Tíminn - 14.01.1961, Side 2

Tíminn - 14.01.1961, Side 2
2 TÍMINN, laugardaginn 14. janúax 1961 Verkfallinu aí ljúka, en alvarlegar blikur enn á Iofti: Vinstrimenn krefjast sjálfsstjórnar Vallóníu JafnatJarmannaflokkuri’nn klofinn — hugsan- legt, a<J vinstri sinnar innan flokksins segi sig úr lögum viÖ flokksstjórnina og afsali sér þingme'nnsku Brusse!—NTB 13.1. NeSri deild belgíska þjóðþingsins samþykkti í dag sparnaðar- frumvarp belgísku ríkisstjórn arinnar með 115 atkvæðum gegn 90 og fer það nú til Lumumba (Framhald af 1. síðu.) — frjál's á nýjan leik? hafði komið til alvarlegra á- taka, sem nálguðust hreina upp- reisn. En eins og kunnugt er er það einmitt í Thysville, sem Lum- umba hefur verið geymdur síðan menn Mobutus handtóku hann á dögunum. Þúsundir hermanna Flestir hermannanna af þessum hermönnum eru af Bakong»ætt- flokknum, sem til þessa þessa hef ur verið mjög andstæður Lum- umba og því sterkustu stoðir Mo- butus ofursta. Setuliðsbærinn Thysville er í um 200 km. fjarlægð frá Leopoldville og hafast þar við þúsundir hermanna, en það var einmitt í Thysville, sem sú upp- reisn brauzt út er varð uppiiafið að skálmöldinni í landinu. Óttast menn nú, að síórtíðindi séu í nánd, og blöð í Leopoldville fluttu þær efri deildarinnar til afgreiðslu en búizt er við að sú deild afgreiði frumvarpið um miðj- an næsta mánuð og öðiast það þá gildi sem lög við undir skrift Baldvins konungs, Þar með er lokið 25 daga harðri baráttu, sem háð var utan og inn- an þingsalanna um þessar efna- hagsaðgerðir ríkisstjórnar ka- þólskra og frjálslyndra, sem m.a. vegna missis Kongónýlendunnar hafa í för með sér hækkaða skatta og breytingu á félagslegu öryggi og atvinnuleysistrygging- um. Verkfallið, sem staðið hefur í 25 daga, er nú mjög í rénun, en samtímis því eru nýjar og alvar- legar blikur á lofti í Belgíu, sem ófyrirsjáanlegar afleiðiingar geta haft — ef til vill klofning ríkis- ins. Fundur í Namur Þau tíðindi gerðust í dag, að um 400 vinstrisinnar í belgíska jafnaðarmannaflokknum komu saman til fundar í borginnj Nam- ur í Valloníu og kröfðust sjálfs- stjórnar fyrir Vallóníu, hinn frönskumælandi suðurhluta lands- ins. Fund þennan sátu m.a. marg- ir þingmenn jafnaðarmannaflokks- ins, sem ekki vilja sætta sig við samþykkt sparnaðarfmmvarpsins cg vilja svara því með kröfum um sjálfsstjórn Vallóníu. Fundurinn krafðist þess, að Vallónía réði málum sínum sjálf — hún yrði sjálf að fá að stjórna öllum fé- lagslegum og efnahagslegum mál- efnum sínum og kærði sig ekki um xhlutun annarra. Fyrir utan fundarsalinn hafði verið hengt upp gríðarstórt skilti með áletruninni: VALL- ÓNÍU ER NÓG BOÐIÐ. I kvöld var þess jafnvel vænzt, að rót- tækustu þingmenn jafnaðar- manna frá hinum frönskumæl- andi landshlutu myndu lýsa því yfir, að þeir tækju ekki framar sæti á þinginu í Brussel. Ljóst er af þessu, að djúp gjá hefur nú myndazt innan sjálfs jafnaðarmannaflokksins og er þess jafnvel vænzt, að hinir vinstri sinnuðu leiðtogar í Vali- óníu muni segja sig úr lögum xið flokksstjórnina í Brussel. Morgunbl. og