Tíminn - 05.04.1962, Page 16
Fimmtudagor 5. apríl 1962
80. tbl. 46. árg.
Ytrí-Rangá mesta
veiðiá Suðurlands?
Austur í Rangárvailasýslu
eru nú ráSagerðir um miklar
Iramkvæmdir í fiskrækt. Er
fyrirhugað að gera fiskveg
,um Árbæjarfoss, sem er í
Ytri-Rangá skammt fyrir ofan
Hellu, og þrjá smærri fossa
eða flúðir í ánni. Með fram-
kvæmdum þessum yrði sjó-
gengnum fiski auðvelduð leið
inn á um 40 km langt svæði
í Ytri-Rangá. Gæti fiskurinn
þá gengið upp ána allt fram
fyrir Galtalæk, sem er efsti
bær í Landmannahreppi. Marg
ar ár og lækir renna í ána á
þessu svæði. Svo sem kunn-
ugt er, er Ytri-Rangá þriðja
stærsta bergvatnsáin á Suð-
urlandi. Eru Sogið og Brúará
stærri.
Þessar upplýsingar komu m.a.
fram á aðalfundi Veiðifélags Rang
æinga, sem haldinn var fyrir
skömmu. Veiðifélagið nær yfir
vatnsvæði Rangánna, þ.e. Eystri og
Ytri-Rangár, Þverár og Hólsár. A
fundinum urðu töluverðar umræð-
ur um veiðimálin á vatnasvæðinu.
Skýrt var frá athugunum á fisk-
vegagerð um Árbæjarfoss og þrjá
smærri fossa eða flúðir í Ytri-
Rangá. Greint var og frá kostnað-
aráætlun um þessar framkvæmd-
ir. Er talið að það muni kosta á
Á Zandvoortströnd í Hollandi skolaöi nýlega á land undarlegri sandsteinsmynd. Eins og sjá má á myndinni,
líktist steinninn helrt tilhöggvinni súlu, þegar búið var a3 hreinsa hann, eins og hægt var. Ekki er enn vitað
um upþruna þessarar stelnmyndar.
I SVALLHUSI
Föstudagskvöldið í síðustu
viku var lögreglan kvödd til
að skakka leik Ameríkana og
íslenzkra stúlkna í húsi vest-
arlega í vesturbænum.
Þetta fólk hafði safnazt saman
í íbúð efst í húsinu, en húsráð-
endur neðra kunnu illa atferli þess
og hringdu á lögregluna.
Nær tugur stúlkna og fleiri
Ameríkanar og nokkrir íslenzkir
piltar, þar á meðal sá, sem býr
þar sem samkundan var haldin,
voru flutt á lögreglustöð'ina.
Margt af þessu fólki var nokkuð
ölvað, en sterkur grunur lék á,
að fleiri örvandi meðul en áfengi
hefðu verið höfð um hönd. Lög-
reglan rannsakaði íbúðina og fann
þar mikið af pilluglösum, nýjum
og gömlum, tómum og með inni-
haldi. Þó, mun ekki hafa verið' um
þekkt örvunar- eða deyfilyf að
ræða.
Fólk þetta þrætti fyrir neyzlu
deyfilyfja og engin lyf fundust á
því, er komið var á lögreglustöð-
ina. Húsráðandi, sem fluttur var
á stöðina, er hins vegar þekktur
fyrir deyfilyfjaneyzlu og hefur
þrásinnis komizt undir hendur lög
reglunnar upp á síðkastið. Hann
var fluttur heim aftur í þetta
sinn. Lögreglan af Keflavíkurflug-
velli hirti sína menn og fór með
þá. Lögreglan hér geymdi tvö
stykki um nóttina en hinum var
sleppt.
Nokkrar stúlknanna, sem áttu
hlut að máli, eru kunnar fyrir
svipað' atferli. Þær eru flestar
ungar, þó engin undir sextán ára
að talið er. ; r ramnaio ,o 1:1 -iöu
Hærrí
aldur
Frá og með 1. apríl s.l. gengu
í gildi nýjar reglur um afslátt
af fargjöldum námsmanna með
flugvélum Flugfélags íslands og
Loftleiða á flugleiðum félaganna
milli íslands og annarra Evrópu-
landa, en sams konar breytingar
vour nýlega gerðar á flugtöxtum
Loftleiða milli íslands og Banda-
ríkjanna.
