Tíminn - 30.03.1962, Blaðsíða 3

Tíminn - 30.03.1962, Blaðsíða 3
LAUSUM HALA NTB—Algeirsborg, 29. marz. íbúar Bab el Oued, bardög- um hrjáða hverfisins í Algeirs- borg, komu í dag hikandi og skimandi út úr húsum sínum, er létt var sex daga löngu um- sátri um hverfið. Herlögreglan hafði um nóttina látið fjarlægja vegatálmanirnar, en við göturnar, sem lágu inn í Serkja hverfið Climat de France, rétt við Bab-el-Oued, var enn haldinn strangur vörður. Fyrst í morgunsárinu sáust mest konur og miðaldra menn á götun- um. Margt ungt fólk er enn i varð- haldi öryggislögreglunnar, grunað um sambánd við leyniherinn OAS. Göturnar illfærar Hverfið bar greinilega merki bar Fyrir framan minnismerki látinna í Algeirsborg, var í fyrradag, þegar þessi mynd var tekin, hafður mikill hervörður. Va.r búizt við, að OAS- rnenn mundu efna til einhverra upp- | þota í sambandi við jarðsetningu borgaranna, sem féllu í bardögum síðustu daga, Ekki kom þó til átaka um daginn, en menn báru blómsveigi að minnjsmerkinu. HANDTÖKUR I SYRLANDI NTB—Amman, 29. marz. Herforingjastjórnin í Sýr- landi, sem tók völdin í landinu með byltingu á miðvikudag- inn, kvartaði í dag yfir því, að menn misskildu ástæður bylt- ingarinnar. Hún neitaði því, að landið væri í annað sinn að falla í arma Egyptalands. í yfirlýsingunni er veitzt að tækifærissinnum, sem útbreiði orðróm um, að byltingin tákni skref aftur til Arabiska sambands- lýðveldisþis og sé svik við sept- emberbyltinguna í haust, þegar Sýr'land sagði sig úr þvi bandalagi. Segir í yfirlýsingunni, að tekið verði með harðri hendi á öllum lygasöguberum. Damaskus í herkví Mikið var um handtökur í Dam- Skrifsfofur miðstjórnar Framsóknarffokksins ERU í Tjamargötu 26, II. hæð Símar: 16011 og 19613.' Opið alla virka daga á venjulegum skrifstofutíma. Skrifstofur Fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna í Reykjavík ERU í Tjarnangötu 26. Símar: 15564, 24758, 24197. — Skrif- stofurnar eru opnar frá kl. 9—12 og 1—5. Laugardaga kl. 9—12. Á mánudögum og föstu dagskvöldum verða skrifstof- urnar opnar frá kl. 8,30—10 síðdegis. — Er sérstaklega ósk- að cftir því við fólk úr Iaun- þegasamtökunum, að það hafi samband við skrifstofana á þessum tíma. askus í dag. Margir þingmenn og einnig nokkrir ráðherrar hafa ver- ið handteknir. Borgin er stöðugt í herkví og hermenn aka á bryn- vögnum um göturnar. Fleiri en tveir menn mega ekki standa í hóp á gangstéttunum, en útgöngu- AFTUR- BATA ÚTGÁFA Blaðinu hefur nýlega borist 4;— 5. hefti Birtings árið 1961. Þar sem það er ekki vaninn, að Birtingur komi út nema fjórum sinnum á ári, aflaði Tíminn sér upplýsinga um það, hvernig á því stæði, að gefin voru út fimm hefti fyrir árið 1961. Sú skýring var gefin, að kaupendur ritsins hefðu verið ó- ánægðir með þriðja heftið, en í því voru einungis Ijóð eftir Jóhann Hjálmarsson, og því liefði það ráð verið tekið að láta það vera ógilt og bæta kaupendum það upp með tvöfaldri afturbataútgáfu, 4—.5. hefti. BORG.AR.AFUNDUR í kvöld, föstudag, verður hald- inn borgarafundur í samkomuhús- inu á Akureyri og verður þar rætt um Efnahagsbandalagið. Fundurinn hefst kl. 9 og liafa þeir Eysteinn Jónsson og Helgi Bergs framsögu. bannið hefur verið afnumið. Síma- samband komst í dag á við ná- grannalöndin og landamærin voru opnuð að nokkru leyti. Var 400 ferðamönnum hleypt út fyrir þau. Ekki ábyrgir í dag var dreift út fjölrituðu dreifibréfi i nafni fyrrverandi for- sætisráðherra landsins, Maarouf Dawalibis. Þar mælir hann á móti því, að byltingarhershöfðingjarnir séu ábyrgir menn; þeir hafa sett forsetanri af, leyst upp þingið og handtekið marga menn af persónu- legum og óheiðarlegum ástæðum, og séu þessar aðgerðir ekki í sam- ræmi við' vilja þjóðarinnar. daganna, sem þar hafa átt sér stað, síðan vopnahléið var samið milli frönsku stjórnarinnar og Serkja. Rafmagnslínur sporvagn- anna voru rifnar niður, gangstétt- irnar voru stráðar glerbrotum og tréflisum og ótölulegur fjöldi bíla var eyðilagður af skothríð eða klesstir af skriðdrekum. Það var því ekki unnt að hindra umferðar- öngþveiti, þegar göturnar fylltust aftur af akandi og fótgangandi fólki. Óþefur af sorpi Á aðalbrautinni Avenue de la Bouzeareah var megnasti óþefur af rusli og sorpi, sem ekki hefur verið hreinsað siðan á föstudaginn í fyrri viku. Rotturnar þutu fram og aftur í hópum á milli öskukarl- anna, sem unnu að því að hreinsa göturnar. Mjög miklu var í dag rænt úr verzlunum. Á götunum var fjöldi dreifi- blaða, þar sem skorað var 3 íbú- ana, að taka afstöðu gegn þeim, sem skutu á hermennina, skorað á þá að minnast hinna látnu og láta þá vera síðustu fórnardýrin. Nákvæmar húsleitir Á heimilunum voru greinilega merki nákvæmra húsrannsókna ör- yggislögreglunnar. Tæmt hafði verið úr matvælasekkjum og út- vörp og sjónvörp voru rifin upp. Kvöldið' áður hafði dálítið borið á óróa í nágrenni líkhússins, þar sem lík hinna föllnu borgara voru geymd. Götuljós voru slökkt á tólfta tímanum, en þegar likin voru flutt í burtu, kveiktu menn á blysum í líkfylgdinni. 