Tíminn - 05.02.1961, Blaðsíða 7

Tíminn - 05.02.1961, Blaðsíða 7
TVf’M'I’N N, sunnHdaginn 5. M>rúar 1961. 7 - SKRBFAD OG SKRAFAÐ * Alytanirnar, sem draga ber af stjórnarkosningunni í Dagsbrún - Óp stjórnarblaðanna um fjjónustu við kommúnismann - Hvað er kommúnismi? - Hjálpa kjarabætur kommúnisman um? - Skoðanabræður Syngmans Rhee og Salazar - Stjórnarblöðin taka McCarthy til fyr- irmyndar - Hvernig á að mæta kommúnismanum? - Um tvær ólíkar leiðir að velja. Um seinustu helgi fóru fram stjórnarkosningar í Verka- mannafélaginu Dagsbrún í Reykjavik. Tveir listar komu fram, listi stjórnar og trún- aðarráös, og listi, sem Sjálf- stæöisflokkurinn og Alþýðu- ílokkurinn stóðu aö. Stjórn- arflokkarnir studdu þennan lista sinn af miklu kappi. Niðurstaöan varð samt sú, að listi þeirra beið hinn mesta ósigur, eins og sjá má á því, að munurinn varð 920 atkv., en hafði verið 475 atkv. árið 1959. — í tilefni af þessum úrslit- um, birtist síðastl. þriðjudag forustugrein hér i blaðinu, þar sem dregnar voru fram eftirfarandi staðréyndir: 1. Þessi úrslit sýna, að verkamenn vilja ekki una þeim kostum, sem ríkis- stjórnin úthlutar þeim, þ. e. að sætta sig við 45—50 þús. kr. árslaun meðan framleiðslu vísitalan sýnir, að meðalfjöl- skylda þarf 74 þús. kr. árs- tekjur eða 68 þús. kr., þegar fjölskyldubæturnar hafa ver- ið frádregnar. 2. Það er rangt að telja þessi úrslit merki um ein- hverja þjónustu við komm- únista, heldur hafa verka- menn miðað afstöðu sína við kjarabaráttuna eina saman. 3. Ríkisstjórnin á að draga rétta ályktun af hinni ein- dx-egnu afstöðu verkamanna og athuga allar færar leiðir til kjarabóta, án þess til verk- falls þurfi að koma, því að það yrði til tjóns og leiðinda fyrir alla aðila. Þar kemur m.a. til greina að draga úr vaxtaokrinu og gera atvinnu- vegunum þannig færara að veita launþegum bætt kjör. Þeir, sem íhuga hlutlaust þessar niðurstöður Tímans, munu vissulega telja þær rétt ar og sanngjarnar, eins og malum er nú komið í landinu. Óp stjórnar- ’i blaðanna Bæði helztu stjórnarblöð- in, Morgunblaðið og Alþýðu- blaðið, tóku þessum niðurstöð um Tímans hins vegar hið vei’sta. Það var þó ekki reynt neitt til þess _að hrófla þeim með rökum. í stað þess var hrópað, að Tíminn væri að þjóna kommúnistum með þess um skrifum. Tíminn væri með þessu að berjast fyrir komm- únisma o.s.frv. Þessi skrif stjórnarblaöanna eru vissulega þess efnis, að nauðsynlegt er að gera þeim nokkuð fyllri skil, þar sem svipuð áróðursskrif verða nú líka stöðugt tíðari í stjórnar- blöðunum. Til þess að geta tekið rétta' afstöðu til kommúnismans, verða menn að gera sér þess fyrst grein, hvað kommún- isminn er. Hvað er komm- úoismi? í stuttu máli sagt er komm únisminn einræðisstefna, sem leggur öll völd í hendur til- tölulega fámennrar valda- klíku, sem reynir að viðhalda þeim með ofríki og ofbeldi Kommúnisminn er því eins konar bróðir stórkapitalism- ans, sem dregur auðinn og völdin í fáar hendur, og í mörgum tilfellum leiðir til einræðisstjórnar, sem dæmi eru fyrir hendi um í mörgum ríkjum Suður-Ameríku, og eft irminnilegast birtist í stjórn- ax-háttum þeir-ra