vaxtaokrið (Framhald af 1. síðu.) okursins á útgerðina en Morgunblaðinu. Haraldur segir í grein, sem hann skrifaði í Mbl. í okt. s.l., að vaxtahækkunin hafi drepið útgerðina í dróma og útgerðin geti ekki borið okurvextina. Haraldur upplýsir það, að 4 fyrirtæki á Akra- nesi hafi greitt hvorki meira né minna en átta milljónir í vexti á síðasta ári. Það segir að þessi fjögur fyrirtæki á Akranesi hafi átt 70—80 milljónir í útistandandi skuldum. Aðeins fjögur fyrirtæki af mörgum í einu útgerðarplássi eru með 70—80 milljónir í lánum. Eftir því sem Mbl. segir nema heildarlán til alls útvegsins ekki nema 1000 mijónum. Einn togari kostar nú um 40 miljónir og á síðasta ári voru keyptir hingað til lands fimm togarar eða bara togarar fyrir 200 millj. Fjöldi báta var einnig keyptur auk tækja og veiðar- færa og allt er þetta að meginhluta keypt með lánsfé. Af- urðalán nema um 60—70% og meira af verðmæti afla og þau fara vaxandi með vaxandi afla. Frystihúsin þurfa ó- hemju lánsfé til starfsemi sinnar. Blaðið hefur ekki í höndum tölur um lán til útvegsins eða fjármagnsþörf hans á þessu ári, en allir sem huga að þessum málum sjá að greiðslubyrði útvegin vegna vaxtaok- urins er miklu meiri en 20 milljónir króna. Hvaðan hefur Mbl. fengið þessa tölu — 20 milljóriir? Hvernig er hún fengin? Tíminn skorar á Mbl. að upplýsa það hið fyrsta. Ef Mbl. treystir sér ekki til að útskýra það, hvernig þessi tala er fengin, skorar Tíminn á Mbh að eiga samstarf um það við Tímann og önnur blöð að láta hlut- lausa og dómbæra menn reikna út vaxtagreiðslur útgerðar- innar í landinu. Ef Mbl. fellst ekki á það, verður að álíta að tölur þær, sem blaðið slær fram séu markleysa og vísvit- andi bekkingar. í brúðkaupsferð með 30 blaðamenn á hælunum Hr. og frú Ferner halda suður á bóginn París—NTB, 13.1. — 30 manna hópur blaðamanna og Ijósmyndara safnaðist í dag í kringum Astrid prinsessu og eiginmann hennar, Johan get-flugvallar fyrir utan Par- ís á fyrsta degi brúðkaups- ferðar þeirra. Ungu hjónin voru sem kunnugt er getin saman í gær í Askerkirkju, Ferner, er þau komu til Bour- skammt frá Skaugen. LUMUMBA fregnir í dag, að Lumumbasinnar hygðust ráðast inn í borgina 21. ajnúa,r. Er mikil ólga ríkjandi í Leopoldville í kvöld vegna hinna nýju tíðinda. Fregnir frá Elisabet- ville herma, að Lumunbamenn hafi í dag skotið á flugvél yfir Katanga, er flutt hafi hermenn S.Þ. til Monano. Talsmaður S.Þ. í borginni sagði í dag, að ástandið í Katanga 'væri sýnu alvarlegra í dag hefði víða verið barizt í fylk- inu, aðallega þó í Manono. SÍÐUSTU FRÉTTIR: Fregnií frá Elisabetville í kvöld herma, að í dag hafi slegið í bardaga milli heriiðs S.Þ. í Monano og fylgis- manna Lumumba og hafi mannfall orðið á báða bóga. Flugvélar á vegum S.Þ. hafa flutt særða hermenn S.