Tíminn - 19.03.1961, Síða 2
2
TÍMINN, sunnudaglnn 19. marz<1961. ■;
Kosið í Frama
á þriðjudag
og miðvikudag
Næstkomandi þriðjudag og mið-
vikudag fer fram kosning stjórnar
og trúnaðarmanna í bifreiðastjóra-
félaginu Frama. Listi vinstri manna
í félaginu er B-listi og fer hann hér
á eftir:
Formaður: Ingjaldur ísaksson Fífu
hvammi. Varaformaður: Sæmundur
Lárusson Langholtsveg 200. Ritari:
Grímur Runólfsson Álfhólsveg 8 A.
Meðstjórnendur: Eirlendur Jónsson
Kársnessbraut 137; Jónas Sigurðsson
Garðsenda 4. Varastjórn: Guðmund-
ur Hannesson Selvogsgötu 14 Hafnar-
firði; Hafliði Gíslason Stórholti 20.
Trúnaðarmannaráð: Óskar Sigvalda-
son Sigluvog 15; Kristján Kjartanss.
Hciðargerði; Þorbjörn Indriðason Ás
vallagötu 64; Óskar Jónsson Álfheim
um 44. Varamenn í Trúnaðarmanna-
ráð: Þorleifur Gíslason Barónsstíg
61; Páll Eyjólfsson Þórsgötu 20. End
urskoðandi: Sveinn Kristjánsson Ból
staðahlíð 28. Varaendurskoðandi:
Haraldur Jónsson Rauðaiæk 4. í
stjórn Styrktarsjóðs: Óskar Lárusson
Bragagötu 35. Varamaður: Þórður
Þórðarson Framnesveg 14.'Bílanefnd.
Andrés Sverrisson Álfhólsveg 14 A;
Magnús Jónsson Melabraut 59; Þor-
geir Magnússon Bragagötu 16; Jón
Einarsson Efstasundi 4; Gísli Bryn-
jólfsson Bogahlíð 16. Varamenn: Guð
mundur Stefónsson Karfavog 42;
Ingimar Einarsson Bugðulæk 13;
Karl Pétursson Álfatröð 1; Snorri
Jónsson Holtagerði 6; Kristján Jó-
hannesson Efstasundi 32. í Gjald-
skrárnefnd: Þórður Elíasson Ból-
staðahlíð 29; Þorvaldur Jóhannes-
son Bragagötu 35. Varamenn: Gunn-
laugur Þorláksson Bólstaðahlíð 36;
Tómas Kristjánsson Hraunbraut 2.
Fjáröflunarnefnd húsbyggingasjóðs:
Jónas Jónsson Kambsveg 21; , Vil-
hjálmur Guðmundsson Stórholti 27.
Varamenn Haraidur Sigurðsson
Gnoðavog 16; Kristinn Magnússon
Bárugötu 37. Skemmtinefnd: Gísli
Sigurtryggvason Mávahlíð 46; Vigfús
Sigurðsson Gnoðavog 40. Varamenn:
Halldór Einarsson Kárastíg 5; Snorri
D. Halldórsson Karfavog 21.
Allir vinstri menn eru hvattir til
að vinna ötullega að sigri B-listans.
Mannekla á Ak-
!
ureyrartogurum
Á fimra togara ÚtgerSarfé-
lags Akureyringa vantar nú
s&mtals meira-en eina áhófn,
en þó tekst að halda togurun-
um öllum úti í einu. Er ráSið
fram úr bessum vanda á þann
hátt að Játa suma vera í sigl-
irigu eða aðra að veiðum fyrir
hraðfrystihúsið en færa menn
mill iskipa, því að miklu færri
menn þarf til siglingar á út-
lendan markað.
Ef þessum ráðum væ.ri ekki
beitt, yrði að leggja tveimur teg-
aranna vegna manneklu. Sjðmenn
sækja mjög fast á, að siglt sé, og
lætur útgerðarstjórnin það eftir á
þann hátt, sem að framan greinir.
