Tíminn - 15.06.1961, Qupperneq 7

Tíminn - 15.06.1961, Qupperneq 7
TÍMIWN, fímmtmdaginn 15. júnl 1961, 7 Sóknarhugur á 2. kjördæmisþingi Fram- sóknarfélaganna í Suðurlandskjördæmi 2. kjördæmisþing framsóknarfé- laganna í Suðurlandskjördæmi var haldið í félagsheimilinu Hvoli á Hvolsvelli laugardaginn 3. júní sl. Þingið sóttu fulltrúar og gestir úr nær hverjum hreppi, þorpi og kaupstað kjördæmisins, alls um hundrað manns. Það hófst upp úr hádeginu og var slitið um kl. 9 um kvöldið, en þá hófst vormót framsóknarfélaganna í Rangár- vallasýslu, sem Félag ungra fram- sóknarmanna annaðist. Margir full trúanna á þinginu sóttu mótið einnig og tókust góð og skemmti- leg kynni við heimamenn. Forseti Sambands Framsóknarfé laganna í Suðurlandskjördæmi (S.F.S.) setti þingið. Bauð hann fulitrúa og gesti velkomna með stuttu ávaxpi og skipaði síðan fund arstjóra þá Óskar Jónsson, Sel- fossi og Sigurð Tómasson, Barkar- stöðum, en sá síðari gat ekki kom- ið því við að sækja fundina. Rit- ara skipaði hann Jón Helgason, Seglbúðum, og Gunnar Guðmunds son, Selfossi. Forsetinn, Matthías Ingibergs- son, apótekari, flutti skýrslu um starf sambandsins og yfirlitsræðu um stjómmálaviðhorfið. Starfið hefur aðallega verið fólgið í kynn- ingarstarfsemi og fundahöldum s. 1. starfsár. Voru haldnir margir fundir um allt kjördæmið og voru þar rædd bæði almenn landsmál og sérmál hvers héraðs. Tóku margir þátt í þeim umræðum, frummælendur, heimamenn og gestir. Forseti gat þess, að Félag ungra framsóknarmanna í Árnes- sýslu hefði gengist fyrir námskeiði í ræðumennsku og fundarstjóm og hefði námskeiðið tekizt vel og ver ið félaginu til sóma. í sambandi við almenn lands- mál ræddi forsetinn einkum stefnu mál Framsóknarflokksins og kjara málin. Sagði hann, að það væri alveg víst, að þjóðin vildi mikið á sig leggja, til þess ag efnahagsmál in fengju veranlegar umbætur, en það sé einnig jafn víst, að þjóðin vilji ekki búa þannig að hinum lægst launuðu stéttum, að þær geti með engu móti lifað menning- arlífi af tekjum sínum. „Það er alveg víst, að fólkið í þessu landi telur þann atvinnurekstur lítils virði, sem byggir afkomu sína að verulegu leyti á því, að starfsfólk hans búi við lægri laun en hrökkva til mannsæmandi lífs“. Ágúst Þorvaldsson, alþingismað- ur, flutti framsöguerindi um skipu- lagsmál Framsóknai'flokksins. Þakkaði hann ágætt samstarf við flokksfélögin í kjördæminu og kvað það mikla hvatningu fyrir þingmennina og til ómetanlegs gagns fyrir framfaramál kjördæm- isins, að félögin héldu vöku sinni og störfuðu af kappi. Var Ágúst kjörinn í skipulags- nefn flokksins af hálfu S.F.S. Björn Fr. Björnsson, alþingis- maður flutti mjög fróðlega frarn- söguræðu um hafnarmál kjördæmi isins. Sagði hann, að nú væru all- ar áætlanir fyrir hendi í sambandi við framkvæmdir í Þorlákshöfn og að nú væri það krafa allra Sunn- lendinga, að . Þorlákshafnarnefnd og hlutaðeigandi stjórnarvöld létu fram fara útboð þegar í stað svo að undirbúningasframkvæmdir væntanlegs verktaka gætu hafizt á þessu ári. „Sunnlendingar munu allir sem einn krefjast þess, að framkvæmdir í Þorlákshöfn séu leiddar til farsælla lykta svo skjótt sem verða má, því að það er eitt stærsta velferðarmál kjördæmisins að höfn fáist, sem léttir aðflutn- inga til héraðsins, tengir Vest- mannaeyjar við meginlandið með öruggum samgöngum og gerir mögulegt að hagnýta hin auðugu fiskimið Selvogsbanka margfalt betur en nú er kleyft til hagsbóta fyrir alla þjóðina". Helgi Bergs, verkfræöingur, flutti framsöguerindi um rekstrar- fjárþörf landbúnaðarins. Lýsti hann ýtarlega lánakerfi því, sem landbúnaðurinn á aðgang að og til raunum Framsóknarflokksins til að koma á aukningu og endurbót- um á því kerfi. Gat hann þess, að Stéttarsamband bænda hefði mál þessi