Tíminn - 05.04.1962, Síða 16

Tíminn - 05.04.1962, Síða 16
Fimmtudagor 5. apríl 1962 80. tbl. 46. árg. Ytrí-Rangá mesta veiðiá Suðurlands? Austur í Rangárvailasýslu eru nú ráSagerðir um miklar Iramkvæmdir í fiskrækt. Er fyrirhugað að gera fiskveg ,um Árbæjarfoss, sem er í Ytri-Rangá skammt fyrir ofan Hellu, og þrjá smærri fossa eða flúðir í ánni. Með fram- kvæmdum þessum yrði sjó- gengnum fiski auðvelduð leið inn á um 40 km langt svæði í Ytri-Rangá. Gæti fiskurinn þá gengið upp ána allt fram fyrir Galtalæk, sem er efsti bær í Landmannahreppi. Marg ar ár og lækir renna í ána á þessu svæði. Svo sem kunn- ugt er, er Ytri-Rangá þriðja stærsta bergvatnsáin á Suð- urlandi. Eru Sogið og Brúará stærri. Þessar upplýsingar komu m.a. fram á aðalfundi Veiðifélags Rang æinga, sem haldinn var fyrir skömmu. Veiðifélagið nær yfir vatnsvæði Rangánna, þ.e. Eystri og Ytri-Rangár, Þverár og Hólsár. A fundinum urðu töluverðar umræð- ur um veiðimálin á vatnasvæðinu. Skýrt var frá athugunum á fisk- vegagerð um Árbæjarfoss og þrjá smærri fossa eða flúðir í Ytri- Rangá. Greint var og frá kostnað- aráætlun um þessar framkvæmd- ir. Er talið að það muni kosta á Á Zandvoortströnd í Hollandi skolaöi nýlega á land undarlegri sandsteinsmynd. Eins og sjá má á myndinni, líktist steinninn helrt tilhöggvinni súlu, þegar búið var a3 hreinsa hann, eins og hægt var. Ekki er enn vitað um upþruna þessarar stelnmyndar. I SVALLHUSI Föstudagskvöldið í síðustu viku var lögreglan kvödd til að skakka leik Ameríkana og íslenzkra stúlkna í húsi vest- arlega í vesturbænum. Þetta fólk hafði safnazt saman í íbúð efst í húsinu, en húsráð- endur neðra kunnu illa atferli þess og hringdu á lögregluna. Nær tugur stúlkna og fleiri Ameríkanar og nokkrir íslenzkir piltar, þar á meðal sá, sem býr þar sem samkundan var haldin, voru flutt á lögreglustöð'ina. Margt af þessu fólki var nokkuð ölvað, en sterkur grunur lék á, að fleiri örvandi meðul en áfengi hefðu verið höfð um hönd. Lög- reglan rannsakaði íbúðina og fann þar mikið af pilluglösum, nýjum og gömlum, tómum og með inni- haldi. Þó, mun ekki hafa verið' um þekkt örvunar- eða deyfilyf að ræða. Fólk þetta þrætti fyrir neyzlu deyfilyfja og engin lyf fundust á því, er komið var á lögreglustöð- ina. Húsráðandi, sem fluttur var á stöðina, er hins vegar þekktur fyrir deyfilyfjaneyzlu og hefur þrásinnis komizt undir hendur lög reglunnar upp á síðkastið. Hann var fluttur heim aftur í þetta sinn. Lögreglan af Keflavíkurflug- velli hirti sína menn og fór með þá. Lögreglan hér geymdi tvö stykki um nóttina en hinum var sleppt. Nokkrar stúlknanna, sem áttu hlut að máli, eru kunnar fyrir svipað' atferli. Þær eru flestar ungar, þó engin undir sextán ára að talið er. ; r ramnaio ,o 1:1 -iöu Hærrí aldur Frá og með 1. apríl s.l. gengu í gildi nýjar reglur um afslátt af fargjöldum námsmanna með flugvélum Flugfélags íslands og Loftleiða á flugleiðum félaganna milli íslands og annarra Evrópu- landa, en sams konar breytingar vour nýlega gerðar á flugtöxtum Loftleiða milli íslands og Banda- ríkjanna. Breytingar eru þær, að aldurs- takmarkið, sem áður var 26 ár, hækkar um fimm ár, og eiga því námsmenn fram yfir þrítugt kost þessara kjara, en