Tíminn - 07.03.1961, Síða 16

Tíminn - 07.03.1961, Síða 16
 i:: ÍM r:: I fæknideildinni Það var margs spurt í tæknideildinni á starfsfræðsludepi sjávarútvegsino. Drenglrnlr hópast utan um sérfræðínginn, sem hefur tekið að sér að svala forvltni þeirra. Tækni og meiri tækni er krafa núthnans, og unga kynslóðin er sannarlegs með á nótunpm. Ljósmynd: TÍMtNN — GE. Einfættir menn ganga Tveir einfættir Austurríkis- menn hafa gengið á hæsta fjall Afríku, Kilimanjaró, bún- ir sérstakri tegund af hækj- um. Báðir þessir Austurríkis- menn, Tomas Kacher, 37 ára, og Ottó Umlauf 39 ára, misstu annan fótinn í styrjöldinni. Hækjur þær, sem þeir not- uðu, eru þannig gerðar, að æfðir menn geta fengið með þeim sérstaklega góða v!ið- spymu í brattlendi. Þar sem leið þeirra tví- menninganna lá yfir snævi- þakið land, notuðu þeir skíði af sérstakri gerð. Ekki höfðu Austurríkismenn irnir neinn fylgdarmann í fjallgöngunni, og yfirleitt nutu þeir ekki neinnar aðstoð ar. Þeir lögðu af stað frá hinu kunna Kíbó-gistihúsi og urðu samferða öðrum fjallgöngu- mönnum upp í níu þúsund Rauðmagi írá Húsavík á Reykjavíkur- markað Húsavík, 2. marz. — Ágætur rauðmagi hefur verið hér á Húsavík undanfarna daga, og hefur nú fengizt nokkur mark aður fyrir hann í Reykjavík. Rauðmaginn er fluttur suð ur ísaður og seldur þar nýr. f’eta hæð. Þá þótti hinum fjallgöngumönnunum hyggi- legt að taka sér hvíld, en Aust urrikismennirnir einfættu héldu áfram ferðinni, einir síns liðs. Umlauf komst alla leið upp á hæsta tindinn, en Kacþer varð að láta sér lynda að komast á klettastall neðan við efstu brúnina. Sendiherrar viS málanám Það er hvimleið venja Engil saxa aö skeyta ekkert um að læra tungumál annarra þjóöa, jafnvel þótt þeir eigi| langdvalir meðal þeirra. Kennedystjórnin bandaríska, hefur nú eindregið farið þess! á leit við sendiherra, sem hún hefur skipað, að þeir læri mál þeirra þjóða, er þeir eiga að dveljast á meðal. Það er Dean Rusk, sem hefur komið þess- um nýju fyrirmælum á fram- færi. Sjálfur hefur hann lært þýzku. Jafnframt hefur utanríkis- | ráðuneytið bandaríska ákveð i ið að greiða þeim sem leggja stund á málanámið, árlega aukaþöknun. Tungumálunum er skipt í flokka, og eiga t.d. þeir, sem læra albönsku, tékknesku og persnesku að fá ríflega þrjátíu þúsund krón- ur aukalega. Fyrir rúsnesku og Malajamál á að borga rösklega tuttugu og fimm þús und og nálega sextíu þúsund fyrir bengölsku og Kúrdamál. Þriðjudaginn 7. marz 1961 55. blað. Björgunarsýning viö Sjómannaskéiann: Drengir úr Hug prýði að starfi Á starfsfræðsludegi sjávar- útvegsins í Sjómannaskólan- um á sunnudaginn sýndu piltar úr Hugprýði, unglinga- deild Slysavarnafélagsins í Reykjavík; björgunarstörf, sem vöktu athygli áhorfenda. Þeir skutu af línubyssu yfir gamla grjótnámið við Sjó- mannaskúlann og drógu síðan einn félaga sinna til sín, líkt og þeir væru að bjarga manni úr sjávarháska. Það er vafalaust mikilvægt að þeir, sem síðar eiga aö vinna að björgunarstörfum, fái verklega æfingu á unga aldri. í unglingadeildinni eru yfir leitt 12—16 ára gamlir piltar. Félagslíf er þar fjörugt, og piltarnir hafa áður sýnt vask leika sinn og dugnaö. Á síð- asta sjómannadegi tóku þeir þátt í kappróðri og unnu sigur í sínum riðli, þótt þeir kepptu við sjómenn á bezta aldri. Hér birtast þrjár myndir, sem ljósmyndari Tímans tók af björgunarsýningunni á sunnudaginn. Efsta myndin var tekin, þegar drengimir höfðu skotið línunni og fest hana — allt hefur verið búið undir að „bj örgun“ geti haf- izt. Á næstu mynd sézt þegar sá, er „bjarga“ skal, er dreg- inn á strengnum. Neðsta myndin sýnir, að „landtak- an“ heppnast prýðilega. (

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.