nú til meðferðar, enda þyrftu bændur að standa vel saman til að fá farsæla lausn þessara mála. Fram til þessa hefði allt kapp ver- ið lagt á það, að leysa erfiðleika sjávarútvegsins og væri þó enn langt í land, að það hefði tekizt. En þrátt fyrir það mætti með engu móti vanrækja hinar tvær þöfuð- atvinnugreinar þjóðarinnar, land- búnaðinn og iðnaðinn, og hefði Framsóknarflokkurinn beitt sér fyrir margháttaðri löggjöf til að leysa vandamál þessara atvinnu- greina og beina til þeirra nauð- synlegu fjármagni, en á undanförn um þingum hefðu stjórnarflokkarn ir staðið gegn öllum umbótum í þá átt. Matthías Ingibergsson, apótek- ari, flutti framsöguerindi um heil- brigðismál. Ræddi hann einkum þörf Suðurlandsundirlendis fyrir úrbætur í sjúkrahússmálum og NY BOK: sjúkraflutningum. Taldi hann nauð synlegt, að sýslunefndir Árnes- sýslu, Rangárvallasýslu pg Vestur- Skaftafellssýslu tækju upp sam- vinnu um lausn þessara mála. Einn ig ræddi Matthías um það nýmæli, að þessar þrjár sýslur, ásamt Vest- mannaeyjabæ, kæmu á fót og rækju sumarbúðir fyrir unglinga, drengi sér og stúlkur sér, á falleg- um og hentugum sftað í sveit, þar sem unglingum úr þorpum og bæj- um, sem ekki ættu kost á vist í sveitum, fengju tækifæri til að njóta hollrar og stjórnsamrar úti- vistar og kennslu í nokkurn tíma. Þrjár nefndir voru kosnar til að fjalla um öll þessi mál og höfðu þessir menn framsögu fyrir nefnd unum: Sigurður I. Sigurðsson fyrir skipulags- og heilhrigðismálanefnd, Sveinn Guðmundsson fyrir hafnar málanefnd og Þórarinn Sigurjóns son fyrir efnahagsmálanefnd. Miklar umræður urðu um þessi mál og tóku margir til máls, m. a.: Guðjón Ólafsson, Benedikt Einars son, Sigurgrímur Jónsson, Engil- bert Hannesson, Guðmundur Guð- mundsson, Þráinn Valdemarsson og Óskar Jónsson, auk fyrrnefndra manna. Ýmsar ályktanir voru saniþykkt- ar, sem sendar verða hlutaðeigend um. Forseti sambandsins fyrir næsta ár var emróma kjörinn Matthías Ingibergsson, apótekari. Sem vara forseti var kjörinn síra Sveinbjörn Hrafnseyri Fæðingarstaður Jóns Sigurðssonar forseta Fæðingarstaður Jóns Sigurðssonar forseta. Höfundur rits þessa er séra Böðvar Bjarnason, sem var prestur á Hrafnseyri í 40 ár. Ólafur Þ. Krist- jánsson skólastjóri hefur búið bókina undir prentun. Höfundur segir í eftirmála: „Það.er von mín, að margur hafi ánægju af því að kynnast þáttum þessum úr sögu Hrafnseyrar, og það er ósk mín, að kynning sú verði þeim og þjóð- inni til blessunar." Bókin er gefin út í tilefni af því að 150 ár eru liðin frá fæðingu Jóns Sigurðssonar. Þar er bernskustöðvum forsetans lýst rækilega og ýmislegt sagt frá foreldrum hans og öðrum ætt- mönnum. Bókin er 200 bls. að stærð. Verð kr. 140.00 í bandi. BÓKAÚTGÁFA MENNINGARSJÓÐS OG ÞJÓÐVINAFÉLAGSINS. Keflvíkingar Nokkra verkamenn og smiði varitar til vinnu við hafnargerð í sumar. Vinna hefst 20. júní. Landshöfn Keflavík — Njarðvík. Hafnarstjóri. 1 Högnason, í framkvæmdastjórn með forseta þeir Sigurfinnur Sig- urðsson og Jón Helgason, endur- skoðendur Sigurður Tómasson og Einar Þorsteinsson og til vara Svanur Kristjánsson. Matthías Ingibergsson sleit þing- inu með stuttri^ ræðu, þakkaði fundarstjóra, Óskari Jónssyni, fundarstjórn, öðrum starfsmönn , um þingsins gott starf, starfsfólki félagsheimilisins fyrir góðar veit- ingar, þingheimi öllum fyrir á- nægjulegt þinghald, framsögu- mönnum fyrir greinargóðar ræð- ur og öllum flokksfélögum fyrir vinsamlegt og gott samstarf. Hvatti hann alla þingfulltrúa og aðra Framsóknarmenn að vinna öt ullega að nauðsynja- og framfara- málum Iands og þjóðar. Þingfulltrúar og gestir þeirra sátu sameiginlegt borðhald og marg- ir tóku þátt í vormótinu um kvöld- ið. Var þinghaldið allt uppbyggi- Iegt og ánægjulegt og flokknum til sóma. Hið eina, sem