fargjaldaafslátt- ur námsmnna er 25% frá venju- legu tvímið'a fargjaldi. i Farmiðar giltu áður einungis í eitt ár, en eru nú til tveggja ára. Þá er það nýmæli, að makar og börn námsmanna njóta sömu kjara og þeir. Áður en ívilnun er veitt, verð- ur námsmaður að sýna skilríki, er sanni að hann hafi fengið skóla- vist þar sem hann hyggst stunda nám að minnsta kosti eitt kennslu misseri. (Frá Flugf. Isl. og Loftl.) Ný götuaöfn í borginni A síðasta fundi borgarráðs voru bornar fram tillögur um nöfn á nokkrum nýjum götum hér í borg. Þar var samþykkt að gatan vest an og samhliða Kaplaskjólsvegi skuli lieita Meistaravellir. Bornar voru fram tillögur um heiti á tveimur götum í Örfirisey, skyldi sú nyrðri heita Eyjargata, en sú syrði Hólmsgata, og var það sam- þykkt. Næst voru teknar fyrir tvær götur austan Vatnsgeymis þvert á Iláteigsveg. Sú vestari heitir nú Vatnsholt, en sú eystri Iljálmholt. Einnig voru 6 götur í Blesugróf skirðar sem hér segir: B-gata verð ur nefnd Blesugróf, A-gata Stjörnu gróf, hluti af Vatnsveituvegi heit- ir Flugugróf. Þá yar ný gata aust- an og norðan Blesugrófar og þvert á hana nefnd Jöldugróf. Ný gata milli Blesugrófar og Flugugrófar á nú að heita Bleikargróf, og að lokum lieitir gata suður úr Flugu- gróf austan Blesugrófgar Toppu- gróf. Tillaga var einnig borin fram um að gata í vestur frá Hofsvalla- götu sunnan við Sundlaug Vestur- bæjar skuli hljóta heitið Gota- skjól, en ákvörðun í því máli var frestað. fjórða hundrað þúsund krónur að gera fossana fiskgenga. Stofnuð hefur verið veiðifélagsdeild við ána ofan Árbæjarfoss, og er for- maður hennar Sigurjón Pálsson, Galtalæk. Leitað tilboða Á fundinum var samþykkt að leita eftir tilboðum í veiðina á vatnasvæðinu. Ennfremur að æskja tilboða í byggingu fiskveganna og ræktun fisks. Lögðu fundarmenn áherzlu á, að þessum athugunum yrði hraðað sem mest. Formannsskipti Stjórnarformannsskipti urðu nú í Veiðifélagi Rangæinga. Agúst Guðmundsson, Stóra-Hofi, sem verið hefur formaður félagsins um 10 ára skeið', baðst eindregið und- an endurkjöri. Formaður var kos inn Sigurbjartur Guðjónsson, Há- varðarkoti í Þykkvabæ. Voru frá- farandi formanni þökkuð ágæt störf í þágu félagsins á liðnum árum. r IFYRSTA LAUNA- FLOKKI! ÞaS getur veriö dálítiS óvar- legt aS tala um laun fólks, og sjaldan vel þegiS af þeim, sem launin fá. Hins vegar geta far- iS saman þeir sigrar og laun, aS tíSindum þyki sæta langt út yfir alla þagmælsku. Og þessi formáli á viS Völu Kristjánsson, sem vakiö hefur mikla hrifningu fyrir leik sinn í My Fair Lady og stendur sig þar meS afbrigSum vel. Eins og fólki er kunnugt, þá hefur hún aldrei komiS á sviS áSur, en þess gætir ekkl í leik henn- ar eSa söng. ÞaS má kalla eSlilega afleiSingu þessa, aS hún mun nú vera ein af þrem hæsf launuSu „stjörnum" okk ar meS um og yfir þúsund krónur í kaup fyrir sýningu. ASrir sem fylla þennan flokk eru óperusöngvararnir Krist- inn Hallsson og GuSmundur Jónsson. ASrir listamenn hér- lendlr munu aS vísu vera launahærri þegar þeir koma fram einir, en fyrrgreind laun munu vera þau hæstu sem greidd eru, þegar listamenn taka þátt í leik- eSa óperu- sýningum.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.