Tíminn - 11.10.1961, Side 5

Tíminn - 11.10.1961, Side 5
TÍMINN, miSvikudaginn 11. október 1961. 5 Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Tómas Árnason. Rit stjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb.), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason. Fulltrúi rit stjórnar: 'Tómas Karlsson. Auglýsinga. stjóri: Egill Bjarnason. — Skrifstofur í Edduhúsinu. — Símar: 18300—18305 Aug Iýsingasími: 19523 Afgreiðslusími: 12323. — Prentsmiðjan Edda h.f. — Áskriftargjald kr 55.00 á mán innanlands. í lausasölu kr. 3.00 eintakið Gálgagleði Alþýðu- flokksins „Margur hefur furðað sig á því. að Alþýðuflokkur- inn skuli taka þátt í þeirri siglingu, sem hann er á, með íhaldinu. Alþýðuflokkurinn hefur i þessari sjóferð brotið öll sín gömlu boðorð og kastað hugsjónum jafnaðar- mennskunnar fyrir borð, eins og ónýtu rusli, en gengið á hönd og samlagað sig þeirri stefnu, sem hann var stofnaður til að vinna á móti og iosa allan almenning úr klónum á.“ Á þennan veg hefst forystugrein, sem birtist í Degi í síðastl. forystugrein. Rétt þykir að birta framhald hennar hér á eftir, því að hún varpar glöggu ljósi á það sérkennilega fyrirbæri íslenzkra stjórnmála, sem Alþýðu- flokkurinn er orðinn: „Víst hefur þess orðið vart, að ýmsum embættislaus- um Alþýðuflokksmönnum hefur ekki litizt á þessa sigl- ingu, eftir korti íhaldsstefnunnar. Aftur á móti hafa liðs- oddar Alþýðufl. — þar með taldir blaðamenn hans — talað hreyknir og af miklum móði um, að þeir væru að skapa nýtt og betra þjóðfélag. Ekki hefur heldur skort hátíðleikann yfir sjálfum sér. Á síðum blaða flokksins getur að líta sjálfshól fyrir sparsemi, hófsemi og ráð- deild. Lagfæringar sínar á viðskiptum þjóðarinnar við útlönd hafa þeir annálað, — svo að fáfróðir menn gætu jafnvel haldið, að þeir væru farnir að lána krónu og krónu þeim, sem áður lánuðu íslendingum. Þegar stjórnarandstæðingar hafa leyft sér að vé- fengja orð liðsoddanna um þessa hluti, þá hafa slíkir menn verið af stjórnarliðinu taldir óalandi og óferjandi ósannindamenn. En hvað skyldu „toppkratarnir“ halda þetta lengi út? Hvenær tekur alþýða flokksins í taum- ana, svo að þeir finni til og átti sig? Hvenær sýnir hún þeim í tvo heimana? Stundum kemur fyrir, þegar einhver sér, að allt, sem hann lagði undir, er tapað, að þá rekur hann upp rokna hlátur. Örvinglun brýzt út á marga vegu. Sagt er að þetta sama komi stundum fyrir dauðadæmda menn á aftökustaðnum (Galgehumör). Varla verður leiðari Al- þýðublaðsins sunnudaginn 17. f. m., ,,Annálsbrot“, flokk- aður undir annað en örvinglunarkæti, og ekki heldur leiðari sama blaðs næsta sunnudag á eftir, þar sem farið er háðulegustu orðum um væntanleg hátíðahöld á Akur- eyri í tilefni 100 ára afmælis kaupstaðarins. í „Annáls- broti“ gerir blaðið freyðandi grín að Vesturheimsferð forsetans, Noregsferð forsætisráðherrans, utanferðum Gylfa „til að hyggja að gullforða heimsins“ o. s. frv. Að lokum segir blaðið: „Nú víkur sögunni til heimamanna, sem undu illa sínum hag, að vera nær höfðingjalausir og með öllu veizlulausir í margar vikur. Til að hugga þá var innflutningur bifreiða gefinn frjáls og ein nefnd slegin af. Urðu verkamenn glaðir mjög við þessi tíðindi og undu nú allir vel hag sínum. Er það mál manna, að sjaldan hafi reisn og glæsileiki einnar þjóðar verið meiri en íslendinga þetta haust. Að minnsta kosti ekki, ef reiknað er hlutfallslega miðað við fólksfjölda.