Alþýðublaðið - 13.04.1920, Page 1

Alþýðublaðið - 13.04.1920, Page 1
Alþýðublaðið Grefið út af Alþýðuílokknum. 1920 Þriðjudaginn 13. apríl 81. tölubl. Alþýðublaðið «r ódýrasta, fjölbreyttasta og ibezta dagblað landsins? Kanpið það og lesið, þá getið þið aldrei án þess verið. Að norðan. Fannkyngi mikið hefir verið um alt Norðurland f vetur og ekki liefir stórhríðin undanfarið bætt 4r skák. í febrúarferð sinni lá vestanpóstur úti á Vatnsskarði og misti frá sér fylgdarmanninn, sem náði þó eftir mikla hrakninga til bygðar. Sakaði hvorugan. Áustan- ^póstur hafði um líkt leyti orðið að skilja eftir á Akureyri mikið af blaða- og bögglapósti. í Yerkamanninuni hefir und- anfarið verið að birtast mjög ítar- leg og fróðleg grein um skattfrelsi Samvinnufélaga, eftir Halldór Frið- jónsson. Yerkamannafélag Aknreyrar •varð nýlega 14 ára. Félagsmenn eru nú á 4. hundrað og hafa sjóð- eignir félagsins aukist s 1. ár um 1264,74 kr., þrátt fyrir það, þó rúmar 500 kr. hefðu verið veittar Úr sjúkrasjóði til styrktar veikum félagsmönnum. Tengdapabbi hefir verið leik- ánn í vetur á Akureyri. Róma norðanblöðin mjög meðferð leik- enda á leiknum. Dagur er nú farinn að koma út aftur á Akureyri, helmingi atærri en áður. Ritstjóri er Jónas Þorbergsson, ungur maður og vel gefinn, bróðir Jóns á Bessastöðum. Norðurland mun og bráðlega 'hlaupa af stokkunum, enn á ný, sneð auknum krafti, að því er bréf að norðan hermir. Haeli berklasjúkra á Norður- landi. Mikill áhugi er meðal manna norðanlands á því, að sett verði hið bráðasta á stofn hæli berklasjúklinga á Norðurlandi. Hefir þegar safnast allmikið fé í því skyni. Nýlega samþykti Stúd- entafólagið á Akureyri áskorun til allra lækna norðan- og austan- lands um það, að þeir beittu sér kröftuglega fyrir málinu og sendu milliþinganefndinni í berklaveikis- málinu, sem skipuð var í vetur, rökstuddar tillögur og áskoranir um stofnun hælisins. Sýslufundur í Skagafjarðarsýslu sem haldinn var í febrúar síðasti., veitti 10 þús. kr. til húsmæðra- skóla á Norðurlandi og 10 þús. kr. til brúar á vesturós Héraðsvatna. Hvað veldur? Óvenjulega marg- ar jarðir eru auglýstar í norðan- blöðunum til sölu og lausar til ábúðar. Virðist það all óviturleg ráðstöfun hjá bændum, að selja jarðir sínar nú á þessum tímum, þegar alt er svo mjög á huldu, en búskapur í tryggara lagi, þegar hyggilega er á haldið. Verður helzt að geta þess til, að geipiverð það, er jarðir hafa komist í, í seinni tíð, freisti manna til þess að selja þær. En það mun síðar sýna sig, að augnabliksgróðinn verður þeim til lítilla heilla. Þeir munu finna það, að betra hefði verið að eiga jörðina, heldur en andvirði hennar. Og ætli þeir sér að flytja til kaup túnanna, yðrast þeir fljótt þeirrar ráðsmensku. Gæzlustjóri, er Jón Stefánsson, ritstjóri, nýlega orðinn við útbú Landsbankans á Akureyri, í stað- inn fyrir Böðvar J. Bjarkan, er dvelur um þessar mundir utan- lands, til þess að kynna sér þar bankastarfsemi. Alþbl. kostar I kr. á mánuði. Þrælauppreistin. (Niðurl.) Kæra frú! Spurning yðar ber ekki aðeins vitni um að yður skorti skilning á líflnu, heldur einnig hræsni syndarans, sem ekki vill játa það á sig hrein- skilnislega, að hann hefir syndgað, þó að hann finni það innra með sér. Þér vitið, að þér gátuð ekki sloppið við að sjá augliti til auglitis, hvernig lífi fátæka bóndans var farið. Maður, sem er barinn, hlýt- ur að hefna sín, fyr eða seinna. Sá maður, sem aðrir hafa enga meðaumkun með, þekkir ekki meðaumkun. Það er augljóst. Og enn fremur: það er réttlátt,. ekk- ert annað. Skiljið mig þess vegna rétt: hið hræðilegasta er ekki það að slá, heldur hitt, að geta ekki gert annað en að slá. Hið hræði- legasta er ekki að vera án með- aumkunar, heldur hitt, að geta ekki vakið meðaumkun. Kæra frú! í Kiev kastaði hin góðlynda, rússneska þjóð, stór- verksmiðjueiganda út um glugga á húsi sínu. Sömuleiðis var kenslu- konu einni varpað niður á göt- una. En kauarífugli, sem fanst þar í búri sínu, var hlíft. Góða, látið illa yfir verki þessu! Veslings kanarífuglinn vakti nokkurs konar meðaumkun, en mönnunum var fleygt út um gluggann. Þar var samt sem áður rúm fyrir með- aumkun í hjörtum byltingarmann- anna. En sú meðaumkun beindist ekki til mannannanna, sem ekki áttu það skilið. í því er fólgið hið óttalega og sorglega. Kæra frú! Eruð þér nú alveg vissar um að þér hafið rétt til að heimta, að menn hegði sér gagn- vart yður sem mannlegri veru, þegar þér sjálfar alla æfi hafið verið án meðaumkunar með ná- unga yðar, og álitið að hann stæði ekki jafnfætis yður. Þér skrifið bréf. Þér eruð mentaðar. Þér hafið aö líkindum einnig lesið

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.