Hitlers og Mussolinis. Reynslan sýnir, að komm- únismanum tekst víða að ná verulegu fylgi í löndum, þar sem fátækt og eymd ríkir, og þá allajafnan með því að klæða sig í aðrar flíkur en sínar eigin. Hann reynir þar að koma til dyranna sem hugsjóna- og umbótastefna. Af þessum ástæðum stafar nú mikil hætta af kommúnism- anum í Asíu og Afriku. Það er nú eitt helzta vanda mál vestrænna stjórnmála- manna, hvernig þessum vanda skuli mætt. Meðal umbóta- sinnaðra lýðræðissinna ríkir þó fullt samkomulag um það, að þessari hættu verði bezt mætt með því, að vinna að bættum kjörum almennings í umræddum löndum, og því eigi hin auðugri lýðræðisríkin að leggja sem mest af mörk- um tii slíkrar viðreisnar. Hjálpa kjarabætur kommúnismanum? Þegar búið er að athuga þær staðreyndir, sem eru greindar hér að framan, ætti hver og einn að geta svarað því sjálfur, hvort það sé nú líklegasta leiðin til að þjóna kommúnismanum hér á landi, að vinna að því að þeir, sem 1 við þrengst kjör búa, fái eðli legar og nauðsynlegar kjara- bætur. Slíkt vinnur þvert á móti gegn kommúnismanum, því að það útrýmir jarðveg- 1 inum, sem er gróðraxvænleg- | astur fyrir hann, fátæktinni og skortinum. Ekkert er því hægt að segja fjarstæðara en | að verið sé að vinna í þágu 1 kommúnismans, þegar verið er að vinna að bótum á lífs- kjörum almennings. Stjórnarblöðin gerast því í Stefna Syngmans Rhee og Salazar Til eru þeir menn, sem telja raun réttri hin mestu áróð-1 ista og fengið þá til að snúa ursblöð fyrir kommúnismann, frá villu síns vegar. þegar þau eru að setja kommj únistastimpil á nauðsynlega ■ kjarabaráttu verkalýðsins og^ samtaka hans. Með því eru þau að hjálpa kommúnistum til að siglá undir því falska | flaggi, að þeir séu venjulegir umbótamenn, og draga með aðra leið vænlegri til að vinna því athyglina frá einræðis- gfigxi kommúnismanum en stefnu þeirra. i l?á, að vinna að umbótum á !kjörum almennings. Þessir Qíimvinraíi vilS menn telja umbótabaráttuna kjalilVIlllld VIU jtil bölvunar og telja bezt að mæta kommúnismanum með ofriki og ofbeldi. Talsvert hef ur barið á slíkum mönnum í ýmsum löndum hin síðari ár, eins og Syngman Rhee í Suð- ■1 haldsstefnu í Bandarikjun- um. Vinnubrögð hans voru fólgin , í því, að kalla alla |frjálslynda menn kommún- ista og setja kommúnista- stimpil á alla umbótaviðleitni. Um skeið hafði hann hættu- lega mikil áhrif í Bandaríkj- unum og -einnig utan þeirra. Brátt opnuðust þó augu manna í Bandaríkjunum fyr- ir hættum og öfgum McCarthy ismans og í dag hefur hann orðið þar fáa formælendur. Af þeim ástæðum er hryggi legt, að þurfa að verða áhorf- andi að því, að stjórnarblöð- in íslenzku skuli nú daglega skrifuð í anda McCarthyism- ans. Það er í anda McCarthy- ismans, þegar stjórnarblöðin kalla það kommúnisma, að unniö er að nauðsynlegum leiðréttingum á kjörum al- mennings, eða þegar eðlileg kjarabarátta verkalýðsfélaga er stimpluð þjónusta við kommúnista. Slík vinnubrögð eru hins vegar ekki óþekkt á íslandi. íhaldsblöðin kölluðu þá Jón- as Jónsson og Tryggva Þór- hallsson kommúnista. Sömu '-.