Tíminn - 20.02.1962, Qupperneq 9

Tíminn - 20.02.1962, Qupperneq 9
Samband ísi. samvinnufélaga Jakob Frímannsson Hinn 20. febrúar 1902 var Samband íslenzkra sam- vinnufélaga stofnaS á Yztafelli í Köldukinn. Á þeim 60 árum, sem síðan eru liðin, hefur Sambandið eflzt og vaxið í hlutfalli við vöxt og viðgang þjóðarinnar og í krafti þeirrar hugsjónar, sem að stofnun þess stóð. Kaupfélagsfólkið í landinu hefur með samstöðu sinni og samvinnu verið því sú máttarstoð, sem aldrei hefur brugðizt. Á þessum merku tímamótum sendi ég kaupfélags- stjórunum og konum þeirra, stjórnum kaupfélaganna, starfsfólki félaganna og hinum mikla fjölda kaupfélags- fólks um land allt hugheilar kveðjur og þökk og óska samvinnufélögunum á íslandi áframhaldandi gengis og 9*fu- Jakob Frímannsson. Samband ísl. samvinnufélaga var stofnaS að Yztafelli í S.-Þing- eyjarsýslu 20. febrúar 1902 — á 20 ára afmæli Kaupfélags Þingey- inga. Þann dag komu þar saman fiijltrúar þriggja kaupfélaga í Þingeyjarsýslu —Kaupfélags Þing eyinga í Húsavík, Kaupfélags Norð ur-Þingeyinga á Kópaskeri og Kaupfélags Svalbarðseyrar. Þessir fulltrúar stofnuðu Sambandskaup- félag Þingeyinga. Undirbúnings- fundur hafði verið haldinn að gei ð fjárhagsáætlun, er nam 1250 kr. Þar af skyldi verja þúsund krónum til utanferðar Péturs Jénssonar í verzlunarerindum. Þetta var mjór en mikils vísir eins og sextíu ára saga hefur glögglega sýnt, og verður hún ekki rakin hér. Fyrstu árin stóðu þingeysku félögin ein að Sam- bandinu, en 1907 komu Kaupfélag Eyfirðinga, Kaupfélag Skagfirð- inga og Kaupfélag Fljótdalshér- e.ðs í hópinn og síðan hvert af ara Erlendur Einarsson Draflastöðum í Fnjóskadal haust- ið áður. Fulltrúar á þessum fyrsta „sam bandsfundi" að Yztafelli voru Pét- ur Jónsson á Gautlöndum, Stein- gn'mur Jónsson, sýslumaður, Sig- urður Jónsson í Yztafelli, Árni Kristjánsson í Lóni, Friðbjörn Bjarnason á Grýtubakka og Helgi Laxdal í Tungu. Fleiri voru þar og komnir, þótt ekki væru fulltrú ar, meðal annarra Benedikt Jóns- son á Auðnum. Samþykkt voru lög fyrir sam- bandskaupfélagið og 'rætt um sam ciginleg innkaup. Pétur Jónsson var kjörinn framkvæmdastjóri og i.ðru og 1910 eru samtökin orðin Samband íslenzkra samvinnufélaga ug skipuðu þá í fyrsta sinn þrír menn stjórn þess, Pétur Jónsson, Sigurður Jónsson í Yztafelli og Hallgrímur Kristinsson. Starfsemin óx hröðum skrefum, félagið kom upp bækistöðvum í Reykjavík og setti á stofn skrif- stofur erlendis, og sambandið varð með vissum hætti hyrningar- steinn samvinnustarfsins í land- inu og kaupfélögin gengu i það eitt af öðru. Hallgrímur Kristins- ;on var forstjóri þess og driffjöð- ur. Brátt var sambandinu skipt í ýmsar deildir. Pétur Jónsson var formaður sambandsstjórnar til 1922 er hann lézt. Þá tók við Ól- afur Briem, en að honum látnum, 1925, Ingólfur Bjarnason í Fjósa- tur.gu og Einar Árnason eftir hans. Þá tók Hallgrímur Kristins- insson, er lét af formennsku fyrir fáum árum, en núverandi formað- ur er Jakob Frímannsson, kaupfé- lagsstjóri. Fyrstu árin fór formennska og framkvæmdastjórn saman og gegndi því Pétur Jónsson og stund iim Stein,grímur Jónsson._ bróðir hans. Þá tók Hallgrímur Áristins- son við forstjórastarfi en að hon- um látnum Sigurður Kristinsson og þá Vilhjálmur Þór, en núver- andi forstjóri er Erlendur Einars- son. Starfsemi Sambands ísl. sam- vinnufélaga er nú svo mikil og margþætt, að engin tök eru á að gera hér neina viðhlítandi grein fyrir þeim þáttum öllum. Síðasta áratuginn hefur starfsemin mjög færzt í aukana, eldri deildir vax- ið mjög og margvísleg ný starf- semi bætzt við. Aðalstöðvar Sambandsins og deilda þess í Reykjavík eru að sjálfsögðu orðnar mjög viðamiklar í samræmi við hina miklu starf- semi. Útflutningsdeildin hefur , mjög færzt í aukana síðasta ára- tuginn og aukið þýðingarmiklar í áðstafanir erlendis til vörusölu. A siðustu árum hefur sölumeðferð , sambandsins á sjávarafurðum i margfaldazt og er það í samræmi | við stóraukna hlutdeild samvinnu- féiaga um allt land í sjávarútvegi og vinnslu sjávarafla. í innanlands sölu landbúnaðarvara hafa orðið stórstígar framfarir hin síðustu ár. i Svipað má raunar segja um aðrar; deildir, svo sem innflutningsdeild, í véladeild, iðnaðardeild o. fl. Iðnað ur samvinnumanna, einkum á Ak- ureyri hefur tekið risaskref, og i j þar fara nú enn fram miklar bygg jn^ar til stækkunar og nýrekstrar. Skrifstofur S. í. S. erlendis hafa aukið starfsemi sína mjög, en það starf er i'aunar háð nokkrum sveifl um eins og erlend viðskipti. Skipadeild S. í. S. hefur farið sístækkandi og skipastóll sam- vinnumanna mikill og góður — 7 skip. Tryggingastarfsemi á vegum Sambandsins hefur verið í örum vexti og átt sívaxandi vinsældum að fagna, enda hafa þar komið fram þýðingarmikil nýmæli til hagsbóta fyrir tryggjendur. Sam- vinnuskólinn starfar nú með mikl um ágætum í Bifr'öst í Borgar- firði, þar sem einnig er rekiff inyndarlegt gistihús á sumrin og Telkningln er af húsinu í Yztafelll, þar sem SÍS var stofnaS. (Framhald á 15 síðul | ingarsúla um stofnun sambandslns var reist þegar SÍS var — Minn- fimmtugt. eymga, Sambandi islenzkra sam» í landmii, bngheilar árnaðaróskir AðalstöSvar Sambands ísl. samvlnnufélaga í Reykjavik, Sambandshúslð. TÍMINN, þriffjudaginn 20. febrúar 1962 d

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.