Breytingar eru þær, að aldurs-
takmarkið, sem áður var 26 ár,
hækkar um fimm ár, og eiga því
námsmenn fram yfir þrítugt kost
þessara kjara, en fargjaldaafslátt-
ur námsmnna er 25% frá venju-
legu tvímið'a fargjaldi.
i Farmiðar giltu áður einungis í
eitt ár, en eru nú til tveggja ára.
Þá er það nýmæli, að makar og
börn námsmanna njóta sömu kjara
og þeir.
Áður en ívilnun er veitt, verð-
ur námsmaður að sýna skilríki, er
sanni að hann hafi fengið skóla-
vist þar sem hann hyggst stunda
nám að minnsta kosti eitt kennslu
misseri.
(Frá Flugf. Isl. og Loftl.)
Ný götuaöfn í borginni
A síðasta fundi borgarráðs voru
bornar fram tillögur um nöfn á
nokkrum nýjum götum hér í borg.
Þar var samþykkt að gatan vest
an og samhliða Kaplaskjólsvegi
skuli lieita Meistaravellir. Bornar
voru fram tillögur um heiti á
tveimur götum í Örfirisey, skyldi
sú nyrðri heita Eyjargata, en sú
syrði Hólmsgata, og var það sam-
þykkt.
Næst voru teknar fyrir tvær
götur austan Vatnsgeymis þvert á
Iláteigsveg. Sú vestari heitir nú
Vatnsholt, en sú eystri Iljálmholt.
Einnig voru 6 götur í Blesugróf
skirðar sem hér segir: B-gata verð
ur nefnd Blesugróf, A-gata Stjörnu
gróf, hluti af Vatnsveituvegi heit-
ir Flugugróf. Þá yar ný gata aust-
an og norðan Blesugrófar og þvert
á hana nefnd Jöldugróf. Ný gata
milli Blesugrófar og Flugugrófar
á nú að heita Bleikargróf, og að
lokum lieitir gata suður úr Flugu-
gróf austan Blesugrófgar Toppu-
gróf.
Tillaga var einnig borin fram
um að gata í vestur frá Hofsvalla-
götu sunnan við Sundlaug Vestur-
bæjar skuli hljóta heitið Gota-
skjól, en ákvörðun í því máli var
frestað.
fjórða hundrað þúsund krónur að
gera fossana fiskgenga. Stofnuð
hefur verið veiðifélagsdeild við
ána ofan Árbæjarfoss, og er for-
maður hennar Sigurjón Pálsson,
Galtalæk.
Leitað tilboða
Á fundinum var samþykkt að
leita eftir tilboðum í veiðina á
vatnasvæðinu. Ennfremur að æskja
tilboða í byggingu fiskveganna og
ræktun fisks. Lögðu fundarmenn
áherzlu á, að þessum athugunum
yrði hraðað sem mest.
Formannsskipti
Stjórnarformannsskipti urðu nú
í Veiðifélagi Rangæinga. Agúst
Guðmundsson, Stóra-Hofi, sem
verið hefur formaður félagsins um
10 ára skeið', baðst eindregið und-
an endurkjöri. Formaður var kos
inn Sigurbjartur Guðjónsson, Há-
varðarkoti í Þykkvabæ. Voru frá-
farandi formanni þökkuð ágæt
störf í þágu félagsins á liðnum
árum.
r
IFYRSTA
LAUNA-
FLOKKI!
ÞaS getur veriö dálítiS óvar-
legt aS tala um laun fólks, og
sjaldan vel þegiS af þeim, sem
launin fá. Hins vegar geta far-
iS saman þeir sigrar og laun,
aS tíSindum þyki sæta langt
út yfir alla þagmælsku. Og
þessi formáli á viS Völu
Kristjánsson, sem vakiö hefur
mikla hrifningu fyrir leik sinn
í My Fair Lady og stendur sig
þar meS afbrigSum vel. Eins
og fólki er kunnugt, þá hefur
hún aldrei komiS á sviS áSur,
en þess gætir ekkl í leik henn-
ar eSa söng. ÞaS má kalla
eSlilega afleiSingu þessa, aS
hún mun nú vera ein af þrem
hæsf launuSu „stjörnum" okk
ar meS um og yfir þúsund
krónur í kaup fyrir sýningu.
ASrir sem fylla þennan flokk
eru óperusöngvararnir Krist-
inn Hallsson og GuSmundur
Jónsson. ASrir listamenn hér-
lendlr munu aS vísu vera
launahærri þegar þeir koma
fram einir, en fyrrgreind laun
munu vera þau hæstu sem
greidd eru, þegar listamenn
taka þátt í leik- eSa óperu-
sýningum.