Tíminn - 16.12.1961, Page 9

Tíminn - 16.12.1961, Page 9
9 ★ JÖLAHLAÐ TÍMANS 1961 ★ Þcssar tvœr borðskreytingar eru a'ð miklu leyti gerðar úr efnum, sem auð- velt er að nálgast sér að kostnaðarlitlu. Aðventukransinn er oflnn úr tágum festum i trébotn. Málmpappír er lagður í botninn og siðan raðað mosa og sortu- lyngi og grenikönglum I körfuna. Fjór- um kertum stungið niður í mosann. Hln skreytingin er hraunsteinn með sínum eðlilega mosagróðri að mestu, aðeins örlitlu af hreindýramosa hag- raett á honum til skrauts. Kertið brætt á sjálfan steinlnn. Bak við steininn eru grenigreinar með könglum og strá af melgresi fest i blómagrind mótunar- leir eða gibs. Hver og einn getur raðað skrauti á steintnn eftir vild, t.d. fugl- um úr grenikönglum eða einhverju i líkingu við litlu engilsmyndina, sem þarna er, með luktina i hendinni. Fallegir steinar gefa ótæmandi mögu- ieika til skreytlnga, bæði einlr sér og með mosa, greni, mislitum kúlum o.s. frv. Sortulyng er einnig ágætt til skreyt- inga. Úr því má binda lengjur til að skreyta með borð eða festa. á veggi Skemmttlegt er að binda kransa úr sortulyngi eða greni, skreyta þá með mislitum böndum og hengja á útt- dyrnar. Jólaskraut má útbúa með ýmsu móti og þarf ekki allt að kosta stórfé. Hér er mynd af trjágrein, sem fest er með glbsi eða mótunarleir í blómapott eða skál og síðan skreytt með mislitum fuglum, sem búa má til úr pappír, eða pappa og grenikönglum, eins og sýnt er hér að neðan. Þeir fuglar eru búnir þannig til, að haus er skorln út úr korkl og tvetr svartir títuprjónar hafðtr í augu. Stél og vængir eru klippt út úr pappa, máluð í skrautlegum litum og límd á milli laga í könglunum. Svo er hausinn málaður i samræmi við vængina. Mjóum vír er vaf- Ið utan um könglana, svo að hægt sé að festa fuglana á greinarnar. Þá er önnur mynd af gretn, sem skreytt er með fuglunum. Er henni stungið nlður i stétt úr plastfrauðl og snjókarl úr sama efni settur á stéttina. Úr plastfrauði má skera marga skemmti- lega hluti til skrauts. Með mlslitum límböndum má útbúa skemmtllega skreytingu með því að iíma þau f múnstur á gluggarúðu eða dökkt spjald, sem þá má hengja upp á veg. Gott er að draga með krit munstrið á grunnlnn og mæla fyrlr límböndunum, svo að þau verði nógu regluleg. Á þess- arl mynd er hugsað að tréið til vlnstri sé hvitt, það næsta blátt og það þriðja gult, og þessum litum blandað með rauðu f stjörnurnar. EiNFALDAR OG ÓDÝRAR SKREYTINGAR FYRIR JÓLIN t

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.