Tíminn - 15.08.1961, Side 6
TÍMINN, þriðjudaginn 15. ágúst 1961:
M I N N I N G:
Sigurður Sigurðsson
kennari
Hann andaðist 4. ágúst s.l. að
heimili sínu, Austurvegi 13, Seyðis
firði.
Sigurður hafði lokið miklu ævi-
star'fi, er hann féll frá. Hann hóf
kennslustörf að loknu námi, var
kennari við búnaðarskólann á Eið-
um, bændaskólann á Hólum, barna
skiólann á Seyðisfirði og víðar.
Sigurður var vel menntaður og
stórgreindur maður, hægur í fasi
og naut virðingar allra, er höfðu
af honum einhver kynni. Sigurður
unni tungu feðra vorra og þótti
mjög miður, þegar hann heyrði
henni misboðið, hvort sem var í
ræðu eða riti. Sigurður var frem-
uf hlédrægur maður, var laus við
að vilja nokkuð trana sér fram.
Hann las mikið blöð og bækur,
hafði sínar ákveðnu skoðanir,
kunni vel að greina kjarnann frá
hisminu og viiti allt sem til góðs
mátti verða, hvaðan sem það kom.
Sigurður var hinn mesti starfs-
maður, reis ávallt snemma úr
rekkju og var oftast allan daginn
við störf, enda léttleika maður
hinn mesti og heilsugóður. Hin
síðari ár var Sigurður um alllangt
skeið bókavörður við Amtsbóka-
safnið á Seyðisfirði. Rækti hann
það starf af frábærri kostgæfni,
eins og allt það, er hann hafði
með að gera.
Sigurður átti sín æskuspor héf
á Jökuldal, átti heima á Arnórs-
stöðum 'á sínum unglingsárum.
SJÖTUGUR:
Pálmi Pálmason
verkstjóri
Getur það verið, að hinn erni
og lífskröftugi maður, Pálmi hjá
Bergenske, eins og við kölluðum
hann, sé orðinn sjötugur? Jú, það
á að vera rétt, því að hanh er tal-
inn fæddur 14. ágúst 1891 í
Reykjavík. Og í tilefni af því, að
hann er staddur við þessi eykta-
mörk tilveru sinnar, langaði mig
til að senda.honum nokkrar línur.
Pálmi verkstjóri er Húnvetning-
ur að ætt og ólst upp þar nyrðra
frá öðru aldursári, fram yfir
fimmtán ára aldur, að Skinnastöð-
um í Austur-Húnavatnssýslu hjá
Maríu Pálmadóttur föðursystur
sinni og Benedikt Jónssyni. Þar
þróaðist í honum hestaást og hún-
vetnskur andi, sem aldrei mun yfir
gefa hann. Er það þekkt saga, að
þó að rætur landans séu fastar í
sælu sveitanna og fegurð fjallanna,
ílendast menn þar ekki, er heyja
framhald lífs síns á öðrum vett-
vangi. Pálmi fór til Reykjavíkur á
sextánda ári til for'eldra sinna að
sjá sig um og framast. Fór hann
í Flensborgarskólann og aflaði sér
margs konar þekkingar á verkleg-
um sviðum. Höfuðstarf Pálma í
lífinu hefur verið ýmiss konar
verkstjórn við hin óskyldustu fyrir
tæki eða um fjörutíu ára skeið.
1913 hjá vegagerð ríkisins, hjá
Bergenske gufuskipafélaginu í
ellefu ár, enn fremur hjá vitamála
stjórn, Ljósafossvirkjun, Hitaveitu
Reykjavíkur, G. H. Zoega, Al-
menna byggingafélaginu, „Verk-
tökum“ og svo framvegis. Geta
má nærri, að Pálma þekkir fjöldi
manns, sem hann hefur umgengizt,
og það er ekkert ofsagt, þó að
fullyrt sé, að nær undantekningar-
laust dái þeir hann fyrir dreng-
skap og réttsýni.
Frá 1952 hefur Pálmi rekið sjálf
stæðan atvinnurekstur, eftir því
sem það er hægt, við skreiðar-
herzlu og slldarsöltun hér syðra.