Á Akureyri ríkir mikil óánægja
með það, að hogararnír sigli í stað
þess, að afli þeirr'a skapi atvinnu
hér heima. Svalbakur seldi á mið-j
vikudaginn 148 lestir í Cuxhaven
fyrir rúm 80 þúsund mörk og Harð
bakur 153 lestir á föstudaginn í
Bremerhaven fyrir tæp 80 þúsund
mörk. Kaldbakur landar á mánu-
daginn á Akureyri og SléttbakUr á
miðvikudaginn. Norðlendingur er
á veiðum og fer til Þýzkalands í
naestu viku.
Nýtt snið á útvarps-
viku bændasamtakanna
Búnaðarfélag íslands og
Stéttarsamband bænda hafa
gengizt fvrir eins konar bænda
viku í útvarpinu nokkur und-
öníarin ár. Tíminn hafði fr^tt
að fyrirkomulag þessarar
viku yrði með nokkuð öðrum
hætti en fiðkazt hefur og sneri
sér því fil Búnaðarfélagsins í
því skyni að leita fregna om
þessi má!.
Að þessu smni verður út-
varpað frá bændavikunni
dagana 20—24. marz n.k., frá
kl. 13,15—14,15 nema fimmtu
daginn 23. marz. Þá verður
útvarpað frá kl. 14—14,30.
Vikan er nú með nokkuö
öðru sniði en verið hefur,
bæði um efnisval og efnis-
meöferð. Nú verður einum
degi varið til þess, að ræða
leiðbemingaþjónustuna, bæði
frá sjónnrmiði bænda og
ráðunauta. Verður það þriðju
daginn 21. marz. Þátttakend
ur eru Jón Eiríksson, bóndi,
Þórólfur Guðjónsson, bóndi,
Halldór Pálsson ráðunautur
og Agnar Guðnason, ráðu-
nautur.
Öðrum degi er svo varið
til þess, að xæða menntun
sveitafólks, einkum með til-
liti til þess, að hvetja bænda-
og húsmæðraefni að leita
sér menntunar i sínu fagi.
Verða flutt tvö erindi: Jónas
Jónsson, kennari og Kristján
Karlsson, skólastjóri. Rætt
verður við skólastýru hús-
mæðraskóla Suðurlands,
námsmeyjar húsmæðraskóla
og eldri og yngri nemendur
bændaskóla.
Vélum og verkfærum er
einnig ætlaöur einn dagur.
Verður rætt við menn úr
verkfæranefnd ríkisins og
framkvæmdastjóra hennar.
Þórir Baldvinsson flytur er-
indi um véla- og verkfæra-
■geymslur.
Sauðfjárræktinni er ætlað
ur einn dagur. Eru þaö um-
ræður milli Gunnars Guð-
bjartssonar, Jóns Gíslasonar,
Jónasar Féturssonar og Hall
dórs Pálssonar.
Síðasta daginn verða flutt:
þrjú errndi: Jarðeigna- og
ábúðaskipulag, eftir Jón
Gauta Péturssón og útflutn-
ingur landbúnaðarafurða, er-
indi, sem Helgi Pétursson,
framkvstj. flytur. Þá verður
og rætt um skipulag eggja-
framleiðslunnar.
Á fimmtudaginn er svo
kvöldvaká bændavikunnar.
Verður þar ým.san gamli-n og
nýjan fróðleik að finna, sem
vonandi verður einhverjum
til ánægju-
Missið ekki af kvik-
mynd Osvalds Knudsen
Ósvaldur Knudsen sýrilr
kvikmyndir sínar í allra s-8-
asta sinn í Gamla bíói kl 3
dag. Þær voru sýndar nokkr-
um sinnum í vikunni sem leiS
við ágæta og vaxandi aðsókh.
Myndir þessar eru hinar
skemmtilegustu og um margt
ólikar því, sem sést hefur hér
af þessu tagi. Er þar margt
mjög vel gert. Er sérstök á-
stæða til að hvetja fólk til að
leyfa börnum og unglingum
að sjá þessar myndir.