“ Hvað upplýsir þessi hlátur Aþýðublaðsins — er þetta „gálgagleði“? Sagt er, að Morgunblaðsmenn hafi orðið fremur lang- leitir þegar þeir lásu þennan leiðara og líklegt má telja að einhvern hroll hafi sett að sumum þeirra. William Heinesen: ----—----- íMyndlist Færeyinga UM ÞESSAR mundir er í Lista- safni ríkisins sýning á færeysk um málverkum og höggmynd- »m. Sýning þessi ber þess glögg merki, að þrátt fyrir fæð sína, eiga Færeyingar hina • snjöllustu listamenn 'á þessu > sviði. Hér er því vissulega um > sýningu að ræða, sem öllum listunnendum ber að sjá. Yfir- / litsgrein sú, sem hér fer á eft- / ir, er eftir færeyska skáldið William Heinesen, en hann er einnig ágætur m'álari og eru fjórar myndir eftir hann á sýn- imgunni. í FÆREYJUM búa aðeins lið- lega 35 þúsund manms, og Fær- eyingar eru því ein hin minnsta þjóð veraldar. Það er von að gestir af öðrum löndum komn ir, séu nokkug vantrúaðir, þeg ar þeir heyra sagt að þetta þjóðarkrili hafi skapað fullgild listaverk. Líklega munu þeir hugsa sem svo að varla geti þar verið um annað að ræð'a en hagleiksverk heimalninga, sem hampað sé af góðfúsum. en litilþægum landsmönnum. Listaverk Færeyinga eru þó ekkert smáræði að vöxtum, og gesturinn þarf eigi heldur að kvíða því að kostir þeirra valdi honum vonbri,gð'um. Sýning færeyskra máiverka og högg- mynda sem haldin var í Kaup- mannahöfn og ýmsum dönsk- um bæjum á vegum danska ríkisins árið 1955, var hvar- vetna talin til meiri háttar við- burða oig um hana fjallað af áhuga í blöðum og timaritum. Hér á eftir verður vikið fá- um orðum að þessari færeysku list. Hún er með nokkrum hætti hliðstæða færeyskra nú- tímabókmennta. En sá er mun ur á ag bókmenntirnar standa föstum rótum á grundvelli sögu og tungumáls. en mynd- listina skortir að mestu leyti undirstöðu þjóðlegrar arfleifð- ar, Á ÚTSKORNUM ÞILJUM úr kórveggjum gamalla timbur- kirkna má sjá menjar um fagr an færeyskan listiðnað — og er þessi útskurður raunar eina skrautig í hinum fátæklegu kirkjum frá tímabilinu eftir siðaskipti. Leifar fornrar fær- eyskrar kirkjulistar voru til 1774 geymdar í Ólafskirkjunni í Kirkjubæ, sem er rómönsk blágrýtisbygging frá öndverð- um miðöldum. Þar var meðal annars skriftastóll frá því um 1300 og úts'kornar stólbríkur með lágmyindum af postulun- um — glæsilegar menjar frá þeim ’tíma er Færeyjar voru sérstakt biskupsdæmi sem laut erkistólnum í Niðarósi. Frá sama tímabili eru einnig rústir hinnar gotnesku dómkirkju í Niðarósi. Frá síðUstu tímum eru frum- stæð'ar skurðmyndir í Skála- víkurkirkju a Sandey Tróndur á Tröð. sem jafnframt var einn bezti kvæðamaður eyjanna skar myndir þessar í rekavið til að prýða þorpskirkjuna sína Hanri var uppi 1846— 1933 Á Sandey bjó einnig Díð rikur i Kárastofu (1802—65) sérvitringur og þjóðsagnahetja, sem einkum fékkst við silungs- veiðar og fugladráp og máiaði litiar skreytimyndir með nokk urs konar gouache-aðferð Hann málaði einvörðungu fugla, op eru flestir þeirra furðuskepn ur miklar sem hann kallar „mánadúfur'1. "" nj-í' S. J. Mikines: Heim frá jarðarför. ÞEGAR SLEPPIR því sem nú hefur verið talið, eru nálega öll listaverk Færeyinga gerð á þessari öld. Fyrstu færeysku landslagsmálararnir voru Niels