200 þús. sekt Bæjarfógetinn í Vcstmannaeyj- um, Torfi Jóhannsson, kvað nýlega tipp dóm yfir skipstjóranum á brezka togaranum Wire Mariner, sem tekinn var í landhelgi á dög- unum. Fékk skipstjórinn 200 þús- und króna sekt, og var afli og veið- arfæri gert upptækt. Sett var trygging að upphæð 350 þúsund krónur, og sigidi togarinn síðan brott. Rússar sam- þykkja tvær USA- tillögur NTB—Geneve, 29. marz. Sovétríkin samþykktu í dag á afvopnunarréðstefnu 17 ríkjanna í Geneve tvær tillög- ur Bandaríkjanna. Eiga þessar tillögur að falla inn í væntan- legan, umfangsmikinn alþjóða- samning um afvopnun. Var andinn meðal sendinefndanna mjög góður í dag og ríkti tals- verð bjartsýni eftir daginn. Tillögurnar, sem samþykktar voru, fólu í sér, að álþjóðasamn- ingurinn skyldi haldinn og forð azt að skapa spennu í sambandi við hann, svo og að afvopnunin skyldi fara þannig fram, að allir geti treyst henni, og deilur verði leyst- ar í samræmi við sáttmála Samein uðu þjóðanna. ví dag náðist samkomulag á ráð stefnunni um, að tillögur um upp- haf afvopnunarsamningsins skyldu vera komnar til formanna ráð- stefnunnar fyrir mánudag og þeir, Bandaríkjamaður og Rússi, skyldu síðan semja uppkast fyrir miðviku- dagsfundinn. Vandamálið um eftirlit Kcnnedy Bandaríkjaforseti hélt blaðamannafundi í gærkvöldi og sagð'i þá, að vandamálið um eftir- lit með afvopnun og kjarnorkutiþ raunabanni væri greinilega orðið hin mikla hindrun fyrir samningi milli austurs og vesturs. Sagði Kennedy, að Bandarikin gætu ekki fallizt á neinn samning, þar sem ekki væri gert ráð fyrir virku eftir- liti með því, að ákvæðum hans yrði framfylgt. FRONDIZIIFÁNGELS! (Framhald af 1. sfðu). landhers, flughers og flotá reyndu greinilega að koma á fót borgara- legrf stjórn. Þeir sátu í allan dag á fundum með áhrifamiklum stjómmálamönnum til þess að finna mann, sem getur tekið að sér forsetatign innan ramma stjórnarskrárinnar. Fylkisstjórar landsins ætluðu að halda með sér fund í þinghöllinni í kvöld til þess að ræða ástandið. Embættismenn segjn upp Ambassador Argentínu í Banda ríkjunum hefur sagt af sér og er búizt við að fleiri sendiherrar Argentínu geri slíkt hið sama, þeir sem Frondizi hefur útnefnt. Yfirmaður ríkislögreglunnar hef- ur sagt af sér, og hefur yfirmað- ur í sjóhemum tekið við stöðu hans. í dag var talið sennilegt, að forseti öl’dungadeildarinnar, sem ekki vildi taka við forsetaembætt inu, mundi kalla saman þingið á aukafund til þess að rannsaka, hvaða rétt hershöfðingjarair höfðu til aðgerða sinna. Ef hann lætur verða af því, er ekki vafi á, að hershöfðingjarnir leysa upp þingið þar sem stuðningsflokkur Frondizis, Róttæki flokkurinn, hef ur meirihluta í báðum deildum þingsins. Talsmaður Bandaríkjastjórnar segir, að stjórnmálasambandið við Argentínu sé rofið á meðan rikis- stjórnarlaust er í landinu, en þar sé ekki um slit á stjórnmálasam- bandi í venjulegum skilningi að ræða. Stjórn Uruguay hefur viður kennt væntanlega stjórn Argen- tínu. Yfirlýsing hershöfðingjanna Um hádegisbilið kom út yfir- lýsing í Buenos Aires undirrituð af yfirmönnum hersins, Paul Poggi frá landhernum, Antonio Cayo Alsino frá flughernum og Augustin Pena frá sjóhemum. — Þar segja þeir, að byltingin hafi verið gerð til þess að vernda stjórnarskrá landsins og lýðræðis skipulag landsins. Þeir hafi fjar- lægt forsetann til þess. að bjarga stjórnarskránni og endurvekja traustið á undirstöðuatriðum hennar. Peronisfar þinga Juan Peron, fyrrum einræði.s- herra í Argentínu, situr nú í Madrid á Spáni á fundum með Alberto Iturbe, formanni Peron ista, og fleiri mönnum þeirra stjórnmálasamtaka. Er talið að brátt verði haldinn þar fundur meðal allra greina hreyfingar Peronista til þess að ræða hið nýja stjórnmálaástand í Argen- tínu. T í M I N N, föstudaguf 30. marz 1962. 3

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.