nafn .........................................
Heimili ......................................
fttanáskrift okkar er SAMTJtma Pésthójf 4?? Rvfk
í þekkingunni verða alltof
augljós, þá knýr það til þess,
að reynt verði að bæta hér
um með frumathugunum.
Knýr það til þess, að almennt
hafi gagnkvæm þekking Norð
urlandamanna aukizt mjög.
Utan Norðurlanda hefur verk
þetta vakig þó nokkra at-
hygli, og það svo, að nú er
leitazt við í Þýzkalandi og
Sviss að stofna til líks verks
um menningu miðalda Evr-
ópu, þar sem íslendingar fá
og_ tækifæri til þátttöku.
í V. bindi er um 10% ís-
lenzkt sérefni. Er það nokk-
ug mikið, en stendur i réttu
hlutfalli við kaupendafjöld-
ann hér á landi, miðað við
hin Norðurlöndin. Hins veg-
ar er fjöldi þeirra manna,
sem hér semja greinar, hlut-
fallslega miklu minni en fjöld
inn á Norðurlöndum hinum,
sem stafar af fólksfæðinni.
Þeir eru 1 í V. bindi.
Útgefandi hér á landi er
Bókaverzlun ísafoldar. Er það
ósk útgefanda, að áskrifend-
ur sæki eintök sín sem fyrst.
í stjómarnefnd af hálfu
slands sitja háskólarektor dr.
Þorkell Jóhannesson, dr.
Kristán Eldjárn, Magnús Már
Lárusson og dr. Ólafur Lár-
usson, en ritstjórn skipa dr.
Jakob Benediktsson og Magn
ús Már Lár>~son.
Verk þaíS, sem hér um
ræðir, er alveg sérstætt, og
í það má sækja geysimikla
vitneskju og trausta. Er lítill
vafi á því, að þetta er bezta
grundvallarrit, sem menn
eiga nú völ á. um norræna
menningu frá víkingaöld til
siðaskipta, og þarna er meira
um islenzkt efni en í nokkru
hliðstæðu verki öðru. Áskrif-
endur hér á landi munu vera
hlutfallslega mjög margir, en
þó er ástæða til að hvetja
menn til að athuga, hvort
ekki muni vera rétt a® ger-
ast áskrifand! fsaíoldar-
prentsmiðja er 'imbjóðandi
útgáfunnar hér á landi.
Nýlega hefur sú stofnun
heilbrigðisstjórnar Bandaríkj-
anna, sem fer með rannsóknir
á taugasjúkdómum og blindu
(Nationa! Institute of Neuro-
logical Diseases and Blind-
ness) Veitt Tilraunastöð há-
skólans i meinafræði að Keld-
um styrk að upphæð 10.528
dollara til áframhaidandi rann
skna á visnu. En visna er lang
vinnur smitsjúkdómur í sauð-
fé, sem fyrst og fremst veldur
skemmdum í mænu og heila-
hvítu.
Sjúkdómur þessi er allút-
breiddur í sauðfé á Suðvestur
landi fyrir fjárskipti, en hef
ur lítið eða ekki orðið vart
síðan.
Einkenni visnu eru einkum
lamanir á útlimum og upp-
dráttur. Ekki hefur sjúkdóm
ur þessi verið greindur j öðr
um löndum svo vitað sé. —
Visna er veirusjúkdómur. Hef
ur tekizt aö rækta veiruna
í lifandi frumum í glösum,
og sýkja heilbrigðar kindur
með veiru úr slíkum gróðri.
Skemmdir þær, sem finn-
ast í miðtaugakerfi visnu-
kinda og ýmis önnur atriði
varðandi þennan sjúkdóm,
minna á ýmsan hátt á sjald-
gæfa miðtau/ikerfissjúkdóma
hjá mönnum, er ekki hafa
enn fundizt orakir að. M. a.
af þeirri ástæðu er talið mik
ilvægt að halda áfram rann
sóknum á þessum sérstæða
smitsjúkdómi.
Ætlunin er, að styrk þess
um verði fyrst og fremst var
ið til þess ag rannsaka frek
ar ýmsa eiginleika sjálfrar
visnuveirunnar, mótefna-
myndun og smitleiðir sjúk-
dómsins.
Með styrkveitingu þessari
hafa bandarísl* heilbrigðis-
yfirvöld sýnt Tilraunastöð-
inni á Keldum mikla viður-
kenningu, jafnframt því sem
greitt er fyrir rannsóknum
þessum meg rausnarlegum
styrk.
Tveir í skógi
Samanleikurinn Tveir í skógi hefur nú verið sýndur 50 sinnum um land
allt, við mikla aðsókn og undirtektir. Þrjár sýningar hafa verið í Reykja-
vík og verður næsta sýning annað kvöld í Iðnó. Aðeins þrjár sýningar geta
orðið enn á lelknum, þar sem Leikfélag Reykjavíkur byrjar sýningar um
mánaðamótin. — Úr blaðadómum: Morgunblaðið: Leiknum var fádæma
vel teklð af áhorfendum. Linnti varla hlátursköllum í Iðnó þetta kvöld-
Þjóðviljinn ... af sýningu þessari er það skemmst að segja að glaumur og
gleði rikti i þéttskipuðum salnum---------