Kruse (1871—1952) og yngri samtíðarmað'ur hans Joen Wa- agstein. Kruse bjó mestan hluta ævi sinnar í lítilli, sér- kennilegri fjallabyggð sem Eið'i nefnist. Þaðan eru allar mynd- ir hans. Þær bera vitni um hljóðláta ást á náttúrunni og sýna birtu breytilegra árstíða yfir fjöllum og sæ. Svipað er ag segja um Waagstein, sem einnig er ágætur sönglagasmið ur. Næst verða fyrir okkur Jakob Olsen og Sigmundur Pet ersen, báðir fæddir kringum aldamótin. Sá fyrrnefndi héf- ur um langt skeið verið dug- mikill teiknari og málari. Sig- mundur Petersen er mikilvirk- asti málari Færeyja. Hann er veiðimaður og flökkusveinn og hefur lengst ævi sinnar verið á einlægum ferðalögum milli eyjanna. Allir þessir málarar og drátt- listarmenn sem nú hafa verið nefndir, eru hálfgUdings leik- menn í listinni, því að enginn þeirra hefur brotið allar brýr að baki sér og lagt allt í söl- urnar fyrir list sína. Fyrsti fær eyski málarinn sem vogaði að róa út á sextugt djúp listar- innar, var Sámal J. Mikines (f. 1906). Með hanum hefst i raun réttri saga færeyskrar myndlistar. Hann er málari af heilum hug, og ævi hans varð snemma Jakobsglíma á leik- vangi listanna. MIKINES ber nafn heimaeyj- ar sinnar, sem er lítil útey vest ust allra Færeyja, fögur en sæbrött. Þaðan eru nálega all ar landslags- og þjóðlífsmyndir hans Mikines hefur verið kall aður helgimálari — og er það rétt að bví leyti að tilfinningar hans sveifluðust milli uggs og vonar: stundum hafa efasemd- ir og þunglyndi yfirhöndina. ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) / / ) ) > ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) en fyrr en varir kveikir vonin sitt hrifningarijós. Myndir frá hinu „dökka“ tímabUi Mikiness á fjórða tug aldarinmar minna á útfarar- og iðrunarsálma, passíutónlist í litum, jafnt landslags- sem mannamyndir hans. Eniginn færeyskur mál- ari — og líklega fáir málarar þótt víðar væri leitag — hafa lýst sorg og örvæintingu svo sterkum rómi sem Mikines í rnyndum sínum af svartklædd- um ekkjum og syrgjandi lifend um. En þótt segja megi að Mik ines sé trúhneigður í víðtækri merkingu þess orðs, þá birtist trúhneigð hans eigi sem játn- ing neinnar tiltekinnar trúar- stefnu, hún er öllu heldur heið in og frumstæð og birtist í mörgum nýrri myndum hans sem nokkurs konar sóldýrkun. INGÁLVUR av Reyni er lið- ugum áratug ynigri en Mikin- es. Hann lætur litina tala í olíu málverkum sínum, og þar er ekki talað neitt tæpitungumál. Myndefni hans eru hversdags- leg og yfirlætislaus. Oft málar hann húsin í ættbæ sínum Þórs höfn, landslag í umhverfi bæj arins eða hluti innanhúss, stöku si-nnum andlitsmyndir manina. En þessir hversdags- legu hlutir birtast á myndum hans eins og hrifningarsýnir. Ólíkur öllum öðrum er Stef- an Danielsen, þrítugur málari frá Nólsey. f myndum hans sameinast innilegt rausæi og óskeikul listamannssjón sem ætíð fullnægir kröfum sannrar listar Stefan Danielsen er al- gerlega sjálfmenntaður. Hanm lét fyrst til sín taka fyrir fáum árum og hefur ekki brugðizt þeim björtu vonum sem þá voru vig hann tengdar. f FLOKKI núlifandi listamanna færeyskra eru þrjár konur. Birgitta Johannesen er fædd í Vestmanna Hún hefur einkum málað vatnslitamyndir, fíngerð ar og fágaðar, Elinborg Liitzen Framhald á 15. síðu.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.