Tíminn - 17.09.1960, Blaðsíða 7

Tíminn - 17.09.1960, Blaðsíða 7
TÍHtlNN, Iangardagmn 17. september 1960. 7 5. bindi af „Kulturhistorisk Leksikon“ komið út Kulturhístorisk Leksikon for nordisk middelalder, V. bindi kom út á þessu sumri. Nær það frá orðunum Frálse- brev til Gástgiveri. Verk þetta ætti samkvæmt upphaflegri áætlun að vera hálfnað nú, en auðséð er, að eigi hefur tekizt að Ijúka nema einum þriðja. Fyrsta bindið kom út 1956 og var undirbúningi þá ekki loki'ð, enda ber fyrsta bindið merki þess. Síðan hafa gæði verksins farið vaxandi, eins og að vonum lætur. Þrátt fyrir mikla örðugleika hefur tekizt að koma út einu bindi á ári, þótt áætlun geri ráð fyrir einu bindi á 9 mánuð- um. Ef til vill tekst að koma næsta bindi, hinu sjötta, út innan þess tímatakmarks. Verk þetta hefur reynzt mjög gagnlegt á margan hátt. Hver grein, sem skrifuð er, er fjöl- rituð og send sérfræðingum í öllum Norðurlöndunum fimm til athugunar. Við það vinnst öryggi mikið gagnvart áreiðanleik niðurstöðu grein arinnar og innihaldi, því sár- fræðingarnir gera sínar at- hugasemdir og aðfinnslur, sem svo eru sendar höfund- inum til athugunar. Honum stendur hins vegar frjálst að taka aðfinnslur til greina, en verður þó að rökstyðja sína afstöðu. Verk þetta hef- ur leitt í ljós á áþreifanleg- an hátt, hversu lítið í raun og veru er vitað um liðna sögu. Bætir þá verk þetta mjög mikið um, því er götin Tilraunastööin aö Keldum styrkt til visnurannsokna Við bjóðum yður trábært kostaboð. Hjá okkur er verSið óbreytt Pér fáiS tvo árg — 640 bls. - fyrir aðeins 65 kr., er þér gerizt áskrifandi að heimilisblaðinu SAS¥ITIÐÍN sem flytur ástasögur kyniasögur skopsögur drauma raðnmgar afmælisspádóma viðtöi kvennaþætti Freviu með Butterick tízkusniðum prjóna- og útsaumsmvnztr um. mataruDPskriftum og hvers fennar hollráðum — 1 hveriu blaði er skákbáttur eftir Gi'ðmund Axnlaugsson bridgebáttur eftir \rn;- M lónssor þátturmn- Or ríki náttúrunnar eftir ingóh Davíðsson eetraunir krossgáta. vinsælustu danslapateirtarnir o m fl 10 blöð á ári fyrir aðeins 65 ‘<r. og nýir áskrifendur fa einn áraans i feaupbæti ef ár gjaJdið 1960 fvlgir pöntun Póstsendið i dag eftirfarard' pöntunarseðil- Ég undirrit óska sð gerast ást-rifandi að SAMTTD ENNJ og sendi hér me? srpiiddi* r-<60 65 fer ''Vinsam legast sendið bað i áhv'gðarnréfi *a póstávisun) Nafn ......................................... Heimili ...................................... fttanáskrift okkar er SAMTJtma Pésthójf 4?? Rvfk í þekkingunni verða alltof augljós, þá knýr það til þess, að reynt verði að bæta hér um með frumathugunum. Knýr það til þess, að almennt hafi gagnkvæm þekking Norð urlandamanna aukizt mjög. Utan Norðurlanda hefur verk þetta vakig þó nokkra at- hygli, og það svo, að nú er leitazt við í Þýzkalandi og Sviss að stofna til líks verks um menningu miðalda Evr- ópu, þar sem íslendingar fá og_ tækifæri til þátttöku. í V. bindi er um 10% ís- lenzkt sérefni. Er það nokk- ug mikið, en stendur i réttu hlutfalli við kaupendafjöld- ann hér á landi, miðað við hin Norðurlöndin. Hins veg- ar er fjöldi þeirra manna, sem