Það má segja, að þetta séu nokkrir
punktar í „úthverfunni“ á lífi
Pálma, þó hvergi nærri allar, því
að. félagsmálastörf hans í Verk-
stjórafélagi Reykjavíkur um fjölda
ára skeið og vinna sú, sem legið
hefur í því að byggja upp þau sam
tök félagslega séð, fræða um þau
störf, auka skilning og kunnáttu
á góðri og réttlátri verkstjórn,
halda úti blaði og margt fleira.
Allt krefst þetta vakandi vilja, erf-
iðis og úthalds. En þetta hefur
Pálmi átt í ríkum mæli. Formaður
Verkstjórafélags Reykjavíkur var
hann t. d. í ellefu ár.
Við Pálmi Pálmason höfum ver-
ið kunnugir i fjóra áratugi, rætt
saman og haft gaman af. Það er
hin mannlega hlið, sem kalla
mætti „innhverfan". Maðurinn
Pálmi, sem oft hefur eins mikið
hrifið mig og hin ytri hliðin.
Þegar ræðan berst að umræðuefn-
um, sem ekkd beint tilheyra flötu
rabbi dagsins, t. d. heimspeki, sál-
arfræði, dularfullum fyrirbærum
í náttúrunni, heimspólitík og sögu,
þá hef ég fundið, hve Pálmi er
vakandi, skarpgreindur og mennt-
aður maður, vel lesinn og minnug-
ur, langt fram yfir marga aðra. f
viðbót finnst mér, að hann hafi
þá kosti að vera vinsamlegur hin-
um vinnandi, stritandi manni,
skilji þarfir hans og persónulega
getu. Það gera ekki nema greind-
ir menn .og mannvinir.
Pálmi er fríður maður og föngu
legur, enda lengst af hraustmenni
og heilsugóður. Fyrir nokkrum
árum hlaut hann Carnegie verð-
laun fyrir drengilega björgun frá
drukknun. Hann er hamingjumað-
ur, heimilið gestrisið og oft mann-
kvæmt. Hans ágæta kona, Aðal-
björg Magnúsdóttir frá Seyðisfirði,
er hann kvæntist 1923, hefur ver-
ið honum ómetanlegur förunautur.
Að lokum vil ég bera fram þakk
ir frá mér og mörgum vinum hans
fyrir skemmtilega samfylgd í líf-
inu — ekki sízt frá hinum eftir-
minnilega tíma, er hann var verk-
stjóri við höfnina — og óska hon-
um og heimili hans að Ásvallagötu
16 áframhaldandi farsæld og ham-
ingju.
Har. S. Norðdahl.
Hann þótti snemma hafa gaman af
að glugga í bækur og var sagt um
hann þá, að hann hefði víst getað
orðið "óður fjármaður, ef hann
væri e ; ki alltaf að þessu lestrar-
grafli.
Sigurður taldi sig alltaf vera
Jökuldæling, þótti ávallt vænt um
dalinn og hafði gaman af að fá
þaðan fréttir, þegar tækifæri gafst
til þess.
Mikið og gott bókasafn átti Sig-
urður, hafði miklar mætur á því
og var sérstakur hirðumaður bæði
með bækur sínar og annað.
Kona Sigurðar, Soffía Þorkels-
dóttir, er látin fyrir allmörgum
árum síðan. Dóttir þeirra, Guðný
Helga, varð stoð og stytta föður
síns og tók að sér heimilið, þegar
Soffía féll frá. Hefur hún séð um
allt húshaldið síðan af dugnaði og
skörungsskap og hvergi fatazt í
neinu. Nú þessi síðustu ár eftir að
heilsu Sigurðar tók að smáhnigna
hefur Helga hugsað um föður sinn
af svo mikilli natni og umhyggju-
semi, að fátítt mun vera, ef ekki
einsdæmi. Á hún sinn heiður fyrir
það.
Hér verður engin tilraun gerð
til þess, að skrá neitt um ætt og
uppruna þessa merka manns. Það
munu aðrir mér færari gera það.
Ég hef einungis skráð hér örfáa
punkta úr lífi og starfi frænda
míns, sem að flestra dómi var
samtíðarmönnum sínum til fyrir-
myndar í lífi sínu og starfi.
Sigurður var orðinn háaldráður
maðpr, vaptaði aðems rúman mán-
úð í hírætt, ér hánn féll frá.
Jón Björnsson.