Þ. til Elisabetville. Frá Leopoldville berast þær fréttir seint í kvöld, að mikil ringulreið sé í borginni og gangi þar sá orðrómur að fylgismenn Lumumba muni um hclglna gera innrás í borgina og krefj.ast þess að lelðtogi þeirra verði látinn laus — ef það verði ekki gert, muni þess freistað að leysa hann úr haldi. Aðrar fregnir herma, að Gizenga, einn lielzti stuðnings maður Lumbumba í Kongó hafi komizt dulbúinn inn í Leopold- ville með nokkra af mönnum sín- um og hafi þeir flutt vopn og eln- kennisbúninga. Undirbúi þeir vel hina fyrirhuguðu hcrferð um næstu hclgi, m.a. með því að dreifa kviksögum +il þess að slá felmtri á mehn að koma af stað uppþolum og ólgu. Hjónin ferðast undir nafninu hr. og frú Glöersen og komu til Parísar með farþegaflugvél frá SAS, sem hafði viðkomu í Höfn. Slíkur var asinn á prinsessunni,, manni hennar og bifreiðastjóra þeirra, að þau óku í skyndi af stað frá flugstöðinni og skildu farangurinn eftir á stéttinni. Röskum blaðamönnum tókst að stöðva bifreiðina, og bifreiða stjórinn varð að aka til baka og taka farangurinn. Erindi um fatapressu Á bæjarráðsfundi þessum var er- indi frá Eiríki Einarssyni um raf- orku til rekstrar fatapressu hjá Réttarholti við Sogaveg vísað til raf- maignsstjóra til afgreiðslu. Samningur vií SVFR Á þessum sama fundi bæjarráðs var lagt fram frumvarp að samningi við Stangaveiðifélag Reykjavíkur um laxveiðina í Elliðaám um næstu fimm ár. HeimiJaði bæjarráð að gera samninginn. Nú hófst eltnigaleikur. Bifr.stj. brúðhjónanna reyndi hvað hann gat til að aka blaðamennina af sér, og fór með miklum hraða hvert öngstrætið af fætur öðru. En blaðamennirnir fylgdu kapp samlega á eftir. Varð þetta hinn kostulegasti eltingaleikur, sem ekki lauk fyrr en við gistihús í miðborginni, þar sem Astrid og maður hennar neituðu að svara öllum spurningum — gengu síð an inn í gistihúsið og skráðu sig undir nöfnunum hr. og frú Glö esen! Ekki er enn vitað, hver verður næsti áfaginn á brúð kaupsferðinni, en haldið mun suður á bóginn. Fékk skyndi- iega í bakið í gær var Vilhjálmur Jónsson, lögfræðingur, að bjástra við bíl sinn á bílastæðinu við Smiðju- stíg, þegar hann fékk allt í einu svo miklar þrautir í bakið að hann féll niður, þar sem hann var kominn, og gat ekki hreyft sig. Hann var fluttur á slysa- varðstofuna og síðan heim. Slysavarðstofan tjáði lögregl- unni, að um skyndilega tognun í baki hefði verið um að ræða. Þjóðleikhúsið sýnir Karde mommubæinn í 50. sinn kl. 3 á morgun, og er þegar uppselt á þá sýningu. Ekkert barnaleikrit hefur náð jafn miklum vinsæld um hér á landi, því að uppselt hefur verið á allar sýningar fram að þessu og hafa um 33 þús. leikhúsgestir séð leikinn. Meðfylgjandi mynd er af pylsugerðarmanninum, bakaran um og kaupmanninum í Karde mommubæ. En þeir féagar eru: leiknir af Valdimar Helgasyni, Lárusi Ingólfssyni og Klemenzi jónssyni. Flokksstarfið i bænum Félagsmálaskóli Framsóknarflokksins Innritun er hafin. Uppiýsingar um skólann eru gefnar í síma: 16066 og 15564. Sunnudagsfundur FUF í Reykjavík Næsti sunnudagsfundur Félags ungra Framsóknarmanna í Reykja vík verSur á morgun 15. jan kl. 14 f Framsóknarhúsinu uppi. Fund arefnl: Samvinnustefnan og Framsóknarflokkurinn. Frummælandi: Glsii Guðmundsson, alþm.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.