á skyggði, var það, að tími sá, sem þinginu var ætlaður, reyndist of naumur. Voru því ýmis mál, sem ekki var unnt að taka til meðferðar, svo sem her- stöðvarmálin, viðhorf flokksins til fjölgunar atvinnugreina í sam- vinny við erlent fjármagn, rnark- aðsmálin, en þau mál og fleiri verða væntanlega tekin til með- ferðar á fundum S.F.S. á þessu starfsári. ' Vil selja nýlega barnakerru. Á sama stað eru til sölu danskir skór. Uppl. að Barónsstíg 20 (uppi). • V*V»V*V»'V‘V*V»V*' Hjón óska eftir að komast á gott sveitaheimili nú í sumar. Tilboð sendist skrifstofu blaðsins fyrir 20. þ. m. merkt: „Hjón“. Bifreiðasala Björgú'.fs Sigurðssonar — Hann selur bíiana. Símar 18085 — 19615 Málflutningsskrifstofa Málflutningsstört tnnheimta. fasteignasala. skipasala. Jón Skaptason hrl. Jón Grétar Signrðsson lögfr Laugavegi 105 (2 hæð) Simi 11380 V-N'X ‘V*V*V*V*V*V VVV*VV «v*v Á víðavangi 10%, 11%, 12%, 13%, 14%, 15%, 16%, 17% og 18% Stjórnarblöðin eru að smá hækka sig í blekkingarfluginu. Daginn eftir að norðlenzka Iausn in komst á, sögð'u þau réttilega frá því að samið hefði verið um 10% almenna kauphækkun til handa verkamönnum. Þeir sögðu þá reýndar jafnframt að SÍS væri að skella öldu verðbólgu og gengisfellingar yfir þjóðina, með því að veita verkamönnum 400 króna kauphækkun á mán- uði (áður liöfðu þó bæði stjóm arblöðin víðurkennt það með þögninni, að ókleift væri með öllu fyrir verkamenn að Iifa mannsæmandi lífi á 4000,00 kr. á mánuði). Samvinnumenn mið- uðu starfsaðferðir sínar Vvið að forða tjóni og komu hóflega til móts við sanngimiskröfur verka manna. (Stjómarblöðin hafa ó- beint viðurkennt, að ekki hafi verið unnt að ganga skemmra). Samningar tókust um 4% meiri kauphækkun en tillaga sátta- semjara gerði ráð fyrir, en bæði Vinnuveitendasambandið og verkalýðsfélögin höfðu fellt þá tillögu eins og kunnugt er. — Stjórnarblöðin fundu fljótlega að áróður þeirra um að þessi 4% munur myndi leiða til verð- bólgu og gengisfalls, fann ekki hljómgmn með þjóðinni — ekki einu sinni meðal manna í röð- um flokka þeirra. Þeir fundu að þa'ð varð að breikka bilið og nú rembast þeir við það eins og rjúpa við staur. Stjómarblöðin hafa hækkað sig dag frá degi, 11% kauphækkun, 12%, 13 og 14% — en ekki dugði enn. Það varð að fara enn hærra — 18% segir Mbl. í fyrradaig, og var nú komið fram úr Alþýðubl., sem sagði sama dag 12—13%. í gær tekst Alþýðubl. svo að jafna metin, það er komið me® 18% Iíka. 400 krónurnar verða með sama áframhaldandi orðnar að 30% kauphækkun um næstu helgi. Umhyggja — e?Ja hvaí? Þegar SÍS samdi við Dagsbrún í Reykjavík um 10% kauphækk un sagði Mbl. að það væri skilj- anlegt að SÍS gæti samið við Dagsbrún, — það væru svo fáir verkamenn í þjónustu SÍS, að það yki ekki úfcgjöld þess sem nokkru skipti. SÍS gæti því staðíð undir kauphækkuninni, þótt aðrir atvinnurekendur gætu þa® ekki. Fyrirsögnin á útsíðu Mbl. eftir samninga, hljóðaði svo: „SÍS scmur við 3% verka- manna.“ Nú er komið annað hljóð í strokkinn, en heldur er samræmið litið, sem er kannski von, því það híýtur að fara illa með þankaganginn og sjónina, þegar höfðinu er barið svo sleitulaust og hatramlega við steininn. f gær hrópa bæði stjórnarblöðin: SÍS getur ekki staðið undir kauphækkuninni án taps. Mennirnir hljóta að vera að sleppa sér, því að það er komin allt að því umhyiggja í tóninn — e'ða hvað? Hver var a<S tala um skuldir? Þegar stjórnarflokkarnir mynd uðu ríkisstjórn sína seint á ár- inu 1959, var það ætlun for- ystumannanna að þrengja svo kosti samvinnusamtakanna í landinu, sem frekast væri hægt. f þessu skyni er ákveðið að blása mjög út, hversu skuldugt SÍS væri. Var sett af stað rann- sókn í lánastofnunum landsins (Framhald á 13. síðu).

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.