Tíminn - 15.06.1961, Page 2

Tíminn - 15.06.1961, Page 2
2 TÍMINN, fimmtudaginn 15. íúnM961. Jón Sigurðsson og samtíðarmenn hans Nú þessa dagana kom út bók eftir LúSvík Kristjánsson er nefnist Á slóðum Jóns Sig- urðssonar, mikið rit og mjög vel úr garði gert. Útgefand- inn er bókaútgáfan Skuggsjá í Hafnarfirði. Þrátt fyrir öll þau firn, sém skrifuð hafa verið um Jón Sig- urðsson, er furðumargt, sem farið hefur milli mála um líf hans og hagi og viðhorf samtíðamann- anna til hans. Þótt hver bókin af annarri hafi um hann verig rit- uð ,virðist talsvert hafa skort á, að fullkomin rannsókn hafi farið fram á þeim gögnum, sem hann varða og tiltæk eru. Þess vegna hefur margt nýtt og jafnvel ó- vænt komið í Ijós við rannsókn þá, sem Lúðvík Kristjánsson hef- ur gert á undanförnum árum, svo sem að nokkru leyti kemur fram í Vestlendingum hans, en þó enn frekar í þessari nýju bók. í þessari bók birtist Jón Sig- urðsson í sannara og mannlegra Ijósi en þeim, sem áður hafa um hann skrifað, hefur tekizt að láta leika um hann, og jafnframt birt- ist sarntíð hans sem í skuggsjá í samskiptum sínum við hann. Þær myndir auka að vísu ekki að öllu leyti hróður þjóðarinnar, ný bók eftir LuSvík Kristjánsson því að þar ber mikið á skilnings- leysi á hlutverki Jóns Sigurðsson- ar og þörfum og tómlæti um fram- gang þeirra mála, sem mestu vörðuðu, en þeim mun meira á endalausu kvabbi um hvers konar hégóma. Það kemur hér og í ljós, að það var landsmönnum ekki alls kostar til sóma, hvernig viðbrögð þeirra voru, þegar leitað var fjárstuðn-' ings til handa Jóni Sigurðssyni og öðrum f.eim, sem fórnuðu þjóð- frelsisbaráttunni hagsmunum sín- um. Tómlæti og tregða embættis- manna og valdamanna í landinu, þótt íslenzkir væru, í þjóðfrelsis- baráttunni, er áður kunn, sem og hugleysi og bleyði margra þeirra, er þó fundu í hjarta sínu, hvar þeir hefðu átt að standa. En allt verður þetta mjög lif- andi í meðförum Lúðvíks Krist- jánssonar, sem jafnan hefur þann hátt á að nota mjög bréf og kafla úr þeim. f eftirmála bókar sinnar gerir Lúðvík grein fyrir því, hvernig að honum hlóðst efnisviður í rit- ið, er hann vann að Vestlending- um sínum. „Engan veginn lá beint við, hvernig hagnýta skyldi þessi aðdráttarföng," segir hann. Dragndtaveiðar ieyfðar í sumar LÚÐVÍK KRISTJÁNSSON „Ofan á varð að takmarka not þeirra að sinni við þau viðfangs-1 efni, sem reynt er að fást við í þessu riti. Mestu varðar að draga fram heimildir, sem birta ókunn sannindi eða leiðrétta. Það, sem ég hef kosið að nefna Á slóðum Jóns Sigurðssonar, er ekki sam- felld saga, heldur þættir með auðsæjum tengslum“. Sameining Þýzka- lands möguleg, NTB—Berlín, 14. júní. — Austur-þýzka stjórnin hefur sent ríkisstjórnum Sovétríkj- anna, Bretlands, Bandaríkj- anna, Frakklands, Póllands og Tékkóslóvakíu orSsendingu, þar sem ríkisstjórnirnar eru hvattar til þess aö hef ja þegar í staö undirbúning aö friðar- — segir í or'Ssendingu austur-þýzku stjórnar- innar, a<J loknum fundi hennar í gær Sex á síld Húsavík, 14. júní. Sex bátar verða geiðir út héðan á síld í sumar, og munu þeir fara út á næstunni. Ekki er enn ákveð- ið, hvort saltað verður hér á Húsa vík í sumar, en það hefur jafnan verið gert áður. Sæti handa ís- lendingi i lista- háskólanum Listaháskólinn í Kaupmanna- höfn hefur fallizt