hér semja greinar, hlut- fallslega miklu minni en fjöld inn á Norðurlöndum hinum, sem stafar af fólksfæðinni. Þeir eru 1 í V. bindi. Útgefandi hér á landi er Bókaverzlun ísafoldar. Er það ósk útgefanda, að áskrifend- ur sæki eintök sín sem fyrst. í stjómarnefnd af hálfu slands sitja háskólarektor dr. Þorkell Jóhannesson, dr. Kristán Eldjárn, Magnús Már Lárusson og dr. Ólafur Lár- usson, en ritstjórn skipa dr. Jakob Benediktsson og Magn ús Már Lár>~son. Verk þaíS, sem hér um ræðir, er alveg sérstætt, og í það má sækja geysimikla vitneskju og trausta. Er lítill vafi á því, að þetta er bezta grundvallarrit, sem menn eiga nú völ á. um norræna menningu frá víkingaöld til siðaskipta, og þarna er meira um islenzkt efni en í nokkru hliðstæðu verki öðru. Áskrif- endur hér á landi munu vera hlutfallslega mjög margir, en þó er ástæða til að hvetja menn til að athuga, hvort ekki muni vera rétt a® ger- ast áskrifand! fsaíoldar- prentsmiðja er 'imbjóðandi útgáfunnar hér á landi. Nýlega hefur sú stofnun heilbrigðisstjórnar Bandaríkj- anna, sem fer með rannsóknir á taugasjúkdómum og blindu (Nationa! Institute of Neuro- logical Diseases and Blind- ness) Veitt Tilraunastöð há- skólans i meinafræði að Keld- um styrk að upphæð 10.528 dollara til áframhaidandi rann skna á visnu. En visna er lang vinnur smitsjúkdómur í sauð- fé, sem fyrst og fremst veldur skemmdum í mænu og heila- hvítu. Sjúkdómur þessi er allút- breiddur í sauðfé á Suðvestur landi fyrir fjárskipti, en hef ur lítið eða ekki orðið vart síðan. Einkenni visnu eru einkum lamanir á útlimum og upp- dráttur. Ekki hefur sjúkdóm ur þessi verið greindur j öðr um löndum svo vitað sé. — Visna er veirusjúkdómur. Hef ur tekizt aö rækta veiruna í lifandi frumum í glösum, og sýkja heilbrigðar kindur með veiru úr slíkum gróðri. Skemmdir þær, sem finn- ast í miðtaugakerfi visnu- kinda og ýmis önnur atriði varðandi þennan sjúkdóm, minna á ýmsan hátt á sjald- gæfa miðtau/ikerfissjúkdóma hjá mönnum, er ekki hafa enn fundizt orakir að. M. a. af þeirri ástæðu er talið mik ilvægt að halda áfram rann sóknum á þessum sérstæða smitsjúkdómi. Ætlunin er, að styrk þess um verði fyrst og fremst var ið til þess ag rannsaka frek ar ýmsa eiginleika sjálfrar visnuveirunnar, mótefna- myndun og smitleiðir sjúk- dómsins. Með styrkveitingu þessari hafa bandarísl* heilbrigðis- yfirvöld sýnt Tilraunastöð- inni á Keldum mikla viður- kenningu, jafnframt því sem greitt er fyrir rannsóknum þessum meg rausnarlegum styrk. Tveir í skógi Samanleikurinn Tveir í skógi hefur nú verið sýndur 50 sinnum um land allt, við mikla aðsókn og undirtektir. Þrjár sýningar hafa verið í Reykja- vík og verður næsta sýning annað kvöld í Iðnó. Aðeins þrjár sýningar geta orðið enn á lelknum, þar sem Leikfélag Reykjavíkur byrjar sýningar um mánaðamótin. — Úr blaðadómum: Morgunblaðið: Leiknum var fádæma vel teklð af áhorfendum. Linnti varla hlátursköllum í Iðnó þetta kvöld- Þjóðviljinn ... af sýningu þessari er það skemmst að segja að glaumur og gleði rikti i þéttskipuðum salnum---------

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.