íafngift fengu einnig þáv. leið togar Alþýðuflokksins kommúnista þar sem fátæktin sé bezti bandamaður kommúnismans, ^Kóreu' Saíazar í Portúgal, þá sé einkennilegt, að komm- FranCQ > á Chiang Kai iiviifítnv nlri -i 11 f'tinnrJii w-i hAitn * ' únistar skuli stundum beita sér fyrir Jcjarabótum og um- bótum í lýðræðisþjóðfélagi. Slíkt er hins vegar skiljan- legt, þegar menn gera sér ljóst, að kommúnistar vilja oft leyna raunverulegri stefnu sinni meðan þeir eru að afla sér fylgis. Þá gerast þeir oft þátttakendur í umbótabar- áttunni og samvinna getur þannig tekizt milli þeirra og andstæðinga þeirra á ýmsum sviðum, eins og t.d. sú sam- vinna, sem hefur átt sér stað millí þeirra og Emils Jóns- sonar í bæjarstjórn Hafnar- fjarðar, og sú samvinna, sem á sér nú stað innan verka- lýðshreyfingarinnar. Um það er ekki nema gott að segja, þegar kommúnistar fást til að styðja umbótamál, og gildir slíkt hið sama um ! afturhaldsmenn, þegar þeir ' fást til að styðja góð mál. En það er vitanlega alveg rangt að ætla að dæma kommún- ismann af þessu og hið raun- verulega markmið kommún- ista. Aðaltakmark þeirra er Shek á Formósu o.s.frv. I kjölfar þeirra hafa svo fylgt ýmsir minni spámenn, eins og t.d. Eyskens í Belgíu. Sú reynslan blasir nú víð- ast við, að stefna þeirra Syng mans Rhee og Salazar sé ekki sigurstrangleg í viðureign- inni við kommúnismann, en þó er enn tii talsverður hópur manna, sem trúir því. Meðal þeirra virðast núv. valdhafar íslands vera. Að vísu er hér enn ekki ógnaö með byssuskeftum eða varalög- reglu, sem Sjálfstæðisflokkur inn vildi einu si-.ini láta stofna. í staðinn er ógn- að með löngu verkfalli og hungri, eins og Alþýðublaðið gerði á sunnudaginn. Skortur inn og sulturinn eiga aö þröngva vinnustéttunum til undirgefni. Tvær leiðir Fyrirmyndin McCarthy. McCarty öldungadeildar- annað. Stundum geta þó slik maður hefur verið helzti full- vinnubrögð þroskað kommún, trúi framannefndrar aftur- Islendingar hafa eins og aðrar þjóðir um tvær leiðir að velja í mótspyrnunni gegn því, að kommúnisminn festi rætur hér á landi. Önnur leið in er leið umbótastefnunnar, sem vinnur að því að bæta lífskjör almennings jafnt og þétt og stuðlar að því að sem allra flestir einstaklingar verði efnalega sjálfbjarga. Þetta er leiðin, sem Roosevelt fór, þegar hann bjargaði Bandarikjunum frá þvi að verða bráð nazismans eða eða kommúnismans. Þetta er leiðin, sem Framsóknarmenn hafa farið og vilja fara hér. Hin leiðin er leið afturhalds- s.tefnunnar, mörkuð seinustu árin af Syngman Rhee og Sal azar, og er fólgin í þvi, að láta auðinn og völdin vera í höndum fárra gróðamanna og.halda kjarabaráttu almenn ings í skefjum með ólögum og ofríki. Þetta er sú stefna, sem raunverulega var tekin upp með „viðreisninni" í fyrra og fylgt er í dag. Þetta er sú stefna, sem mun reynast kommúnismanum frjór jarð- vegur, nema umbótaöflunum takist að hnekkja henni og knýja fram stefnubreytingu. í dag er því raunverulega glímt um það á íslandi, hvort þjóðfélagsástandið skuli mót- ast í framtíðinni af umbótum og eðlilegri þróun eða hvort öfgafull afturhaldstefna á að bjóða kommúnisma heim.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.