á, að taka við einum íslendingi árlega til náms í húsagerðarlist, enda fullnægi hann kröfum um undirbúnings- nám og standist með fullnægjandi árangri inntökupróf í skólann, en þau hefjast venjulega í byrjun 1 ágústmánaðar. Umsóknir um námsvist í skól- anum sendist' menntamálaráðu- neytinu fyrir 28. júní n.k. Tilskil- in umsóknareyðublöð fást í ráðu- neytinu. ráðstefnu og koma á viðræð- um um friðarsamning við i bæði þýzku ríkin. Eru ríkis- I stjórnir landanna einnig hvatt ar til að semja tillögur um lausn Berlínarvandamálsins, sem fram yrðu lagðar á slíkri friðarráðstefnu, sem getið er í orðsendingunni. Orðsendingin er gefin út að af- loknum flokks- og ríkisstjórnar- fundi í Austur-Berlín í dag. Þar hafði forsæti Walter Ulbricht, for seti Austur-Þýzkalands, sem jgfn- framt er aðalritari og fram- kvæmdastjóri Sósfaliska einingar- flokksins. Hætta á styrjöld Fundur þessi í Austur-Berlín var haldinn til þess að ræða síð- ustu tillögu Sovétríkjanna um Þýzkalands’málin, sem Krustjoff afhenti Kennedy á Vínarfundin- um 4. júní. í greinargerð, sem gefin var út að fundinum loknum, er látin í Ijós von um, að yfirlýsingar þjóðhöfðingjanna á Vínarfundin- um, um vinsamlega samvinnu Bandaríkjanna og Sovétrikjanna, megi leiða til þess, að komið verði á viðræðum, þar sem leitað verði eftir lausnum á hinum mörgu heimsvandamálum, sem nú er við að glíma, og að slíkar viðræður megi verða til þess að draga úr spennunni í alþjóðamálum. í greinargerðinni er sérstaklega getið um þá miklu nauðsyn, sem sé á því, að viðræður hefjist um uppkast að friðarsamningi fyrir hin tvö þýzku ríki. Friðarsamningur fyrir Þýzka- land hefur þýðingu fyrir allari þjóðir, sem ekki óska þess að, verða dregnar nauðugar í nýjal styrjöld, segir að lokum í grein-’ argerðinni. Ráðuneytið hefur í dag á- kveðið að fengnum álitsgerð- um þeirra aðila, sem þar eiga hlut að máli, að dragnótaveið- ar skuli frá og með morgun- deginum, þar til öðruvísi verð ur ákveðið, þó ekki lengur en til 31. október n. k., leyfðar á eftirtöldum svæðum: I. Milli lína réttvísandi austur frá Dalatanga og Gerpi. II. Frá línu, Reyðarfjall yfir eitt um Skrúð, að línu réttvísandi 120°" frá Hafnarnesvita. III. Frá línu réttvísandi suð- austur frá Streitishornil að línu réttvísandi suður frá Knarrarós- vita. IV. Frá línu réttvísandi vestur frá hólmanum Einbúa í Ósum að l£nu réttvísandi norðaustur frá Geirólfsgnúp; þó ekki innan lína sem hér segir: 1. Úr Qarðskagavita um punkt inn 64° 8’ n. br. 22° 42’ v. 1., Gerðistangavita, Gróttuvita og Þormóðsskersvita í Kirkjuhóls- vita. 2. Úr Ólafsvita um Tálkna, þvert fyrir Patreksfjörð og Tálknafjörð. s 3. Milli Svarthamra að sunnan og Tjaldaness að norðan í Arn- arfirði. 4. Milli Keldudals að sunnan og Arnarness að norðan í Dýra- firði. 5. Milli Mosdals að sunnan og Kálfeyrar að norðan í Önundar- firði. 6. Milli Keravíkur að sunnan og Galtarbæjar ^ð norðan í Súg- andafirði. 7. Milli Óshóla að vestan og Bjarnarnúps að austan í ísafjarð- ardjúpi. 