Fyrsta myndin, sem sýnir
íslenzkt vor í sveit að nýj-
um ,og þó einkum gömlum
sið. Sjást þar ýmsir horfnir
búskaparhættir, og er þar
margt vel fram sett, en þó
munu fuglamjr'.idirnar vekja
meiri athygli, enda eru þær
afbragðsgóðar og hlýtur að
haf-a þurft mikla þolinmæði
og þrautseigju til að ná þeim.
Þá er kvikmyndin af Þór-
bergi Þórðarsynf í senn
skemmtileg og óvenjuleg, og
refaveðar Hinriks í M'erki-
nesi kafli, sem vert er á að
horfa, svo og nærmyndir
þær, ,sem Ósvald hefur tekizt
að ná af íslenzkum fjallaref
i Fólk ætti ekki að láta þetta
i síðasta tækifæri til að sjá
, myndir Ósvalds að þessu sinni
Ifram hjá sér fara.
Hvítárvellir
slegnir á
1.160.000. oo
Sala Hvítárvalla var til lykta
leidd á uopboði i gær. Einn
af lögfræðingum erfingjanna
bauð fyrs* jörðina 1 060
þúsund. Á móti honum ouðu
P.æktunarsamband Borg-ar-
tjarðar og Davíð bóndi Ólats-
Ræktunarsambandið Bnoð
1.150 þúsund en Davíð hækk-j
aði sig i 1.160, og var honumi
slegin jörðin á það verð.
Hreppurinn hefur forkaurs !
rétt í þ*-já daga, en ekki bjízt
son.
við að hann noti þann rétt,
Bókmennta-
kynning í há-
skólanum í dag
í kvöld kl. 20,30 efnir stúd-
entaráð Háskólans til bók-
menntakynningar í hátíðísal
háskólans Kynning þessi
verður he:guð þýðingum þeim
íslenzkum er gerðar hafa ver-
ið á verkum enska skáldsins
William Shakespeares. Þar
mun Ævar R Kvaran leikari
íæða um skáldið, leikritagerð
þess og uhrif hennar á leik-
menntir fyrr og nú.
Dr. Steingrímur J. Þorsteinsson,
prófessor flytur síðan erindi um
Shakespeare í íslenzkum bókmennt-
um. Loks verða fluttir stuttir þættir
úr þremur leikritum eftir Shake-
speare: Rómeó og Júlíu, Óþelló og
Macbeth.VÞeim er ætlað að bregða
ljósi á þrjár mannlegar ástríður, ást
afbrýði og heift. Kaflarnir úr Mac-
heth og Óþelló eru í þýðingu sr.
Matthíasar Jochumssonar en Rómeó
og Júlíu hefur Heigi Hálfdánarson
þýtt. Ævar R. Kvaran flytur inn-
gangsorð að hverjum þætti og stjórn-
ar þeim, en félagar úr leikfélagi
stúdenta og Karl Guðmundsson leik-
ari munu annast flutninginn.
Aðgangur að bókmenntakynningu
þessari er sem fyrr ókeypis og öll-
um heimill, en menn eru minntir á
breyttan samkomutíma.
Hreindýr
(Framhald af 1. síðu.)
síðan aftur um hæl, þegar
hundarnir hafa snúið heim.
í hinum syðri byggðarlög-
um austan lands hefur mikið
borið á hreindýrum, einkum
í Berufirði. Að undanförnu
hefur stór hópur h'reindýra
haldið sig við veginn hjá bæn
um Urðarteigi, rétt innan við
Djúpavog. Hafa menn talið
þar f jörutíu dýr. Virðast hrein
dýrin stöðugt vera að færa
sig sunnar.
Páskaferft í Öræfi
(Framhald aí 1. síðu )
húsinu, annan daginn ekið aust
ur yfir Skeiöarársand í Öræfi
og farið í Bæjarstaðaskóg og
Morsárdal. Þriðja daginn verð-
ur sveitin skoðuð, ekið að Jökuls
á á Breiðarmerkursandi og í
Ingólfshöfða, gist í samkomu-
húsinu að Hofi. Á páskadag verð
ur haldið til baka að Klaustri,
og til Reykjavíkur á annan
páskadag.