FIMMTUGUR:
Höskuldur Pálsson
sjómaður í Stykkishólmi
Fimmtugur er í dag Höskuldur
Pálsson, sjómaður í Stykkishólmi.
Höskuldur er fæddur í Stykkis-
hólmi, en ólst upp í Höskuldsey
á Breiðafirði, sonur Páls Guð-
mundssonar, er lengi bjó þar, og
konu hans, Helgu Jónasdóttur frá
Helgafelli.
Það má segja um Höskuld eins
og svo marga aðra Breiðfirðinga
SKIPAÚTGERÐ RlKISINS
Herðubreið
austur um land í hringferð 19.
þ. m. Tekið á móti flutningi í dag
til Hornafjarðar, Djúpavogs, Breið
dalsvíkur, Stöðvarfjarðar, Borgar-
fjarðar, Vopnafjarðar, Bakkafjarð-
ar, Þórshafnar og Kópaskers.
Farseðlar seldir árdegis á föstu-
dag.
MeS gömlu verði:
Drengjajakkaföt, frá 6—
14 ára.
Stakir drengjajakkar
Stakar drengjabuxur
Buxnaefni (ull) kr. 185 m
Drengjapeysur
Drengjaskyrtur
Drengjasokkar
Enska Patton ullargarnið
í 5 grófleikum. Litaúrval.
Nælonsokkar, gamalt verð.
Æðardúnssængur
Vöggusængur (æðardúnn)
Danskur hálfdúnn
Sendum gegn póstkröfu.
Vesturg. 12 Sími 13570
Hljóðfæraverzlunin
RÍN
Njálsgötu 23. Sími 17692
Harmoníkur, þýzkar og
ítalskar, úrval
Píanó, Chopin
Gítarar, kr. 415,00.
Mjög vandaðir.
Rafmagnsgítarar o. m. fl.
Greiðsluskilmálar eftir
samkomulagi.
Póstsendum um land allt.
VERZLUNIN RÍN
Simi 17692, Reýkjavík.
í þá daga, ekki sízt eyjamenn, að
hann hafi alizt að hálfu leyti upp
á sjónum, enda jafnan síðan sótt
sína björg í hann. En oft hefur sú
sókm verið hörð og erfið, því að
langróið er úr Rólminum og farið
oftast lítill trillubátur.
Hann hefur nú sum síðari ár tek
ið upp þann forna sið eyjamanna,
að sækja sjó undan Jökli á vetrar-
vertíð og það jafnvel einn á báti.
Hygg ég, að það myndu ekki allir
leika, þrátt fyrir tækni nútímans.
Ég vil við þetta tækifæri færa
Höskuldi mínar beztu árnaðarósk-
ir. — K.B.G.
ÞAKKARÁVÖRP
Hugheilar kveðjur og þakklæti sendi ég öllum vin-
um mínum fjær og nær, sem glöddu mig á sex-
tugsafmælinu 5. ágúst síðastliðinn, og gerðu mér
daginn ógleymanlegan með heimsóknum, blóm-
um, skeytum og gjöfum.
■ Guð blessi ykkur öll.
Sigurborg Þorgilsdóttir,
Kleifárvöllum.
Elskuleg eiginkona mfn,
Jófríður Karlsdóttir
(Elfrfede Krause)
Nýbýlavegi 46 A,
sem andaSist 8. þ. m. á Landsspitalanum, verður iarðsett frá Foss-
vogskirkju miSvikudaginn 16 þ. m. kl. 1,30.
Karl Karlsson
(Karl H. Krause).
JarSarför
Kristínar Guðríðar Magnúsdóttur
frá Glaumbæ
fer fram frá Fossvogskirkju miSvikudaginn 16. ágúst n. k. kl. 10,30.
Blóm afbeSin, en þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er bent á
BlindravinafélagiS.
GySa GuSmundsdóttir, ASalsteinn Guðmundsson,
SigurSur GuSmundsson, Kjartan Jónsson,
Snæbjörn Eyjólfsson.
Innilegar þakkir fyrir auSsýnda samúS vegna andláts og jarSar-
farar
Ólafs Guðmundssonar,
verkstjóra, VíSimel 31.
Bergþóra Jónsdóttir,
dætur, tengdasynir og barnabörn.