8. Milli Maríuhorns í Grunna- vík að sunnan og Láss að norð- an, £ Jökulfjörðum. Þá hefur ráðuneytið ákveðið, að bátum innan lögmæltra stærðar- marka, sem skráðir eru og gerðir hafa verið út frá verstöðvum á þessum svæðum, skuli veitt leyfi til veiða hvar sem er á svæðun- um. Jafnframt hefur ráðuneytið £ dag gefið út fyrirmæli um drag- nótaveiðar i stað eldri reglugerð- ar um það efni nr. 50/1937. Meginbreyting frá reglugerð- inni er sú, að fellt er niður ákvæði' um, að nótin skuli dregin „fyrir föstu“, svo að unnt er að haga veiðum að þvi leyti eins og bezt hentar á hverjum stað. Sjávarútvegsmálaráðuneytið, 14. júní 1961. ViS frostmark flestar nætnr Grímsstöðum á Fjöllum, 12. júní. — Gróðri hefur lftið farið fram hér siðan um hvitasunnu vegna kulda. Hefur hiti verið um frost- mark flestar nætur og jafnvel farið niður fyrir það. Sauðburði er lokið, og hefur hann gengið vel. — Bílaumferð til Austurlands er nú hafin, og áætlunarferðir byrjaðar frá Akureyri til Austur ilands. — íþróttakennari er ný- kominn hingað á vegum íþrótta- sambands N.-Þingeyjarsýslu. Mun hann verða hér í viku og þjálfa ungu mennina í íþróttum. — Theó dór Gunnlaugsson.hinn landskunni refaskytta, hefur legið á 2 grenj- um hér í grennd tvær undanfarn- ar nætur. Hefur hann unnið þau bæði, náð fullorðnu dýrunum, en eftir er að handsama eitthvað af hvolpunum. Þorkell máni Iaskast Snemma á þriðjudagsmorgun- inn varð sá atburður á miðum við Vestur-Grænland, að þýzkur tog- ari sigldi á kinnung Þorkels mána frá Reykjavík, er verið var að draga inn vörpuna á honum, og braut á hann gat. Þorkell máni fór til Færeyinga- hafnar, þar sem gert verður við skemmdirnar til bráðabirgða. Fyrsta síldin til Siglufjarðar íþróttir hlaup í lokin, en Heimir varði hvað eftir annað glæsilega. Á 35. mín., komst Þórólfur inn fyrir vörnina. Heimir hljóp gegn . honum, en Þórólfur spyrnti að markinu, en þar komst Bjarni fyrir knöttinn. Þórólfur náði hon- um aftur, og spyrnti þá í stöngina, en knötturinn hrökk í Jón Leós- son, sem var að koma til varnar. og gerði Jón sjálfsmark. Rúmsins vegna verður að láta hér staðar numið, ,en nánar verð- ur rætt um leikirm á síðunni á morgun. Siglufirði 14. júní. — Síðast liðna nótt kom fyrsta Norður- landssíldin til Sigluf jarðar. Heiðrún frá Bolungarvík og Guðmundur Þórðarson komu með um 400 tunnur hvort. Ólafur Magnússon frá Akur- eyri, Eldborg frá Hafnarfirði og Guðbjörg frá Ólafsfirði hafa einnig fengið síld, 300— 500 tunnur hvert. Síld þessi veiðist aðallega austur af Horni og í Reykjafjarðarál. Er hún stór, en mögur, fitumagn und- ir 10%, og því ekki söltunarhæf enn. Þó var reynt að salta eitthvað úr Heiðrúnu á söltunarstöð Skafta Stefánssonar. Aðrir bátar hafa flestir haldið til Eyjafjarðar með síldina til frystingar og bræðslu. Guðbjörg fór þó til Ólafsfjarðar. Vegna yfir- standandi verkfalls hér á Siglu- firði, hefur ekki verið hægt að taka við neinu til bræðslu í verk- smiðjunum hér. Nú hafa hins vegar tekizt samn- ingar, og mun vinnustöðvun verða aflétt á miðnætti í nótt. Verður þá' tekið við síld í bræðslu í „Rauðku“ í nótt, ef eitthvað berst. Flokksstarfið i bænum HAPPDRÆTTIÐ Eins og skýrt var trá f blaðinu í gær, hefur nú veriS dregiS f happdrætti F.U.F., en vinningsmiðar hafa verið innsiglaðir, þar eð ekkl hafa allir sölumenn gert ful( skil. Eru þeir, sem þetta hefur dregizt hjá, hvattir til þess að Ijúka skilum hið allra fyrsta. Geta þeir haft samband við skrifstofuna í Framsóknarhúsinu, sími 12942, á tímanum klukkan 1—6. Verður þá sent til þeirra.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.