Guðmundur verður sjálfur far
arstjóri í þessari ferð, en hann
hefur efnt til ferðar sem þess-
arar undanfarna páska, ávallt
með fjölmennri þátttöku og á-
nægju þátttakenda. Allar frek-
Sauíaveiíar í þorskanet
(Framhald af 1. síðu.)
slíkir staðir, að sauðfé hætt
ir til þess að lenda þar í sjálf
heldu og farast úr sulti, sé
ekkert að gert. Einkum er
hætt við þessu í gljúfrunum
við Gilsá og Markarfljót, og
hefur komið fyrir, að menn
hafa neyðzt til að skjóta fé
; niður á slíkum stöðum. Gljúfr
hi við Gilsá eru öllu verri að
þessu Jeyti.
Fest á nibbur og snasir
Hallgrimur hefur fundið
það snjallræði að nota þorska
net við .björgunina, og hefur
það gefið mjög góöa raun.
Nfetin eru fyrst strengd á
heppilegum stöðum á kletta
sillurnar, en síðan er féð rek
ið í þau. Eru þau þá fest í
nibbur' og snasir, eftir því sem
við verður komið á hverjum
stað, en ágætt er, ef hægt er
að haga svo til, að menn haldi
í endana. En þeir verða að
vera við öllu búnir og hafa
góða viðspyrnu.
Gefst ve?
Með þessari aðferð bjargaði
Hallgrímur 3 kindum á síð-
asta ári. Fyrst re>-ndi hann
þetta í vor eða sumar við
björgun kindar, er hann átti
sjálfur í svelti í Gilsárgljúfxi,
og tókst giftus'amlega. í .haust
var hið sama reynt við dilk-a
í svelti í höiprum við Mark-
arfljót. Sagði Sæmundur
1 bóndi Úlfarsson á Heylæk í
I viðtali við blaðið, að sú björg
| un hefði ekki tekið nema
; klukkustund. Fyrst hafði net
, ið verið strengt, en síðan
jhefðu þrír menn farið niöur
| og rekið kindurnar í það. í
; fyrra hefði hliðstæður at-
burður orðið, en þá tóku
björgunartilraunir hvorki
meiri né minni tíma en tvo
daga, og tókst þó ekki betur
til en svo, að ærin stökk í dauð
ann heldur en láta handsama
sig. Lambið náðist þó. —
„Eg er stórhrifinn af þessn“,
sagði Sæmundur að lokum.
,Eg átti oft við kindur í klett
um á yn^ri árum og mér er í
fersku minni hve erfiðlega
gekk oft að ná þeim, og var
þó allt oft unnið fyrir gýg.
Þetta er mikil hjálp“.
Ekki er bláði'nu kunnugt
um, að þorskanet hafi áður
verið notuð til sauðaveiða, og
má hér þá vera merkilégt ný
mæli á ferðinnnni. P.E.
ari upplýsingar um ferðina fást
hjá B.S.R. í Lækjargötu og í
símum 11515 og 36565.
FÉLAGSMÁLASKÓLINN
Annað kvöld kj. 8.30 (mánud.) flytur Gunnar Dal, rithöfundur, erindi
um áhrif heimspekinnar á stjórnmálin.
Skólinn er til húsa í Framsóknarhúsinu, uppi.
FRAMSÓKNARFÓLK, eldra sem yngra, er velkomið. Mætum vel
og stundvislega.
FRAMSÓKNARMENN, AKRANESI
muniS aðalfundinn kl. 4 í dag í Félagsheimili templara.
DAGSKRÁ: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Fjárhagsáætlun Akra-
neskaupstaðar 1961. 3. Þingmál.
FRAMSÓKNARFÓLK, fjölmennið á fundinn.
FRAMSÓKNARMENN AKRANESi
Framsóknarfélag Akraness heldur aðalfund sinn í félagsheimili
templara í dag (sunnudag) kl. 4'f.h. — DAGSKRÁ: Venjuleg
aðalfundarstörf. 2. Fjárhagsáætlun Akranesckaupstaðar 1961. 3. Þing-
mál. — Framsóknarmenn eru hvattir til að fjölmenna á fundinn.